Dagur - 21.09.1989, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 21. september 1989
myndasögur dags
í-
ARLAND
Sko... hún er húsmóðir'
...mrnrn ...og hún kann að
. gera frábært rækjusalat.
Er það allt og sumt? Er þetta allt
sem þú hefur að segja um mömmu
þína? Frábært rækjusalat?
Friðrikka ...það hlitur að vera meira
til hennar komið en að hún búi til
rækjusalat.
#ýrst þú nefndir það ...hún
býr u'ka til mjög góðar
kjötbollur.
ANDRES OND
Ég ætti aö gera eitthvað
'annaö en aö sitja og
horfa á sjónvarpið.
Eg ætti t.d. aö lesa bók
eða tímarit.
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
Á meðan um borö i Lightning,
En hver er þessi
Kung Wan?... og
hvers vegna þykist
hann vera þú, herra
Hann er yfirmaður
skipulagðra gægai
Suðaustur-
Asíu..
þegar Bjargvættirnir fimm hótuðu
að koma upp um hnisuveiðarnar
hans, skipulagði Kung Wan þessar aðgerð-^
ir til þess að losna við ykkur öll ... og svo
virðist sem honum sé að.takast það!.../
S-/VWS5/-
t?EPETrO
-tó-AS
# Á gömlu
togurunum
Gömlu síðutogararnir höfðu
eitthvað við sig sem ekki er
hægt að finna í nýrri
skipum. Þeir eru margir sem
muna eftir gömlu góðu tog-
urunum hjá ÚA, Kaldbak,
Harðabak, Sléttbak og
Svalbak. Margt gerðist um
borð i þessum síðutogurum
sem vert er að varðveita, og
margir stigu þar sín fyrstu
spor á sjó. Sjómenn þeirra
tíma létu sér ekki allt fyrir
brjósti brenna, og oft var
gripið til kímnigáfunnar.
Margt af því er þess eðlis að
ekki mun við hæfi að birta
það á prenti, ýmist vegna
þess að það tengist viður-
nöfnum á einstökum mönn-
um, eða öðrum atvikum
sem gætu verið vandræða-
leg.
• Fiffaðu
vesenið ...
Hér er ein stutt saga frá
gömlu togurunum. Maður
einn var nýbyrjaður um
borð og þekkti ekki til. Sér-
stakt tungumá! var notað
um borð sem var ekki auð-
skíljaniegt óinnvígðum, og
varð hann fyrir barðinu á
því. Eitt sinn var setið að
snæðingi í borðsalnum, og
segir þá næsti maður við
þann nýja: „Fiffaðu vesen-
ið“. Sá nýi skildi ekki neitt.
Spurningin eða skipunin
var þá endurtekin tvisvar,
en að lokum sagði sá gamal-
reyndi: „Hvað er þetta,
maður, skilur þú ekki
íslensku? Réttu mér
ostinn.“
# Þetta er nú
ekkert...
Þegar síðutogararnir komu
til Akureyrar var til stétt
manna sem nú er að mestu
horfin, og það fyrir löngu.
Þetta voru gömlu togara-
sjómennirnir, sem höfðu
byrjað á kolatogurunum
upp úr 1920. Þessir menn
höfðu séð hitt og þetta, og
þótti margt næsta létt sem
aðrir kvörtuðu yfir, og vís-
uðu þá oft til reynslu sinnar
af „elstu togurunum.“ Eitt
sinn þurfti að fara inn í gufu-
ketilinn á Kaldbak og þétta
sprungið rör. Þetta var ekki
með því vinsælasta sem
kyndarar eða vélstjórar
gerðu, en menn létu sig þó
hafa það að ganga á mjóum
planka yfir sjóðandi heitu
vatninu við þetta hættulega
verk. Gamall vélstjóri sagði
eitt sinn við yngri mann, eft-
ir að sá síðarnefndi hafði
nýlokið við að „þétta“ eitt
rörið: „Þetta var nú ekkert
hjá því sem gerðist á gömlu
togurunum. Einu sinni
þurfti ég að fara inn f ketil-
inn á miðnætti á jólanótt til
að þétta leka. Mér var hálf
oglatt því jólasteikin var
heldur hrá. Eg var fljótur að
þétta því inni var 200 gráðu
hiti, og ,mér leið bara ágæt-
lega þegar ég kom út, steik-
in mátulega soðin og ég í
fínu formi.“
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Fimmtudagur 21. september
17.50 Sögur uxans.
18.20 Unglingarnir í hverfinu.
(Degrassi Junior High.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Hver á að ráða?
(Who’s the Boss?)
19.20 Benny Hill.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Gönguleiðir.
Strandir.
Leiðsögumaður Ólafur Ingimundarson.
20.50 Heitar nætur.
(In the Heat of the Night.)
Bandarískur myndaflokkur.
21.45 íþróttir.
22.25 Nýjasta tækni og vísindi.
M.a. fjallað um olíuleit við ísland og upp-
finningasamkeppni unglinga.
23.00 Seinni fréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Fimmtudagur 21. september
15.35 Með Beggu frænku.
Endurtekinn þáttur frá síðastliðnum
laugardegi.
17.05 Santa Barbara.
17.55 Stálriddarar.
(Steel Riders.)
Fyrsti þátturinn af átta í spennandi þátta-
röð fyrir börn og unglinga sem segir frá
ævintýrum Brians og tveggja barna hans
á unglingsaldri.
