Dagur - 05.01.1990, Side 12

Dagur - 05.01.1990, Side 12
Akureyri, föstudagur 5. janúar 1990 Haldið veisluna eða fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818. Skiptaráðandinn á Akureyri: Beiðnir um gjaldþrotaskipti aldrei verið fleiri - embættinu bárust 72 gjaldþrotabeiðnir á síðasta ári Skiptaráðandanum á Akureyri bárust á síðasta ári 72 beiðnir um gjaldþrotaskipti. Að sögn Arnars Sigfússonar, fulltrúa hjá embættinu, hafa beiðnir aldrei í sögu embættisins verið jafn margar á einu ári. Alls voru á svæði embættisins tekin 25 bú tii gjaldþrotaskipta á árinu, 15 þeirra hjá einstakl- ingum og 10 hjá fyrirtækjum. „Mér finnst áberandi hversu margar beiðnir eru að berast um gjaldþrotaskipti hjá ungu fólki. Það er mjög sjaldgæft ef berast óskir um gjaldþrotaskipti hjá fólki yfir fertugu, flest er þetta fólk á aldrinum 20-40 ára og margir eru rétt rúmlega tvítugir," segir Arnar. Þess verða þeir varir sem við þessi mál starfa að ekki eru það alltaf húsnæðiskaup sem setja einstaklinga í þær þrengingar fjárhagslega að óska þurfi gjald- þrotaskipta. „Maður sér líka að þetta virðist oft vera ungt eigna- laust fólk sem farið hefur út í fjárfestingu t.d. vegna bíla eða hljómflutningstækja og ræður síðan ekkert við þessar fjárfest- ingar. Auðvitað sjáum við sjaldn- ast beinlínis hvaða ástæður liggja að baki en oft sér maður að um er að ræða hrein eyðslulán sem fólk er að taka og virðist annað hvort ekki hugsa út í eða gera sér grein fyrir hvers konar skuldbindingar það er að taka á sig.“ Arnar segir að skýringarnar á því hvers vegna beiðnir eru mun fleiri en gjaldþrotaskipti liggi í því að sumar beiðnirnar eru afturkallaðar, eitthvað sé um fleiri en eina beiðni á sama aðila og í þriðja lagi flytjist nokkur mál óafgreidd milli ára. Af beiðnum um gjaldþrota- skipti á árinu voru 53 vegna ein- staklinga og 19 vegna fyrirtækja. Arnar segir um verulega aukn- ingu að ræða frá árinu 1988 þegar alls 59 beiðnir um gjaldþrota- skipti bárust embættinu á Akur- eyri. Pessum beiðnum hefur farið fjölgandi á síðustu árum, eða allt frá árinu 1985. Pá bárust 55 beiðnir en árin þar á undan voru þær yfirleitt á bilinu 10-20. JÓH Á fundinum í gær voru frá vinstri: Þorleifur Þór Jónsson, ferðamálafulltrúi Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf., Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélagsins, Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Dalvík, Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri, J.G.D. van der Ros, aðstoð- arforstjóri Hoogovens Aluminium, Ulf Bohlin, aðstoðarforstjóri Granges, Jón Ingimarsson, fulltrúi Iðnaðarráðu- neytisins, Sveinn Jónsson, oddviti Árskógshrepps, Halldór J. Kristjánsson, fulltrúi Iðnaðarráðuneytis, Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps og Garðar Ingv- arsson, forstððumaður markaðsskrifstofu Iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjunar. Mynd: kl Aðstoðarforstjórar Gránges og Hoogoven Aluminium á Akureyri í gær: Leist vel á aðstæður en of snemmt að segja um niðurstöður Ulf Bohlin, aðstoðarforstjóri sænska álfyrirtækisins Gránges, og J.G.D. van der Ros, aðstoðarforstjóri hol- lenska