Dagur - 20.01.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 20. janúar 1990
Kosningaskjálftí og karlapólitík
Loft er lævi blandið. Fram-
sæknir menn og sjálfstæðir
kanna hug stuðningsmanna.
Gamalt vín á nýjum belgjum.
Kratar ræða saman undir rós
og leita að heppilegri uppskrift
en allaballar telja ekki full-
reynt með hamar og sigð.
Brotabrot og örverpi reyna að
mynda heild, höfundur megr-
unarbókar mælir götur og kon-
ur eru meira að segja farnar að
stinga saman nefjum. Það er
eitthvað stórfenglegt í uppsigl-
ingu, eitthvað sem lætur engan
ósnortinn.
Lágvaxinn maður brettir
upp kraganum á frakka sínum
og hraðar sér að ákveðnu húsi.
Hann lítur flóttalega í kringum
sig áður en hann fer inn, jarm-
ar mæðulega og gengur upp
tröppurnar. Af skyldurækni
skráir hann niður nokkur nöfn
og brokkar út á ný, mætir
niðurlútri konu sem komin er í
sömu erindagjörðum. Sál-
könnun.
Friðsæld mannlífsins og
leynd sálarinnar leysast upp er
nafnlaust bréf kemst í umferð.
Kosningaskjálftinn breiðist út.
Örvita stuðningsmenn vita
ekki í hvorn fótinn þeir eiga að
stíga né í hvorn arminn þeir
eiga að taka. Þjóðhollir eigin-
menn eru andvaka.
Það eru ýmsar skringilegar
kannanir í gangi, laumuspil og
klækjabrögð. Allt fer þetta þó
fram bak við tjöldin og birtist
almenningi ekki nema þá helst
í gegnum nafnlaus bréf og við-
líka heimildir. En í kaffistof-
unni gerast kraftaverk, þar eru
þjóðmálin leyst á einu bretti og
kosningamálin rækilega af-
hjúpuð.
Karlarnir sitja í hring,
íbyggnir á svip. Yfir þeim svíf-
ur þykkur reykjarmökkur.
Þeir eru hver öðrum vitrari og
spekingslegri og mælskari en
flestir stjórnmálamenn. Þarna
finna menn lausn á hvers kyns
vanda en eyða ekki tímanum í
tilgangslaust þref. Þetta eru
menn sem ættu að stjórna,
hafa áhrif á gang mála. Þeir sjá
hvað pólitíkusarnir eru hláleg-
ir og þeir vita líka vel hvað er
að gerast bak við blessuð tjöld-
in.
„Jón er í fyrsta sætinu. Jón-
arnir hafa átt fyrsta sætið í 42
ár,“ segir hrokkinhærður mað-
ur með sannfæringu.
„Þetta er helvítis kjaftæði og
tómt rugl,“ hreytir eldri maður
út úr sér og reykir ógurlega.
„Ha, ha, ha, ha,“ hlær digur
piltur og púar vindil.
„Ég vil ekki sjá þetta álver,“
þusar ákaflega skapvondur
ungur maður.
„Ha, ha, ha, ha,“ hlær digri
pilturinn og púar vindilinn.
„Við leysum víst seint
vandamál þjóðarinnar með
þessu áframhaldi,“ segir rödd
skynseminnar.
„Ha, ha, ha, ha,“ hlær sá
digri og púar enn.
Á meðan þessar málefna-
legu samræður fara fram sitja
konurnar saman og ræða um
hannyrðir og líf eftir dauðann.
Karlapólitíkin snertir þær
Hallfreður
Örgumleiðason:
„Þetta er ekki staður fyrir þig, rýjan inín. Við erum að ræða pólitík og raða á listann. Þú skalt fara til kynsystra
þinna og einbeita þér að hannyrðum.“
ekki. Þegar kosið er til bæjar-
stjórnar kjósa þær annað hvort
konur eða myndarlega menn
sem kunna að koma fyrir sig
orði. Umræðurnar og allt erf-
iðið hvílir á herðum karlanna.
Ég kippi mér hins vegar ekk-
ert upp við það þótt bæjar-
stjórnarkosningar séu eftir
nokkra mánuði. Bæjarpólitík-
in á Akureyri hefur hvort eð er
aldrei verið beysin. Menn ríf-
ast aðeins til málamynda en
skála á kvöldin. Fólk kýs sína
flokka. Allir flokkar fá minna
af atkvæðum en þeir eiga
skilið, að eigin áliti, og síðan
rotta tveir eða þrír sig saman
og mynda meirihluta. Engu
máli skiptir hvaða flokkar
þetta eru og í rauninni er eng-
inn munur á meirihluta og
minnihluta. Þetta er ein bæjar-
stjórn og allir fulltrúarnir eru
sammála um allt, atkvæðin
11:0. Til hvers eru menn þá að
standa í þessu þrefi og leyni-
makki? Það er til einskis. Kjósið
bara einhvern flokk eða kjósið
ekki neinn. Atkvæði þitt skipt-
ir engu máli, kjósandi góður,
en þó tel ég skynsamlegast að
kjósa . . .
matarkrókur
Ofnréttir í öndvegi
Buff í gráðostasósu
Kartöflueftirlæti er gott með grilluðu kjöti, pylsum eða skinku.
Nú fer matarkrókurinn senn
að kveðja með þessu sniði en
hann mun birtast aftur án taf-
ar með nýju yfirbragði. Petta
gerist ekki alveg á nœstunni
en sjálfsagt að minna á breyt-
ingar og hvetja ykkur til að
klippa út uppskriftirnar og
reyna þœr við tœkifæri. Að
þessu sinni verða ofnréttir í
öndvegi. Prír slíkir réttir birt-
ast hér, úr nautahakki, svína-
hakki og kartöflum.
8 sneiðar nautabuff (alls 500 g)
1 púrrulaukur
50 g gráðostur
2 dl rjómi
salt, pipar
1 tsk. kartöflumjöl
Buffið er snöggsteikt, skorið í
ræmur og sett í smurt eldfast mót
ásamt sneiddum púrrulauk. Sjóð-
ið síðan rjóma, krydd og gráðost
smástund í potti. Kartöflumjöli
bætt í. Þá er sósunni hellt yfir
kjötið í mótinu og rétturinn
bakaður í u.þ.b. 25 mínútur.
Hrísgrjón og hrásalat henta vel
sem meðlæti. Sérlega góður og
einfaldur réttur.
Skinkufars
400 g svínahakk
200 g hökkuð skinka
salt, pipar
3 soðnar kartöflur
2 msk. rifinn laukur
1 dl mjólk
1 dl rauðrófusafi
Allt hrært saman og mótað
sem aflangt brauð. Sett í smurða
ofnskúffu. Penslað að ofan með 1
eggjarauðu og 1 msk. sinnepi
(hrært saman). Brauðmylsnu
stráð yfir. Bakað í ofni í u.þ.b. 50
mínútur. Borðað með salati,
rauðrófum og sinnepi. Já, dálítið
nýstárlegt en afskaplega gott.
Kartöflueftirlœti
10 meðalstórar kartöflur
1 laukur
IV2 tsk. salt
V2 tsk. pipar
3 dl rjómi
Afhýðið kartöflur og lauk og
rífið á grófu rifjárni. Kryddið og
blandið vel saman. Setjið í eld-
fast mót, hellið rjóma yfir og
bakið í 30-40 mínútur. Kartöflu-
eftirlæti er borið fram sem með-
læti með grilluðu kjöti, pylsum
eða kaldri skinku. Að lokum,
verði ykkur að góðu. SS
Við viljum endilega mæla með buffi í gráðostasósu.