Dagur - 05.01.1990, Síða 7
Föstudagur 5. janúar 1990 - DAGUR - 7
Þessi mynd er tekin vestan niegin við múrinn og sést austur-þýskur varðturn gnæfa yfir þetta kaldastríðsminnismerki
sem nú heyrir vonandi sögunni til.
Akureyrarmót í tvímenningi hefst 9. jan. n.k. og
spilaður verður barometer.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast í síðasta
lagi fyrir kl. 20 föstudaginn 5. jan. n.k.
Tekið verður á móti tilkynningum í síma 24624.
Bridgefélag Akureyrar.
i/
Auglýsendur
takið eftir!
Vegna tilkomu virðisauka-
skatts frá 1. janúar 1990, er
nauðsynlegt að kennitala sé
gefin upp til auglýsingadeildar
strax pegar auglýsing er
pöntuð.
Gleðilegt nýtt ár,
þökkum árið sem var að líða.
Starfsfólk auglýsingadeildar
Dags, sími 24222.
Hér stendur Þórhildur Jónasdóttir móðir Elínar við Berlínarmúrinn og ef
myndin prentast vel sést að skrifað hefur verið neðst á múrinn á íslcnsku
„Við mótmælum múrnum.“
Hins vegar verð ég að viður-
kenna að ég fylgdist ekki mikið
með umræðunni austan megin
um þessi mál því maður átti fullt
í fangi með að grípa allt það sem
var að gerast, bæði í V-Þýska-
landi og svo öðrum löndum A-
Evrópu.
í V-Þýskalandi skiptist það
nokkuð eftir pólitískum línum
hvort fólk telur sameiningu æski-
lega. Kristilegir demókratar og
aðrir hægri flokkar vilja samein-
ingu sem fyrst, en jafnaðarmenn
og aðrir mið- og vinstri flokkar
vilja fara hægar í sakirnar. Willy
Brandt fyrrum kanslari V-Þýska-
lands sagði á flokksþingi jafnað-
armanna fyrir skömmu eitthvað á
þá leið að það sem aldrei hefði
verið eitt, gæti ekki orðið eitt.
„En hver er þín persónulega
skoðun,“ skaut blaðamaðurinn
inn í. Elín hallaði undir flatt og
sagði svo eftir nokkra umhugsun.
„Ef einhver hefði spurt mig þess-
arar spurningar fyrir þremur
mánuðum þá hefði ég hiklaust
svarað henni neitandi. Nú er ég
ekki eins viss en held þó að það
líði töluverður tími áður en lönd-
in tvö geti sameinast.
Eftir að mesti tilfinningahitinn
fór af fólki í V-Þýskalandi og
nýjabrumið hvarf komu upp
efasemdaraddir. Ef ríkin yrðu
sameinuð myndi straumurinn
sjálfsagt liggja vestur yfir og þar
er nú þegar mikill húsnæðisskort-
ur. Margar fyrirspurnir hafa bor-
ist frá austur-þýskum stúdentum
um háskólavist í vestrinu en allir
háskólar í V-Þýskalandi eru nú
í þegar yfirfullir og erfitt að útvega
sér húsnæði, eins og ég sagði
áðan. Þetta og mörg önnur mál
gera það sjálfsagt að verkum að
það þarf töluverðan undirbún-
ingstíma til að sameina þessi tvö
ríki undir einn og sama hatt,"
sagði Elín Gunnhildur Guð-
mundsdóttir efnafræðinemi í V-
Berlín. AP
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR
Iþróttafélagsins Þórs
verður haldin laugardaginn 6. janúar kl. 17 á
íþróttasvæði Þórs.
Skemmtiatriði m.a:
Halli og Laddi.
Bjartmar Guðlaugsson.
Jóhann Már Jóhannsson
Álfakóngur og drottning mæta á svæðið álfar,
tröll, púkar og ýmiss konar furðuverur skemmta
börnum og fullorðnum.
Aðgangseyrir aðeins kr. 500.—
Frftt fyrir 6, ára og yngri.
Flugeldasala í Hamri frá kl. 13.00
Flugeldar og blys á stórlækkuðu verði
Brennuball Þórsara verður haldið í Húsi
aldraðra á laugardagskvöldið.
Þar skemmta m.a Halli og Laddi, Bjartmar Guðlaugsson og fleiri
Húsið opnað kl. 21.00 - Allir Þórsarar velkomnir.
íþróttafélagið Þór Akureyri.