Dagur - 25.08.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 25.08.1989, Blaðsíða 9
Föstudagur 25. ágúst 1989 - DAGUR - 9 _ Kveðja frá Bridgefélagi Akureyrar T Alfreð Pálsson Stekkjargerði 18, Akureyri Fæddur 16. Nú er Alfreð Pálsson allur. Við í Bridgefélagi Akureyrar sjáum á bak góðum félaga og raunar meira en það. Alfreð var í gegn- um tíðina einn af máttarstólpum félagsins og föstum punktum á spilakvöldum þess. Sveit Alfreðs Pálssonar varð margoft Akureyr- armeistari og Alli var alltaf erfið- ur, en um leið skemmtilegur, andstæðingur við spilaborðið, þótt árum tæki að fjölga. Mér er minnisstæð góðlátleg glettni hans, sem beindist ekki síst að honum sjálfum, ef svo bar undir. Þrátt fyrir langan spilaferil held ég að hann hafi aldrei tileinkað sér þann hugsunarhátt, sem ein- hver góður maður kallaði frum- lögmálið í bridge, var einu sinni sett fram í limruformi: / briddsinu byrjar oft senna efí blindni í sjóinn menn renna. Við lýsum því öllu í lögmáli snjöllu: janúar 1911 - Dáinn 20. Það sem mistekst er makker að kenna! Alfreð tók líka virkan þátt í stjórnarstörfum hjá félaginu um ágúst 1989 árabil og var m.a. formaður þess um skeið. Hann vildi hag þess sem bestan og starfið sem öflug- ast. Bridge-spilið var lians líf og yndi og áhuginn alltaf jafnmikill. Bridge er bæði tómstundagaman og íþrótt og Alfreð Pálsson var sannur íþróttamaður við „græna borðið“. Ég get reyndar ímyndað mér hann Alla vin minn hrista höfuðið yfir slíkri fullyrðingu, en hún er þó vissulega sann- leikanum samkvæm. Alfreð Pálsson var tilnefndur heiðursfélagi Bridgefélags Akur- eyrar fyrir áralöng störf hans í þágu félagsins. Þeirri tilnefningu fylgdi góður hugur allra spilara í félaginu. Fyrir hönd okkar allra votta ég Aðalhciði Oddgeirsdóttur, börn- um þeirra Alfreðs og öðrum aðstandendum innilegustu samúð. Við munufn góðan dreng. Stefán Vilhjálnisson. Fæddur 24. desember 1917 - Dainn 15. ágúst 1989 Að kvöldi þann 15. ágúst lést tengdafaðir minn Þorsteinn Stefánsson frá Blómsturvöllum eftir að hafa átt við alvarleg veik- indi að stríða í rúmlega tvö ár. Hann gekkst undir erfiða skurðaðgerð fyrir tveimur og hálfu ári og hlaut þá tímabundinn bata. í vor ágerðust síðan veik- indin og var þá ekki við neitt ráðið. Sú staðreynd var þungbær. Þegar nær dró leiðarlokum settu veikindin æ meira mark á Þor- stein en hann fylgdist samt vel með eins og hans var von og vísa. Þorsteinn var fæddur að Grjót- garði í Glæsibæjarhreppi, sonur hjónanna Stefáns Sigurjónssonar og Sigríðar Pálsdóttur. Hann var þriðji í röðinni af sjö systkinum. Eina eftirlifandi af þeim hópi er Guðbjörg, gift Aðalsteini Jóhannssyni, búsett á Akureyri. Fljótlega eftir fæðingu Þor- steins fluttu þau að Blómsturvöll- Borgarbíó Föstud. 25. ágúst Kl. 9.00 State Park Kl. 11.00 Uppvakningurinn Ed Harley veröur fyrir þeirri sorg aö bifhjólabulla, Jóel, ekur á son hans, Billy, og veröur honum að bana, en stingur af viö svo búiö. Bróöir hans og fleiri vilja reyna aö hjálpa Billy, en Jóel bregst hinn versti viö, því hann hefur áður gert sig sekann um aö valda slysi á bifhjóli sínu, og í þetta sinn bætist þaö við aö hann hefur bragðað áfengi. Kl. 9.00 Harry Hvað Kl. 11.00 Big Blue um í sömu sveit. Sleit Þorsteinn barnsskónum þar. Á yngri árum hélt hann til Héraðsskólans að Laugum og var þar við nám í tvo vetur. Þar kynntist hann Jónínu A. Víglundsdóttur frá Hauks- stöðum í Vopnafirði sem síðar varð kona hans. Árið 1941 giftust Þorsteinn og Jónína og varð þeim átta barna auðið. Þau eru Stefán, kvæntur Önnu Björnsdóttur, búsett á Akureyri; Víglundur, kvæntur Kristjönu Skarphéðinsdóttur og eru þau búsett á Húsavík; Hauk- ur, kvæntur Aðalheiði Gísladótt- ur, búsett á Akureyri; Sigurður, kvæntur Guðrúnu Magnúsdóttur og eru þau búsett í Reykjvík; Páll, kvæntur Sigurbjörgu Ein- arsdóttur og búa þau á Akureyri; Ásta, gift Jóhannesi Óla Garð- arssyni og búa þau að Þinghóli í Glæsibæjarhreppi; Ragnheiður, gift Grétari Óla Sveinbjörnssyni, búsett í Reykjavík; Þorsteinn, giftur Guðbjörgu Árnadóttur og eru þau búsett í Svíþjóð. Barna- börnin eru orðin 24 og eitt barna- barnabarn er fætt. Fyrst bjuggu Þorsteinn og Jón- ína litlu búi að Bjargi í Blómstur- vallalandi en Bjarg stóð alveg niður við sjávarkambinn. Meðan þau dvöldu þar stundaði Þor- steinn ýmsa aðra vinnu með bú- skapnum, hann var meðal annars í vegavinnu og svo vann hann einnig við síldarverksmiðjuna á Dagverðareyri. Það má gjarnan geta þess að Þorsteinn réri stund- um á árabáti til vinnu á