Dagur - 14.07.1989, Page 10

Dagur - 14.07.1989, Page 10
10 - DAGUR - Föstudagur 14. júlí 1989 y fþrótfir | Glæsflegur Þórssigur - baráttuneistinn kviknaði á Skaganum Það er ekki hægt að segja ann- að en Þórsarar hafí komið heldur betur á óvart í gærkvöld þegar þeir unnu sætan sigur, 2-1, á Skagamönnum í Ijóna- gryfju þeirra á Skipaskaga. Það var Ijóst frá fyrstu mínútu að Þórsarar ætluðu að selja sig dýrt og uppskeran var eftir því. Með þessum kærkomna sigri náðu Þórsarar að lyfta sér af botni deildarinnar og hafa nú sent Fylkismenn, Víkinga og Keflvíkinga niður fyrir sig. Akurnesingar byrjuðu með miklum látum í leiknum í gær- kvöld og ætluðu greinilega að „rúlla" léttilega yfir gestina. Það var því eins og köld vatnsgusa framan í leikmenn og áhorfendur á Skaganum þegar Bojan Tan- evskí, annar júgóslavinn í liði Þórs, fékk boltann óvænt fyrir utan vítateig í fyrstu sókn Þórs- ara. Tanevskí spyrnti viðstöðu- lausu þrumuskoti á markið og boltinn söng í netinu. Eftir mark- ið tók við leikkafli sem einkennd- ist af þófi og baráttu á báða bóga. Þórsarar bökkuðu og þéttu vörn- ina og reyndu síðan skyndisókn- ir. Á 25 mínútu kom annað mark Þórsara. Hlynur Birgisson sendi stungusendingu á Kristján Krist- jánsson sem þaut eins og elding upp kantinn og gaf góða send- ingu fyrir markið á Hlyn sem skoraði annað markið. Skaga- menn mótmæltu og töldu að Kristján hefði verið rangstæður fyrir innan vörnina er hann tók við sendingu Hlyns. Dómarinn réði ferðinni að venju og þar við sat, Þórsarar juku forystuna í 2-0. Skagamenn hertu sóknina eftir seinna mark Þórs og á 30. mínútu fékk Alexender Högnason dauðafæri án þess að hitta ntarkið. Hann bætti þó fyrir mistök sín á 40. mínútu með því að minnka muninn í 2-1 eftirgóð- an undirbúning Arnars Gunn- laugssonar. í síðari hálfleik pressuðu Skagamenn mjög stíft en Þór átti inn á milli hættulegar skyndi- sóknir. Vörnin Þórsara vargeysi- lega sterk með Luca Kostic að venju sem besta mann. Síðustu tíu mínútur leiksins var stór- skotahríð að marki Þórs en vörn- in var þétt fyrir og hélt hreinu. Ekki má gleynta þætti Baldvins markvaröar sem varði stórkost- lega. Bestu menn Þórs í leiknunt voru Luca Kostic, Balvin Guðm- undsson og Kristján Kristjáns- son. Frískastir í liði Skagantanna voru Guðbjörn Tryggvason og Karl Þórðarson. ES/óþh íþróttir helgarinnar: Keppt í mörg'um greiniim Fjölmargt veröur um að vera á vettvangi íþróttanna um helg- ina. Á Sauðárkróki verða kylf- ingar á ferð og flugi á opnu móti, á Akureyri taka billjard- spilarar þátt í Coca-Cola móti og á Pollinum við Akureyri ætla bestu seglbrcttamcnn landsins að spreyta sig í tveggja daga keppni, svoköll- uðu Pepsimóti sem haldið er af siglingaklúbbnum Nökkva og Seglbrettasambandi íslands. Á sunnudaginn verður haldin keppni í þríþraut á Akureyri. Þetta er annað árið í röð sem slík keppni er haldin og verða kepp- endur nú unt 20 talsins. Keppnin samanstendur af 750 m sundi, 20 km hjólreiðum og 5 km hlaupi. í fjórðu deildinni í knattspyrnu verður ein umferð og ber þar hæst leik TBA og HSÞ-b. Þá