Dagur - 04.08.1989, Blaðsíða 1
Venjulegir og y. demantsskornir g trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs
GULLSMKMR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI
Laganna verðir í S.-Ping. í viðbragðsstöðu:
Hafa auga með ölvun,
ljósum og bílbeltum
- búist við Qölda tjalda í Vaglaskógi
Lögreglan á Húsavík telur að
helgin verði fremur róleg í
umdæmi hennar en þó megi
búast við töluverðri umferð.
Engin skipulögð útihátíð er í
Suður-Þingeyjarsýslu en lög-
reglan telur að eins og mörg
undanfarin ár verði fjöldi
tjalda í Vaglaskógi.
Dansleikir eru skipulagðir í
félagsheimilinu Ýdölum og
Skjólbrekku í Mývatnssveit og
má þar fastlega búast við fjöl-
menni. Löggæsla við bæði þessi
hús verður efld og séð til þess að
menn haldi sig á mottunni. Þá
verður lögreglan mikið á ferðinni
og fylgist með því að vegfarendur
fari eftir settum reglum í umferð-
inni.
í gær þegar Dagur náði tali af
lögreglunni á Húsavík var hún í
eftirlitsferð í Köldukinn. Hreið-
ar Hreiðarsson, lögreglumaður,
kvað umferðina ekki meiri en á
venjulegunr fimmtudegi, senr
benti til að.mcnn færu ekki að
hugsa sér til hreyfings fyrr en í
dag. Hann sagði að lögreglan
myndi leggja mikla áherslu á það
um helgina að menn hefðu öku-
Ijósin kveikt og bílbeltin spennt.
„Við búumst við mikilli umferð
um helgina bæði á þessu svæði og
út af því. Greinilegt er að
straumur fólks mun liggja vestur
í Húnaver. Þá verður örugglega
mikið að gera í kringum helstu
dansleikjastaðina." óþh
/ /
Undanfarna daga hefur veriö unnið viö þéttingu á þaki íþróttaliallarinnar á Akureyri og mun því verki Ijúka í dag.
Mynd: KL
Ingjaldur Arnþórsson ráðgjafi:
55
SAA-N er annað og meira
en stökkpallur á Voginn“
- Norðlendingar virðast ekki alltaf átta sig á þeirri þjónustu
sem býðst á Akureyri í áfengismálum
Mikil og vaxandi aðsókn er að
Vogi, sjúkrastofnun SAÁ.
Ingjaldur Arnþórsson, ráðgjafi
SAÁ- N. á Akureyri, segir að
þörfin fyrir aðstoð hafi greini-
lega aukist mikið í kjölfar þess
að bjórinn var gefínn frjáls 1.
mars, og langir biðlistar væru
eftir áfengismeðferð.
Að sögn Ingjalds er ekki um
það að ræða að einhver tjltekinn
hópur fólks, t.d. þeir sem hafa
áður farið í meðferð, þurfi frem-
ur á hjálp að halda en aðrir. „Ég
tel að bjórinn hafi flýtt fyrir
ógæfuþróun í áfengismálum hjá
fjölda fólks. Margir þeirra sem
hafa „falliö“ hefðu sjálfsagt gert
það samt sem áöur, burtséð frá
bjórnum, en hann hefur fyrst og
frcmst flýtt fyrir þeirri þróun að
Byggðastofnun samþykkir 20 milljóna styrk til fóðurstöðva:
helgardrykkjumaðurinn veröur
dagdrykkjumaður sem leitar sér
aðstoðar. Það hafa alltaf verið
ákveðnar sveiflur í áfengismeð-
ferðum eftir árstíðum, með topp-
um á vorin og haustin og minna
álagi á sumrin, en nú er ekki um
ncitt slíkt að ræða, það er stööug
uppsveifla allt þetta ár, frá því í
mars,“ sagði Ingjaldur.
Það veit engiim nú hvað er
skynsamlegast eftir 31. okt.
- segir Ólafur P. Pórðarson, stjórnarmaður í Byggðastofnun
Stjórn Byggðastofnunar ákvað
á fundi sínum 2. ágúst sl. að
heimila Guðmundi Malmquist,
forstjóra stofnunarinnar, að
greiða starfandi fóðurstöðvum
samtals 20 milljóna króna
styrk vegna fóðurframleiðslu á
tímabilinu 1. ágúst til 31. októ-
ber 1989. Miðað er við að
greiða stöðvunum styrk á hvert
framleitt og selt kíló fóðurs
sem gerir þeim kleift að selja
bændum og laxeldisfyrirtækj-
um fóður á lægra verði.