álfyrirtækisins Hoogo- vens Aluminium, sem eiga sæti í Atlantal-hópnum svo- kallaða, áttu fund á Akureyri í gær með sveitarstjórnarmönn- um á Eyjafjarðarsvæðinu um hugsanlega staðsetningu nýrr- ar stjálfstæðrar 200 þúsund tonna álbræðslu við Eyjafjörð. Fyrir fundinn fóru aöstoðar- forstjórarnir í kynningarferð út með Eyjafirði og skoðuðu þá staði sem helst hafa verið nefndir til sögunnar fyrir álbræðslu. Með þeim Bohlin og van der Ros voru fulltrúar Iðnaðarráðuneytisins, Halldór J. Kristjánsson, Jón Ingi- marsson og Garðar Ingvarsson. Fulltrúar álfyrirtækjanna tveggja, sem líkleg eru til að taka þátt í byggingu nýrrar 200 þús- und tonna álbræðslu hér á landi, skoðuðu í fyrradag aðstæður í Straumsvík og áttu jafnframt fund með iðnaðarráðherra. Fyrir hádegi í gær skoðuðu þeir aðstæður hér nyrðra og eftir hádegi flugu þeir austur á Egils- staði og litu m.a. á aðstæður á Reyðarfirði. Vatnsleysuströnd, Eyjafjörður og Reyðarfjörður eru þeir þrír staðir sem helst eru taldir koma til greina fyrir bygg- ingu nýrrar sjálfstæðrar ál- bræðslu hér á landi samkvæmt skýrslu Staðarvalsnefndar. Aðstoðarforstjórarnir vildu lít- ið tjá sig við fréttamenn að afloknum fundinum í gær en samkvæmt upplýsingum Dags kom fram í máli þeirra á fundin- um í gær að þeim hefði litist vel á aðstæður við Eyjafjörð. Þeir létu þó þess getið að á þessu stigi væri engan veginn hægt að segja fyrir um endanlega niðurstöðu í við- ræðum um álver hér á landi. Greinilega kom fram að í vali á stað fyrir nýja sjálfstæða ál- bræðslu hafa bæði fyrirtæki arð- semi að leiðarljósi. Að því leyti kann Straumsvík að hafa vinn- inginn. Hins vegar er vitað að fyrirtækin telja að sumu leyti óæskilegt að staðsetja sjálfstæða álbræðslu í næsta nágrenni verk- smiðju samkeppnisaðilans Alu- suisse. Þar kemur m.a. til sam- keppni um vinnuafl og ýmsir aðr- ir þættir. Viðræðum fulltrúa íslenskra stjórnvalda við fulltrúa þessara tveggja fyrirtækja verður flýtt sem kostur er. Ákvörðun um nýja álbræðslu verður að liggja fyrir í lok febrúar því eigi síðar en þá verður iðnaðarráðherra að leggja málið fyrir Alþingi eigi það að ná fram að ganga á þessu þingi. Fulltrúar bandaríska fyrir- Ögmundur Jónasson formaður BSRB: „Engir sanmingar án rækilegra trygginga“ - óljósar yfirlýsingar munu ekki duga því traustið er lítið „Það verður ekki saniið um neitt án rækilegra trygginga, annað kemur ekki til greina,“ segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB, en þessa dagana er mikið unnið að undirbúningi vegna komandi kjarasamninga. Það sem helst hefur verið rætt um er svokölluð niðurfærsluleið á móti litlum sem engum bein- um launahækkunum, en við- ræður eru enn skammt á veg komnar. Frá 1. desember sl. hafa samningar aðildarfélaga BSRB verið lausir og um áramótin bættust flest önnur verkalýðs- félög í þann hóp. Að sögn Ögmundar, er staðan nú á könnunar- og athugunarstigi, en að undanförnu hafa hag- fræðingar BSRB ásamt hag- fræðingum ASÍ verið að skoða forsendur fyrir hugsanlegum kjarasamningum þar sem farin yrði niðurfærsluleið.