Dagur - 04.08.1989, Blaðsíða 5
Föstudagur 4. ágúst 1989 - DAGUR - 5
Eyjaflarðará:
„Sflungurinn rótast upp
í ána þessa dagana“
„Silungurinn er að rótast upp í
ána þessa dagana. Hann geng-
ur upp í árnar í torfum á nótt-
unni þannig að þetta er allt að
lifna,“ segir Einar Long,
aðspurður um veiðina í Eyja-
fjarðará. Fyrsti laxinn er nú
kominn úr Eyjafjarðará og
reyndist hann vera 14 punda.
Jafnframt er ágæt bleikjuveiði
í ánni og sem dæmi um það má
nefna að veiðimaður setti í 16
bleikjur fyrir hádegi í fyrradag
og náði 10 þeirra á land.
Litláin slakari í ár
í Litlá í Kelduhverfi er veiði slak-
ari nú en í fyrrasumar. Sam-
kvæmt upplýsingum Margrétar
Þórarinsdóttur veiddust um 500
fiskar í júní og júlí og þar af eru
3 laxar. Stærsti lax sumarsins
kom nú á dögunum og reyndist
hann 13,5 pund. Silungarnir hafa
verið allt frá 2 pundum upp í 14
pund en nokkrir fiskar á bilinu
12-14 pund hafa veiðst í sumar.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er fiskur kominn upp um alla
Fnjóská og hefur verið að veiðast
upp á fjórða og fimmta svæði. í
heildina eru um 50 Iaxar komnir
á land og heldur fleiri bleikjur.
í Hörgá hefur veiðin farið frek-
ar rólega af stað en verið „reit-
ingsveiði“ eins og heimildarmað-
ur orðaði það.
Moka þeir upp í Miðfírði?
Jóhann Rafnsson, leiðsögumaður
í Miðfjarðará sagði veiðina
rólega þessa dagana enda væru
bandaríkjamennirnir frekar
rólegir í veiðunum. Fiskur hafi
sést um alla á og grálúsugir laxar
og nýgengnir hafi verið að veið-
ast þannig að nú komi stöðugar
göngur af laxi. Búast megi því við
að næsta íslendingaholl geti
„mokað“ upp úr ánni. Áin er
vatnsmikil en tær. í heild eru
komnir 612 laxar.
í Vatnsdal fengust þær upplýs-
ingar að lítið hefði veiðst síðan í
byrjun vikunnar þegar 25 punda
hrygnan kom á land. Svo virðst
því sem aftur hafi hægsl um þeg-
ar hætti að rigna og sólin læddist
fram úr skýjum.
Hjá Sesselíu Hauksdóttur,
veiðiverði í Laxá á Ásurn, feng-
ust þær fréttir að enn væri veiðin
jöfn og þétt í ánni en enn væri
beðið eftir „kippnum". Þessa
dagana eru ekki komnir nema
rúmlega 500 fiskar á land og haldi
svo fram sem horfir verður veiöin
í sumar aðeins um þriðjungur af
því sem var í fyrra.
í Víðidalnum eru menn þokka-
lega ánægðir með veiðina. Þrátt
fyrir að miklu muni nú milli ára
benda leiðsögumenn í ánni á að
áin sé svipuð og var fyrir 2-3
árum. Því þurfi ekki að kvarta
mikið yfir þeim 420 löxum sem
komnir eru á land. JÓH
Veiði í Hörgá er cnnþá frckar dræm en þó náði Bjarni „aflakló" Svein-
björnsson í nokkrar vænar bleikjur þar í vikunni. Mynd: kk
Astand fjallvega
Condition ofmountain tracks
Jlf a 8k,aabum ra iokaWr allri r~~n M u
umtart) þar til wmatl vertiur auglýsl >1 rM.c tuu
Kort nr. 10
aeriSút 3. ágúst19S8
fcoo <n»tut 5<jti6 oi 10 dyunt
Mapno. 10
patSthifsetí 3ri ot Augitst
*íixt>w;t iv.1.',1 faptdmshisd 'mit o/a»>
'\'WM Vegagerö rikislns .
** t'abUc ftstmlzAMífíisieaiwn
jtfa. Nátlúruverndarróð
:> -œmaC '* •>
3 WSR —
;i —- -*••• Wmm™ 1
íj ?
iir . _ . * r ^
Astand íjallvega
Kortið hér að ofan er gefið út í samvinnu Vegagerðar ríkisins og Náttúruverndarráðs. Það sýnir ástand hinna ýmsu
fjallvega landsins þann 3. ágúst sl. Vegir á skyggðum svæðum eru lokaðir allri umferð þar til annað vcrður auglýst.
Nýtt kort verður gefið út 10. ágúst.
Hestamót
Þjálfa og Grana
verður haldið að Einarsstöðum 12. og 13.
ágúst 1989.
Keppt verður í eftirtöldum greinum:
A og B flokkum gæðinga, unglinga- og barnaflokkum.
150 m skeið, 250 m stökk, 300 ni stökk, 300 m brokk.
Opin töltkeppni, gæðingaskeið.
Skráning 8. og 9. ágúst kl. 20-23 í símum 41304,
43593 og 43503.
- Munið hestamannaballið að Ydölum 12. ágúst. -
ÞJALFI.
ViÖ Leiruveg
Sími 21440
Höfum til
sölu vciðilcyíi
í vatiii um 2ja
tíma akstur
frá Akurcyri.
Bátur fylgir.
Munið úr\ralið
okkar af
veiðivörum
og fatnaði. —
Anamaðkar
og allt sem
þarf í
vciðiferðina.
HOTEL KEA
Verslunarmannahelgin
á Hótel KEA
Hljómsveit
Örvars Kristjánssonar
leikur fyrir dansi laugardagskvöld.
★
Óskar Einarsson leikur fyrir
matargesti föstudags- og sunnudagskvöld.
Borðapantanir í síma 22200.
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00.
GÓÐA HELGI!