Dagur - 04.01.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 04.01.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 4. janúar 1990 myndasögur dags ÁRLAND ANDRES ÖND HERSIR BJARGVÆTTIRNIR Þaö kann aö vera eins og þú segir Ted, en við höfum garsannanir!| Við verðum þá að afla þeirra! Mér finnst aö við ættum að brjótast inn á staðinn og 'rannsaka skjölin þeirra! ... í hverju brot þeirra felst og gætum ■) jafnvel fundið vísbendingar um hvað J kom fyrir Arlene Carter!-----------) Matty hefur' réttfyrirsér! Mér list vel J á hugmynd- Allt í lagi, en við verðum að fara varlega. Fyrst þurfum við að gera áætlun til að gera varðmenninaj-^ , hættulausa_til að geta brotist — inn í verksmiðjuna.. # Hneggjandi fáikar og önnur dýr Fyrirsögnin í Degi fyrir nokkru um hneggjandi fálka á Dalvík, sem átti auðvitað að vera hneggjandi fákar, hefur verið óþrjótandi uppspretta grfns og gaman- mála. Einn ágætur maður hafði samband við blaðið og rifjaði upp aðra prent- villu sem tengdist dýrum. Þannig var að fyrir nokkrum árum setti bóndi nokkur í Svarfaðardalnum smáaug- lýsingu í Dag þar sem hann auglýsti til sölu tveggja vetra hrút. Til að örva söl- una bætti hann við að hrút- urinn væri kyngóður. Illar tungur segja að ákveðinn maður á Degi hafi fellt niður einn staf í auglýsingunni og hrúturinn hafi því ekki verið kyngóður heldur kynóður. Það var ekki að sökum að spyrja að síminn hringdi stanslaust hjá bóndanum næstu daga og tókst honum að selja hrútinn á mjög góðu verði, enda ekki á hverju degi sem kynóðir hrútar eru á lausu! # Kampavín og súkkulaði í fluginu Kunningi skrifara S&S kaus ekki Vigdísi Finnbogadóttur sem forseta á sínum tíma og var lengi vel ekki sáttur við að hún skyldi komast að í embættið. En flugferð á vegum Flugleiða á milli Akureyrar og Reykjavíkur breytti afstöðu þessa manns svo gersamlega að hann segist ætla að kjósa Vigdísi eins oft og hún bjóði sig fram. En hvað olli þess- ari hugarfarsbreytingu hjá manninum? Jú, eins og flestir muna þá kom Vigdís sérstaklega norður fyrr í vetur til að sjá sýningu Leik- félags Akureyrar á Húsi Bernhörðu Alba. Þegar hún flaug aftur suður með Flug- leiðum þá var þessi ágæti maður af tilviljum í sama flugi. Eins og gefur að skilja þá er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón því þar sem forsetinn var í fluginu buðu Flugleiðir farþegunum upp á kampavín og súkku- laði eins og allir gátu í sig látið. Kunninginn átti ekki til orð til lýsa ánægju sinni með forsetann og er nú einn harðasti stuðningsmaður Vigdísar hér norðan heiða. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Fimmtudagur 4. janúar 17.50 Eldfærin. Tékknesk teiknimynd eftir ævintýri H.C. Andersen. 18.20 Söguruxans. (Ox Tales) Hollenskur teiknimyndaflokkur. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Yngismær (48). 19.25 Benny Hill. 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 íþróttir. Lýst kjöri íþróttamanns ársins. Bein útsending. 20.55 Fuglar landsins. 9. þáttur - Æðarfuglinn. 21.05 Þræðir. Þáttaröð um íslenskar handmenntir. Fyrsti þáttur af fjórum. 21.20 Samherjar. (Jake and the Fat Man.) 22.10 Sjónvarpsbörn á Norðurlöndum. Fyrsti þáttur af fjórum. Hvert á að fara í kvöld? (Satellitbarn i Norden - vart ska du i kváll?) í úthverfi Stokkhólms eru nokkur fjölbýl- ishús tengd sjónvarpskerfi sem tekur á móti sjónvarpi um gervihnött. Myndin lýsir hvernig böm og unglingar mótast af þessum alþjóðlegu áhrifum. 23.00 Eilefufréttir og dagskrárlok. Stöð 2 Fimmtudagur 4. janúar 15.35 Með afa. 17.05 Santa Barbara. 17.50 Alli og íkornarnir. 18.20 Dægradvöl. 19.19 19.19. 20.30 Óðalsbóndi á erlendri grund. 21.15 Umhverfis jörðina á 80 dögum. (Around The World In Eighty Days.) Ný, mjög vönduð framhaldsmynd i þrem- ur hlutum. Annar hluti. 22.45 Sérsveitin. (Mission: Impossible.) 23.35 Dauðaleitin. (First Deadly Sin.) Frank Sinatra leikur lögreglumann í New York sem hefur í hyggju að setjast í helg- an stein. En áður en hann lætur af störf- um krefst yfirmaður hans þess að hann rannsaki dularfull fjöldamorð. Aðalhlutverk: Frank Sinatra, Barbara Del- aney, Daniel Blank og Monica Gilbert. Stranglega bönnuð börnum. 