Dagur - 23.12.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 23. desember 1989 - DAGUR - 11
íbúar við Lyngholt:
Nafnabrengl í
frétt olli
misskilningi
I frétt vegna lóðamála vöru-
bifreiðastöðvarinnar á Akureyri í
blaðinu í gær urðu þau slæmu
mistök að tilvitnun sem höfð var
eftir Birni Jósef Arnviðarsyni
bæjarfulltrúa var ranglega eignuð
honum. Hið rétta er að Sigurður
Jóhannesson sagði á fundi bæjar-
stjórnar að sér þætti undarlegt að
húseigendur í nágrenni bifreiða-
stöðvarinnar kvörtuðu fyrst nú
eftir að stöðin væri búin að starfa
á þessu svæði í allmörg ár. Taldi
hann að ljóst hefði mátt vera þeg-
ar húsin í nágrenninu voru reist
að þessi hluti hverfisins væri á
mörkum iðnaðar- og athafna-
svæðis. Sigurður benti einnig á að
ekki stæði til að flutningabifreið-
ar hefðu þarna framtíðaraðsetur,
og að ekki kæmi annað til greina
en að starfsemin yrði háð kröfum
heilbrigðiseftirlitsins um góða
umgengnishætti og mengunar-
varnir.
Nýjustu fregnir herma að
beiðni vörubílstjórafélagsins hafi
verið samþykkt í skipulagsnefnd.
EHB
Sendum vidskiptavmum
og landsmönnum öUum
bestu óskir um
gleðileg jól og
farsælt komandi ár.
Þökkum árið sem er að líða.
S.J.S. verktakar,
Laufásgötu 3, sími 27366, Akureyri.
Opnunartími um |ól og áramót
Þorláksmessu írá kl. 8.00-1 eílir miðnælti. Opift lil kl. 23.30 alla daga milli hátíða.
Aðfangadagur frá kl. 8.00-17.00. Gamlársdag frá kl. 8.00-17.00.
lóladag er lokað. Lokað nýársdag.
Annan jóladag frá kl 8.00-23.30. 2. janúar frá kl. 8.00-23.30.
Óskum viðskiptavinum og starfsfólki gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Verslunin
VISA
. ÞDBFIQ
i Móasíðu 1 • Sími 27755. JE
Opid alla daga vikurtnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendingarþjónusta.
og íbúðarkanp
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Óskin er
hættuleg
Iðunn hefur gefið út nýja bók eft-
ir Guðmund Daníelsson rithöf-
und. Petta er heimildarskáld-
saga, byggð á minningum skálds-
ins um vini og samferðarmenn,
aldarmynd þar sem alvara og
kímni haldast í hendur eins og
lesendur Guðmundar þekkja úr
bestu verkum hans.
„Óskin erhættuleg, því að hún
rætist. Það er hættulegt að unna,
elska og óska, því að þú færð það
allt saman,“ sagði skáldprestur-
inn Sigurður Einarsson í Holti
við Guðmund og þau orð kveða
við eins og leiðsögustef í þessari
skáldsögukenndu sjálfsmynd
skáldsins. En máttur óskarinnar
tekst líka á við ógnina og skelf-
inguna sem af því getur hlotist að
mæta Úlfari sóða, jafnvel fyrir
þann sem í bernsku bað: Jesús-
guð, gerðu mig skáld!
Kímnigáfa Guðmundar nýtur
sín einkar vel þegar hann segir
óborganlegar sögur af skáldvin-
um sínum og fleira fólki. Um leið
gefur frásögn hans glögga mynd
af manninum sem þrátt fyrir yfir-
þyrmandi amstur og eril missir
aldrei sjónar á óskadraumnum,
kölluninni til að skrifa.
Pelli sigursæli
Út er komin bókin Pelli sigursæli
eftir Martin Andersen Nexö.
Með verki sínu um Pella sigur-
sæla, sem kom út á árunum 1906-
1910, skipaði þessi danski
höfundur sér á bekk með fremstu
rithöfundum þessarar aldar.
Bókin fjallar um Pella, sem
flyst átta ára gamall frá Suður-
Svíþjóð til Borgundarhólms með
föður sínum. Frásögninni lýkur
þar sem Pelli brýst nýfermdur
útúr vítahring örbirgðar og
niðurlægingar og leggur leið sína
til borgarinnar fullur bjartsýni.
Sagan um Pella lýsir sókn öreig-
ans til bættra lífskjara og byggist
á bernskureynslu höfundarins
sjálfs. Hún er að margra dómi ein
af markverðustu öreigalýsingum
heimsbókmenntanna.
Pelli sigursæli er 278 blaðsíður
að stærð. Útgefandi er Skjald-
borg.
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
/\ A \ Greiðslumat.
\ Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
ÆmSkrifleg umsögn.
_A Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð Ibúðar, er tfmabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
búð fundin - gert kauptilboð.
Þegar seljandi hefur gengið að
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
j^\Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverðs.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
\Kaupsamningur undirritaður -
fasteignaveðbréf afhent
seljanda.
íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
Fram að 15. mai 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugeta hlutaðeigandi ibúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki ibúðarkaupin.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK SÍMI ■ 696900
Kaupandinn lætur þinglýsa
kaupsamningnum.
Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
Seljandi skiptir á fasteigna-
veðbréfi fyrir húsbréf.
j \ Greiðslur kaupanda hefjast.
Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.