Dagur - 19.12.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 19. desember 1989 - DAGUR - 13
Stólar - Eldhúsborð!
Óska eftir gömlu eldhúsboröi úr tré.
Einnig tréstólum (gömlum), helst
gefins.
Uppl. í síma 21830.
Búvélar til sölu!
Ferguson 165, árg. 78.
Velger heyhleðsluvagn, 24 rúm-
metra og Kuhn fjöltætla.
Uppl. í síma 61533.
Jólamarkaður KFUM og
KFUK er í Strandgötu
'13 b (bakhús).
Ýmis kristilegur varning-
ur á boðstólum.
Opið frá kl. 16.00-18.00.
Verið velkomin.
Tíu Grimms-
ævintýri
Bókaútgáfan Iðunn hefur sent frá
sér bókina Tíu Grimmsævintýri,
myndskreytta barnabók sem hef-
ur að geyma tíu alkunn ævintýri
úr safni Grimmsbræðra í þýðingu
Þorsteins skálds frá Hamri. A
hverri síðu bókarinnar eru gull-
fallegar og skemmtilegar lit-
myndir eftir hinn snjalla danska
listamann Svend Otto S.
Þetta eru sígild og ástsæl ævin-
týri sent allir, bæði börn og for-
eldrar, afar og ömrnur, þekkja og
kunna að meta. í bókinni eru
eftirtaldar sögur: Mjallhvít, Úlf-
urinn og kiðlingarnir sjö, Brima-
borgarsöngvararnir, Stígvélaði
kötturinn, Þumalingur, Ösku-
buska, Hans og Gréta, Rauð-
hetta, Skraddarinn hugprúði og
Þyrnirós.
Rjúpnaveiðimenn!
Treystið öryggi ykkar sem mest í
hverri veiðiferð. Gætið þess ávallt að
skotvopn ykkar séu í fullkomnu lagi
og vel hirt. Hafið meðferðis áttavita
og kort og búnað til Ijós- og hljóð-
merkagjafa. Hefjið veiðiferðina árla
dags og Ijúkið henni áður en nátt-
myrkur skellur yfir. Verið ávallt stund-
vísir á áfangastað.
Bílar til sölu:
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81.
Sýningasalurinn er opinn á sunnu-
dögum kl. 1-4. Opnað fyrir hópa
eftir samkomulagi í síma 22983 eða
27395.
Minningarspjöld Sambands
íslenskra kristniboösfélaga fást hjá:
Pedromyndum, Hafnarstræti 98,
Sigríði Freysteinsdóttur Þingvalla-
stræti 28, Hönnu Stefánsdóttur
Víðilundi 24, og Guðrúnu Hörgdal
Skarðshlíð 17.
Þijár þýðingar
lærðar
í þessari bók eru prentuð þrjú rit
sem þýdd voru á norrænu á 12.
og 13. öld. Elucidarius eftir Hon-
orius Augustodunensis er samtal
meistara og lærisveins og greinir
frá heimsmynd kristinna manna á
miðöldum. Þar er fjallað um Guð
og sköpunarverkið, engla og
djöfla, Adam og Evu, syndafall
og endurlausn, kirkju og kristni,
upprisu og dómsdag, himnaríki,
hreinsunareld og helvíti og hina
síðustu tíma. Um kostu og löstu
eftir Alkvin frá Jórvík, ráðunaut
og kennara Karlamagnúsar, gef-
ur innsýn í siðfræði miðalda. Þar
er fjallað um dyggðir eins og
speki og ást, friðsemi og lítillæti,
og lesti á borð við ofmetnað og
ágirnd, ofát og þunglyndi; einnig
um höfuðdyggðirnar fjórar,
vitru, styrkt, hófsemi og réttlæti.
Um festarfé sálarinnar, öðru
nafni „Viðræða líkams og sálar“,
eftir Hugo frá Viktorsklaustri er
dulspekirit og fjallar um leit sál-
arinnar að hamingjunni og þrá
hennar eftir æðstu gæðum.
Ritin eru öll prentuð með nú-
tímastafsetningu. Þeim fylgja
ítarlegar skýringar og er fylgt úr
hlaði með inngangi þar sem fjall-
að er um skóla, klaustur og
menntastarf á miðöldum, gerð
grein fyrir hverju ritanna um sig
og rætt um gildi þeirra nú á
dögum. Bókin er-gefin út í sam-
vinnu við Heimspekistofnun
Háskóla íslands.
Sumar þýðingarnar í bókinni
eru eldri en elstu varðveittar
íslendingasögur.
í sama bókaflokki hafa áður
komið út: Siðferði og mannlegt
eðli eftir Pál S. Árdal og Einlyndi
ogmarglyndi eftir Sigurð Nordal.
