Dagur - 19.12.1989, Blaðsíða 4

Dagur - 19.12.1989, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 19. deSember 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGÍBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Alver við Eyjaflörð Eftir síðustu viðræður stjórnvalda við erlenda aðila um byggingu álvers hér á landi, hefur umræðan að mestu snúist um byggingu nýs álvers í Straumsvík en vart verið minnst á þann möguleika að byggja slíkt álver á Eyjafjarðar- svæðinu. í síðustu viku kannaði Dagur viðhorf fulltrúa allra stjórnmálaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar til þessa máls, svo og þingmanna Norðurlandskjördæmis eystra og fleiri sveitar- stjórnarmanna á Eyjafjarðarsvæðinu. Markmið- ið var að fá fram hvaða skoðun þessir aðilar hafa á því hvar næsta álver eigi að rísa og einnig hvort þeir telji að Eyjafjörður komi enn til álita í þessu sambandi. Niðurstaða þessarar viðhorfs- könnunar er ótvíræð. Mikill meirihluti aðspurðra er afdráttarlaust þeirrar skoðunar að næsta álver eigi að reisa við Eyjafjörð en ekki á Suður- nesjum. Einnig að hér sé ekki um flokkspólitískt mál að ræða, heldur spurningu um byggðajafn- vægi. Af þeim 14 aðilum sem spurðir voru álits á málinu, lýstu 10 sig mjög fylgjandi því að álver yrði reist við Eyjafjörð, einn sagði stuðning við álver háðan vissum skilyrðum, en tveir voru mótfallnir byggingu álvers við Eyjafjörð. Fulltrúi Kvennalistans hefur nokkra sérstöðu í málinu, því Kvennalistinn virðist alfarið á móti stóriðju, óháð því hvar hún er staðsett. Þessi niðurstaða kemur fáum á óvart. Vitað er að almennur vilji er fyrir því meðal íbúa Eyja- fjarðarsvæðisins að efla byggðakjarnann þar til mótvægis við höfuðborgarsvæðið. Vandséð er með hvaða hætti það verður unnt, ef ekki koma til ný og öflug atvinnufyrirtæki. Menn mega auðvitað ekki líta á álver sem eitthvert allsherj- ar bjargræði og gleyma að hlúa að þeim atvinnu- rekstri sem fyrir er á Eyjafjarðarsvæðinu. Hins vegar er ljóst að ef ekkert raunhæft gerist í atvinnumálum dreifbýlisins á sama tíma og lát- laus uppbygging á sér stað á höfuðborgarsvæð- inu, eykst byggðaröskunin til mikilla muna og verður enn alvarlegri og skapar stærri vandamál en við stöndum frammi fyrir í dag. Ef landið heldur áfram að sporðreisast í byggðalegu tilliti mun það hafa afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir þjóðina alla, ekki síst þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna er staðsetning nýs álvers stórmál út frá byggðasjónarmiði. Þess vegna gera forsvars- menn í sveitarstjórnarmálum á Eyjafjarðarsvæð- inu svo og flestir þingmenn Norðurlandskjör- dæmis eystra þá kröfu að nýtt álver verði reist við Eyjafjörð en ekki á Reykjanesi. Þeirri kröfu þarf að fylgja fast eftir. BB. Sverrir Páll Erlendsson, formaður dómnefndar, afhendir Sigurði 1. verðlaun í sainkeppninni, 60 þúsund krónur. Smásagnasamkeppni Dags og MENOR: Úrslitin kunngerð Síðastiiðinn föstudag voru úr- slit í smásagnasamkeppni Dags og Menningarsamtaka Norð- lendinga kunngerð við athöfn í Gamla Lundi. Eins og við greindum frá í helgarblaðinu hlaut Sigurður Ingólfsson fyrstu verðlaun fyrir söguna Sanctus og Svavar Þór Guð- mundsson fékk aukaverðlaun fyrir Takmark einmana drengs. Sigurður og Svavar eru báðir Akureyringar. Haukur Ágústsson, formaður Menningarsamtaka Norðlend- inga, flutti ávarp við athöfnina og sagði m.a. að sá mikli fjöldi sagna sem barst í samkeppnina sýndi glöggt hve áhrifamikill fjöl- miðill Dagur væri, en keppnin fékk þar ítarlega kynningu. „Sá fjöldi sagna sem í sam- keppnina barst var miklum mun meiri en nokkurn óraði fyrir. Við fengum sendar um það bil 100 sögur en ég hafði reiknað með að þær yrðu í kringum 25,“ sagði Haukur. Sverrir Páll Erlendsson, for- maður dómnefndar, gerði grein fyrir niðurstöðum dómnefndar og lýsti störfum hennar. Við gríp- um niður í ræðu hans: „Hins vegar setti að dóm- nefndinni töluverðan hroll að þurfa að lesa öll þessi ósköp og síðan að þurfa að velja úr öllum þessum bunka aðeins tvær sögur sem hlytu viðurkenningu. Þegar við hittumst á lokafundi sátum við með tíu af þessum hundrað sögum og þær gátu allar komið til greina. Eftir allmiklar umræður stóðum við svo með tvær.“ Hann kunngerði síðan úrslitin. Tinna Thorlacius, unnusta Svav- ars Þórs Guðmundssonar, tók við viðurkenningu hans, 20 þúsund krónum, en Svavar Þór var staddur í Þýskalandi þar sem hann keppti í sundi. Svavar Þór er 18 ára gamall og er nemi í Menntaskólanum á Akureyri. Sigurður Ingólfsson er 23ja ára gamall og stundar nám í bók- menntum við Háskóla íslands. Hann kom norður til að taka við verðlaunum sínum, 60 þúsund krónum. Um verðlaunasögurnar sagði Sverrir Páll: „Það var samdóma álit okkar dómnefndarmanna að þær tvær sögur sem eftir stóðu væru báðar afar vel gerðar, vel skrifaðar, fullar af einlægni höf- unda, vandvirkni þeirra við verk sitt, en hins vegar afar ólíkar að stíl, framúrskarandi hvor á sinn hátt.“ Dagur og MENOR vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem tóku þátt í samkeppninni og les- endur Dags munu síðan fá að sjá verðlaunasögurnar á prenti innan tíðar. SS Frá vinstri: Bragi V. Bergmann, ritstjóri Dags, Haukur Ágústsson, formaður MENOR, Tinna Thorlacius, unnusta Svavars Þórs Guðmundsson, Sigurður Ingólfsson og Sverrir Páll Erlendsson, formaður dómnefndar. Mynd: kl

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.