Dagur - 05.01.1990, Side 5
Föstudagur 5. janúar 1990 - DAGUR - 5
Sigurlið 2. flokks með sigurlaunin. Nokkrir feður úr Old-boysliðinu, sem áttu syni í flokknum, fengu að vera með
á myndinni og verðlaunapening að auki.
JMJ-mótið í handbolta fór fram á milli jóla og nýárs:
Annar flokkur Þórs vann
mótið á markahlutfalli
- Old-boysliðið vakti sem fyrr mesta athygli
Arnar Guðiaugsson skoraði mörg falleg mörk fyrir Old-boysliðið en hann
sagðist þó vera meira fyrir að spila félaga sína uppi. Myndir: kk
JMJ-mótið í handbolta var
haldið með pompi og pragt á
milli jóla og nýárs. Mótið sem
er innanfélagsmót Þórs, var nú
haldið öðru sinni. Til leiks
mættu fjögur handknattleiks-
lið félagsins, Old-boys, meist-
araflokkur, 2. flokkur og 3.
flokkur. Fóru leikar þannig að
2. flokkur félagsins sigraði á
markahlutafalli en liðið hlaut
fjögur stig úr þremur leikjum,
eins og reyndar meistaraflokk-
ur og Old-boysliðið.
Old-boysliðið vakti sem fyrr
mikla athygli fyrir góða frammi-
stöðu en aðeins herslumuninn
vantaði á að liðið skyti öðrum lið-
um félagsins ref fyrir rass. Old-
boysliðið var þó eina liðið sem
lagði sigurlið 2. flokks að velli.
Líkt og í fyrra, mætti Þorbjörn
Jensson þjálfari íslandsmeistara
Vals og fyrrum fyrirliði landsliðs-
ins til leiks og hugðist leika með
Old-boys. En vegna meiðsla gat
hann lítið haft sig í frammi og
varð hann að gera sér að góðu að
hvetja félaga sína til dáða. Einnig
stóð til að Sigurður Sveinsson
landsliðsmaður í handbolta kæmi
norður og léki með liðinu en
vegna landsleiksins við Norð-
menn fyrir sunnan, gat ekki orðið
af því að þessu sinni.
I liði Old-boys voru margir
leikmenn sem gerðu garðinn
frægan með Þórsliðinu hér á
árum áður og mættu fjölmargir
þeirra sonum sínum í mótinu,
sem léku annað hvort með 2. eða
3. flokki. Mótið þótti takast vel í
alla staði og verður það örugg-
lega endurtekið að ári. Ragnar
Sverrisson kaupmaður í Herra-
deild JMJ gaf á sínum tíma far-
andbikar til keppninnar og auk
þess fengu sigurvegararnir veg-
lega verðlaunapeninga til eignar,
sem Ragnar gaf.
Flestir voru á því að mótið hafi
hafist á sjálfum úrslitaleiknum en
þá mættust Old-boys og meist-
araflokkur. Eftir jafnan og
fjörugan leik hafði þó meistara-
flokkur betur og sigraði 14:11. í
öðrum leik mættust 2. og 3.
flokkur og sigraði 2. flokkur
stórt, 18:10. Old-boys og 2.
flokkur áttust við í þriðja leik og
fóru „gömlu" mennirnir sem sig-
ur af hólmi, 15:13.
Meistaraflokkkur vann 3.
flokk í fjórða leik, 21:19 og Old
boys vann 3. flokk í fimmta leik,
17:15. Síðasti leikur mótsins var
á milli meistaraflokks og 2.
flokks og nægði meistaraflokki
jafntefli til þess að tryggja sér sig-
ur í mótinu. Það fór á annan veg,
strákarnir í 2. flokki léku á als
oddi í leiknum og unnu mjög
örggan sigur, 18:17. Yfirburðir2.
flokks voru mun meiri en loka-
tölurnar gefa til kynna, því meist-
araflokkurinn skoraði 6 af 7 síð-
ustu mörkum leiksins. -KK
Ragnar Sverrisson kaupmaður í JMJ og fyrirliði Old-boysliðsins, afhendir
syni sínum Sverri farandbikarinn fyrir sigur í mótinu en Sverrir var fyrirliði
2. flokks.
Til sölu gufubað
Stærð ca. 160x2 m, sem nýtt.
Verðtilboð.
Væntanlegur kaupandi þarf að geta tekið það niður.
Rangt símanúmer tvisvar í Dagskránni!
RÉTT SÍMANÚMER ER 27991
Jazzleikfimi - Leikfimi
Erobikk - Þrekhringur
Um leiö og viö í Dansstudiói Alice, óskum öllum
nemendum okkar á síöasta ári gleöilegs árs meö þakklæti
fyrir gamla áriö, bjóÖum við alla nýja nemendur vel-
komna í hópinn.
Margir strengdu ýmiss konar áramótaheit á þá vegu að
láta nú verða af því að gera eitthvað fyrir líkamann. Nú er
tækifærið að efna heitið og byrja strax, þvf fyrr því betra.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. f Dansstudíó Alice er úr
mörgum tímum að velja svo þú ættir að finna eitthvað við
þitt hæfi. Hjá okkur hafa kílóin og sentimetrarnir flogið svo
um munar og vöðvar og þol styrkst.
Hugsaöu þig ekki um tvisvar, hringdu strax og aflaöu
upplýsinga og leitaöu ráölegginga ef með þarf.
Það er aldrei of seint að byrja.
Námskeid hefjast
8. janúar
1. Kvennaleikfimi - Músikleikfimi:
Rólegir tímar fyrir konur á öllum aldri. Vaxtarmótandi og styrkj-
andi æfingar, þol, teygjur og slökun engin hopp.
2. Leikfimi og megrun:
Styrkjandi æfingar fyrir þær sem vilja grennast. Tilvalið fyrir þær
sem þurfa að ná af sér aukakílóum og þurfa á aðhaldi og hvatn-
ingu að halda.
Fylgst með hverri og einni, vigtað og mælt. - Síðan við byrjuð-
um fyrir ári, hafa fokið 61 kíló!!
3. Magi, rass og læri: (Mjúkt erobikk)
Styrkjandi og vaxtamótandi æfingar með áherslu á maga, rass og
læri. Fjörugir tímar, fjörug tónlist. Engin hopp.
4. Magi, rass og læri í tækjum:
Styrkjandi ætingar og mjúkt erobikk í sama tímanum.
5. Framhaldstímar - Púltímar:
Aðeins fyrir vana. Hröð og eldfjörug leikfimi. Púl og mikill sviti.
Mikið fjör. Dúndrandi tónlist.
6. Erobikk:
Hart erobikk með tilheyrandi hoppum og ærslurn. Hressir tímar
fyrir konur og karla. Hörkupúl og sviti. Æðisleg tónlist.
7. Þrekhringir:
Tækjaleikfimi og erobikk í sama tímanum fyrir konur og karla.
Sannkallaður svitatími. Mikil hvatning - mikið tekið á. Rosa
fjörl!
8. Dagtímar og barnapössun:
Magi rass og læri kl. 14.00-15.00.
Konur, komið með börnin með ykkur. Við gætum þeirra á með-
an þið styrkið og fegrið líkamann.
9. Morguntímar - BARNAPÖSSUN:
Magi, rass og læri kl. 09.45-10.45.
Innritun og upplýsingar í síma
24979 frá kl. 14.00-20.00.
Skírteinaafhending og greiðsla sunnudaginn 7.