Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 26. september 1989
Öng u Isstaðah reppu r
Hrossasmölun í Öngulsstaðahreppi fer fram
laugardaginn 30. september n.k.
Réttað verður í Þverárrétt sunnudaginn 1. október
kl. 13.
Eigendur utansveitarhrosssa skulu greiða kr. 600 í
Fjallskilasjóð Öngulsstaðahrepps fyrir hvert hross.
Oddviti.
Einbýlishús til sölu!
Til sölu er mjög gott einbýlishús við
Lerkilund á Akureyri.
Húsið er til afhendingar fljótlega.
Fasteignasalan =
Brekkugötu 4 • Sími 21744
Gunnar Solnes hrl . Jon Kr Solnes hrl og Arni Palsson hdl
Sölust. Sævar Jónatansson
AKUREYRARB/íR
Akureyrarbær auglýsir
a) Deiliskipulag iðnaðar- og verslunar-
svæðis við Lund.
Svæðið afmarkast af Skógarlundi, Þingvalla-
stræti, íbúðarhúsalóðum við Furulund og fyrir-
hugaðri götu vestan Lundahverfis. Um er að
ræða þrjár byggingarlóðir fyrir iðnaðar- og/eða
verslunarhús auk bifreiðastæða fyrir stórar
bifreiðar.
Uppdráttur er sýnir tillögu að deiliskipulagi þessa
svæðis liggurframmi almenningi til sýnis á Skipu-
lagsdeild Akureyrar, Hafnarstræti 81 b næstu 4
vikur frá birtingu þessarar auglýsingar þ.e. til
mánudagsins 23. október 1989, þannig að þeir
sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert
athugasemdir sbr. grein 4.4. í skipulagsreglu-
gerð.
b) Breyting á aðalskipulagi Akureyrar
1972-93.
Með tilvísun til 17. og 18 gr. laga nr. 19 frá maí
1964 var 19. ágúst síðastliðinn auglýst breyting á
staðfestu aðalskipulagi Akureyrar 1972-93 að því
er varðar hluta svæðisins milli Krossanesbrautar
og Óseyrar (Skálaborgir) þannig að í stað útivist-
arsvæðis komi iðnaðarsvæði. Breyting þessi er
samþykkt í skipuiaqsnefnd 18. júlí 1989 og í
bæjarstjórn 15.8. 1989.
Uppdráttur og aðrar upplýsingar liggja frammi
almenningi tii sýnis á Skipulagsdeild Akureyrar,
Hafnarstræti 81 b. Frestur til að skila athugasemd-
um ef einhverjar eru, rennur út þann 13. október
1989 kl. 16.00. Þeir sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkir breyting-
unni.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Stofnfundur samtaka
fámennra skóla
haldinn að Flúðum 8.-9. september sl.
Dagana 8.-9. september komu
saman að Flúðum 80 kennarar
víðs vegar af landinu og gengu
frá stofnun Samtaka fámennra
skóla.
Fámennir skólar hafa verið til
á íslandi frá upphafi skólahalds
og algengasta skólaformið í
dreifðum byggðum landsins í
gegnum tíðina. Fámennir skólar
eru skilgreindir sem skólar með
100 nemendur eða færri þar senr
tveinrur eða fleiri árgöngum er
kcnnt saman. Petta eru rösklega
55% skóla á landsbyggðinni.
Með stofnun samtakanna
hyggjast kennarar í fámennum
skólum efla samstarf og sam-
skipti sín á nrilli, stuðla að bættu
og fjölbreyttara skólastarfi og
standa vörð um hagsmuni skól-
anna. Samtökin ætla að fara
rólega af stað og mun starfsemin
felast í árlegunr fundi þar sem
félagar konra saman og ræða sín
mál.
