Dagur - 26.09.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 26. september 1989
Yfirlýsing frá Kaupfélagi Eyfirðinga:
Umræða í Qölmiðlum einkennist af
getgátum, rangíærslum og ónákvæmni
- sem vissulega gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir félagið
Að undanförnu hefur verið rætt
um málefni Kaupfélags Eyfirðinga
í fjölmiðlum. Því miður hefur
þessi umræða einkennst af getgát-
um, rangfærslum og ónákvæmni,
sem vissulega gæti haft alvarlegar
afleiðingar fyrir félagið. KEA er
eitt af stærstu fyrirtækjum lands-
ins og því fylgir mikil ábyrgð.
Félagið er í forystu á mörgum
sviðum íslensks atvinnulífs og
fjöldi fólks byggir afkomu sína á
velgengni þess. Pví er rétt að
eftirfarandi komi fram:
1. Heildarvelta KEA á árinu
unda stærsta fyrirtæki landsins,
ntiðað við veltu.
3. Rétt eins og önnur fyrirtæki
og félög hefur KEA tekið lán til að
fjármagna rekstur og fjárfesting-
ar. KEA hefur getað boðið lána-
drottnum sínum góð veö fyrir
skuldunt félagsins, eins og sést
best á sterkri eiginfjárstöðu.
Skuldir KEA við viðskiptabanka
félagsins, Landsbanka íslands,
eru ekki í vanskilum. Þetta atriði
hefur verið staðfest af yfirstjórn
bankans.
4. Nú þegar erfiðleikar steðja
að íslensku atvinnulífi verða
fyrirtækin í landinu að snúa vörn
í sókn. Petta er stjórnendum og
starfsfólki KEA Ijóst. Ýmsu hef-
ur verið breytt í verslunarrekstri,
framleiðsluvörur hafa tekið
breytingum og innleiddar hafa
verið nýjungar og áfram verður
haldið. Pessar aðgerðir hafa leitt
til þess að betur horfir unt
afkomu fyrirtækisins en í upphafi
árs.
5. KEA hefur á undanförnum
árum og áratugum verið beitt til
hins ítrasta til atviiinuuppbygg-
ingar á Eyjafjarðarsvæðinu. Auk
þess hefur KEA jafnframt tekið
þátt í sköpun atvinnu utan síns
eiginlega félagssvæðis. Þó erfið-
lega horfi nú um stundarsakir
mun KEA, hér eftir sem hingað
til, vinna ötullega að uppbygg-
ingu og framförum í íslensku
atvinnulífi.
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri KEA.
var 6.741 milljónir króna og eign-
ir í árslok 1988 voru 5.289 millj-
ónir króna. Velta samstarfsfyrir-
tækja KEA árið 1988 var hins
vegar 1.712 milljónir króna.
Skuldir KEA í árslok 1988 voru
3.196 ntilljónir króna og eigið fé
2.093 milljónir króna, sem er
rösklega 39% af niðurstöðu efna-
hagsreiknings. Petta hlutfall cr
með því besta sem þekkist hjá
fslensku stórfyrirtæki. Heildar-
velta KEA ásamt veltu samstarfs-
fyrirtækja var því 8.453 milljónir
króna. í árslok 1988 störfuðu
samtals 1340 manns hjá KEA og
samstarfsfyrirtækjum.
2. Samkvæmt könnun tíma-
ritsins Frjálsrar verslunar á 100
stærstu fyrirtækjum landsins árið
1987 kemur fram að KEA er sjö-
Sex íslensk útflutningsfyrirtæki
á sölusýningu í Suður-Kóreu
- Þar hefur opnast vænlegur rnarkaður fyrir íslenskar framleiðsluvörur
í dag, þriðjudaginn 26. sept-
ember, hefst í Seoul í Suður-
Kóreu vörusýning sem nefnist
Evrópsk framleiðsla og er hún
haldin að frumkvæði Kóreu-
ntanna. Flest ríki Vestur-Evrópu
eru meðal þátttakenda, þeirra á
meðal ísland. Suöur-Kórea er
þjóðfélag í örum efnahagsvexti
og þar hefur verið að opnast
mikilvægur markaður m.a. fyrir
MYNDLISTASKÓLINN
Á AKUREYRI
íslenskar sjávarafurðir og ullar-
vörur. Sex ínnlend fyrirtæki taka
þátt í sýningunni undir stjórn og
skipulagi Útflutningsráðs
Islands.
í gær, mánudag, hélt Útflutn-
ingsráð og íslensku fyrirtækin
blaðamannafund fyrir kóreanska
fjölmiðla um viðskiptamöguleika
ríkjanna tveggja. I gær var haldin
námstefna í kóreönsku sýningar-
höllinni í Seoul fyrir þarlenda
aðila sem versla við eða hyggja á
viðskipti við ísland. Á námskcið-
inu flytur Ingjaldur Hannibals-
son, framkvæmdastjóri ÚI,
fræðsluerindi sem nefnist „ísland
- land, þjóð og útflutningsiðnað-
ur“ og Benedikt Höskuldsson,
markaðsfulltrúi Úí, talar um
íslenskan sjávarútveg, fiskafurðir
og framleiðslutækni.
