Dagur - 06.07.1989, Qupperneq 4
g .. ftUOAO - Göö t 'ííj[ .0 lugGbuímm!?.
4 - DAGUR - Fimmtudagur 6. júlí 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Heimahjúkrun og
heimilisaðstoð
Umræða um stuðningsþjónustu; heimahjúkrun og
heimilisaðstoð, hefur farið vaxandi innan vébanda
hagsmunasamtaka fatlaðra hér á landi. í byrjun júní-
mánaðar héldu Landssamtökin Þroskahjálp og
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, sameiginlega ráð-
stefnu um þessi mál í Reykjavík, og kom þar margt
athyglisvert fram.
í ályktun fundarins segir m.a. eftirfarandi: „Ljóst er,
að stórlega skortir á lagalegan grundvöll heimaþjón-
ustu fyrir fatlaða. Alþingi íslendinga hefur á þessu
vori tryggt öldruðum rétt til slíkrar þjónustu.
Brýna nauðsyn ber því til að hefja nú þegar undir-
búning að því að sett verði löggjöf sem tryggi fötluð-
um nauðsynlega liðveislu. Með því er þeim gert mögu-
legt að lifa sjálfstæðu lífi á eigin heimili og annars
staðar, þar sem þeir lifa og starfa."
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, hefur ítrekað
sent frá sér yfirlýsingar um að barátta fatlaðra sé jafn-
réttisbarátta, þ.e. barátta fyrir því að allir einstakling-
ar þjóðfélagsins njóti sömu mannréttinda. Þessi krafa
felur í sér að almenningur og fyrirtæki þurfi að breyta
viðhorfi sínu til fatlaðra og viðurkenna vandann.
Sú tíð er sem betur fer liðin þegar flestum þótti sjálf-
sagt að setja jafnaðarmerki milli líkamlegrar fötlunar
og andlegrar.
Theodór heitinn Jónsson, fyrrverandi formaður
landssambands Sjálfsbjargar, sagði eitt sinn í viðtali
að hreyfihamlaðir nytu mests skilnings af öllum hóp-
um fatlaðra í þjóðfélagi nútímans. Þó skortir enn mikið
á að sá skilningur sé sýndur í verki af því opinbera, og
mikið verk er enn óunnið á vettvangi stuðningsþjón-
ustu, bæði hvað snertir aldraða og fatlaða.
Bæjarfélög á borð við Akureyri þurfa að mörgu að
hyggja í fjárhagslegum efnum, og fulla aðgæslu verð-
ur að hafa í stjórn peningamála hins opinbera. Efling
heimaþjónustu og heimahjúkrunar er þó með brýn-
ustu verkefnum í félagsmálageiranum, einkum þegar
tillit er tekið til þeirrar stefnu að gera aldraða fólkinu
kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði, utan stofn-
ana.
Hörmulegt er til þess að vita þegar mikið fatlað fólk
þarf að yfirgefa heimabyggðir sínar vegna þess að
þjónusta fyrir það er ekki fyrir hendi, eða þá of lítil.
Þær raddir hafa heyrst að á Akureyri væru fáir mikið
líkamlega fatlaðir einstaklingar, aðeins nokkrir menn
bundnir við hjólastóla, og því ekki um að ræða mikinn
fjölda fólks í þeirri aðstöðu að geta ekki bjargað sér
sjálft inni á eigin heimilum. Sannleikurinn er sá að
dæmi eru um að fatlað fólk hafi þurft að yfirgefa bæinn
til að fá viðeigandi þjónustu, í Sjálfsbjargarhúsinu eða
öðrum stofnunum.
Hér er um byggðamál að ræða, byggðamál í þágu
jafnréttis fatlaðra. Akureyringar hafa tækifæri til að
ganga fram fyrir skjöldu í þessum efnum og reyna að
koma upp fleiri sambýlum og efla aðra þjónustu fyrir
fatlaða. Það er hægt ef viljinn er fyrir hendi - og ófatl-
aðir ættu að hafa hugfast að þótt þeir séu heilbrigðir í
dag veit enginn hvað morgundagurinn ber í skauti
sínu. Slysin gera ekki boð á undan sér. EHB
H
kvikmyndarýni
Umsjón: Jón Hjaltason
Borgarbío s\nir: Tvíbura
(Dcad Ringcrs).
Leikstjóri:David Croncnberg
Höfundur hundrits:Duvid Croncnberg
og Norman Snider.
Hcistu lcikcndur: Jercmy Irons
og Gcncvieve Bujold.
The Kank Organisation 1988.
Þeir eru eineggja tvíburar. Líkir
um alla hluti, eða næstum því, og
enginn þekkir þá í sundur. Þegar
bræðurnir vaxa úr grasi gerast
þeir læknar og nokkurskonar
frjótæknar, eins og það myndi
kallast til sveita. Þeir sérhæfa sig
í því að hjálpa konum sem þjást
Tvíburarnir er ein af þessum örfáu myndum sem er góð án þess að geta kall-
ast skemmtileg. Hún er magnþrungin og nálgast að vera hrollvekja fyrir sál-
ina. Undir lokin nær hún raunar því marki mjög vel. Annan eins leik og Jer-
emy Irons sýnir í þessari mynd hef ég aldrei séð fyrri.
