Dagur - 25.08.1989, Blaðsíða 11
Föstudagur 25. ágúst 1989 - DAGUR - 11
fþróftir
Kristján Olgeirsson var mjög drífandi á miðjunni fyrir Völsunga en það dugði ekki til gegn ÍBV í gærkvöld.
Akureyrarmót/meistaraflokkur karla:
KA Akureyrarmeistari
lagði Þór að velli 4:2
KA lagði Þór að velli 4:2 í
Akureyrarmótinu í knatt-
spyrnu í meistaraflokki karla í
gærkvöld. KA-liðið var mun
sterkara í leiknum og var sigur
þess því sanngjarn.
Strax frá byrjun var greinilegt
að hvorugt liðið tók neina áhættu
á meiðslum og reyndu menn
frekar að spila boltanum en að
lenda í návígi við andstæðing.
Það breyttist þó þegar yngri leik-
mennirnir fengu tækifæri í síðari
hálfleik og fór þá að sjást barátta
sem oft einkennir leiki þessara
liða.
KA gerði reyndar út um leik-
inn í fyrri hálfleik því Pórsvörnin
var oft illa á verði og þrisvar sinn-
um refsuðu þeir gulklæddu þeim
rauðklæddu með mörkum.
Fyrsta markið kom eftir að Örn
Viðar Arnarson, sem var besti
maður KA í þessum leik, hafði
átt hörkuskot að marki. Baldvin
varði en hélt ekki knettinum og
Jón Grétar var réttur maður á
réttum stað og renndi knettinum
í netið. Jón Grétar var aftur á
ferðinni skömmu síðar og skor-
aði örugglega eftir að Pórsvörnin
hafði opnast illa. Erlingur Krist-
jánsson skoraði síðan með koll-
spyrnu þriðja markið einn og
óvaldaður rétt fyrir leikhlé eftir
hornspyrnu.
íþróttir
helgarinnar:
Knattspyma:
Föstudagun
2. dcild...Leiftur-Tindastó!l á Ólafsfirði kl.
19.00
3. deild...KS-Magni á Siglufirði kl. 19.00
Laugardagur:
3. dcild.. Ki'nn.ikui-n.ilvik á Hvamms-
tanga kl. 14.00
3. deild...Reynir-Þróttur N. á Árskógs-.
strönd kl. 14.00
3. deild...Valur-Huginn á Reyðarfirði kl.
14.1K)
Sunnudagur:
Krakkamót KEA á Þórvellinum
KR-Fram í úrslitum Bikarkeppni KS{
Krafllyftingar:
Aflraunameistari fslands 1989 á Akureyri.
Keppt föstudag og laugardag.
Opið golfmót
sunnudag.
Golf:
á Húsavík, laugardag og
Anthony Karl Gregory skoraöi frá-
bært mark gegn Þór í gærkvöld.
Júlíus Tryggvason minnkaði
muninn fyrir Þór í síðari hálfleik
með skoti beint úr aukaspyrnu í
gegnum lekan varnarvegg KA á
75. mínútu en hálfleikurinn hafði
verið nokkuð bragðdaufur fram
að því.
Aðeins tveimur mínútum síðar
skoraði síðan Anthony Karl
Gregory frábært ntark fyrir KA;
tók knöttin niður á kassann á
ferðinni í vítateignum og sendi
hann yfir markvörð Þórsara.
Þetta mark yljaði áhorfendum
sem voru nokkuð voru farnir að
skjálfa af kulda á áhorfenda-
pöllunum.
Þórir Áskelsson minnkaði síð-
an muninn í 4:2 með ágætu lang-
skoti nokkru síðar fyrir Þór. Síð-
ustu mínúturnar sóttu Þórsarar
nokkuð en án þess að skapa sér
afgerandi færi. KA-menn urðu
því Akureyrarmeistarar í meist-
araflokki karla árið 1989.
