Dagur - 14.07.1989, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 14. jýlí 1989
Félag verslunar-
og skrifstofufólks, Akureyri
Slmi 21635 - Skipagötu 14
Odýr í)ölskyldiiferð
Fyrirhuguð er helgarferð á vegum félagsins vest-
ur í Búðardal dagana 29.-30. júlí nk.
Gist verður að Laugum í Sælingsdal.
Skoðaðir verða ýmsir staðir, m.a. Blönduvirkjun.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, sími 21635.
Tilkynnið þátttöku í síðasta lagi fimmtudaginn 20.
júlí.
Félag verslunar og skrifstofufólks
Akureyri og nágrenni.
Til sölu verslun
Verslun með kvöldsölu (sjoppa, söluturn) á mjög
góðum stað.
Miklir möguleikar fyrir duglegan aðila.
Ákveðin sala vegna mjög sérstakra ástæðna.
Viðráðanlegt verð.
Þeir sem hafa áhuga leggi nafn, heimilisfang og
símanúmer inn á afgreiðslu Dags fyrir 20. júlí merkt
Algjör trúnaður.
L — Á
Einingarfélagar
athugið!
Örfá sæti laus í helgarferð félagsins í Herðubreiðar-
lindir, Öskju og Kverkfjöll dagana 11.-13. ágúst n.k.,
sem getið var um í síðasta Einingarblaði.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, sími 23503.
Ferðanefnd Einingar.
Ullarmóttakan á Akureyri verður lokuð frá og
með 20. júlí til og með 23. ágúst.
✓
Álafoss hf., Akureyri.
Föstudagur kl.19:55
28. LEIKVIKA- 14. júlí 1989 1 X 2
Leikur 1 K.R. - Valur10
Leikur 2 Selfoss - Tindastóll2d
Leikur 3 Stjarnan - Leiftur2d
Leikur 4 Breiðablik - Víðir2d
Leikur 5 Einherji - Í.B.V. 2d
Leikur 6 Hveragerði - LeiknirR.30
Leikur 7 Þróttur R. - Víkverji M
Leikur 8 Afturelding - Grótta 30
Leikur 9 Valur Rf. - Þróttur N. 3(1
Leikur 10 K.S. - Dalvík 30
Leikur 11 B. ísafjarðar - ReynirS. 3d
Leikur 12 Reynir Á. - Kormákur3d
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002
Yfirferö á laugardag um kl. 16:00
Ath. Þrefaidur pottur!!
Sigurborg Daðadóttir, dýralæknir, tók egg úr
Hörpu á Gnúpufelli og kom því fyrir í fóstru þar á bæ:
Sláturhús - raimsóknar-
50 prósent líkur
Sigurborg fékk styrk úr Vísinda-
sjóði til að rannsaka hvernig
Galloway-kýr og íslenskar kýr
bregðast við PMSG-hormóna-
meðferð. Til þessa hefur hún
skolað 18 kýr en þrisvar flutt egg
á milli kúa. Harpá frá Gnúpufelli
er sú þriðja en fyrir skömmu
flutti Sigurborg egg milli kúa á
Möðruvöllum. Líkurnar á því að
fóstra Hörpu haldi eru áð sögn
Sigurborgar um 50 prósent en
árangur af aðgeröinni mun vænt-
anlega koma í Ijós eftir u.þ.b.
viku.
„Það er alltaf komið fyrir einu
eggi í fóstrunni því tilgangurinn
með aðgerðinni er að fá afkvæmi
sem á að nota í ræktun. Ef að
tveim eggjum er komið fyrir í
fóstrunni og útkoman verður
naut og kvíga er víst að kvígan
verður ófrjó. Hins vegar eru oft
sett tvö egg í kvígur af holdakyni
ef fyrirfram er ákveðið að slátra
kálfununi.“
Þrír „fósturkálfar“ fædst
Vitað er um þrjá kálfa hér á landi
sem þroskast hafa í kviði fóstru.
Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir,
hefur gert slíka aðgerð í Laugar-
dælum, í fyrra skiptið einn síns
stofa - eggjasala
- næsta skref í þróuninni?