munu Einherjamenn taka á móti ÍBV á Vopnafjarðarvelli á morg- un í 2. deildinni og í kvöld mæt- ast KS og Dalvíkingar á heima- velli þeirra síðarnefndu. JÓH 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Páll náði níu réttum „Hvað segirðu? Ég held bara að maður verði að fara að fá sér seðil," var svar Páls Leóssonar þegar honum var tilkynnt að hann hefði lagt Jón Stefánsson að velli í getraunaleiknum í síð- ustu viku og fengið 9 rétta. Jón var því sleginn út að þessu sinni en hann fékk 5 rétta í síðustu viku. Páll hefur valið sér mólherja þessarar viku og valdi Steingrím Björnsson, deildarstjóra í Járn- og glervörudeild KEA. Þeir félagarnir eru á svipaðri skoðun varðandi leiki helgarinn- ar. Þeir veðja eins á 11 af 12 leikjum seðilsins, eini leikurinn sem þeir eru ósammála um er leikur Víðis og Breiðabliks. Seðill vikunnar er með sjö leikjum úr 3. deild, tveimur leikjum úr 2. deild og einum leik úr 1. deild. Að lokum má benda „tippurum" á að potturinn er þrefaldur að þessu sinni. JÓH Páll: KR-Valur X Selfoss-Tindastóll Stjarnan-Leiftur Breiðablik-Víðir Einherji-ÍBV Hveragerði-Leiknir Þróttur R.-Víkverji Afturelding-Grótta Valur Reyð.-Þróttur Nes. KS-Dalvík BÍ-Reynir Sandg. Reynir Á.-Kormákur. Steingrímur: KR-Valur X Selfoss-Tindastóll 1 Stjarnan-Leiftur 1 Breiðablik-Víðir 1 Einherji-ÍBV 2 Hveragerði-Leiknir 1 Þróttur R.-Víkverji 1 Afturelding-Grótta 2 Valur Reyð.-Þróttur Nes. 2 KS-Dalvík 1 BÍ-Reynir Sandg. 1 Reynir Á.-Kormákur. 1 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 1 1 2 2 1 1 2 2 1 1 1 Þorvaldur Örlygsson á hér fastan skalla að marki eftir aukaspyrnu Ormars. Þessi bolti fór naumlega framhjá mark- ÍflU. Mynd: KL Knattspyrna -1. deild: KA í toppbaráttuna - sigraði ÍBK sanngjamt í gærkvöld, 2:1 KA dcilir nú þriðja sætinu í 1. deild íslandsniótsins í knatt- spyrnu með KR eftir sann- gjarnan sigur á IBK á Akur- eyrarvelli í gærkvöld. KA var sterkari aðilinn nær allan leik- inn, liðið barðist ágætlega framan af og náði tveggja marka forrystu en í síðari hálf- leiknum lifnaði aðeins yfír annars slöku liði IBK og náðu Keflvíkingarnir að minnka muninn í eitt mark en ógnuðu sigri KA hins vegar aldrei. Framan af leiknum gerðist fátt markvert en greinilegt var að KA-menn ætluðu sér ekkert ann- að en sigur. Jón Grétar Jónsson fékk góða sendingu inn fyrir vörn ÍBK á 15. mínútu, lék að marki en varnarmaður ÍBK stjakaði við honum og síðan felldi Þorsteinn Bjarnason hann í vítateignum og Guðmundur Haraldsson dæmdi vítaspyrnu. Úr henni skoraði Þorvaldur Örlygsson örugglega. Skömmu síðar komst Oli Þór Magnússon í mjög gott færi við KA-markið, skaut af stuttu færi á markið en Haukur Bragason náði á ótrúlegan hátt að slá boltann upp í slána og þaðan út. Næstu 10. mínúturnar voru sóknir KA þungar en ÍBK varðist ágætlega. Þó sofnaði vörnin á 26. mínútu þegar bræðurnir Ormarr og Þor- valdur Örlygssynir spiluðu sig laglega í gegn og Ormarr sem átti upphafið að sókninni fékk bolt- ann til baka frá bróður sínum, renndi sér á hann og sendi í fjær- hornið. Ekki er hægt að segja