Knattspyrna/2. deild:
Syrtír í álinn
hjá Völsungum
- töpuðu 6:2 í Eyjum
Völsungar töpuðu 6:2 fyrir
IBV í Vestmannaeyjum í 2.
deildinni í knattspyrnu í
gærkvöld. Staðan var 1:0 fyrir
IBV í leikhléi en í síðari hálf-
leik opnuðust varnir beggja
liða og sjö mark sáu þá dagsins
Ijós. Þetta tap gerir stöðu
Völsunga á botninum mjög
erfiða en ÍBV heldur enn í
vonina að komast upp í 1.
deild.
Það var ekki áferðarfalleg
knattspyrna sem liðin sýndu í gær
enda mikið í húfi fyrir bæði lið.
Mikið var um feilsendingar í fvrri
hálfleik og var örsjaldan sem
boltinn barst á milli þriggja sam-
herja. Ekki var leikurinn þó gróf-
ur en dómari leiksins, Friðgeir
Hallgrímsson, var samt sem áður
mjög spjaldaglaður og sýndi átta
leikmönnum gula spjaldið. Þeir
leikmenn voru Sveinn Freysson,
Jónas Hallgrímsson, Kristján
Olgeirsson og Unnar Jónsson frá
Völsungi og Friðgeir Hallgríms-
son, Tómas Tómasson, Jakob
Atlason, Friðrik Sæbjörnsson og
Jón Bragi Arnarson frá ÍBV.
Það var Tómas Tómasson sem
skoraði eina mark fyrri hálfleiks
með ágætu skoti á 30. mínútu.
í síðari hálfleik opnuðust allar
Knattspyrna/1. deild kvenna:
Jafnt hjá Þór
- gegn KR 0:0
KR og Þór gerðu markalaust
jafntefli í 1. deild kvenna á
KR-vellinum á miðvikudags-
kvöldið. Þrátt fyrir stigið eru
Þórsstelpurnar enn neðstar í
deildinni á óhagstæðarara
markahlutfalli en Stjarnan. En
á móti kemur að Þór hefur
leikið tveimur leikjum færra.
Þórsstelpurnar léku sterkan
varnarleik og ætluðu sér greini-
lega að ná a.m.k. öðru stiginu.
Eva Eyþórsdóttir í marki Þórs
hafði nóg að gera en sóknarmenn
KR-liðsins voru ekki á skotskón-
um þrátt fyrir nokkur ágæt
marktækifæri. Leiknum lauk því
með markalausu jafntefli og geta
Þórsarar verið ánægðir með þau
úrslit.
Knattspyrna/3. deild:
Burst hjá Magna
- 6:1 gegn Austra en það dugir varla
til að halda sætinu
Þór leikur tvo leiki um helgina;
við ÍA á föstudag og UB_K á laug-
ardag og verður liðið að ná í stig
til þess að forða sér frá falli í
deildinni.
Einn annar leikur fór fram í 1.
deildinni á miðvikudagskvöldið;
ÍA lagði UBK 4:0.
flóðgáttir í vörnunum; Sigurlás
Þorleifsson skoraði strax á þriðju
mínútu, Ásmundur Arnarson
minnkaði muninn fyrir Völsunga
tíu mínútum síðar, Hlynur Stef-
ánsson skoraði þriðja mark ÍBV
úr vítaspyrnu skömmu síðar, Sig-
urlás bætti síðan fjórða markinu
við, Jónas Hallgrímsson skoraði
4:2 fyrir Völsunga en áður en yfir
lauk höfðu þeir Ingi Sigurðsson
og Sigurlás Þorleifsson bætt við
mörkum fyrir heimamenn. Sem
sagt stórsigur ÍBV 6:2.
Bestu menn Völsunga í þess-
um leik voru Kristján Olgeirsson
og Jónas Hallgrímsson. Einnig
átti varamaðurinn Jónas G.
Garðarsson ágætan leik. Hjá
ÍBV bar mest á þeim Sigurlási og
Hlyni Stefánssyni.