Á fundinunr var rn.a. rætt um
fjármál skóla og kom franr að
sveitarfélögin gcra mjög misjafn-
lega við sína skóla. Voru menn á
einu máli um að þarna yrði að
fara fram einhver samræming,
ekki síst vegna nýrra laga um
breytta verkaskiptingu milli ríkis
og sveitarfélaga sem taka gildi
um næstu áramót, á nriðju skóla-
ári.
Einnig var rætt uin kennara-
menntun og þeim tilmælum beint
til Kennaraháskólans að í grunn-
námi kennara verði meiri áhersla
lögð á kennslu og starf fámennra
skóla en nú er. Þá var fjallað unr
málefni leiðbeinenda en þeir eru
margir í þessum skólum. Fundur-
inn sanrþykkti að skora á Kenn-
araháskójann að hraða uppbygg-
ingu og framkvæmd kennara-
nánrs í dreifbýli þannig að leið-
beinendur geti stundað kennara-
nám t.d. með fjarnámi.
Fundarmcnn voru sammála
um að heimavistarskólar væru til
af þörf en ekki illri nauðsyn.
Yfirvöld yrðu að búa þeim slík
starfsskilyrði að þeir geti þjónað
hlutverki sínu með sóma.
Þá fagnaði fundurinn auknum
áliuga á kennslustarfinu senr lýsir
sér í meiri aðsókn að Kennara-
háskólanum, flciri umsóknum
um lausar kennarastöður og
miklunr áhuga á sérkennslunámi
út um land.
Ný aðalnámskrá kom út í vor
og lýstu fundarmenn yfir ánægju
sinni með að í henni er lögð
áhersla á að hver skóli fái notið
sérstöðu sinnar. Jafnframt beina
þeir því til stjórnvalda að öllum
skólum verði gert kleift að standa
að skólastarfinu með reisn.
í lok fundarins var valin franr-
kvæmdanefnd fyrir næsta ársfund
sem verður á Norðurlandi eystra.
Forsvarsmaður hennar og jafn-
framt samtakanna er Ólafur Arn-
grímsson skólastjóri Litlulauga-
skóla. Með honum í nefndinni
eru: Jenný Karlsdóttir, Grunn-
skóla Svalbarðsstrandarhrepps,
Jón Stefán Baldursson, Stóru-
tjarnaskóla og Sverrir Thor-
steinsson, Stórutjarnaskóla.
Fundur í Samtökum fámennra
skóla beinir því til fræðslustjóra:
- Að fjármagni verði veitt til
kennslugagnamiðstöðva fræðslu-
skrifstofanna, svo að þar geti
starfað maður í fullu starfi.
- Að starfsmaður kennslu-
gagnamiðstöðvarinnar ferðist um
umdæmið, heimsæki skóla og
kynnist þar aðstæðum og þörfum
og stuðli að samvinnu milli skóla.
- Að starfsmaður kennslu-
gagnamiðstöðvarinnar sé dríf-
andi í aðdráttum og útausandi á
föngin. (Svona tala þeir í Bárð-
ardal!!!)
- Aö starfsmaður kcnnslu-
gagnamiðstöðvarinnar geti leið-
beint kennurum við námsgagna-
gerð, þ.e. klippt, límt og
klístrað, nr.a. við gerð staðbund-
ins námsefnis.
- Að starfsmaður nýti sér
tölvutækni við miðlun og
aðdrætti.
- Kennslugagnamiðstöðvarnar
eigi til útlána kennslugögn og
kennslutæki, sem litlir skólar
hafa vart tök á að eignast, svo
sem sérhæfð kennslugögn, upp-
tökutæki, plastbúka og fleira.
Fylgist með nýjungunr og kynni
þær.
Þá voru eftirfarandi ályktanir
samþykktar á stofnfundinum:
* Sanrtök fámennra skóla
fagna auknum áhuga á kcnnslu-
starfinu sem lýsir sér í mciri
aðsókn að Kennaraháskóla
íslands, fleiri umsóknum um
lausar kennarastöður og miklum
áhuga á sérkennslunámi út um
land.
