Dagur - 25.08.1989, Qupperneq 5
Föstudagur 25. ágúst 1989 - DAGUR - 5
Laxveiðin:
Stutt eftir af slöku túnabili
- laxveiðimenn moka upp silungi í Víðidal
Draga fer að lokun í mörgum
laxveiðiánum á Norðurlandi
og Ijóst að í mörgum þeirra
hefur veiði sumarsins vart
komist nálægt metárinu 1988.
Þó er talsverður munur á ám, í
suiuuni tilfellum er munurinn
allt að helmingur milli ára en í
öðrum ám munar ekki nema
rúmlega 100 fiskum. Margir
veiðimenn húgsa gott til glóð-
arinnar þegar fram í septem-
bermánuð líður enda oft lífleg
silungsveiði í ánum, t.d. má
benda á að í Fnjóska veiddust
60-80 silungar á dag um miðjan
september í fyrra. En áður en
litið er á veiðar á Norðurlandi
kemur ein góð veiðisaga úr
Laxá í Aðaldal frá því nú í vik-
unni og sú er dagsönn.
Sumir þurfa að tvíþreyta
Hann varð ekki lítið glaður veiði-
maðurinn við Laxá í Aðaldal í
vikunni þegar 16 punda lax tók
agnið. Vel var fast í fiskinum og
allt útlit fyrir skemmtilega viður-
eign sem og varð. Leikurinn
barst niður eftir ánni en loks var
sá í ánni orðinn þreyttur og
drjúgur veiðimaðurinn á bakkan-
um náði að taka á honum og
koma á iand. Talsverðan spotta
þurfti að ganga upp með ánni að
veiðiútbúnaðinum og veiðimað-
urinn lagði því af stað með laxinn
í hendi. Svo örþreyttur virtist
fiskurinn vera að engin viðbrögð
sýndi hann þegar upp á bakkann
var komið og því geymdi veiði-
maðurinn sér að rota hann. Ekki
hafði göngutúrinn staðið lengi
þegar laxinn tók skyndilega
þennan líka kipp, hentist fram á
bakkann og út í ána. I þetta sinn
varð þó veiðimanninum til happs
að enn var fast í fiskinum og því
tók við önnur lota sem endaði á
sama hátt og sú fyrri utan að í
síðara skiptið var veiðimaðurinn
fljótur að rota fiskinn þegar hann
var á land kominn. Ekki er vitað
annað en fiskurinn hafi eftir það
verið hinn spakasti og ekki gert
aðra flóttatilraun.
Fámálir í Aðaldal
„Já, við segjum nú fátt veiði-
menn við Laxá. Það kom einn
fiskur úr ánni í morgún og í gær
komu 6 fiskar þannig að veiðin er
treg,“ sagði Ríkharður Björns-
son veiðimaður við Laxá í Aðal-
dal í samtali við Veiðiklóna í
gær.
í miklum rigningum síðustu
daga hefur áin verið vatnsmikil
og lituð og auk þess ber mikið á
slýi í ánni. Aðstæður til veiða eru
því ekki sem bestar. Komnir eru
1400-1500 laxar úr ánni og síð-
ustu dagana hefur nánast ein-
göngu veiðst smáfiskur í ánni.
„Ekki eins og maður vildi
hafa það“
„Þetta er engan veginn eins og
maður vildi hafa það en maður
hefur þó orðið var við göngufisk
á síðustu dögum. Eftirtektarvert
er þó að þessi nýgengni fiskur er
14-16 pund og það kemur á óvart
að svo stór fiskur sé að ganga
þetta seint á tímabilinu," sagði
Böðvar Sigvaldason í veiðihúsinu
við Miðfjarðará í gær.
Böðvar sagði að náttúrulegi
fiskurinn sé smár en ^öngufiskur-
inn heldur vænni. Ur Miðfjarð-
ará eru komnir rúmlega 1150
fiskar á þessari stundu en á sama
tíma í fyrr tæplega 1700 laxar
þannig að verulega munar milli
ára. Hins vegar stefnir í mjög
góða meðalvigt eftir sumarið.
Sömu sögu er að segja frá Laxá
á Ásum. Þar eru komnir 700 fisk-
ar á land og aðeins rúm vika eftir
af tímabilinu. Þetta suinar hefur
verið með þeim allra lélegustu í
ánni þannig að ekki er ólíklegt að
verð fyrir leyfin fari lækkandi í
vetur eftir að hafa náð toppi á
síðastliðnum vetri.
Vopnafjarðarár jafnar
Vopnafjarðarárnar, Selá og
Frá Laxá á Refasveit þar hafa veiðst
Hofsá, eru mjög svipaðar hvað
fjölda veiddra fiska áhærir. Ur
Selá eru komnir ríflega 700 fiskar
og að sögn Sjafnar Gunnarsdóttir
í veiðihúsinu Hvammsgerði er
greinilega farið að draga úr veið-
inni enda langt komið á tímabil-
ið.'„Við erum nú að vona að við
komust í 900 fiska og það er
ágætt miðað við 1000 fiska í
fyrra," sagði Sjöfn.
Besta holl sumarsins í Hofs-
ánni var á dögunum þegar nokkr-
ir læknar frá Akureyri náðu 92
löxum á þremur dögum. Ur
Hofsá eru komnir tæplega 700
fiskar eða hart nær helmingi færri
en var í fyrra.
Þokkalegt í Eyjaffirði
Þokkalegasta veiði hefur verið í
Eyjafjarðará síðustu vikurnar og
haldist nokkuð jöfn þrátt fyrir
miklar rigningar. Þá eru komnir
90 laxar úr Fnjóskánni
Og í lokin má líta á veiðitölur í
þremur ám í Húnaþingi:
Úr Vatnsdalsá eru komnir 450
fiskar, úr Laxá á Refasveit 77 og
úr Víðidalsá um 760 laxar en þar
hafa veiðimenn haft meira að
gera við að landa silungi en laxi
síðustu daga.
77 laxar í sumar.
ÉlliÍiÍilliillpitiS*
ífjá okkuf fserðti greiaai’goðau bæklíng
l'tíw-B -tíúgi.r jþér alU urh þctta cinstæða nám.
sflrííígcttí btirux. og vtð scndum hami um hæl.
Töhaiíræðslan Akurexii hf.
u 34, súnar 2789Í) oí
Unglingavinna
Dansleikur
Unglingavinnu Akureyrar
verður haldinn í Dynheimum laugardaginn
26. ágúst kl. 21.00-01.00.
★
Þessi dansleikur er eingöngu ætlaður unglingum
sem voru í unglingavinnunni í sumar.
Forstöðumaður.
^--- ^
Efnaverksmiðjan Sjöfn
Til sölu:
Hús Sjafnar að Hvannavöllum 12.
Til sölu eða leigu
2., 3. og 4. hæð, Glerárgötu 28.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn
Laugardagur kl. 13:55
34. LE IKV IKA- 26. 'í igúst 1989 1 X 2
Leikur 1 Arsenal - Wimbledon
Leikur 2 Aston Villa - Charlton
Leikur 3 Chelsea - Sheff. Wed.
Leikur 4 C. Palace - Coventry
Leikur 5 Derby - Man. Utd.
Leikur 6 Everlon - Southampton
Leikur 7 Luton - Liverpool
Leikur 8 Man. City - Tottenham
Leikur 9 Millwall - Nott. For.
Leikur 10 Norwich - Q.P.R.
Leikur 11 Leeds - Blackburn
Leikur 12 Leicester - Newcastle
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002
Slys gera ekki^
■ _ * ■ r ■ ÚKUM EINS OG MENNI
boo á undan sér! «1»™