„Aðildar- félög BSRB hafa hvert um sig verið að skoða málin, en jafn- framt höfum við fylgst með og skoðað þær hugmyndir sem leg- ið hafa í loftinu að undanförnu. Þar skoðum við útgjaldaliði hei- milanna, vexti og verð á nauðs- ynjavörum og þjónustu almennt." Hann segir að niður- færsluleið væri aðeins beint framhald af þeim kjarasamn- ingum sem gerðir voru sl. vor, en í sumar hafi verið hamraö mjög á nauðsyn þess aö halda aftur af verðhækkunum. ítrek- aðar hafi verið kröfur um að keyra niður vexti en staðreynd- in sé sú að verðlag hafi hækkað mun nieira en vonir voru bundnar við í vor. „í því iiggur sá vandi sem launafólk stendur nú frammi fyrir, en hann er að þegar talað er um verðlags- hömlur og cftirlit af hálfu hins opinbera, er traustið ekki ýkja mikið. Spurningin er því sú, með hvaða hætti hyggjast menn tryggja það sem samið verður um?“ Aðspurður um hvort rætt hafi verið um hvernig hægt verður að tryggja að loforð verði ekki svikin, nefndi Ögmundur vísi- tölubindingu eða rauð strik. „Það er hlálegt að menn skuli hafna vísitölubindingu á meðan allt fjármagn er rækilega tryggt með þessum hætti. Menn skyidu frekar ætla að annað hvort væri um almenna vísitölu- bindingu að ræða, eða alls enga. En uni þessa hlið málsins ntunu ekki duga neinar óljósar eða almennar yfirlýsingar“ Fram til þessa hafa tryggingar á borð við þær sem nefndar voru hér að ofan verið þyrnar í augum viðsemjenda. „Það má bara draga þessa þyrna úr aug- um þeirra. Skynsemin býður mönnum og þeir hljóta að skilja, að ef kaupmáttur launa verður keyrður niður úr öllu valdi, mun það bitna á öllu atvinnulífi líka. Kaupmáttur almennra launa er nú kominn hættulega langt niður og úr því þarf að bæta.“ VG tækisins Alumax koma hingað til lands nk. mánudags til fundar við iðnaðarráðherra. Vegna tíma- skorts gefst þeim ekki færi á að kynna sér aðstæður í Eyjafirði. Þeir fá hins vegar f hendur ítar- legt kynningarefni um svæðið, sem Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. hefur tekið saman. óþh F élagsmálastofnun Akureyrarbæjar: Beiðnum um aðstoð hefiir flölgað Nokkuð meira hefur borist af beiðnum um aðstoð til starfs- manna Félagsmálastofnunar Akureyrarbæjar á haustmán- uðum en venja er á þeim árs- tíma. Guðrún Sigurðardóttir deildarstjóri segir að stofnunin hafi þurft á viðbótarfjármagni að halda í desember og hafi það verið fyrirséð í haust að þess þyrfti með. Guðrún segir það alls konar fólk sem leiti til Félagsmálastofn- unar eftir aðstoð. Stærstur er hópur einstæðra foreldra og ör- yrkja, en fjölskyldur þar sem um er að ræða veikindi, tímabundna erfiðleika af einhverju tagi eða atvinnuleysi leita sömuleiðis eftir aðstoð. Aðspurð urn hvorf starfsmenn hafi fundið sérstaklega fyrir því hversu slæmt atvinnuástand ríkir nú í bænum sagði Guðrún það ekki fara framhjá þeim. „Óneit- anlega heyrir maður af fólki sem ýmist er atvinnulaust, eða að missa vinnuna. Þessu fylgir mikið óöryggi og ótti,“ sagði hún. Um það hvort tekist hafi að aðstoða þá sem þurft hafa hjálp sagði Guðrún: „Við reynum að gera það besta sem við getum miðað við þær aðstæður sem okk- ur eru búnar, en það er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera betur.“ VG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.