Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 5. janúar 1990 - DAGUR - 9 f/ hér & þor Jj Tom Jones í vondu máli Gamli gaularinn og hjartaknúsar- inn, Tom Jones, er alltaf í essinu sínu þegar fallegar stúlkur eru nálægt. Á myndinni má t.d. sjá tvær fyrirsætur aflienda honum myndarlega stjörnu. Annað mál og verra er það að 26 ára stúlka, Katherine Berkery, segir gamla manninn hafa getið henni barn. Blóðprufur hafa sýnt að Tom Jones er líklegur faðir eins árs sonar hennar og nú vill hún fá Tom til að gangast við honum. Katherine er ekki á höttunum eftir peningum, að eigin sögn, og hefur hafnað i íflegri greiðslu sem henni bauðst fyrir að láta málið niður falla. Já, það er vissara að fara að öllu með gát, Tómas minn. Ástarœvintýri forstjóra og einkaritara Nýleg könnun í Bandaríkjunum staðfestir að nokkru leyti gömlu sögurnar um ástarsambönd einkaritara og forstjóra. Niður- stöðurnar eru þær að 10% af einkariturunum í könnuninni hafa átt ástarævintýri með yfirmanni sínum. Ein af hverjum þremur konum sem þjóna forstjóranum á þennan hátt segja ástarsamband- ið hafa jákvæð áhrif á starf sitt en ein af hverjum fjórum segja að þetta flangs komi niður á vinn- unni. Þær sem töldu ástarsambandið Blaðberi Dags á Eyrinni, varð fyrir því óláni að týna peningum að upphæð kr. 6.200.-, í þúsund, fimm hundruð og hundrað króna seðlum. Peningarnir hafa tapast einhvers staðar á leiðinni, Norður- gata, upp Eyrarveg, út Hvanna- við forstjórann hafa jákvæð áhrif nefndu einkum þrjár ástæður. Pað gerði lífið skemmtilegra í vinnunni, það hjálpaði þeim við að vinna sig upp í fyrirtækinu, það styrkti sjálfsálitið. Konurnar sem voru á öndverð- um meiði og sögðu ástarævintýr- in hafa neikvæð áhrif á starfið töldu að slíkt flandur truflaði ein- beitinguna og drægi úr vinnuaf- köstum. Einnig hefði það þau áhrif að skilin milli starfs og einkalífs yrðu óglögg. Forstjórarnir sjá stundum eftir velli, við Nesti Tryggvabraut, að Reynivöllum. Peningarnir voru í lausu og hafi einhver fundið þá, er hinn sami þá vinsamlegast beðinn að skila þeim á afgreiðslu Dags gegn fundarlaunum. daðrinu eins og eftirfarandi dæmi sýnir: „Ég á íyritækið núna og ég er búin að reka forstjórann," sagði einkaritari sem hafði haldið við yfirmann sinn í nokkur ár með þessum árangri. Helmingur umræddra kvenna stóð ekki lengur í ástarsambandi við yfirmanninn en 13% þeirra höfðu gengið alla leið upp að alt- arinu með honum eða voru í sambúð með blessuðum for- stjóranum. Eða eins og einn einkaritarinn sagði: „Við gengum í hjónaband og nú ræð ég!“ Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum, á neðangreindum tíma: Ásabyggð 16, Akureyri, þingl. eig- andi Hjördís Agnarsdóttir, miðvikud. 10. jan. '90, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Valgarð Briem hrl„ Jón Egilsson hdl„ Landsbanki íslands, Benedikt Ólafsson hdl„ Guðmundur Krist- jánsson hdl„ Tryggingastofnun ríkisins, Hróbjartur Jónatansson hdl„ Gunnar Sólnes hrl„ Ásgeir Thoroddsen hdl„ Veðdeild Lands- banka íslands, Brunabótafélag íslands, Ólafur Birgir Árnason hdl. og Bæjarsjóður Akureyrar. Glerárgata 32, suðurhluti, 1.-4. hæð, þingl. eigandi Norðurfell h.f. og Málning h.f„ miðvikud. 10. jan. '90, kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru: Kristján Ólafsson hdl„ Ólafur Gústafsson hrl„ innheimtumaður rikissjóðs, íslandsbanki (Iðnaðarb. íslands), Ásgeir Thoroddsen hdl„ Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður. Akureyrar. Kaldbaksgata 5, Akureyri, þingl. eigandi þrb. Ofnasmiðju Norður- lands h.f„ miðvikud. 10. jan. '90, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlánasjóður, innheimtumaður ríkissjóðs, Bæjarsjóður Akureyrar, íslandsbanki (Utvegsbanki íslands) og Skiptaréttur Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Iþróttamadur Nordurlands 1989 Nafn íþróttamanns: 1. íþróttagrein: Nafn: Sími: Heimilisfang: Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1989 c/o Dagur, Strandgötu 31, 600 Akureyri. Skilafrestur til 20. janúar 1988. Blaðberi Dags týndi penmgum Ilugeldasala Hjálparsveitar Skáta Akureyri fyrir þrettándann í Lundi félagsheimili HSSA. Opið 6. jan. kl. 10-18. Til sölu er fasteignin B jarkarbraut 3, Dalvík. Réttur er áskilinn að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skal skila til undirritaðs fyrir 20. janúar 1990. Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík. Sparisjóðsstjóri. dbcjsprehb^ Hluthafafundur verður haldinn í Dagsprenti hf. laugardaginn 13. janúar 1990 kl. 10.30 að Strandgötu 31, Akureyri. Dagskrá: 1. Aukning hlutafjár og breyting á 4. grein sam- þykktanna. 2. Önnur mál. Stjórnin. ilil framsóknarmenn AKUREYRl Skoðanakönnun framsóknarmanna á Akureyri Ákveðið hefur verið að fram fari skoðanakönn- un meðal flokksbundinna framsóknarmanna á Akureyri, til að fá fram hverja þeir vilja sjá í 6 efstu sætum framboðslista flokksins í komandi bæjarstjórnarkosningum í maí í vor. Kosið verður á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 90, Akureyri, sem hér segir: Föstudaginn 5. janúar kl. 16-22. Laugardaginn 6. janúar kl. 10-16. Félagar í framsóknarfélögunum á Akureyri eru eindregið hvattir til að taka þátt í könnuninni og hafa með því áhrif á val efstu manna á framboðslistanum. Uppstillingarnefnd. Óllum er hugsuðu til mfn með hlýum hug og sendu mér kveðjur síðastliðinn aðfangadag í tilefni 75 ára afmælis míns flyt ég mínar bestu þakkir með ósk um gleðilegt nýtt ár og blessun Guðs á ókomnum árum. INGIMAR BRYNJÓLFSSON, Ásláksstöðum. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður og afa. ÞORSTEINS ÞORLEIFSSONAR, Ægisgötu 20, Akureyri. Hrefna Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.