Dagur - 26.08.1989, Blaðsíða 16
r ' —
Betri atvlr inumöpuleikar í boði röhiiíræöslan
Mjög góð laun Vkui CM Í hf.
ÞcLLagctur orðir I að vcmleika cítjr náni hjá olvkur. vjicrax gotu o símar 27899 og 27886
ÚS hjá Atvinnutryggingarsjóði:
Jákvæð afgreiðsla
Mál Útgerðarfélags Skagfirð-
inga fengu nokkuð jákvæða
afgreiðslu hjá Atvinnutrygg-
ingarsjóði sl. fimmtudag, eftir
því sem heimildir blaðsins
herma. Eins og sagt var frá í
blaðinu í gær fór sjóðurinn
fram á að hlutafé félagsins yrði
aukið og þegar hafa Sauðár-
króksbær og Kaupfélag Skag-
firðinga samþykkt að auka sitt
hlutafé. Hlutafé þarf að auka
um 90-100 milljónir og mun
sjóðurinn veita lán til skuld-
breytinga fyrir ámóta upphæð.
Það er því verið að tala um
fyrirgreiðslu til ÚS upp á 180-
200 milljónir, í formi aukins
hlutafjár og hagstæðari lána.
„Málið er í athugun, og fær
vonandi jákvæða afgreiðslu, ef
heimamenn ná að leysa sín mál.
Þetta kallar á að þeir taki á sig
verulegar ábyrgðir. Við reynum
að finna þær leiðir sem duga,
þannig að þetta gangi upp,“ sagði
Gunnar Hilmarsson, formaður
stjórnar Atvinnutryggingarsjóðs, í
samtali við Dag, en Gunnar vildi
ekki tjá sig frekar um mál ÚS.
Aðrir hluthafar, en bærinn og
kaupfélagið, hafa ekki tekið
ákvörðun um aukningu á sínu
hlutafé í ÚS, en að öllum líkind-
urn munu Fiskiðjan og frystihúsið
á Hofsósi koma með aukið hluta-
fé. Þá er meiningin að leita til
verkalýðsfélaganna í Skagafirði,
en þau eiga hlut í ÚS, svo og
nokkur sveitarfélög, s.s. Hofsós-
hreppur og hrepparnir þar í
kring. Eins og kunnugt er er
Hofsóshreppur enn með greiðslu-
stöðvun, þannig að það þarf að
koma til kasta fjárhaldsstjórnar
hreppsins, um ákvörðun í þeim
málum.
,.Ég vonast eftir því að félagið
geti siglt inn á sléttari sjó og þetta
verði tíl þess að málefni fyrir-
tækisins komist í skikkanlegt
horf, þannig að reksturinn geti
gengið eðlilega fyrir sig,“ sagði
Þorbjörn Árnason, varaformað-
ur stjórnar ÚS, í samtali við Dag.
-bjb
Um helgina ætla íslenskir kraftajötnar að keppa um titilinn „Aflraunameistari íslands“. Keppnin hófst á Ráðhús-
torgi í gær og verður framhaldið á Iþróttavellinum í dag. Aður en átökin hófust stilltu kapparnir sér upp til mynda
töku ásamt verðlaunagripnum sem keppt er um. Mynd: KL
| ú' j 1 fr
||ll||iL " 0 w jé| w i
* ’ W ’mÆKKBjtk * *., - rsXm&Æ : i mt f $
Umdæmisþing
Kiwanismanna
Kaupfélag Húnvetninga leitar hagræðingar í rekstri:
570mannaveisla
áAkureyri
í kvöld munu 570 kiwanis-
menn og Sinawikkonur, sem
hafa verið á umdæmisþingi
hreyfingarinnar á Akureyri,
snæða kvöldverð í íþrótta-
höllinni. Hér er um stærstu
s veislu að ræða með heitum
mat, sem haldin hefur verið
í bænum.
Bautinn á Akureyri sér um
matinn, veitingarnar og fram-
reiðslu þeirra. í forrétt verður
„laxadúett,“ en aðalrétturinn
er innbakað grísafillett, og
trifflí í eftirrétt.
Tuttugu og sjö stúlkur
þjóna til borðs í þessari veislu,
ásamt fjórum matsveinum og
jafnmörgum lærlingum. Það
verður að teljast óvenjulegt að
boðinn sé heitur matur í svo
fjölmennri veislu, að sögn
Hallgríms Arasonar, veitinga-
manns í Bautanum, og er oft-
ast haft kalt borð þegar stærri
veislur eru annars vegar. Þó
eru fordæmi þess að heitur
matur hafi verið á boröum í
stórveislum í Reykjavík, en
það er óneitanlega fyrirhafn-
armeira. EHB
Vill selja eignir metnar
á tæpar 90 milljónir
iður í hagræðingu í smiðjunnar tekur til verkstæð- það húsnæði hefur verið nýtt
Sem liður í hagræðingu
rekstri hafa forráðamenn
Kaupfélags Húnvetninga
ákveðið að selja eða bjóða
rekstur Vélsmiðju Húnvetn-
ingu til Ieigu. Rekstur Vél-
smiðjunnar tekur til verkstæð-
is, smurstöðvar, járnsmíða-
verkstæðis og varahlutaversl-
unar. Þá vill Kaupfélagið selja
55% eignarhluta í fasteigninni
að Efstubraut 2 (Votmúla), en
Kaupfélag Húnvetninga vill selja eða leigja rekstur Vélsmiðju Húnvetninga.