01.05 Dagskrárlok. Rás 1 Fimmtudagur 4. janúar 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. - Erna Guðmundsdóttir. FréttayfirUt kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir • Auglýsingar. 9.03 Litli barnatíminn: „Lítil saga urn litla kisu" eftir Loft Guðmundsson. Sigrún Bjömsdóttir les (3). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón: Haraldur Bjarnason. 10.00 Fréttir. 10.03 Neytendapunktar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit ■ Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Auglýsingar • Tónlist. 13.00 í dagsins önn - Krýsuvíkursamtök- in. 13.30 Miðdegissagan: „Samastaður í til- verunni" eftir Málfríði Einarsdóttur. Steinunn Sigurðardóttir les (16). 14.00 Fréttir. 14.03 Snjóalög. Umsjón: Snorri Guðvarðarson. 15.00 Fréttir. 15.03 Leikrit vikunnar: „Lögtak" eftir Andrés Indriðason. 15.50 Neytendapunktar. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. 16.08 Á dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi. 18.00 Fréttir. 18.03 Að utan. 18.10 Á vettvangí. 18.30 Tónlist • Auglýsingar. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Tónlistarkvöld Útvarpsins. 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins Dagskrá morgundagsins. 22.30 Menntakonur á miðöldum - Ros- witha frá Gandersheim leikritaskáld á 10. öld. 23.10 Uglan hennar Mínervu. Arthúr Björgvin Bollason ræðir við Pál Skúlason heimspeking um tengsl heim- speki og þjóðfélagsmála. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Föstudagur 5. janúar 7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn i ljósið. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið. 9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Albertsdóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Neytendahorn kl. 10.03 og afmæliskveðj- ur kl. 10.30. „Hvað er svo glatt...?“ Jóna Ingibjörg Jónsdóttir spjallar um kynlíf. Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur kl. 11.03 og gluggað í heimsblöðin kl. 11.55. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akur- eyri.) 14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem er að gerast í menningu, félagslífi og fjöl- miðlum. 14.06 Milli mála. Árni Magnússon leikur nýju lögin. Stóra spurningin. Spurningakeppni vinnustaða, stjórnandi og dómari Dagur Gunnarsson kl. 15.03. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars- dóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson. Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00 og stjórnmál dagsins á sjötta tímanum. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsendingu, sími 91-38500. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 „Blítt og létt..." Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó- menn og leikur óskalög. 20.30 Á djasstónleikum. Úrval frá helstu djasstónleikum síðasta árs. 21.30 Kvöldtónar. 22.07 Kaldur og klár. Óskar Páll Sveinsson með allt það nýjasta og besta. 02.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Naeturútvarpið 2.00 Fréttir. 2.05 Rokk og nýbylgja. 3.00 „Blítt og létt..." 4.00 Fréttir. 4.05 Undir værðarvoð. 4.30 Veðurfregnir. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Áfram ísland. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 Blágresið blíða. 7.00 Úr smiðjunni. Ríkisútvarpið á Akureyri Föstudagur 5. janúar 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Fimmtudagur 4. janúar 07.00 Haraldur Kristjánsson og Sigur- steinn Másson. Fréttatengdur morgunþáttur, veður, færð og samgöngur á landi og láði. Slegið á þráðinn, jólabækurnar teknar til umfjöllunar, kíkt í blöðin. 09.00 Páll Þorsteinsson. Vinir og vandamenn kl. 9.30. 12.00 Hádegisfréttir. 12.15 Kjötmiðstöðvardagurinn. 15.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson og allt það helsta úr tónlistarlífinu. Kvöldfréttir frá kl. 18-18.15. 19.00 Snjólfur Teitsson í kvöldmatnum. 20.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. Bíókvöld á Bylgjunni. Fjallað um kvik- mynd vikunnar og kíkt í kvikmyndahúsin. 24.00 Á næturrölti með Freymóði T. Sigurðssyni. Hljóðbylgjan Fimmtudagur 4. janúar 17.00-19.00 Létt síðdegistónlist. Óskalaga- síminn opinn. Stjómandi: Pálmi Guðmundsson. Fréttir kl. 18.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.