... opt verðr kvalræði af konum
af ófrjósemi. Þeir búa saman og
deila öllu, jafnt kvenfólki sem
mat.
Þar kemur að bræðurnir kynn-
ast lcikkonunni Claire Niveau. í
fyrstu er hún aðeins athyglisvert
sjúkdómstilfelli og rekkjunautur
en málin taka alvarlegri stefnu
þegar annar bræðranna og
leikkonan fella hugi saman. Um
leið kemur brestur í samband
tvíburanna sem í raun og veru er
óhugsandi að þeir geti lifað við.
Ósýnilegir þræðir tengja þá sam-
an sem væru þeir síamstvíburar
samvaxnirá bringunni. Þrátt fyrir
það eru tvíburarnir ákaflega ólík-
ir til sálarinnar. Sá framgjarnari
þeirra, Elliot, er djarfur kvenna-
maður, liðugur ræðumaður og
ágætur penni. Raunar er látið í
það skína að hann sé hálfgerður
skíthæll en framkoma hans í
myndinni staðfestir ekki þann
kvitt nema þá þegar kvenmenn
eiga í hlut og þá er hinn bróðir-
inn, Beverly, undir sömu sökina
seldur. Varla er heldur hægt að
taka mark á þeirri ásökun að
Elliot byggi frama sinn á vinnu
Beverlys. Um er að ræða sam-
vinnu og ekkert annað. Sú við-
leitni handritshöfunda að draga
upp mynd af einum vondum og
öðrum góðum missir því marks.
Beverly er viðkvæmi bróðir-
inn, hlédrægur og vinnusamur.
Hann er sá sem verður ástfanginn
og fær ekki risið undir tilvistar-
þunganum. Og enn liggur Elliot
undir ámæli. Gefið er í skyn að
hann hafi bróður sinn í taumi og
neiti að sleppa. Hið rétta er að
andlegir þræðir tengja bræðurna
svo sterkum böndum að hvorug-
ur þeirra ræður við að leysa sig
frá hinum. Beverly sér ekki nema
eina útgönguleið, flótta. Hann
byrjar að éta pillur eins og bíófari
poppkorn og fyrr en varir er hann
orðinn eiturlyfjasjúklingur. Þeg-
ar Elliot reynir að hjálpa honum
fellur hann líka fyrir eitrinu.
Tvíburarnir er óvenjulega
mögnuð mynd en varla mjög
skemmtileg. Það liggur einhver
óhugnaður í loftinu sem magnast
mjög eftir þvf sem á líður. Þessi
óhugnaður er raunar mjög vel
skilgreinanlegur. Hið nána sam-
band bræðranna virðist óslítan-
legt og þeir dæmdir til að lifa
saman alla ævi. Þeir una glaðir
við þessa staðreynd þar til Claire
kemur í spilið. Þá kviknar með
Beverly ósk um að losna úr þess-
ari andlegu spennitreyju. En
hann er læknir á líkamann en
ekki sálina og með honum byrjar
að vaxa þráhyggja um að þeir
bræður séu í raun fastir saman á
kjöti og beini. Beverly ræður við
að skera í hold en sálin er honum
gáta. Þetta er annar angi óhugn-
aöarins. Hinn er sú hugmynd
Elliots að örlög þeirra bræðra séu
svo nátengd að deyi annar hljóti
hinn að fylgja á eftir yfir móðuna
miklu.
Enski leikarinn Jeremy Irons
(sem lék til dæmis jesúítaprestinn
í Missiorí) fer með hlutverk tví-
buranna Elliots og Beverly
Mantle. Þáttur hans í þessari
kvikmynd er mikill og leikurinn
svo stórkostlegur að í miðju bíói
er maður byrjaður að þekkja
bræðurna í sundur. Og þegar
tjaldið fellur flýgur manni í hug
að Jeremy Irons var ekki einu
sinni tilnefndur til óskarsverð-
launa fyrir þennan leik sinn. Mik-
ið skelfing hljóta þeir að hafa
sýnt góða takta Dustin Hoffman
og þeir aðrir er börðust um þessi
verðlaun í mars síðastliðnum.
Astand fjallvega
Conditian ofmountain tracks
5um eru lokatar aliri E|||||| Tracks in tho r.ríaoaa aroas i
thöö veröur auglyst att imttrc unt:l lurthv/ :,ok
Vegagerö ríkisins «...
** fubiic Rtrtw Admini ttration
Náttúruverndarróö
Nature Conservattan Cpuncil
Ástand íjallvega
Kortid hér að ofan er gefið út í samvinnu Vegagerðar ríkisins og Náttúruverndarráðs. Það sýnir ástand hinna ýmsu
fjallvega landsins þann 6. júlí sl. Vcgir á skyggðum svæðum eru lokaðir allri umfcrð þar til annað verður auglýst.
Nýtt kort verður gefið út 13. júlí nk.