Dagur


Dagur - 05.01.1990, Qupperneq 1

Dagur - 05.01.1990, Qupperneq 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 73. árgangur Akureyri, föstudagur 5. janúar 1990 3. töiublað Siglfirðingur SI: Byijar árið á sfldar- frystingu fyrir austan Siglfirðingur SI er nú kominn á nýjan leik á síldarmiðin fyrir austan eftir uppihald yfir hátíð- arnar. Síldarbáturinn Haf- steinn frá Siglufirði veiðir sfid- ina og landar henni yfir í Sigl- firðing, þar sem hún er fryst. Siglfirðingur fékk úthlutað um 1100 tonnum í upphafi vertíðar en einungis er búið að veiða tæp- an helming kvótans. Því var sótt um leyfi ráðuneytis til áframhald- andi veiða eftir áramótin og Litla-Giljá: Eldur í vörubfl - tveggja ára barni naumlega bjargað Tveggja ára gamalt barn var hætt komið er kviknaði í vörubfi á bænum Litlu-Giljá í Húnavatnssýslu rétt fyrir hádegi í gær. Bílstjóri vörubifreiðarinnar var að moka farmi á bílinn og skildi hann eftir í gangi. Barnið var inni í bílnum þegar hann varð skyndilega alelda og rétt tókst í tæka tíð að ná því út. Hús vöru- bílsins er gjörónýtt. Eldsupptök áttu sér líklega stað í miðstöðvar- mótor. kj fékkst það. Þegar Dagur náði samband við Siglfirðing í gær var hann kominn austur fyrir land og stutt á síldar- miðin. Pétur Bjarnason, stýrimaður, sagði að menn væru bjartsýnir á veiðina, ekki veitti af að síldin bætti að einhverju leyti upp 10 prósent skerðingu á botnfisk- kvóta. „Ég reikna fastlega með því að við byrjum inn á Mjóa- firði. Þar fengust stór köst fyrir jólin, en það er svo annað mál hvort síldin er þar ennþá,“ sagði Pétur. Hann sagði að síldarfryst- ingin fyrir áramótin hefði gengið bærilega þegar eitthvað veiddist. Síldin hafi hins vegar verið nokk- uð erfið viðureignar. Mest af frystu síldinni úr Sigl- firðingi fer á Japansmarkað. óþh Frá setningarathöfn sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri. Haraldur Bessason rektor, flytur tölu. Mynd: kl Þrjú skip fengu samtals 2300 tonn af loðnu í fyrrinótt: „Þetta batnaði eftir því sem á nóttina leið“ - segir Jón Guðmundsson, stýrimaður á Guðmundi Ólafi ÓF „Þetta var alls ekki slæmt. Við fengum þessi 600 tonn í 8 köst- um og það má segja að þetta hafi alltaf batnað eftir því sem á nóttina leið,“ sagði Jón Guðmundsson, stýrimaður á loðnuskipinu Guðmundi Ólafi ÓF, í gær en þá var skipið á leið í land með hart nær full- fermi, 600 tonn af loðnu. í fyrrinótt veiddist fyrsta loðn- an á nýja árinu og fékkst hún á svæðinu djúpt norðaustur af Langanesi. Fáir bátar voru á þessum slóðum en auk Guð- mundar Ólafs tilkynntu tveir bát- ar um afla, þ.e. Beitir um 1100 tonn og Guðrún Þorkelsdóttir um 600 tonn. Flest öll loðnuskip- in tóku stefnuna á þetta svæði í gær og ætluðu að reyna fyrir sér í nótt. Búist var við að þar yrðu um 35 skip við veiðar í nótt. „Þetta er það besta sem komið hefur og mátti víst ábyggilega lagast. Vertíðin fram til jóla var alveg hundleiðinleg og það var kominn leiði í mannskapinn," sagði Jón. Jón lét vel af þeirri loðnu sem veiddist í fyrrinótt, sagði að um væri að ræða góða loðnu. Þegar Dagur hafði samband við skipið var ekki ákveðið hvar aflanum yrði landað. JÓH að hafa um tíma óttast að deildin yrði ekki að veruleika, en fagnaði því að málin leystust farsællega. Jón Þórðarson, forstöðumaður deildarinnar, rakti aðdraganda að stofnun hennar og uppbygg- ingu. Nám við sjávarútvegsdeild- ina tekur fjögur ár, meðal kennslugreina eru efnafræði, líf- fræði, viðskipta- og markaðs- fræði, stjórnun, samskipti og skipulag, skipa- og veiðitækni og fiskalíffræði. Bauð hann nem- endur velkomna, en þeir eru 14. 