Dagur - 22.09.1989, Blaðsíða 11
r
Föstudagur 22. september 1989 - DAGUR - 11
íþrótfir
Knattspyrna:
Hver verður valinn?
- uppskeruhátíð knattspyrnumanna í kvöld
KA, sem íslandsmeistari, mátti
tilnefna heiöursgest á hátíðina og
fyrir valinu varð Ragnar Sig-
tryggsson sem var fyrsti landsliðs-
maður KA í knattspyrnu. Hann
lék landsleik gegn Belgum árið
1957 í Reykjavík en Belgía vann
þann leik 5:2.
í fyrra var Sigurjón Kristjáns-
son úr Val valinn besti leikmaður
íslandsmótsins og þá var Framar-
inn Arnljótur Davíðsson kosinn
efniíegasti leikmaðurinn. Það
vekur athygli að báðir þessir leik-
menn hafa ekki verið fastamenn í
liðum sínum á þessu íslandsmóti.
Arnljótur hefur reyndar átt við
meiðsli að stríða en Sigurjón hef-
ur ekki leikið síðustu leiki liðsins,
eða síðan Guðmundur Þor-
björnsson tók við Valsliðinu af
Herði Helgasyni. Þetta á vonandi
ekki eftir að liggja fyrir þeim
leikmönnum sem nú verða
| valdir.
Örlygsson sterklega til greina en
einnig má gera ráð fyrir því að
fyrirliðinn lErlingur Kristjánsson
fái nokkur stig. Helsti keppinaut-
ur þeirra verður að öllum líkind-
um Rúnar Kristinsson úr KR sem
leikið hefur mjög vel með liði
sínu á þessu keppnistímabili.
Aðrir leikmenn sem koma til
greina eru Pétur Ormslev úr
Fram, KR-ingurinn Pétur Péturs-
son, Ólafur Jóhannesson þjálf-
ari og leikmaður FH, Hörður
Magnússon úr FH sem varð
markahæsti maður íslandsmóts-
ins 1989 og Bjarni Sigurðsson
landsliðsmarkvörður úr Val.
Ólafur Gottskálksson mark-
vörður úr ÍA á mesta möguleika
á því að verða valinn efnilegasti
leikmaður þessa íslandsmóts.
Aðrir sem koma til greina eru
t.d. Einar Páll Tómasson úr Val,
Baldur Bjarnason úr Fylki og
Jóhann Lapas úr KR.
Sund:
Bikarkeppnin á Akureyri
Uppskeruhátíð félags 1. deild-
arleikmanna fer fram á Hótel
íslandi í kvöld. Þar verður
m.a. tilkynnt um kjör besta
leikmanns 1. deildar, efnileg-
asta leikmannsins í deildinni
og einnig verður valinn besti
dómarinn.
Sigurjón Kristjánsson Val var valinn besti leikmaðurinn í fyrra og Arnljótur
Davíðsson Fram sá efnilegasti. Athyglisvert er að hvorugur þeirra var síðan
fastamaður í sínu liði í sumar.
Þessi hátíð hefur vaxið og
dafnað á undanförnum árum og
er nú orðinn glæsilegur loka-
punktur á knattspyrnuvertíðinni.
KA-menn bíða spenntir eftir
hátíðinni enda er líklegt að þeir
eigi góða möguleika á því að eiga
besta mann íslandsmótsins árið
1989. Þar kemur Þorvaldur
- í 3. deild um helgina - Óðinn og KS keppa
Bikarkeppni Sundsambands
íslands í 3. deild fer fram í
Sundlaug Akureyrar um helg-
ina. Keppni hefst í kvöld,
föstudag, og v^rður synt fram
á sunnudag. Tvö lið frá
Norðurlandi, Óðinn frá Akur-
eyri og KS frá Siglufirði, taka
þátt í mótinu.
Keppt verður í tuttugu ein-
staklingsgreinum og fjórum
boðsundsgreinum. Hvert félag
fær stig samkvæmt alþjóðlegri
stigatöflu. Óðinskrakkarnir eru
staðráðnir í því að standa sig vel
en félagið féll úr 2. deild í síðustu
keppni og stefna Akureyringar
að endurheimta sæti sitt í þeirri
deild.
Þau lið sem taka þátt í 3. deild-
inni, auk Óðins og KS, eru UÍA,
Bolungarvík, Vestri ísafirði og
HSK.
éiL.. j ** %' / "
Sundfólkið úr Óðni, m.a. Birna Sigurjónsdóttir sem sést á þessari mynd,
verða á fullu um helgina.
Handknattleikur:
Æfingar hafnar
Handknattleikur:
Arnar með Völsung
- í handboltanum
Þórsarar eru komnir með fasta
æfingatíma í handboltanum í
öllum flokkum. Það skal þó
tekið fram að þessi æfingatafla
gildir frá og með mánudegin-
um 25. september, þ.e. næsta
mánudegi.
Meistaraflokkur karla æfir á
mánudögum og þriðjudögum kl.
19.00 og á miðvikudögum og
fimmtudögum kl. 20. 30. Æfing-
arnar eru í Skemmunni á mánu-
dögum og miðvikudögum og í
Höllinni á þriðjudögum og
fimmtudögum.
