Dagur - 25.08.1989, Síða 7
Föstudagur 25. ágúst 1989 - DAGUR - 7
Bragi Stefánsson, núverandi
umdæmisstjóri íslenska Kiwanis-
umdæmisins.
Sunnudaginn 27. ágúst kemur
saman til fundar nýskipuð
umdæmisstjórn. Núverandi
unidæmisstjóri er Bragi Stefáns-
son, Kiwanisklúbbnum Jörva í
Reykjavík, en verðandi
umdæmisstjóri er Ásbjörn Egils-
son, Kiwanisklúbbnum Boða í
Grindavík.
Stofnaðir hafa verið 42
klúbbar frá árinu 1964
í tengslum við umdæmisþingið á
Akureyri væri ekki úr vegi að
rifja stuttlega upp sögu Kiwanis-
hreyfingarinnar á íslandi.
Kiwanisklúbbar eiga uppruna
sinn að rekja til Bandaríkjanna.
Þar var fyrsti Kiwanisklúbburinn
stofnaður árið 1915. Allt fram til
ársins 1962 náði starfsemi hreyf-
ingarinnar aðeins til Bandaríkj-
anna og Kanada, en það ár tók
Kiwanis-International, æðsta
stjórn hreyfingarinnar, þá
ákvörðun að koma Kiwanis-
klúbbum á fót í öðrum heimsálf-
um.
1 borginni Tallahassee í Flórída
hafði um árabil verið búsettur
íslendingur að nafni Hilmar
Skagfield og var hann meðlimur í
Kiwanisklúbbnum þar í borg.
Hann athugaði möguleika á
stofnun Kiwanisklúbbs á íslandi
og fékk hann ráðleggingar um að
leita til Einars Á. Jónssonar,
aðalféhirðis Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis. Einar tók vel
í málaleitan Hilmars og fékk
send nauðsynleg gögn og upplýs-
ingar.
Stofnun Kiwanisklúbbs á ís-
landi tók nokkurn tíma enda ærið
verkefni að þýða lög hreyfingar-
innar og samræma þau íslenskum
aðstæðum, auk annars undirbún-
ings. Haustið 1963 hófust reglu-
legir fundir þessa fyrsta Kiwanis-
klúbbs á íslandi sem þegar hafði
hlotið nafnið Hekla. Klúbburinn
var formlega stofnaður 9.
nóvember 1963 en 14. janúar
1964 var hann gerður að fullgild-
um klúbbi innan Kiwanishreyf-
ingarinnar og telst það vera
stofndagur klúbbsins. Hekla var
jafnframt níundi Kiwanisklúbb-
urinn sem stofnaður var í Evr-
ópu.
Líknarmál í brennidepli
Fljótlega varð ljóst að starfið
höfðaði til fleiri manna en
rúmuðust í einum klúbbi. Kiwan-
isklúbburinn Katla var stofnaður
í Reykjavík 31. mars 1966 og
næstir í röðinni voru Helgafell í
Vestmannaeyjum 28. september
1967, Askja á Vopnafirði 6.
janúar 1968 og Kaldbakur á
Akureyri 14. september 1968. í
dag eru 42 Kiwanisklúbbar í
íslenska Kiwanis-umdæminu.
Kiwanishreyfingin starfar und-
ir kjörorðinu „Við byggjum“
Klúbbarnir hafa þjónustu og
líknarmál á stefnuskrá sinni og
vinnur hver klúbbur að ýmsum
verkefnum samkvæmt þeim
grundvallarsjónarmiðum.
Málefni aldraðra eru ofarlega á
baugi hjá mörgum klúbbum.
Gefin hafa verið hjúkrunar- og
endurhæfingartæki, rúm o.fl. til
öldrunar- og dvalarheimila, farið
með aldraða í ferðalög og haldn-
ar skemmtikvöldvökur. Málefni
fatlaðra, þroskaheftra og þeirra
sem minna mega sín t' þjóðfélag-
inu hafa margir klúbbar á stefnu-
skrá sinni.
Þá hafa Kiwanisklúbbar gefið
sjúkrahúsum margs konar lækn-
ingartæki og þeir hafa safnað fé
handa blindum, t.d. með fjár-
öflunarskemmtuninni „Birta fyrir
blinda". Gefinn var sérstaklega
útbúinn bíll til að flytja fólk í
hjólastólum og fólk sem átti í erf-
iðleikum með að komast ferða
sinna í venjulegum bílum.
Kiwanismenn óku bílnum fyrstu
mánuðina í sjálfboðavinnu en nú
er ferðaþjónusta fatlaðra talin
sjálfsögð þjónusta.
