Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagíjr 2é.' séptembérAéÓ9 - bÁGUR - 7
Uppskeruhátíð 1. deildarfélaga:
ÞorvaJdur valinn
sá besti
- og Arndis efnilegust hjá stelpunum
Spennan var töluverð á Hótel
íslandi á föstudagskvöldið þeg-
ar Þorgeir Ástvaldsson veislu-
stjóri á Uppskeruhátíð félags
1. deildarleikmanna reif upp
umslag sem í stóð nafn besta
leikmanns á íslandsmótinu
árið 1989. Gífurleg fagnaðar-
læti brutust út meðal hinna
tæplcga 100 KA-manna á
staðnum þegar Þorgeir las upp
nafn Þorvaldar Örlygssonar.
En það var ekki eingöngu Þor-
valdur sem hafði ástæðu til að
fagna því Arndís Ólafsdóttir var
valin efnilegasti leikmaðurinn í 1.
deild kvenna. Ólafur Gottskálks-
son, ntarkvörður ÍA, var valinn
efnilegasti leikmaðurinn á
íslandsmótinu og Arna Steinsen
besti leikmaðurinn í 1. deild
kvenna.
En þetta hafði verið annasam-
ur dagur fyrir KA-menn. Olíufé-
lagið hf., umboðsmaður Esso á
Islandi. hélt leikmönnum hóf fyrr
um daginn og þar afhenti Bjarni
Bjarnason, markaðsstjóri Olíu-
félagsins, Stefáni Gunnlaugssyni
bónus fyrir að sigra á íslandsmót-
inu í knattspyrnu.
Venjan er að leikmenn hinna
liðanna heimsæki sigurvegarann
og sá Olíufélagiö um að taka á
móti hinum liðunum með glæsi-
brag og voru þá um 500 manns
staddir í sal fyrirtækisins.
Síðan var haldið út í rútur,
merktar hverju félagi, og keyrður
smá hringur í lögreglufylgd og
þaðan var haldið á Hótel ísland.
Eftir að allir höfðu snætt nægju
sínu var komið að verðlaunaaf-
hendingu.
Hörður Magnússon úr FH fékk
afhentan gullskóinn frá Adidas,
Pétur Pétursson og Guðmundur
Steinsson fengu síðan brons- og
silfurskóinn. Þá fengu nokkrir
leikmenn viðurkenningu fyrir að
hafa leikið landsleiki á árinu og
Sævar Jónsson fékk gullhring fyr-
ir að hafa leikið 50 landsleiki.
En sfðan var tilkynnt um val
bestu og efnilegustu leikmann-
anna og þá var fjör í herbúðum
KA-manna, eins og hægt er að
sjá á blaðsíðu 14 og 15 í blaðinu í
dag.
Knattspyrna/ 2. deild:
Leiftur lagði Einheija
- 2:0 á Vopnafirði
Síðasti leikur Islandsmótsins í
knattspyrnu fór fram á Vopna-
firði á fimmtudaginn. Þar átt-
ust við Einherji og Leiftur í 2.
deildinni og skipti þessi leikur
litlu máli því heimamenn voru
nánast fallnir í 3. deild.
Leikurinn bar þess glögg
merki, áhorfendur voru
sárafáir og baráttan lítil í leik-
mönnum. Leikar fóru þannig
að Leiftur sigraði 2:0.
Liðin skiptust á um að sækja í
fyrri hálfleik og áttu bæði þokka-
lega tækifæri. En það var ekki
fyrr en um miðjan hálfleikinn að
Hafsteinn Jakobsson braut ísinn
er hann skoraði ágætt mark eftir
stungusendingu inn fyrir vörn
heimamanna.
Það var síðan Gústaf Ómars-
son sem negldi síðasta naglanna í
kistu Einherjamanna er hann
skoraði skömmu fyrir leikhlé eft-
ir aukaspyrnu á miöjum vallar-
helmingnum.
Síðari hálfleikur var daufur og
greinilegt að bæði lið vildu klára
leikinn sem fyrst og þannig ljúka
þessu íslandsmóti sem hvorugt
liðið var ánægt með. Þar mcð
enduðu Einherjamenn í botnsæt-
inu en Leiftursmenn skutust upp
í 6. sætið í deildinni.
Það var sannkölluð KA-steininning á Uppskeruhátið 1. deildarfélaga í knattspyrnu á föstudagskvöldið. Þorvaldur
Örlygsson var kosinn besti leikmaður 1. deildar og Arndís Ólafsdöttir var valin efnilegasti leikmaður í 1. deild
kvenna. Það er því engin furða að þau séu ánægð á þessari mynd. Mymt-. Jakob
Golf:
Súlan sigraði
- í firmakeppni GA - Jón vann Gullsmíðabikarinn
Það var mikið um að vera hjá
GA um helgina. Firmakeppn-
inni í golfi lauk og til úrslita
Sveinn Rafnsson og Arnar Birgisson léku til úrslita í Firmakeppni GA. Sveinn lék fyrir Súluna hf. og Arnar fyrir
Heklu hf. Sveinn hafði betur og sést hér ásamt Sverri Leóssvni frá Súlunni hf.
Icku Sveinn Rafnsson, sem lék
fyrir Súluna hf., og Arnar
Birgisson, sem lék fyrir Heklu
hf. Sveinn reyndist hlutskarp-
ari og það var því Súlan h.f.
sem sigraði í Firmakeppni GA
árið 1989. Alls tóku 111 fyrir-
tæki þátt í keppninni að þessu
sinni og kann GA þeim öllum
hinar bestu þakkir fyrir stuðn-
inginn.
Einnig var keppt um Gull-
smiðabikarinn og sigraði Jón
Friðriksson í I. Uokki, þ.e. flokki
kylfinga með forgjöf 0-27. í 2.
flokki, kylfinga með forgjöfina
28-42, sigraði Magnús Jónatans-
son.
Ágætis veöur var um helgina
og var það nokkuð sem kom á
óvart því veðrið var búið að vera
mjög leiðinlegt alla vikuna. En
aðfaranótt mánudagsins snjóaði í
fyrsta skipti hér á Norðurlandi
þannig að kylfingar fara brátt að
pakka saman kylfunum og íhuga
árangur sinn í sumar.
En snúum okkur aftur að þess-
um tveimur mótum sem fram
fóru að Jaðri um helgina. Sæl-
gætisverksmiðjan Linda og
Kjarnafæði gáfu sérstök auka-
vcrðlaun fyrir þá kylfinga sem
vor.u næst holu í höggi. Höröur
Steinbergsson var 3,07 m frá hol-
unni á 18. braut og 6,70 m frá
holunni á 4. braut. Birgir Björns-
son var 4,51 m frá holunni á 11.
braut og Örn Einarsson var 7,07
m frá holunni á 18. braut.
En lítum þá á úrslitin í barátt-
unni um Gullsmiðabikarinn:
1. flokkur (0-27 í forgjöO: högg
1. Jón Friðriksson 36
2. Bjarni Jónasson 33
3. Árni K. Friðriksson 33
4. Sverrir Þorvaldsson 33
2. flokkur: (28-42 í forgjöf):
högg
1. Magnús Jónatansson 54
2. Rafn Kjartansson 40
3. Örn Einarsson 39