íslensku sýnendurnir verða
með hádegisverðarborð fyrir
kóreanska viðskiptavini á morg-
un þar sem m.a. verða kynntir
íslenskir sjávarréttir og þar mun
ungfrú heimur, Linda Pétursdótt-
ir, taka á móti gestunum. Auk
þess kemur hún fram í sjónvarpi í
sérstökum viðtalsþætti, þar sem
ungfrú Suður-Kórea, sem er einn
stjórnenda þáttarins, spjallar við
Lindu um ísland.
íslensku fyrirtækin, sem taka
þátt í sýningunni, eru Álafoss
hf., Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, Sölusamtök lagmetis, Sjáv-
arafurðadeild Sambandsins,
Marbakki hf., og Seifur hf. Sýn-
ingin, sem vakið hefur athygli í
viðskiptalífi S.-Kóreu, stendur til
29. október nk.
Brotist inn í Árwill sf. og sundlaugina um helgina:
Fingralangir á ferð á Dalvík
- málið er í höndum rannsóknarlögreglunnar
Kaupvangsstraeti 16
Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri
2. október til 20. janúar.
Barna- og unglinganámskeið.
Teiknun og málun fyrir börn.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku.
5. fl. 12-13 ára. Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. 14-15 ára. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. 15-16 ára. Einu sinni í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. 13-15 ára. Einu sinni í viku.
Bíræfnir innbrotsþjófar létu
heldur betur til sín taka á Dal-
vík um belgina. Brotist var inn
í billiardstofuna Árvvill við
Skíðabraut aðfaranótt föstn-
dags og hnuplað ríllega 11 þús-
und krónum. Þá var á föstu-
dagskvöld brotist inn í sund-
laug og íþróttahús en ekki
virðist þjófurinn eða þjófarnir
hafa haft þar erindi sem erfiði
því engu var stolið. Hins vegar
voru þar brotnar upp læsingar
og eignatjón því umtalsvert.
Svo virðist sem hlutaðeigandi
hafi verið vel kunnugir í Arwill
sf. Gengið var hreint til verks
aðfaranótt sl. föstudags og fjár-
munum stoliö úr peningageymslu
billiardstofunnar. Að sögn lög-
reglu var þar um að ræða á bilinu
11-12 þúsund krónur. Aðrar
skemmdar voru ekki unnar á
innanstokksmunum billiardstof-
unnar.
Annað innbrot var frarnið að
kvöldi sl. föstudags. Brotist var
inn í sundlaug og íþróttahús og
telur lögregla fullvíst að þjófur
eða þjófar hafi leitað fjármuna
þar. Par var hins vegar enga pen-
inga að hafa. Eignatjón var tölu-
vert því læsingar voru brotnar
upp.
Að sögn lögreglu hefur hvor-
ugt þessara innbrota verið upp-
lýst en málið er í höndum rann-
sóknarlögreglu á Akureyri og
lögreglunnar á Dalvík.
Pað verður ekki annað sagt en
að þetta haust hafi verið tími inn-
brota á Dalvík. Fyrir utan tvö
innbrot um helgina voru þjófar á
ferð í Grunnskólanum 18. sept-
ember sl. og stálu á bilinu 10-20
þúsundum úr læstum peninga-
skáp. Þetta var um hábjartan dag
og starfsmenn skólans í vinnu. Þá
var einnig brotist inn í söluskúr
við Víkurröst um síðustu mán-
aðamót. óþh
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna.
Teiknun.
Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeiö. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Byggingalist.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun
í síma 24958.
Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga.
Skólastjóri.
Samhjálp foreldra hefur flársöfnun:
Til að styðja og styrkja börain sín
Samhjálp foreldra, sem er
félag foreldra barna með
krabbamein og er aðili að
Krabbameinsfélagi Islands,
hefur ákveðið að hefja fjár-
söfnun í þeim tilgangi að styðja
og styrkja börnin sín á ýmsan
hátt.
Framlag hins opinbera er eng-
an veginn nægilegt til þess að
bæta upp aukinn kostnaðarauka
og tekjutap sem fjöldskyldur
þeirra barna sern greinast með
krabbamein verða fyrir en slíkt
er gífurlegt áfall fyrir hverja fjöl-
skyldu og hreinlega kippir undan
henni fótunum fjárhagslega. Pví
var ákveðið á fundi í mars sl., að
Samhjálp forcldra rnyndi hjálpa
sér sjálft við útvegun fjármagns,
með dyggri aðstoð fyrirtækja og
einstaklinga í landinu. í fyrstunni
verða sendir út gíróseðlar til nán-
ustu vina og ættingja félaga í Sarn-
hjálp foreldra, svo og fyrirtækja í
landinu.
Hér á landi greinist nú að með-
altali krabbamein hjá átta börn-
um 14 ára og yngri. Lífshorfur
barna með krabbamein hafa
batnað verulega á undanförnum
árum en þau verða að ganga í
gegnum langa og erfiða meðferð.
Til að létta þeim lífið á meðan á
meðferð stendur geta fjölskyldur
þeirra gert ýmislegt en flest kost-
ar það fjárútlát.
Ef einhverjir vilja fræðast nán-
ar um krabbamein hjá börnum,
þá liggja bæklingar frammi á öll-
um heilsugæslustöðvum landsins.
- Og þeir sem hafa áhuga á því
að gerast styrktarmeðliinir, geta
haft samband við Þorstein Ólafs-
son eftir kl. 18 í síma 96-24398,
og Viðar Eyþórsson og Guðrúnu
Björnsdóttur fyrir hádegi og á
kvöldin í síma 23703. Gjaldið hjá
hverjum styrktarmeðlimi er kr.
2000,- á ári -KK