Dagur - 26.09.1989, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 26. september 1989 - DAGUR - 9
Enska knattspyrnan:
Burst í Manchester
- er City lagðiUtd. 5:1 - Liverpool á toppinn eftir 3:1 sigur á Everton
„Derby“ leikir settu mestan
svip á leiki helgarinnar. Alls
voru þeir 7. Þrír í London og
einn í eftirfarandi borgum:
Stoke, Bristol, Manchester og
Liverpool. Ahorfendur fylltu
leikvellina á þessum völlum;
voru yfir 20 þús. á leiknum í
Stoke og uppseit var á leikina í
Liverpool, 42.453 áhorfendur,
og á Maine Road í Manchester
fóru um 2.000 áhorfendur út á
völlinn sökum plássleysis í
áhorfendastúkunum og taföist
leikurinn því um 10 mín.
Aðalleikurinn var leikur
Liverpool og Everton, þar sem
fjórir leikmenn spiluðu sinn
fyrsta „Derby" leik, þeir Norman
Whiteside, Mike Newell sem
einu sinni var á samningi sem
unglingur hjá Liverpool og Sví-
arnir Stefan Rehn hjá Everton og
Glynn Hysen fyrir Liverpool.
Everton tók forystuna á 17. mín.
með rnarki Mike Newell. Liver-
pool jafnaði um miðjan fyrri hálf-
leik er Peter Beardsley óð upp
hægri kantinn, þvældi 3 leikmenn
Everton og gaf boltann fyrir
mark Everton á John Barnes,
sem skallaði hann í mark Ever-
ton svo söng í marknetinu.
Beardsley var aftur á ferðinni er
Liverpool náði forystunni er
hann sendi boltann fyrir mark
Everton, þar sem Rush kom
aðvífandi og sendi boltann eina
ferðina enn í mark Everton.
Hann skoraði síðan annað mark
5 mín. síðar eftir sendingu frá
Barnes. Þetta var 23. mark Rush
Staðan
1. deild
Liverpool 7 4-3-0 19: 3 15
Chelsea 7 4-2-1 13: 6 14
Millwall 7 4-2-114:11 14
Arsenal 6 4-1-111: 5 13
Everton 7 4-1-2 11: 9 13
Coventry 7 4-0-3 7: 8 12
Norwich 7 2-5-0 11: 7 11
Southampton 7 3-2-2 11:12 11
Q.P.R. 7 2-3-2 5: 3 9
Luton 7 2-3-2 5: 4 9
Derby 7 2-2-3 5: 7 8
Crystal Palacc 7 2-2-3 5:14 8
Man. City 7 2-1412:10 7
Man. Utd. 7 2-1-4 13:15 7
VVimbledon 7 1-4-2 5: 7 7
Charlton 7 1-3-3 6: 6 6
Aston Villa 71-3-3 7:10 6
Nott. Forest 7 1-3-3 7: 9 6
Tottenham 61-2-3 7:12 5
Sheff. Wcd. 7 1-1-5 2:16 4
2. deild
Sheff. Utd. 7 4-3-0 15: 7 15
Blackburn 7 3-4-0 10: 6 13
Brighton 7 4-0-3 15:10 12
Sunderland 7 3-3-1 12: 7 12
Leeds Utd. 7 3-3-1 12: 9 12
West Ham 7 3-3-1 9: 8 12
Newcastle 7 3-2-2 12: 9 11
Oldham 7 3-2-2 11:10 11
Barnsley 7 3-2-? 9: 8 11
Watford 7 3-2-2 7:8 11
Middlesbrough 7 2-2-3 13:1411
Plymouth 7 3-1-3 11: 8 10
Ipswich 7 2-3-212:12 9
Oxford 7 2-3-211:12 9
Bournemouth 7 2-2-313:15 8
W.B.A. 7 2-2-311:12 8
Wolves 7 2-2-3 10:13 8
Port Vale 7 1-4-2 6: 8 7
Bradford 7 1-3-3 9: 8 6
Portsmouth 7 1-3-3 6: 9 6
Swindon 71-3-3 6:12 6
Hull 7 0-5-2 9:11 5
Stoke 7 0-5-2 6: 8 5
Leicester 7 1-2-4 6:12 5
fyrir Liverpool gegn Everton.
Everton var óheppið að fá ekki
vítaspyrnu er Sharp var haldið
innan vítateigs. Liverpool lék án
þeirra Ray Hougton og Gary
Gillespie sem eru meiddir. Ever-
ton missti Neil Point útaf
snemrna í leiknum og Whiteside
fór útaf seint í seinni hálfleik og
Rehn kom inná í hans stað.
