Dagur - 04.01.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 4. janúar 1990
Íþróttahátíð Völsungs
- fimleikar, fjör og flugeldasýning - Völsungsbandið vinsælast
Hin árlega Íþróttahátíð Yöls-
ungs var haldin í íþróttahöll-
inni á Húsavík 28. des. sl. For-
maður Völsungs, Ingólfur
Freysson, setti hátíðina og
sagði hann þá m.a. að félagið
byggi við eina bestu inniað-
stöðu á landinu. Þakkaði hann
Húsavíkurbæ fyrir aðstöðuna
og framlag tii félagsins, nú sem
endranær. Lýst var vali
íþróttamanns Húsavíkur 1989
og var það hinn ungi og ágæti
handknattleiks- og fótbolta-
maður Asmundur Arnarsson
sem tók við bikarnum er nafn-
bótinni fylgir úr höndum
Ingólfs.
Völsungur ársins hlýtur bikar
er ÍSÍ gaf félaginu til minningar
um Hallmar Frey Bjarnason,
fyrrverandi formann þess. Ein-
staklingur er sæmdur þessari
nafnbót jafnt fyrir ástundun og
æfingar á íþróttum og ósérhlífni
við störf í þágu félagsins. Regína
Sigurgeirsdóttir var valin Völs-
ungur ársins og sagði Ingólfur að
hún væri alltaf tilbúin að rétta
hjálparhönd við félagsstörfin.
Ungur Völsungur, Katla Skarp-
héðinsdóttir, var kölluð upp og
henni fagnað, en Katla setti ís-
landsmet í þrístökki í sínum
aldursflokki á frjálsíþróttamóti
þennan sama dag. Katla stökk
7,03 m.
Prír eldri félagar voru heiðrað-
ir með starfsmerki félagins. Pað
voru: Birgir Lúðvíksson, Stein-
grímur Birgisson og Helgi
Bjarnason, en Helgi sonur hans
tók við merkinu fyrir föður sinn.
Ingólfur sagði að þessir menn
hefðu iðkað skíðaíþróttina, eink-
um skíðastökk, við erfiðar
aðstæður um 1950. Þakkaði hann
þeim fyrir heilladrjúg störf í þágu
félagsins og óskaði þeim alls hins
besta í framtíðinni.
Handknattleikur var fyrstur á
íþróttadagskrá en síðan birtist
Ivan Varlamov með nokkra
hressa fótboltapilta. Nokkur ung
pör frá Danskóla Svölu sýndu
dans. Badminton var leikið og
keppt var í boccia.
Engir skemmtikraftar að sunn-
an voru fengnir að þessu sinni á
samkomuna, en að sögn for-
manns, eyðilögðu fimm vaskir
Völsungar jólin fyrir sér með
æfingu nokkurra laga, sumra
með frumsömdum textum. Völs-
ungsbandi þessu var það vel
tekið, að athugandi er að senda
það suður til að skemmta á sam-
komum, til fjáröflunar fyrir fé-
lagið.
Ungar dömur sýndu fimleika
og að lokum var opnað íþrótta-
tívolí og fengu þá allir hátíðar-
gestir að koma á gólfið og æfa
sínar uppáhaldsgreinar.
Íþróttahátíðinni lauk síðan
utandyra með glæsilegri flugelda-
sýningu Kiwanismanna. IM
Katla Skarphéðinsdóttir var klöppuð upp á hátíðinni og Völsungsbandið - frá vinstri: Ingólfur Freysson, Sveinn Freysson, Björn Olgeirsson, Pétur Pétursson og Sigurður Illugason með gít-
Ingólfur afhenti henni fána félagsins. Á frjálsíþróttamóti arinn.
þennan sama dag setti Katla íslandsmet í þrístökki í sínum
aldursflokki.
Samkomugestir fengu að koma á gólfið og reyna ýmis tæki.
Keppt í boccia.
Biðröð í tækin.