Ritstjóri bókaflokksins íslensk
heimspeki er Þorsteinn Gylfason.
Dr. Gunnar Harðarson bjó bók-
ina til prentunar.
Úr þrotabúi Vinkils eru til sölu eftirtaldir bílar:
Lada Sport.......... árg. 1988
Galant 1600 GL .... árg. 1980
Bens sendill ....... árg. 1968
Upplýsingar gefur Ólafur Ásgeirsson í símum 24825
og 21606.
Þökkum öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar,
Aðalsteins Jónssonar,
frá Baldursheimi.
Sérstakar þakkir til Friðriks Ingvarssonar og annars starfsfólks
lyfjadeildar F.S.A. fyrir ómetanlega hjálp í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Helgadóttir
og aðrir aðstandendur.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar,
KRISTÍNAR PÉTURSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til deildarhjúkrunarkonu og yndislegra starfs-
stúlkna á sjúkragangi A, á Dvalarheimilinu Hlíð.
Margrét Helgadóttir, Guðrún Helgadóttir,
Pétur Helgason, Sigurlaug Helgadóttir,
Hallgrímur Helgason, Björg Helgadóttir
og Páll Helgason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu
og langömmu,
MARZELÍNU KJARTANSDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Helgi H. Haraldsson,
Rósa D. Helgadóttir, Pétur Jósepsson,
Hrafnhildur Helgadóttir,
Halldóra Helgadóttir, Reynir Adólfsson,
Kjartan Helgason, Elín M. Hallgrímsdóttir,
Haraldur S. Helgason, Hulda Stefánsdóttir,
Sólrún Helgadóttir,
Jóna Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns míns,
föður okkar, bróður og sonar,
STEINÞÓRS Ó. SIGURJÓNSSONAR,
ketil- og plötusmiðs,
Álfabyggð 8, Akureyri.
Sigríður Olgeirsdóttir,
Unnur Steinþórsdóttir,
Olgeir Steinþórsson,
Andri Steinþórsson,
Kristjana Sigurjónsdóttir, Magnús Sigursteinsson,
Bjarni Sigurjónsson, Sigríður M. Jóhannsdóttir,
Jónas Sigurjónsson, Hallfríður Einarsdóttir,
Jónína Sigurðardóttir, Rafn Ingólfsson,
Bjarney Bjarnadóttir, Sigurjón Jónasson.
Takið eftir!
Bifreiðastöð Oddeyrar hefur tekið í notkun
nýtt símanúmar.
Nýja númerið er:
11010
★ Þjónusta allan sólarhringinn.
Bifreiðastöð Oddeyrar.
Snjókeðjur
á flestar stærðir bifreiða
Krókar, þverbönd, langbönd og lásar, tangir
og margt fleira.
Véladeild
Óseyri 2 • Símar 22997
og 21400.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK 89007: Aflstrengir, stýristrengir og ber
koparvír.
Opnunardagur: Þriðjudagur 23. janúar 1990 kl. 14.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisíns, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 19. desember og kosta kr. 300,- hvert ein-
tak.
Reykjavík 15. desember 1989,
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
Björn Sigurðsson, Húsavfk
Símar: Afgr. 42200 Verkst. 41666 Heima 41534
Húsavík - Akureyri - Húsavík
SÉRLEYFISFERÐIR:
10.12.89-07.01.90.
Frá Frá
Húsavík Akureyri
Þriðjud. 19. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Miðvikud. 20. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Fimmtud. 21. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Föstud. 22. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Föstud. 22. des. kl. 20.00
Laugard. 23. des. kl. 09.30 kl. 16.00
Miðvikud. 27. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Fimmtud. 28. des. kl. 20.00
Föstud. 29. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Þriðjud. 02. jan. kl. 08.00 kl. 16.00
Miðvikud. 03. jan. kl. 19.00 kl. 21.00
Fimmtud. 04. jan. kl. 08.00 kl. 16.00
Föstud. 05. jan. kl. 08.00 kl. 16.00
Sunnud. 07. jan. kl. 19.00 kl.21.00
Síðan venjuleg vetraráætlun.
AFGREIÐSLUR:
Húsavík: Björn Sigurðsson, Garðarsbraut 7, simi 96-42200
Akureyri: Umferðamiðstööin, Hafnarstræti 82, sími 96-24442
Akureyri: Vöruafgr. Ríkisskip v/Sjávargötu, sími 96-23936
Farsímar: 985-20034 • 985-20035 • 985-20036 • 985-25730 • 985-27540
Erum flutt með skrifstofu og afgreiðslu að Garðarsbraut 7,
Húsavík, sími 42200.