I uppgjöri topppliðanna sigraði
Stjarnan Víði 4:1 GM/AP
Karfa:
Tindastóll í
Reykjanesmótið
Úrvalsdeildarliði Tindastóls
hefur verið heimiluð þátttaka í
Reykjanesmótinu í körfu-
knattleik, fyrst liða utan kjör-
dæmisins. Mótið fer fram yfir
tvær helgar í næsta mánuði, 9.-
10. og 16.-17. september.
Tindastóll mun spila fimm
leiki; gegn UMFN, UMFG,
ÍBK, Reyni Sandgerði og
Haukum, allt lið í úrvalsdeild.
deild.
Valur Ingimundarson, Sturla
Örlygsson og Bo Heiden hafa
þessa vikuna verið að leiðbeina
ungum krökkum á körfubolta-
námskeiði, sem Tindastóll stend-
ur fyrir og lýkur námskeiðinu nk.
sunnudag. Um 70 krakkar, á
aldrinum 8-16 ára, hafa tekið þátt
í námskeiðinu, af miklum áhuga.
-bjb
Magni burstaði Austra 6:1 í 3.
deildinni í knattspyrnu á Greni-
vík á miðvikudagskvöldið.
Staðan í leikhléi var 0:0 en eft-
ir að Austramenn höfðu kom-
ist yfir vöknuðu heimamenn til
Iífsins og skoruðu 6 mörk án
þess að Fskfirðingum tækist að
svara fyrir sig.
Austri lék með vindinn í bakið
í fyrri hálfleik en tókst ekki að
nýta sér það. Sigurjón Kristjáns-
son kom Austra yfir með marki
úr vítaspyrnu fljótlega eftir
leikhléið og þá var eins og
Magnamenn færu fyrst að
berjast. Sverrir Heimisson skor-
aði tvö mörk fyrir þá, Jón Illuga-
son einnig og þeir Þorsteinn
Friðriksson og Sigurður Gunn-
arsson skoruðu sitt markið hvor í
leiknum.
Þrátt fyrir þennan sigur er
staða Magna næsta voniaus og
baráttan um sæti í deildinni
stendur nú á milli Dalvíkur,
Reynis og Hugins en eitt þessára
liða fellur niður í 4. deild.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Reynisslagur
Garðar Níelsson var með 8 rétta í síðustu viku og fór létt með
að leggja Magnús Jóhannsson að velli en hann var einungis
með fjóra rétta. Garðar hefur skorað á félaga sinn í Reynisliðinu
í knattspyrnu, Eirík Eiríksson markvörð, og verður spennandi
að sjá hvernig til tekst hjá þeim félögum.
Fyrst verið er að minnast á lið þeirra félaga er rétt að minna á
það að Reynir leikur mjög mikilvægan leik í B-riðli 3. deildar á
morgun laugardag, gegn Þrótti N. Sá leikur gæti ráðið úrslitum
hvort Árskógsstrendingar halda sæti sínu í deildinni eður ei. En
snúum okkur þá að spá þeirra félaga.
Garöar:
Arsenal-Wimbledon 1
Aston Villa-Charlton x
Chelsea-Sheff.W. 1
C.Palace-Coventry 2
Derby-Man.Utd. 2
Everton-Southampton 1
Luton-Liverpool 2
Man.City-Tottenham 2
Millwall-Nott.For. 2
Norwich-QPR x
Leeds-Blackburn 1
Leicester-Newcastle x
Eiríkur:
Arsenal-Wimbledon 1
Aston Villa-Charlton x
Chelsea-Sheff.W. 1
C.Palace-Coventry 2
Derby-Man.Utd. 2
Everton-Southampton 1
Luton-Liverpool 2
Man.City-Tottenham 2
Millwall-Nott.For. 1
Norwich-QPR 1
Leeds-Blackburn 1
Leicester-Newcastle 2
1X2 1X2 1X21X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2