það húsnæði hefur verið
fyrir lager.
Guðsteinn Einarsson, kaup-
félagsstjóri, segir að Vélsmiðjan
hafi til margra ára verið rekin
með halla þó segja megi að bjart-
ara sé nú yfir rekstrinum en áður.
„Við erum þeirrar skoðunar að
rekstur Vélsmiðjunnar henti bet-
ur fyrir hlutafélag. Það hefur ver-
ið nóg að gera og afkoman farið
batnandi. Hún er þó enn ekki
nógu góð og því viljum við losna
við reksturinn. Hugsanlegt er að
selja hann og leigja fasteignirnar
eða selja þetta allt sem eina
heild. Við erum til viðræðu um
alla möguleika,“ sagði Guð-
steinn.
Hann segir að hallarekstur
undanfarinna ára megi m.a. rekja
til slæmrar nýtingar á starfs-
mönnum og mikils kostnaðar við
lager. „Búið er að koma nokkuð
góðu lagi á rekstur verkstæðisins
króna
en hins vegar er lagerinn enn
mjög þungur," sagði Guðsteinn.
Vélsmiðjan er um 1000 fer-
metrar að stærð og er brunabóta-
mat hennar 36 milljónir króna.
Eignarhluti Kaupfélags Húnvetn-
inga að Efstubraut 2, sem einnig
hefur verið auglýstur til sölu, er
2300 fermetrar að stærð og er
brunabótamat hans tæpar 50
milljónir króna. Um er að ræða
stálgrindarhús sem Kaupfélagið
nýtir sem vörugeymslu. „Sam-
kvæmt lauslegu mati þurfum við
um 700 fermetra lagerhúsnæði.
Hagkvæmast væri að koma
lagernum á lóð sem Kaupfélagið
á við hliðina á verslunarhúsi í
miðbænum og með því móti væri
trúlega unnt að fækka starfs-
mönnum um tvo og ná þannig
fram tveggja milljóna króna
sparnaði á ári,“ sagði Guðsteinn.
óþh
Helgarveðrið:
Mjólkurfræðingar afla verkfallsheimildar:
Ekki verkfall á næstu \ikiun
Mjólkurfræðingafélag íslands
hefur fengið verkfallsheimild
hjá félagsmönnum, en kjara-
samningar mjólkurfræðinga
eru lausir frá 31. ágúst. Stjórn
félagsins hélt fund með félags-
mönnum á Akureyri á fimmtu-
dagskvöld, og var rætt um
kjaramál og tillögur stjórnar-
innar í þeim efnum.
Kristján Larsen, formaður
Mjólkurfræðingafélags íslands,
sagði að á fundinum á Akureyri
hefði stjórnin heyrt álit mjólkur-
fræðinga norðanlands á kjara-
málum, auk þess sem verkfalls-
heimildar hefði verið aflað. Ekki
væri von til að viðræður gætu haf-
ist fyrir mánaðamót, og ólíklegt
væri að til verkfallsaðgerða kæmi
á næstu vikum, þrátt fyrir
óánægju manna með kjörin.
Mjólkurfræðingar telja sig hafa
orðið fyrir umtalsverðum kjara-
skerðingum frá því þeir undirrit-
uðu síðustu samninga, í júní í
fyrra. Kristján vildi ekki nefna
neinar tölur í þessu sambandi, en
minnti á að samkvæmt upplýsing-
um frá ASÍ væri kaupmáttarrýrn-
un frá þeim tíma um 17,5%.
„Við höfum engar tölur sett á
blað, en vildum heyra í félags-
mönnum hvernig landið liggur.
Menn eru kannski ekki fyrst og
fremst óhressir með launin held-
ur hvað þeir geta keypt fyrir
þau,“ sagði hann.
Samkvæmt upplýsingum frá
félagi mjólkurfræðinga starfa um
20 mjólkurfræðingar á svæðinu
frá Blönduósi að Húsavík, þ.e.
helmingur félagsmanna á land-
inu. Kjarasantningar Rafiðnaðar-
sambands íslands og húsasmiða
eru einnig lausir um mánaðamót-
in. EHB
Hægviðri og
léttskýjað
Á þessuni árstíma er varla
ástæöa til aö kvarta yfir því
veðri sem framundan er,
hægviöri og þurrki.
A laugardag og sunnudag
verður hægviðri. Léttskýjað
veröur á köflum og hiti á bil-
inu 12-14 stig yfir daginn en
fer í 3-4 gráður á næturnar.
Nokkur hætta er á næturfrosti
ef ckki hreyfir vind.
Á mánudag verður sunnan-
átt ríkjandi og skýjað cn á
þriðjudag hægviðri, breytileg
átt og skýjað. KR