20 sóttu um en 6 hættu við eða stóðust ekki inntökukröfur. næstu þrjú árin til afnota. Ráð- Iherrar, þingmenn kjördæmis- ins, Bæjarstjórn Akureyrar, starfsfólk og nemendur deild- arinnar ásamt fjölmörgum gestum fögnuðu þessum merka áfanga í gær. Haraldur Bessason, háskóla- rektor, hóf mál sitt á að þakka öllum þeim aðilum sem stutt hafa Háskólann á Akureyri með ráð- um og dáð, og lagt sig fram um að sjávarútvegsdeildin yrði að veruleika. Haraldur minntist þess Þá tók Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, til máls. Sagði hann að lög um Háskóla á Akureyri hefðu verið samþykkt vorið 1988, en í nóvember sama ár hefði nefndaráliti varðandi stofnun sjávarútvegsdeildar verið skilað til ráðuneytisins. í mars 1989 hefði ríkisstjórnin gert sam- þykkt um að starfsemi deildar- innar myndi hefjast um áramótin 89 -’90. „Við ykkur sem hafið bundið miklar vonir við sjávarút- vegsdeildina hér á staðnum vil ég fyrst og fremst segja að ég vona að þessi tími hafi kennt ykkur að taka það sem stendur í fjölmiðl- um ekki of bókstaflega. Ég geri ráð fyrir að þau tíðindi sem hafa birst ykkur af sjávarútvegsdeild- inni og sviptingunum kringum hana á Alþingi og í ríkisstjórn á undanförnum mánuðum hafi ver- ið með þeim hætt að þau hafi ekki aukið mönnum bjartsýni. Hins vegar var það alveg ljóst frá því að samþykktin var gerð í mars ’89 að ekkert annað gat gerst en að þessi deild færi af stað, því annað hefði aldrei verið liðið af þeim mönnum sem um þessi mál eiga að fjalla, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnar- andstöðu.“ EHB Sjá nánar á bls. 2 Þrefalt hjá handknattleiksmönnunum: Alfreð íþróttamaður ársins 1989 - Kristján annar og Þorgils Óttar þriðji Alfreð Gislason handknatt- leiksmaöur var kjörinn íþróttamaöur ársins 1989. Þetta var tilkynnt í hófi sem Samtök íþróttafréttamanna héldu að Hótel Loftleiðum í gærkvöld. Þetta var svo sann- arlega kvöld handboltans því félagar Alfreðs í landsliðinu, Kristján Arason og Þorgils Óttar Mathiesen lentu «2. og 3. sæti. Alfreð sagði eftir athöfnina að hann liti á þennan titil sem viðurkenningu liðsheildarinnar en ekki eingöngu sem verðlaun sér til handa. Alfreð er vel að þessum titli kominn því hann var einn af lykilmönnum íslenska landsliðs- ins í handknattleik sem sigraöi í B-heimsmeistarakeppninni í Frakklandi í fyrra og var reynd- ar valinn besti leikmaður kepp- ninnar. Hann var einnig kosinn besti leikmaður íslandsmótsins á síðasta keppnistímabili þann- ig að þessi útnefningin kemur ekki á óvart. Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti síðan 1972 að hand- knattleiksmaður hlýtur þennan titil. AP Alfreð Gíslason. Tímamót í sögu Háskólans á Akureyri: Sjávarútvegsdeildin tekin tíl starfa Innbrotí Shell-skálann á Sleitustöðum Brotist var inn í Shcll-skálann á Sleitustöðum í Skagafirði í gær. Ekki er vitað hverjir voru að verki en málið er í rannsókn hjá lögreglunni. Að sögn lögreglu var stolið peningum, sígare.ttum og fleitu... Þjófarnir brutu rúðu í hurð sem er læst báðum megin með lykli. Þeir voru svo heppnir að lykillinn var í skránni að innanverðu, því var eftirleikurinn auðveldur og þeir þurftu ekki annað en að teygja sig innfyrir og opna. kj Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri tók formlega til starfa í gær við hátíðlega athöfn á fjölmennum fundi að Glerárgötu 36, í húsnæði sem Kaupfélag Eyfirðinga hefur látið deildinni ókeypis í té

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.