Dagur


Dagur - 05.01.1990, Qupperneq 3

Dagur - 05.01.1990, Qupperneq 3
Föstudagur 5. janúar 1990 - DAGUR - 3 fréttir Hrossaútflutningur á vegum Félags hrossabænda með almesta móti í fyrra: Gera jarpir hestar og skjóttar hryssur næst „innrás“ í Japan? - „millar“ í hestamennskunni þar eystra og tilbúnir að borga vel Hrossaútflutningur á vegum Félags hrossabænda var með mesta móti á síðastliðnu ári og hefur ekki verið meiri um ára- bil. Að sögn Hallveigar Fróða- dóttur hjá Félagi hrossabænda voru flutt út 1010 hross á árinu samanborið við 700 hross árið 1988. Skipting þessara 1010 hrossa er eftirfarandi: 41 ógelt- ur hestur, 389 merar og 580 geldingar. Einkum er áberandi fjölgun útfluttra mera frá fyrra ári. Láta mun nærri að um 500 hross hafi farið á liðnu ári til Norðurlanda, mest til Svíþjóðar, um 400 hross til annarra Evrópu- landa og um 100 hross vestur um haf til Bandaríkjanna og Kan- ada. Þessir hestar eru að stærstum hluta reiðhestar. Á árinu voru fjórir landsþekktir verðlauna- hestar, þar af einn geldingur, seldir úr landi. Geldingurinn er Snjall en graðhestarnir þrír eru Atli frá Syðra-Skörðugili í Skaga- firði (Svíþjóð), Pá frá Laugar- vatni (Bandaríkin) og Höður frá Hvoli (Svíþjóð). Hallveig segir að verð fyrir ís- lensk hross á erlendum markaði hafi þokast upp á við á síðustu misserum og sem stendur verði að telja það viðunandi. Áttatíu til hundrað þúsund krónur segir Hallveig að sé algengt verð fyrir þokkalegan 7-9 vetra reiðhest. íslensku hrossin koma að stærstum hluta af Suðurlandi en einnig hefur fjöldi hrossa af Vest- urlandi, úr Húnavatnssýslum, Skagafirði og Eyjafirði verið seldur úr landi. Hallveig segir að gott gengi á árinu 1989 gefi byr í seglin og góðar vonir um að nýhafið ár verði enn farsælla útflutningsár en hið síðasta. Hún segir greinilega vaxandi áhuga hestamanna á útflutningi og því sé vonir bundnar við að hann verði ekki drepinn fyrirvaralaust niður með nýrri skattlagningu ríkisvaldsins á hrossaútflutning. „Ég er bjartsýn á framhaldið, ekki síst ef okkur tekst að komast inn á aðra markaði. Ríkir jap- anskir aðilar hafa sýnt áhuga á kaupum á reiðhestum af íslenska hrossakyninu en þessi akur er enn óplægður. Við getum vænst þess að Japanarnir greiði hæst verð fyrir íslensku reiðhrossin. Það virðast aðallega vera mrllar í hestamennskunni þar eystra,“ segir Hallveig. Beint vöruflug Flying Tigers austur til Japan hefur vakið vonir um að hrossaútflutningur til Jap- Á síðustu 10 árum, 1980-1989, létust 624 íslendingar af slys- förum, þar af 50 erlendis. Á hverju ári hafa þannig 62 íslendingar að meðaltali látist af slysförum og má þá segja að síðasta ár hafi komið vel út því þá fórust 49 manns, sem er vel undir meðaltali og raunar lægsta dánartíðni á nýliðnum áratug. Banaslysin 624 skiptast þannig: Sjóslys og drukknanir 166 (14 er- lendis), umferðarslys 262 (22 er- lendis), flugslys 38 og ýmis bana- slys 158 (14 erlendis). Árið 1980 var mannskæðast, þá létust 83 af slysförum. Munar