að fleiri hafi færin orðið í fyrri hálfleikn- um en KA-hafði sýnt mun meiri styrk en slakt lið ÍBK. Þegar fram í síðari hálfleikinn kom dró KA-liðið sig aftur á völlinn og við það fékk ÍBK meira svigrútn en ráðleysislegt spil þeirra skilaði litlum sem engum árangri. Þó nýttu þeir eina færi sitt í leiknum þegar Kjartan Einarsson var frír á vítateig á 65. mín og skaut föstu skoti alveg út við stöng. Eftir markið reyndi ÍBK mjög að sækja en KA gat varist vel og beitti hættulegum skyndisóknum. Þó viljinn væri fyrir hendi hjá sunnanmönnum að jafna þá var getan ekki í samræmi við það og sigur KA því örugglega í höfn. Framlínumenn KA, þeir Jón Grétar og Anthony Karl, áttu ágætan leik en enginn stóð upp úr flötu liði ÍBK. Guðntundur Haraldsson, dóm- ari leiksins, hefur eflaust átt betri dag. JÓH íslandsmótið 2.deild í gærkvöld á Húsavík: Völsungar lyftu sér upp úr botnsætinu Völsungar bættu heldur betur sína stöðu í gærkvöld í harðri baráttu í 2. deildinni í knatt- spyrnu. Þeir unnu nauinan en þó öruggan sigur á ÍR á Húsa- vík, skoruðu tvö mörk á móti einu marki ÍR-inga. Með þess- um sigri hafa Völsungar lyft sér upp af botninum og eru nú í fjórða neðsta sæti í deildinni. ÍR-ingar sitja hins vegar eftir á botni annarrar deildar. Völsungar fengu sannkallaða óskabyrjun í leiknum í gærkvöld. Hörður Benónýsson, skoraði gott mark nreö skalla strax á 5 mínútu eftir hreint stórkostlega fyrirgjöf Kristjáns Olgeirssonar. Næstu mínútur leiksins ein- kenndust af baráttu beggja liða. Þau sóttu á víxl án þess þó að skapa sér umtalsverð marktæki- færi. Að vísu ber að geta urn gott marktækifæri ÍR-inga á 10 mín- útu en gott skot fór rétt yfir markið. Á 25. mínútu náði Ásmundur Arnarson að bæta við öðru marki Völsunga eftir góðan undirbún- ing Sigurgeirs Stefánssonar. Adam var ekki lengi í Paradís og ÍR-ingar réttu úr kútnurn á 30. mínútu með marki Jóns Bjarna- sonar. Völsungsvörnin var þarna mjög illa á verði og gat Jón athafnað sig vel áður en hann lét skotið ríða af á markteig. Skömmu síðar áttu Tryggvi Gunnarsson ÍR-ingur og Kristján Olgeirsson góð tækifæri en mar- kverðir beggja liða voru vel á verði. Síðari hálfleikur einkenndist af miðjuþófi og voru ÍR-ingar ívið meira með boltann. Völs- ungsvörnin vöröust vel og tókst að halda nrarkinu hreinu. Af hálfu Völsunga var lítið um marktækifæri í síðari hálfleik. Þeir skoruðu að vísu eitt mark en það var dænrt af vegna rang- stöðu. Bestur í liði Völsungs í gær- kvöld var Hörður Benónýsson en Tryggvi Gunnarsson bar af í Iiði ÍR. HJ/óþh Staðan 1. deild 2. deild Valur 8 5-1-2 9: 3 16 Víðir 7 5-2-0 11: 5 17 Fram 9 5-1-3 12: 8 16 Stjarnan 7 5-1-1 20: 9 16 KA 9 4-3-2 13: 9 15 ÍBV 7 5-0-2 18:11 15 FH 9 4-3-2 13: 9 15 Breiðablik 7 3-1-3 16:11 10 KR 8 4-2-2 14:11 14 Selfoss 7 3-0-4 6:11 9 ÍA 9 4-1-4 11:12 13 Leiftur 7 2-3-2 5: 7 9 Þór 9 2-3-4 9:13 9 Völsungur 8 2-2-4 14:18 8 ÍBK 9 2-3-4 9:15 9 ÍR 8 2-1-5 7:12 7 Víkingur 9 2-2-5 13:11 8 Einherji 7 2-1-4 9:18 7 Fylkir 9 2-1-6 7:18 7 Tindastóll 7 1-1-5 7:12 4

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.