Er mögulegt aö margfalda
fjölda afkomenda bestu mjólk-
urkúa þessa lands? Svarið viö
þessu er já, allt bendir til að
það sé mögulegt. Alkunna er
að bændur vilja fá kvígukálfa
undan sínum bestu mjólkur-
kúm í von um aö þeir verði
jafngóðar mjólkurkýr síðar
meir. Náttúran er fallvölt og
því getur brugðið til beggja
vona með kvígurnar. Alla
jafna eiga kýr innan við 10
kálfa á sínu lífsskeiði og ætla
verður að líkurnar á að kvígu-
kálfur fæðist séu um 50%.
Læknavísindum hefur fleygt
fram og erlendis hefur það ver-
ið tíðkað um árabil að flytja
egg úr móðurkú yfir í svokall-
aðar fóstrur sem síðan ganga
með kálfa móðurkýrinnar.
Einu eggi er komið fyrir í
hverri fóstru og ef vel tekst til
getur allt að tugur alsystkina
fæðst á sama tíma. Móðurkýr-
in ber að vísu ekki nema einum
kálfi en fóstrur ganga með hina
níu. Flutningur eggja gerir
kleift að bæta ræktun í naut-
gripastofni verulega og þar
með er tilganginum náð.
Eggjaflutningur úr móðurkú í
fóstru liefur ekki verið mikið
stundaður hér á landi. Aðstaða
til þess arna hefur enda ekki ver-
ið fyrir hendi. í tilraunafjósinu á
Möðruvöllum er nú loks búið að
koma upp aðstöðu sem gerir
þetta kleift.
Þangað lagði blaðamaður leið
sína á dögunum til að fylgjast
með þegar Sigurborg Daðadóttir,
dýralæknir og framkvæmdastjóri
Einangrunarstöðvarinnar í Hrís-
ey, og Valgerður Guðjónsdóttir,
aðstoðarmaður hennar, tóku egg
úr Hörpu á Gnúpufelli í Eyja-
firði. Tilgangurinn var að koma
eggi eða eggjum fyrir í legi fóstru
eða fóstra á Gnúpufelli.
Hormónameðferð
Aðgerð, eins og Sigurborg fram-
kvæmdi á Möðruvöllum sl.
föstudag, gengur út á það að
Útbúinn hefur verið veglegur bás á
aðgerðir.
velja einhverja góða móðurkú,
sem mikið er spunnið í, til að
taka egg úr. Hún eru meðhöndl-
uö með hormóni sem heitir
PMSG, en það er sama hormónið
og unnið er úr fylfullum hryssum.
Þetta hormón veldur því að fleiri
egghú myndast á eggjastokknum
en venjulega. Hormónagjöfin
stuðlar að egglosi. Fjöldi eggja
getur verið frá einu og upp í tutt-
ugu til þrjátíu. Erlendar rann-
sóknir hafa sýnt að um þriðjung-
ur kúa svarar ekki hormónagjöf
en Sigurborg vinnur nú að rann-
sókn á svörun íslenskra kúa. Of
snemmt er að segja til um hvort
marktækur munur er á íslenskum
og erlendum kúm í þessu tilliti.
Kýrin er því næst sædd á
venjulegan hátt og er að sögn
Sigurborgar nauðsyniegt að sæða
hana í tvígang sökum þess að
eggin losna eitt af öðru. Eggin
Möðruvöllum sem auðveldar slíkar
frjóvgast í eggjaleiðara og berast
þaðan í tvö leghorn. Þar eru þau
til sjöunda dags frá sæðingu, er
eggin eru skoluð út. Sigurborg
segir að á þessum tímapunkti séu
eggin orðin nægilega stór og
harðgerð til að þola hnjask.
Mismunandi er hversu mörg
egg lifa af flutning en Sigurborg
segir að telja verði það gott ef 5-6
egg nást heil og ósködduð. Eggin
eru því næst sett í leg fóstra og er
leitast við að koma þeim fyrir á
álíka stað í fóstrunni og þau voru
numin á brott úr móðurkúnni.
Mikilvægt er að móðurkýrin og
fóstran séu samstilltar, þ.e.a.s.
að þær séu báðar yxna á sama
degi. Sigurborg segir að líða megi
uni sólarhringur frá því að egg er
tekið úr móðurkú og þar til því er
komið fyrir í fóstru.
Sigurborg notaði ná-
lægt einum lítra af efn-
inu PBS til að skola
út frjóvguðum eggjum
Hörpu. Ennig notaði
hún næringu sem sam-
anstendur af marg-
breytilegum söltum og
glúkosa.