þar mestu að óvenju margir fór- ust í sjóslysum eða drukknuðu, Hið langþráða danska parket á gólf nýja íþróttahússins er væntanlegt með skipi til Siglu- fjarðar í dag. Hafist verður fljótlega handa við að leggja parketið og má búast við að húsið verði vígt í mars. Að sögn Práins Sigurðssonar, bæjartæknifræðings á Siglufirði munu heimamenn leggja parket- ið og er gert ráð fyrir að sú vinna ans sé raunhæfur. Hallveig segir að þrátt fyrir langt flug sé flutn- ingur hrossa þangað austur eftir mögulegur. Hugsanlegt sé að millilenda í Anchorage í Alaska og fljúga áfram með hrossin að nokkrum dögum liðnum á leiðar- enda. óþh alls 32. Banaslysum í þessum flokki hefur fækkað síðan en þó rauk talan upp í 26 árið 1986. Meðaltal áratugarins er 16,6 og eru síðastliðin þrjú ár vel undir því og fæst urðu banaslysin í þessum flokki á árinu 1989, eða 7. Fjöldi þeirra sem farist hefur í umferðinni árlega er svipaður á þessu tímabili, 26 að meðaltali. Flestir fórust 1988, eða 33, en fæstir 1983, eða 20. Flugslys kostuðu 8 manns lífið árið 1986 en enginn fórst í flug- slysum 1985 og 1988, einn fórst 1984 og 1989. Ýmis slys eru að jafnaði um 16 ár hvert en sveiflur nokkrar, frá 6 1984 upp í 25 1981. SS taki allt að einum mánuði. Undir parketið er sett tvöföld fjaðrandi grind og ofan á hana parketfjal- irnar. Þessa dagana er verið að ljúka við tengigang milli íþróttahússins og Sundhallarinnar. Þegar þeirri vinnu og lagningu parketsins verður lokið er íþróttahúsið nær fullbúið. Þó er eftir lítilsháttar vinna við áhorfendastæði og málningarvinna. óþh Banaslys 1980-1989: Alls 624 íslendingar létust af slysföram íþróttahúsið á Siglufirði: Danska parketið væntanlegt í dag Vegna vörutalningar og tölvuvæðingar verður lokað föstudaginn 5. og laugardaginn 6. janúar. Opnum aftur mánudaginn 8. jan. BYGGINGAVÖRUDEILD LÚNSBAKKA. ^ ................. ;J Léttisfélagar! LÉ™ .... Jolatres- skemmtun verður haldin í Skeifunni, félagsheimili Léttis, laugardaginn 6. janúar kl. 2 eftir hádegi. Mætum öll með börnin! Kvennadeildin. ,ekki /"N Laugardagur kl.14: :55 1. LEIKVIKA- 6. jan . 1990 1 X 2 Leikur 1 Blackburn - Aston Villa Leikur 2 Brighton - Luton Leikur ? C. Palace - Portsmouth Leikur 4 Hull - Newcastle Leikur 5 Leeds - Ipswich Leikur 6 Man. City - Millwall Leikur 7 Middlesbro - Everton Leikur 8 Plymouth - Oxford Leikur 9 Stoke - Arsenal Leikur 10 Tottenham - Southampton LeikurH W.B.A. - Wimbledon Leikur 12 Wolves - Sheff. Wed. Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og LUKKULÍNAN S. 991002 -84464. Nýr hópleikur!! HAFNARSTRÆTI 96 SIMI 96*24423 AKUREYRI IÍTSALA UTSALA Utsala hefst hjá okkur mánudaginn 8. januar, Við bjóðum alls konar fatnað á börn og fullorðna með 30-50% afslætti, svo sem: Kápur, kjóla, blússur, peysur, úlpur, stakka, herrafrakka og margt fleira. ia ii í|é_ svo vel að líta inn og gerið góð kaup Sigurhar Giémimdssomrhf. HAFNARSTRÆTI96 SÍMI96«24423 AKUREYRI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.