Þriðji flokkur karla æfir á
íþróttir
helgariraiar
Sund:
Bikarkeppni SSÍ í Akureyrarlauginni
alla hclgina
Golf:
Laugardagur:
Firmakeppni hjá GA kl. 10.00
Sunnudagur:
Gullsmiðabikarinn kl. 10.00
- í handboltanum
mánudögum og miðvikudögum
kl. 17.00 í Skemmunni og á
sunnudögum kl. 16.00 í Höllinni.
Fjórði flokkur karla æfir kl.
17.00 á mánudögum í Glerár-
skóla, kl. 19.00 á fimmtudögum í
sama skóla og svo á sunnudögum
kl. 15.00 í Höllinni.
Fimmti flokkur karla æfir
þrisvar í viku í Glerárskóla. Á
þriðjudögum kl. 19.00, á fimmtu-
dögum kl. 20.00 og á sunnudög-
um kl. 10.30.
Sjötti flokkur æfir tvisvar í
hjá Þór
viku í Glerárskóla. Á þriðjudög-
um kl. 18.00 og á sunnudögum
kl. 15.45.
Meistaraflokkur kvenna æfir á
mánudögum kl. 20.30 í Skemm-
,unni, kl. 18.00 á miðvikudögum á
sama stað og svo í Höllinni á
fimmtudögum kl. 22.00
Þriðji flokkur kvenna æfir í
Glerárskóla á þriðjudögum kl.
20.00 og á sunnudögum kl. 15.00
í Skemmunni.
Fjórði flokkur kvenna æfir í
Glerárskóla á miðvikudögum kl.
17.00 og á sunnudögum kl. 9.30.
íþróttagarpurinn góðkunni
Arnar Guðlaugsson mun þjálfa
handknattleikslið Völsunga í
vetur. Húsvíkingarnir leika í 3.
deildinni og hcfst íslandsmótið í
þcirri deild helgina 5.-7. októ-
ber. Þá leika Völsungar gegn
UBK-b, Ármanni-b og Reyni
Sandgerði fyrir sunnan.
Arnar sagði í samtali við blaðið
að hópurinn væri stór og áhuga-
samur en leikmennirnir væru
flestir ungir að árum og því mætti
ekki búast við neinum stórár-
angri í vetur. „Liðinu tókst ekki
að vinna leik í fyrra þannig að við
getum ekki farið nema upp á við í
vetur. Strákarnir eru tíestir á
aldrinum 17-19 ára og eiga fram-
tíðina fyrir sér,“ sagði Arnar.
FH-b og Valur-b fóru upp í 2.
dcild í fyrra en annars eru sömu
lið áfram í 3. deildinni. Völsung-
ur er eina liðið af Noröurlandi
sem leikur í þeirri deild.
Arnar Guð|augsson þjálfar Völs-
unga í vetur.
Páll Gíslason og aðrir Þórsarar æfa nú á fuilu fyrir íslandsmótið. Mynd: tlv
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Faðir gegn syni
Gylfi Baldvinsson útgerðarmaður virðist illsigranlegur og svil-
kona hans, Fjóla Jóhannsdóttir, fékk að kenna á getspeki Gylfa
í síðustu viku. Gylfi var með 7 rétta, sem er mjög góður árang-
ur, en Fjóla var með 5 rétta.
Gylfi segir að fjölskyldan iði í skinninu að leggja hann að velli og
hefur Gylfi því skorað á son sinn, Jóhann B. Gylfason. Enska
knattspyrnan er nú komin á fullt og athygli beinist mest að leik
nágrannanna, Liverpool og Everton, en bæði þessi lið eru á
toppi ensku deildarinnar. íslensku liöin eru farin að fá pening af
getraunum og, eins og í fyrra, eru Fylkir og Fram duglegust viö
söluna. Fram seldi 8.945 raðir í síðustu viku, Fylkir seldi 6.510
raöir. KA er söluhæst á Norðurlandi með 3.759 raðir og er í 5.
sæti yfir landið. Þór í 10. sæti meö 3.039 seldar raðir. En snúum
okkur þá að spá feðganna fyrir þessa 38. leikviku.
Gylfi:
Arsenal-Charlton 1
Aston Villa-QPR 1
Chelsea-Coventry x
C.Palace-Nott.For. 1
Derby-Southampton 1
Everton-Liverpool 2
Luton-Wimbledon 1
Man.City-Man.Utd. 2
Norwich-Tottenham 1
Bournemouth-Blackburn x
Oxford-lpswich 1
West Ham-Watford x
Jóhann
Arsenal-Charlton 1
Aston Villa-QPR x
Chelsea-Coventry 1
C.Palace-Nott.For. 2
Derby-Southampton 1
Everton-Liverpool x
Luton-Wimbledon 1
Man.City-Man.Utd. x
Norwich-Tottenham 1
Bournemouth-Blackburn 1
Oxford-lpswich 2
West Ham-Watford x
1X2 1X2 1X21X2 1X2 1X21X2 1X2 1X2