18.25 Dægradvöl.
(ABC's World Sportsman.)
19.19 19.19.
20.30 Njósnaför.
(Wish Me Luck.)
Fyrsti þáttur af átta í nýrri, breskri fram-
haldsmynd, sem segir frá tveimur stúlk-
um sem yfirgefa fjölskyldur sínar til að
gerast föðurlandsnjósnarar í Frakklandi.
21.25 Kynin kljást.
Þetta er nýr og nýstárlegur getraunþátt-
ur enda gengur leikurinn út á það að kon-
ur keppa við karla, og karlar keppa við
konur.
Vinningarnir verða glæsilegir og þættimir
allir með léttu og skemmtilegu yfirbragði.
21.55 Einfarinn.#
(Nasty Heroe.)
Chase er einfari og fremur svalur og karl-
mannlegur töffari. Hann er heiðarlegur
og því hefur sex mánaða dvöl hans í fang-
elsi, þar sem hann var ranglega dæmdur
fyrir flutning á stolnum bílum, kynnt svo-
lítið undir honum. Chase er nú kominn
aftur til Miami til að heimsækja besta vin
sinn, Carlos, og hina undurfögru frænku
hans, Yolanda. Erindi hans til Miami er
ekki síður að finna út hver kom honum í
klandrið og sá má heldur betur vara aig.
Aðalhlutverk: Scott Feraco.
Bönnuð börnum.
23.15 Skyttan og seiðkonan.
(The Archer And The Sorceress.)
Ung, myndarleg skytta leitar galdra-
mannsins Lazsar-Sa vegna þess að ein-
ungis hann getur hjálpað skyttunni ungu
að endurheimta hans réttu nafnbót og ná
fram hefndum vegna dauða föður hans.
Aðalhlutverk: Lane Caudell, Victor
Campos, Belinda Bauer og George
Kennedy.
Bönnuð börnum.
00.55 Dagskrárlok.
Rás 1
Fimmtudagur 21. september
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Randveri Þorlákssyni.
Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl.
7.30.
Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Ólafur Oddsson talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir ■ Tilkynningar.
9.03 Litli barnatíminn: „ Júlíus Blom veit
sínu viti“ eftir Bo Carpelan.
Gunnar Stefánsson les þýðingu sína (18).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn.
Umsjón: Einar Kristjánsson.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar
Tóniist.
13.05 í dagsins önn - Náttúrufræðistofnun
íslands.
13.35 Miðdegissagan: „Myndir af Fidel-
mann“ eftir Bernard Malamud.
Ingunn Ásdísardóttir les þýðingu sína (3).
14.00 Fréttir • Tilkynningar
14.05 Miðdegislögun.
- Snorri Guðvarðarson. (Frá Akureyri).
15.00 Fréttir.
15.03 „Legg mig á steðja, ó, sterki Guð.“
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist eftir Puccini.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Daglegt mál.
19.37 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Ópera mánaðarins: „Á valdi örlag-
anna" eftir Giuseppe Verdi.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins •
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Þórðr Sigurðsson sjómaður horfir til
hafs
með Þorsteini J. Vilhjálmssyni.
23.10 Gestaspjall.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Fimmtudagur 21. september
7.03 Morgunútvarpið: Vaknið til lífsins!.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
9.03 Morgunsyrpa.
Eva Ásrún Albertsdóttir.
Neytendahorn kl. 10.05.
Afmæliskveðjur kl. 10.30.
Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur kl.
11.03.
Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið
með Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Milli mála.
Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju
lögin.
Hagyrðingur dagsins rétt fyrir þrjú og
Veiðihornið rétt fyrir fjögur.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvars-
son, Guðrún Gunnarsdóttir, Þorsteinn J.
Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
Meinhornið.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins:
„Aldrei að víkja" framhaldsleikrit eftir
Andrés Indriðason.
Fyrsti þáttur af fjórum.
22.07 Sperrið eyrun.
- Anna Björk Birgisdóttir leikur þunga-
rokk á ellefta tímanum.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
1.00 „Blítt og létt... “
2.00 Fréttir.
2.05 Eric Clapton og tónlist hans.
3.00 Næturnótur.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Blítt og létt... “
Ríkisútvarpið á Akureyri
Fimmtudagur 21. september
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Fimmtudagur 21. september
07.00 Páll Þorsteinsson.
Palli fer á fætur við fyrsta hanagal. Glugg-
að í blöðin og þægileg tónlist á leið til
vinnu.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Frísk stelpa mætt með allar bestu ballöð-
ur seinni ára á vaktina. Síminn hjá Valdísi
611111.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Besti tónlistarkokkteill sem völ er á.
Óskalagasíminn er 611111.
17.00 Hallgrímur Thorsteinsson - Reykja-
vík síðdegis.
Fréttir og fréttatengd málefni.
Þetta er þáttur hlustenda sem geta haft
samband og komið sínum málefnum til
skila í gegnum símann 611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Rétta tónlistin yfir kvöldmatnum.
20.00 Listapopp.
íslenski listinn milli 20 og 22 og svo
breski, bandaríski og evrópski listinn milli
22 og 24.
Umsjónarmenn: Pétur Steinn, Gunnlaug-
ur Helgason og Bjarni Haukur Þórsson.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Fimmtudagur 21. september
17.00-19.00 Lótt síðdegistónlist. Óskalaga-
síminn opinn.
Stjórnandi: Pálmi Guðmundsson.
Fréttir kl. 18.00.