Dagur - 05.01.1990, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 5. janúar 1990
LETTIB
x
Unglingaráð
Léttis
Ef næg þátttaka fæst verður starfrækt félagshest-
hús fyrir krakka og unglinga í vetur og væntan-
lega framvegis.
Hafið samband við Guðrúnu í síma 23862 eða
Kristínu í síma 26670.
Skrifstofustarf
Heildverslun vill ráða stúlku í hálfsdagsstarf, fyr-
ir hádegi.
Reynsla af störfum á skrifstofu æskileg.
Þarf að geta hafið starf sem fyrst.
Umsóknum skal skila á afgreiðslu Dags fyrir 12. jan.
merkt „skrifstofustarf“.
Óska eftir starfskrafti
við verslunarstörf
Vaktavinna. Framtíðarstarf.
Uppl. um nafn, aldur og fyrri störf leggist inn á afgr.
Dags merkt „Framtíðarstarf“.
Hin frábæra hljómsveit
Ingimars Eydal
á fyrsta dansleik ársins á Hótel KEA.
Glæsilegur matseðill.
★
Árshátíðir —
Þorrabiót
Nú eru síðustu forvöð að panta sal
fyrir árshátíðina eða þorrabiótið.
Höfum sali fyrir 15-200 manns.
Þú stjórnar íburðinum,
við ábyrgjumst gæðin, þjónustuna,
umhverfið og aðbúnaðinn.
Allar nánari upplýsingar gefur veitingastjóri
í síma 22200.
Fólk grét af
geðshræringu
við múrimi
- á ekki von á sameiningu strax,
segir Elín Gunnhildur Guðmundsdóttir nemi í V-Berlín
Þegar viðmælendur Dags í ára-
mótaannál voru spurðir hvaða
atburðir væru þeim ofarleg í
huga eftir árið nefndu fjöl-
margir atburðina í A-Evrópu,
sérstaklega þá hrun Berlínar-
múrsins. A.m.k. einn Akur-
eyringur hefur fylgst með
atburðunum frá fyrstu hendi
en það er Elín Gunnhildur
Guðmundsdóttir sem hefur
undanfarin ár stundað dokt-
orsnám í efnafræði í V-Berlín.
Elín varð fúslega við beiðni
Dags að lýsa atburðarásinni,
eins og hún kom henni fyrir
sjónir.
„Ég kom seint heim úr skólan-
um 9. nóvember og kveikti á
sjónvarpinu af gömlum vana. Þá
var knattspyrnuleikur á skjánum
og því ekki von á neinum fréttum
á venjulegum tíma.
Ég ákvað nú samt af rælni að
bíða eftir seinni fréttum kl.
11.00. Þá var sagt frá því að aust-
ur-þýsk stjórnvöld hefðu lýst því
yfir að A-Þjóðverjum væri heim-
ilt að ferðast yfir til vestursins.
Fréttamenn voru þá staddir við
Berlínarmúrinn en þá var allt
með kyrrum kjörum á staðnum.
Ég gerði mér þá ekki grein fyrir
því um kvöldið hve mikilvæg
þessi yfirlýsing væri og fór bara
að sofa.
Síðan mætti ég í skólann
snemma daginn eftir eins og ekk-
ert væri en þá lá öll kennsla niðri
og stemmningin eins og á þjóð-
hátíðardegi landsins. Eg spurði
alveg græn „Hvað er að gerast?“
og þá var mér tilkynnt að fólks-
bylgja hefði skollið á Múrnum
eftir miðnætti og almenningur
hefði streymt vestur yfir alla nótt-
ina.
Þegar mesti móðurinn rann af fólki,
gerði það sér grein fyrir því að það
er hægara sagt en gert að sameina
þessi tvö ríki, segir Elín Gunnhildur
Guðmundsdóttir sem stundar dokt-
orsnám í efnafræði í V-Berlín.
Fólk grét af geðshræringu
við múrinn
Þá drifum við okkur nokkrir
skólafélagar niður að múrnum og
þar var stemmning eins og á
gamlárskvöld hér heima. Fólk
faðmaðist og kysstist og skálaði í
kampavíni. Margir tóku einnig
dansspor á Berlínarmúrnum og
gáfu hermönnum austanmegin
rósir. Nokkrir stóðu síðan bara
við múrinn og grétu af geðshrær-
ingu,“ sagði Elín.
- Áttti fólk almennt von á því
að Berlínarmúrinn félli svona
hratt?
„Nei, ég héld að enginn hafi
búist við að atburðarásin yrði
þetta hröð. Aðdragandinn var að
vísu búinn að vera nokkur: Hon-
ecker féll úr sessi sem þjóðarleið-
togi, A-Þjóðverjar streymdu til
V-Þýskalands í gegnum Ung-
verjaland og greinilegt var að
breytinga var að vænta í landinu.
En að atburðarásin yrði þetta
hröð hafði enginn látið sér detta í
hug," sagði Elín
Hvernig heldur Elín að fram-
haldið verði. Er möguleiki að
Þýskaland verði eitt ríki í náinni
framtíð?
„Það er mjög erfitt að spá
nokkru um framtíðina. Þegar
mesti móðurinn var runninn af
fólki var strax farið að spá í fram-
tíðina. Þjóðverjar eru geysilega
vel skipulögð þjóð, ofskipulögð
myndu sumir segja." bætti Elín
við og hló. „En þessari tilhneig-
ingu að skipuleggja alla hluti
fram í ystu æsar hefur verið rótað
illilega með þessum miklu breyt-
ingum. Margir voru farnir að
sætta sig við að múrinn yrði
þarna um ókomna framtíð og að
þessi tvö ríki yrðu ekki samein-
uð. Löndin tvö hafa þróast í sitt
hvora áttina í meira en 40 ár og
því verður ekki breytt í einu vet-
fangi.
✓
A ekki von á sameiningu
á næstunni
Þjóðernistilfinning er sterk í A-
Þýskalandi, fólk er almennt stolt
af sinni fósturjörð og er ekki til-
búið að láta sjálfstæði sitt af
hendi svo auðveldlega, sérstak-
lega með tilliti til þess að ná-
granninn í vestri er svo miklu
sterkari.
Foreldrar Elínar, Þórhildur Jónasdóttir og Guðmundur Gunnarsson, voru í heimsókn hjá dóttur sinni síðastliðið
sumar og þá var þessi mynd tekin af þeim austan megin við hið fræga Brandenburgarhlið.