Fyrri hálfleikur í leik Chelsea
og Coventry þótti mjög skemmti-
legur og áttu leikmenn Chclsea
stórleik á miðjunni. Coventry lék
án fyrirliða síns Brian Kilcline og
Cyrille Regis. Kevin McDonald
spilaði því sem miðvörður og
þrumaði boltanum eins langt
fram á völl og hann gat í hvert
skipti sem hann fékk boltann í
von um að Gary Bannister eða
Dave Smith næðu honum. David
Beasant og Steve Ogrizovic
vörðu báðir rnjög vel, en sá síðar-
nefndi réði þó ekki við skot Kev-
ins Wilson hjá Chelsea.
Trevor Francis vakli sjálfan sig
í byrjunarlið O.P.R. gegn Villa
og reyndist það mjög gáfuleg
ákvörðun. Það var þó Villa sem
náði forystunni með marki David
Platt eftir sendingu frá Ian Oln-
ey. Francis jafnaði síðan á 15.
mín. með langskoti frá vítateig
og skoraði síðan aftur með
skalla, sem er mjög óvenjulegt
þegar Francis á í hlut. Hartn
skoraði síðan þriðja markið á
annarri mín. seinni hálfleiks með
þrumuskoti framhjá Nigel Spink
markverði Villa efst í markhorn-
ið. Francis var maður leiksins.
Millwall var betra liðið gegn
Sheff. Wed. en leikmenn liðsins
náðu þó ekki að skora fyrr en í
síðari hálfleik. Jimmy Carter
skoraði fyrra markið. Leikmenn
Sheff. Wed. eiga í vandræðum
með að skora mörk og mega
búast við löngum og köldurn
vetri.
Leikmenn Man. Utd. virtust
eiga í erfiðleikum tneð að ná sér
eftir innrás áhorfenda á völlinn
og nýttu leikmcnn City sér það út
í ystu æsar. Hinir heimaöldnu
leikmcnn City, sem aðeins höfðu
skoraði sex mörk fyrir leikinti,
fóru illa nieð milljónamenn Unit-
ed, sem varla þckkja hver annan,
þar sem þeir konta úr öllum átt-
um og hafa lítið spilað santan.
David Oldfield gerði tvö mörk og
þeir Tony Morley, Ian Bishop og
Andy Hinchcliff sitt markið hver
en Mark Hughes svaraði fyrir
United með glæsilegri hjólhesta-
spyrnu. Paul Lake átti góðan leik
meö City og átti þátt í öllurn
mörkum liðsins.
Arsenal hefði átt að gera útum
leikinn viö Charlton í fyrri liálf-
leik því nóg tækifæri fengu leik-
menn Arsenal en Bob Bolder,
markvörður Charlton, átti stór-
leik og sannaöi að hið ógjörlega
er hægt er hann varði í tvígang
skot frá Lee Dixon og Alan
Smith en hann réði þó ekki við
vítaspyrnu Brian Marwood.
Paul Gascoigne var í aðalhlut-
vcrki í leik Norwich og Spurs.
Hann náði forystunni fyrir Spurs
eftir að Gary Lineker hafði átt
skot í slá Norwich-marksins og
voru leikmenn Norwich-liðsins
heldur seinir á sér og létu Gas-
coigne stela af sér boltanum.
Hann tók síðan hornspyrnu frá
vinstri gaf út á Pat Van Den
Hauwe sem gaf fyrir markið á
Gary Lineker sem afgreiddi bolt-
ann í netið. Leikmenn Norwich
fóru því í teið sitt í hálfleik með
tvö mörk á bakinu. Þeir komu
tvíefldir til baka og spiluðu frá-
bæran bolta fyrstu 20 tnín. síðari
hálfleiks og gerðu tvö mörk, sem
þeir David Phillips og Mark
Bowen gerðu. Enn eitt jafntefli
Norwich á heimavelli var stað-
reynd.
Pólverjinn Zbignew Kruszyn-
sky skoraði fyrir Wimbledon á
28. mín í leik Luton og Wimble-
don. Tveimur mín. áður hafði
McDonald fellt Terry Gibson inn
í vítateig en Luton slapp með
skrekkinn. Terry Gibson lagði
síðan upp mark Kruszynsky. Roy
Wegrele jafnaði síðan fyrir
Luton úr vítaspyrnu á 34. mín.
2. deild
• Port Vale var betra liðið í fyrri
hálfleik en Stoke í þeirn síðari.
Robbie Earle náði forystunni fyr-
ir Port Vale á 50. mín. og viö það
fór liö Stoke í gang. Palin átti
skot á mark Port Vale, sem virtist
ætla að fara langt framhjá marki
Port Vale er boltinn fór í Sirnon
Mills leikmann Port Vale og það-
an í markið. lan Cranson skallaði
í stöng Port Vale og Ron Fucther
skallaði í þverslá á marki Stoke-
liðsins fyrir opnu marki er mark-
vörður Stoke var í skógarferð.