Af öðrum málum má nefna að
haldinn hefur verið K-dagur á
þriggja ára fresti síðan 1974. Þá
hefur ávallt verið starfað undir
kjörorðinu „Gleymum ekki geð-
sjúkum" og því fé sem safnað
hefur verið hjá landsmönnum
hefur verið varið til uppbygging-
ar á vernduðum vinnustað við
Kleppsspítala, áfangastað fyrir
fólk sem er á leið út á vinnumark-
aðinn en þarfnast tímabundinnar
aðstoðar lækna og hjúkrunar-
fólks og nú síðast var aðstoðað
við að koma á fót unglingageð-
deild við Dalbraut í Reykjavík.
Einnig hefur Kiwanishreyfingin
sameinast um söfnun til kaupa á
brunaviðvörunarkerfi fyrir Kópa-
vogshæli.
Starfsemi klúbbanna er greini-
lega fjölbreytt en áherslur mis-
munandi eftir aðstæðum á hverj-
um stað. Hér er aðeins talið upp
lítið brot af verkefnum Kiwanis-
hreyfingarinnar en vonandi eru
lesendur einhverju nær um starf-
semi hennar. SS
ég var í menntaskóla lenti ég í
deilum við náunga sem hélt því
fram að Reykjavík héldi uppi
landsbyggðinni. Það er náttúr-
lega fáránlegt að halda þessu
fram, en nú gegnir þessi piltur
áhrifamikilli stöðu.“
- Urðuð þið varir við að
Reykvíkingum fyndist það hall-
ærislegt að vera utan af landi?
„Það getur verið að einhver-
tíma hafi það gerst en ég hef ekki
látið það hafa nein áhrif á mig og
finnst það heimskulegt viðhorf.
Það er stundum minnst á hvernig
maður talar. Ég tala enn norð-
lensku þó hún hafi kannski
eitthvað linast með árunum. En
flestum Reykvíkingum finnst
norðlenskan fallegri en sunn-
lenskan.“
- Þið komust á toppinn fyrir
sunnan, en hvernig hefur ykkur
verið tekið hér heima?
„í byrjun, fyrstu tvo árin, spil-
uðum við dálítið oft hér í ná-
grenninu og fengum stundum
lélegri aðsókn en nokkurs staðar
annars staðar á landinu. Við vor-
um svolítið svekktir en gerðum
okkur samt grein fyrir að fáir eru
spámenn í sínu föðurlandi. Þetta
hefur lagast og aðsókn aukist
með tímanum og ekkert skrýtið
þótt fólk hafi tekið okkur með
ákveðnum fyrirvara í byrjun.
Útvarpsstöðvar hafa líka mikil
áhrif á vinsældir hljómsveita.
Við hlökkum allir mikið til að
spila hérna um helgina og vonum
að þetta verði mjög gott ball.“
- Þú fórst bæði til írlands og
Sviss og tókst þátt í Söngva-
keppni sjónvarpsstöðva, var það
ekki mikið ævintýri?
„Það vantaði hljómborðs-
leikara og mann til að syngja
bakraddir í bæði skiptin. Það var
æðislega gaman að fá þessi tækj-
færi, ef mér væri boðið að taka
þátt í þessu aftur býst ég við að
ég mundi fara.“
- Nú hafið þið meginatvinnu
ykkar af músíkinni þó námi og
öðrum störfum sé gegnt með eða
inn á milli. Hefur hugsunarháttur
ykkar breyst við þetta?
„í byrjun var þetta eiginlega
hrein hugsjón. Draumur sem við
áttum okkur og enginn trúði að
mundi nokkurn tíma rætast nema
við sjálfir, og í raun trúði ég því
ekki heldur. Greifarnir byggjast í
raun 90% á vináttu og félags-
skap. Okkur finnst gaman að
vera saman og við hefðum aldrei
enst í gegn um allt sem við höfum
gengið saman nema vegna þess
aö við erum mjög góðir vinir og
góður andi í hljómsveitinni. Við
höfum bæði lent í mikilli velgegni
og í mótlæti, þó meira af vel-
gengni en þá er alltaf hættan á að
menn verði kærulausir, það er í
raun alltaf auðveldast að sigla
lygnan sjó.“
- Hverju spáir þú um framtíð
Greifanna?
„Ég veit ekki hversu lengi við
eigum eftir að starfa í viðbót, en
við eigum allavega eftir að segja
ykkur svolítið meira.“ IM
Lækkum
matar-
reSomgkm!
KEANETTÓ
Ódýr og einföld matvöruverslun
Opið virka daga frá kl. 13.00-18.30
Opið á laugardögum frá kl. 10.00-14.00
Lambahamborgarhryggur
...og ótal margt annaö á
ótrúlega hagstæöu verði
tKEANETTÓ