* Samtök fámennra skóla
fagna því að ný aðalnámskrá
leggur áherslu á að hver skóli fái
notið sérstöðu sinnar og hvetja
samtökin stjórnvöld til aö gera
öllum skólum kleift að standa að
skólastarfinu með reisn.
* Samtök fámennra skóla mót-
mæla ákveðiö, að nær allir út-
reikningar vegna skólastarfsins
miðast við fjölda nenrenda;
stjórnunarstörf, kvótastörf,
stundir til viðmiðunar og stundir
til ráðstöfunar vegna forskóla.
Vegna þess hve þetta fyrirkomu-
lag kemur illa niður á fámennum
skólum, telja samtökin nauðsyn-
legt að leitað verði annarra leiða
þar á.
* Fundur Samtakra fánrennra
skóla, haldinn að Flúðum 8.-9.
septenrber 1989, bendir á að við
fámenna skóla starfa margir leið-
beinendur, sem eru mjög mikil-
vægur vinnukraftur fyrir skólana
°g byggðarlög þeirra.
Fundurinn bendir á að réttur
leiðbeinendanna er best tryggður
með því að gefa þeim kost á að
stunda kennaranám, t.d. með
fjarnámi í sinni heimabyggð.
Fundurinn skorar því á Kenn-
araháskóla íslands, að hraða-
uppbyggingu og framkvæmd
kennaranáms í dreifbýli, skóla-
starfi þar til heilla.
* Heimavistarskólar eru til af
þörf, en ekki illri nauðsyn. Þeir
verða að vera þannig útbúnir að
þeir þjóni hlutverki sínu sem
best. Þeir eru í dreifbýli og laga
sig að atvinnuháttum unrhverfis
síns. Nauðsynlegt er að fólk átti
sig á nrikilvægi þeirra og yfirvöld
búi þeim starfsskilyrði samkvæmt
því. Vel reknir heimavistarskólar
geta og eiga að vera menning-
armiðstöðvar í sínu byggðarlagi.
* Samtök fámennra skóla telja
nauðsynlegt að sveitarfélögin
móti samræmda stefni í fjármál-
um skólanna, alveg sérstaklega í
Ijósi þeirra breytinga er verða unr
næstu áramót.
Þar þarf meðal annars að koma
fram fyrirkomulag greiðslna
vegna ferðakostnaðar starfs-
manna á fundi, námskeið og
fleira, fæðiskostnaður í slíkurn
feröum, risnu vegna heimsókna,
fjármagn til áhaldakaupa, félags-
málastarfa, gæslu og hvernig ráð-
stafa skal sjálfsaflafé, skólanna
svo eitthvað sé nefnt.
Þá telja samtökin nauðsynlegt
að hraðað verði allri vinnu við
reglugerðir og nánari útfærslu á
lögunum um breytta verkaskipt-
ingu, svo að árekstrar verði í lág-
marki, sérstaklega í I jósi þess að
breytingin kemur inn á miðju
skólaári.
* Samtök fámennrar skóla
skora á skólaráð Kennaraháskóla
íslands að beita sér fyrir því að
bæta inn í grunnnám kennara
uinfjöllun um starf og kennslu
fámennra skóla, þar sem þeir eru
u.þ.b. 55% af skólum á lands-
byggðinni. Þetta er ekki síst
mikilvægt þar sem kennara-
skorturinn het'ur verið hvað
mestur í þessum skólurn.
Fundurinn bendir á að einmitt
nú er tækifæri á slíku þar senr
lenging kennaranámsins stendur
fyrir dyrum.
* Samtök fámennra skóla
skora á endurmenntunardeild
Kennaraháskóla íslands að
leggja frekari áherslu á að sinna
hinum fjölmörgu fámennu sam-
kennsluskólum með námskeiða-
haldi og fræðslufundum þar senr
sérþarfir þeirra eru teknar sér-
staklega til umfjöllunar.