Stjórn Byggðastofnunar sam-
þykkti ennfremur á fundi sínum
sl. miðvikudag að fela forstjóra
„að fylgjast sérstaklega með
þeim fóðurstöðvum sem kunna
að lenda í sérstökum erfiðleikum
á þessu ári,“ eins og það er
orðað. Komi til gjaldþrota fóður-
stöðva er heimilt að lána nýjum
rekstraraðilum allt að 5 milljónir
króna í skammtímalán til að
tryggja afhendingu fóðurs til
bænda.
„Sannleikurinn er sá að með
þessu er verið að taka ákveðið
skref vegna þess einfaldlega að
það getur enginn svarað því nú
hvað skynsamlegast sé að gera
eftir 31. október. Það er vitað að
í Danmörku hafa fjölmörg loð-
dýrabú farið á hausinn og spurn-
ingin er hvort dönsk stjórnvöld
koma þeim til hjálpar. Verði það
niðurstaðan má telja að við séum
búnir að vera. Ef stjórnvöld í
Danmörku grípa ekki í taumana
og láta skerðingu eiga sér stað,
þá held ég að sé möguleiki hér á
landi að þrauka. Vafalaust verð-
ur því ekki bjargað að einhverjir
muni hætta búskap en engu að
síður myndi greinin Iifa,“ segir
Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður
og einn stjórnarmanna í Byggða-
stofnun.
Ekki liggur fyrir um styrkupp-
hæð á hvert kíló fóðurs. Þó er
ákveðið að styrkur á kílóið verð-
ur jafnhár hjá öllum fóðurstöðv-
um í landinu.
Þorsteinn Birgisson, fram-
kvæmdastjóri fóðurstöðvarinnar
Melrakka á Sauðárkróki, sagði í
samtali við Dag að þessar
aðgerðir bæru keim af tímabund-
inni lækningu þangað til að
Alþingi hafi fjallað unt vanda
loðdýraæktarinnar í haust.
„Þetta er greinilega beinn styrkur
til fóðurstöðvanna en skuldir
bænda við þær breytast ekkert
með þessu.“
Hann sagði að í hönd færi
helsti framleiðslutími ársins á
fóðri og í hverri viku ykist fóður-
framleiðslan um nálægt 5
prósent. í júlí keyrði Melrakki út
urn 320 tonnum af fóðri til bænda
í Skagafirði og Húnaþingi og ætla
má að því til viðbótar hafi bænd-
ur í nágrenni Sauðárkróks sótt
um 70 tonn til stöðvarinnar.
Framleiðslan í júlí var því nálægt
400 tonnum. I sama mánuði í
fyrra voru framleidd 510 tonn af
fóðri hjá Melrakka. Framleiðslan
í júlí nam unt þriðjungi af mögu-
legum afköstum stöðvarinnar.
óþh
Á Akureyri er boðið upp á
ýmis meðferðarúrræði á vegum
SÁÁ- N. Ingjaldur benti á að
margir þeir sem ættu í áfeng-
isvandræðum gerðu sér ekki
grein fyrir þeim möguleikum sem
bjóðast á þessu sviði í bænum.
„Það þurfa alls ekki allir að fara í
meðferð suður á Vog. Göngu-
deildarþjónusta, eins og þriggja
vikna stuðningsprógramm, kem-
ur fólki sem hefur farið í meðferð
áður, t.d. innan síðustu tveggja
ára, yfirleitt mjög vcl og það á
upp til hópa auðvelt með nýta sér
slíkt. Svo er alltaf eitthvað um að
fólk notfæri sér eingöngu það
sem býðst hér fyrir norðan og fari
ekki meðferðarleiðina á Vogi.
Því hefur yfirleitt gengið mjög
vel,“ sagði hann.
Ingjaldur sagði að of algengt
væri að fólk liti á SÁÁ- N. ein-
göngu sem stökkpall suður á
Vog. Á Akureyri væri þó boðið
upp á ýmislegt sem ekki hefði
gefið lakari árangur, t.d. stuðn-
ingsprógrammið, fræðslunám-
skeið bæði fyrir aðstandendur og
alkóhólista, eftirmeðferðarstuðn-
ing fyrir „víkinga" o.s.frv. EHB