Jafntefli voru því sanngjörn úr-
slit.
• Bournemouth tapaði heima
fyrir Blackburn. Gavin Peacock
skoraði annað ntark Bourne-
mouth, en þeir Nicky Reid,
Andy Kennedy og Frank Stapel-
ton svöruðu fyrir Blackburn.
• Steve Agnew og Darrcn Fore-
man skoruðu fyrir Barnsley gegn
Bradford.
• Leeds rúllaði Swindon upp.
Gordon Strachan gerði þrennu,
þaö fyrsta úr vítaspyrnu.
• Leicester vann Brighton 1:0
með marki Lec Glover 3 mín.
fyrir leikslok.
• Andy Ritchie gcrði bæði mörk
Oldharn gegn W.B.A.
• Danny Penn leikmaður Ox-
ford náöi forystu fyrir Oxford
snemma í fyrri hálfleik cn gerði
svo sjálfsmark rétt fyrir leikslok.
• Mark Chamberlain og Martin
Kuhl voru meðal markaskorara
Portsmouth gegn Middlesbrough.
• Julian Dicks skoraði sigur-
mark West Ham gegn Watford á
16. mín. úr vítaspyrnu.
• Ulfarnir unnu Plymouth með
marki John Paskin.
• Miðvikudagskvöldið í síðustu
viku verður sjálfsagt lengi í minn-
um haft hjá Wallace-fjölskyld-
unni. Elsti sonurinn Danny spil-
aði sinn fyrsta leik fyrir Man.
Utd. og skoraði 1 marka liðsins í
3:2 sigri United á Portsmouth og
tvíburabræður hans voru í sviðs-
Ijósinu í leik Southampton og
York. Rod skoraði sigurmark
Southampton en Ron var rekinn
af leikvelli.
• Fyrst Wallace-bræður eru til
umræðu er sjálfsagt að segja frá
skemmtilegum misskilningi
ensku landsliðsnefndarinnar er
hún var að velja enska U21 liðið
fyrir skömmu er þeir rugluðu
saman nöfnum þeirra Rod og
Ron og völdu Rod en ætluðu að
velja Ron.
• Derby vill kaupa Gary Ablett
frá Liverpool.
• Man. City og Aston Villa hafa
að undanförnu fylgst mað marka-
skorara Sheff. Utd. Brian
Deane.
• Ipswich og Man. Utd. keppa
um að fá Liam Coyle frá Derry á
írlandi en hann er metinn á um
150.000 pund.
• Upplausn er hjá Southampton
og margir leikmenn sem vilja
fara. Russell Osman er líklega á
leið til Crystal Palace og New-
castle vill fá markvörðinn John
Burridge. Á.H.K.
Loksins skoraði Lineker fyrir Tott-
enhani en þaA dugði liðinu ekki til
sigurs gegn Norwich.
Úrslit 1. deild
Arsenal-Charlton 1:0
Aston Villa-Q.P.R. 1:3
Chelsea-Coventry 1:1)
Crystal Palace-Nott. Forest 1:0
Derbv-Southainpton 0:1
Evcrton-Liverpool 1:3
Luton-Wimbledon 1:1
Man. City-Man. Utd. 5:1
Millwall-ShelT. Wed. 2:0
Norwich-Tottenham 2:2
2. deild
Bourncinmith-Blackburn 2:4
Barnsley-llradford 2:0
Leeds-Swindon 4:0
Leicester-Brightmi 1:0
Oldham-W.B.A. 2:1
Oxford-Ipswich 2:2
Porlsmoulh-Middlesbrough 3:1
Port Vale-Stoke 1:1
Sheff. Utd. Hull 0:0
Sundcrland-Newcastle 0:0
West Ham-Watford 1:0
Wolves-Plymouth 1:0
3. deild
Bolton-Leyton Orient 2:1
Brentford-Birmingham 0:1
Bristol C.-Bristol R. 0:0
Crewe-Northampton 2:1
Mansfield-Blackpool 0:3
Notts County-Rotherham 2:0
Prcston-Chester 5:0
Shrewsbury-Bury 3:1
Swansea-Reading 1:6
Walsall-Fulhain 0:0
Wigan-Cardiff 1:1
4. deild
Aldershot-Stockport 2:1
Burnley-Hereford 3:1
Carlisle-Gíllingham 3:0
Colchester-Scarborough 0:0
Hartlepool-Peterborough 2:2
Maidstone-Chesterfield 0:1
Scunthorpe-Exeter 5:4
Torquay-Rochdale 1:0
Wrexhain-Lincoln 0:2
York-Grimsby 0:1
Ian Rush skoraði tvö mörk gegn Everton.