Dagverð- areyri sem sýnir hvað menn þurftu á sig að leggja á þessum árum til þess að framkvæma það sem í dag er gert á skammri stund og með lítilli fyrirhöfn. Á fyrstu búskaparárunum mun hafa verið hart í dalnurn, það hefur þurft mikla vinnu og nægjusemi til að ná endum saman. Þjóðfélagsleg- ar aðstæður voru erfiðar þá mið- að við það sem nú er, skortur á vörum ýmiss konar og skammt- anir. Þetta eru tímar sem við yngra fólkið eigum erfitt með að skilja og setja okkur inn í. Það væri til dæmis gaman að gera sér í hugarlund atferli okkar og lífs- munstur án rafvæðingar í heima- húsum. Á þessum tíma var ekki rafmagn á Bjargi. Árið 1948 tóku Þorsteinn og Jónína við búi á Blómsturvöllum þegar foreldrar Þorsteins hættu þar búskap og bjuggu þar fram til ársins 1970. Þá fluttu þau til Akureyrar. Eftir það vann hann á plastiðjunni Bjargi meðan heilsan leyfði og mun honum hafa líkað sú vinna vel. í gegnum tíðina voru Þorsteini falin ýmis trúnaðarstörf og má í því sam- bandi nefna að hann sat í hrepps- nefnd Glæsibæjarhrepps, var í stjórn Sparisjóðs Glæsibæjar- hrepps og fleira. Þeir sem kynntust Þorsteini hafa fljótlega komist að því að hann hafði mikla eðlisvisku til að bera, var hreinskiptinn og félags- lyndur. Hann var rólegur að eðlisfari og tók hlutunum með jafnaðargeði. Þetta eru nægjan- legir mannkostir til að laða að sér ungviðið og fannst mér oft gaman að fylgjast með honum gantast við barnabörnin enda hændust þau að honum. Samskipti okkar Þorsteins voru afar þægileg. Það var ávallt gott og gaman að koma í heim- sókn til tengdapabba og tengda- mömmu, fá kaffisopa og spjalla um heima og geima. Hann fylgd- ist vel með þjóðmálum sem og öðrum málum og hafði sínar skoðanir á þeim. Ég votta tengdamóður, börn- um þeirra og öðrum aðstandend- um mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Það er erfitt að horfa á eftir góðum tengdaföður og vini. Megi Guðs eilífa ljós ávallt lýsa honurn. Grétar Oli Sveinbjörnsson. LOKAÐ Rakarastofan verður lokuð septembermánuð. Sigtryggur Júlíusson. Nauðungaruppboð Eftirtaldar bifreiðar og aðrir lausafjármunir verða boðnar upp og seldar, ef viðunandi tilboð fást á opinberu uppboði, sem haldið verður við lögreglustöðina að Útgarði 1, Húsa- vík laugardaginn 2. september 1989, kl. 14.00; Þ-1617, Þ-4450, K-3267, Þ-1671, Þ-4379, Þ-428, Þ-4330, Þ-3350, Þ-1976, Þ-3171, Þ-1761, Þ-560, R-61449, A-6247, A-49147, Þ-2744, A-4182, Þ-130, Þ-4909, Þ-90 og Þ-869 auk óskráðrar Datsun bifr. Dráttarvélin ÞD-590 og dráttarvél af Zetor gerð, auk þess vélsleðinn ÞB-54, sjónvarpstæki, þvottavélar o.fl. Uppboðið er haldið að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og ýmissa lögmanna. Þá verða seldir ýmsir óskilamunir í vörslu lögreglunnar á Húsavík. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Sýslumaður Þingeyjarsýslu bæjarfógeti Húsavíkur. Lagerstarf Óskum eftir að ráða starfsmann á lager. Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið við tölvuskrán- ingu og kunni eitthvað fyrir sér í ensku. Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir 1. sept. nk. og gefur hann nánari upplýsingar. Sími 21900 (220). Álafoss hf., Akureyri. Vantar blaðbera frá 1. september í Aðalstræti og Lækjargötu. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Frá ríkisskattstjóra Á síðastliðnu vori voru samþykkt á Alþingi lög nr. 51, 1. júní 1989. Samkvæmt þeim lögum er gerð breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sem felur það í sér að þeim sem hafa misst maka sinn er veittur réttur til eignarskatts- álagningar eins og hjá hjónum í fimm ár eftir lát maka. Við álagningu eignarskatts árið 1989 nær réttur þessi til þeirra eftirlifandi maka sem sitja í óskiptu búi í árslok 1988, en hafa misst maka sinn árið 1984 eða síðar. Vegna þess hve stuttur tími var fram að álagn- ingu frá því að umrædd lagabreyting var sam- þykkt á Alþingi var af tæknilegum ástæðum ekki unnt að haga álagningu eignarskatts á árinu 1989 í samræmi við framangreind lög hjá þeim rétthöf- um sem misstu maka sinn á árunum 1984 til og með árinu 1987. Eignarskattsálagningu á þá sem misstu maka sinn á árinu 1988 var hins vegar unnt að fram- kvæma í samræmi við framangreind lög og er hún því rétt. Skattstjórar vinna nú að því að leiðrétta eignar- skatt þeirra sem hafa vegna þessa máls fengið ranga eignarskattsálagningu. Stefnt er að því að þeim leiðréttingum verði lokið í næsta mánuði. Reykjavík 21. ágúst 1989. Ríksskattstjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.