Dagur - 20.01.1990, Blaðsíða 5
Laugardagur 20. janúar 1990 - DAGUR - 5
ÞURRKUBLÚÐIN VERÐA
AÐ VERA ÓSKEMMD
og þau þarf aö hreinsa reglulega.
Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
i umferðinni.
|0UMFERÐAR
„Reiki“-námskeið
á Akureyri
Helgina 27.-28. janúar verður
haldið „Reiki“ námskeið á
Akureyri, kennari er Guðrún
Ólafsdóttir, reikimeistari.
í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum námskeiðsins segir að
fyrst sé getið um Reiki, alheims-
lífsorku, í 2500 ára gömlum
tíbetskum ritum, en Reiki var
enduruppgötað í Japan á 19. öld
af dr. Mikar Usui. „Hin náttúru-
lega lífsorka verkar á öll svið ein-
staklingsins, efnislíkamann, til-
finningasvið, andlegt svið og hug-
arsvið. Reiki er hreinsandi, orku-
gefandi og stuðlar að almennri
vellíðan. Allir fæðast með Reiki,
en það sem þarf til að vekja þessa
endalausu alheimsorku er viijinn
til að læra og vígslurnar sem
gefnar eru á námskeiðunum.
Ekki er krafist sérstakrar for-
vinnu, þjálfunar eða þekkingar
heldur einungis löngunar til að
vera leiðari lífsorku." Upplýsing-
ar gefur Árný í síma 96-21312
milli kl. 19 og 21.
Allir þeir, sem greitthafa laun
á árinu Í989, skuiu skila
launamiðum vegna greiddra
launa á þar tilgerðum eyðu-
blöðum tii skattstjóra.
Frestur tii að skila launamiðum
rennurút22.janúar.
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI
fyrir að láta taka borgina þarna
rétt við nefbroddinn á þér. Hvað
hólmgöngu okkar viðvíkur þá er
hún óþörf því Guð hefur þegar
fellt þig í duftið. Pú þarfnast nú
aðeins læknis sem getur haft
umsjón með sjúkum heila
þínum. Þú ættir að skammast
þín, gamli hálfviti, að ráðast
svona á heiðarlegan mann, en
það hefurðu vafalaust lært af
gömlu þvottakerlingunum sem
ekki geta varið sig nema með
kjaftinum. (SS tók saman.)
í kýrhausnum
gamansögur, sannar og
uppdiktaðar
Týndur eiginmaður
Bresk eiginkona sendi tilkynn-
ingu til lögreglunnar einn daginn
og kvað mann sinn vera týndan,
hann hefði ekki komið heim í
nokkrar vikur. Vinkona hennar
var viðstödd er hún hringdi til
lögreglunnar og hún varð stein-
hissa er hún heyrði lýsinguna:
„Hár, gjörvilegur, dökkhærður,
með injallhvítar tennur.“
- Nei, heyrðu mig Hazel,
sagði hún. Hvers vegna lýsirðu
manninum þínum svona? Þú
veist að hann er lágur, feitur og
sköllóttur, þar að auki gjörsam-
lega tannlaus!
- Uss, segðu þetta ekki hátt,
sagði eiginkonan. Ég veit að
þetta er rétt hjá þér, en heldurðu
að ég kæri mig um að fá slíkan
mann aftur?
Hér kemur hluti af bréfi sem
Kristján IV Danakonungur
(1577-1648) ritaði Karli 9. Svía-
konungi:
Þetta ósæmilega og ósvífna
bréf þitt hefur nú verið afhent oss
af sendiboðanum. Vér getum
fundið hve hitinn í ágúst hefur
haft óheppileg áhrif á heilann í
þér. Þú segir, að vér höfum rofið
Stettínarfriðinn, en það er bláber
lygi. Það er einnig lygi að vér höf-
um unnið Kalmar með svikum.
Þú ættir heldur að skammast þín
Óþolandi eiginmaður
Kona nokkur í Bandaríkjunum
fór til sálfræðings og bar sig illa út
af manni sínum.
- Hvað á ég að gera? Þetta er
óþolandi. Hann er sítalandi upp
úr svefninum.
- Nú, já, sagði sálfræðingur-
inn. Ég skil þetta vel, enda ekki
einstakt tilfelli. Bældar hvatir,
innilokaðar tilfinningar. Leyfið
honum að tala á daginn.
Góð mjólk
Bóndi nokkur í Minnesota átti
gamla móður á elliheimili. Hann
kom alloft að heimsækja hana og
tók alltaf með sér mjólkurflösku
handa henni að heiman. Hann
setti alltaf dálítið af koníaki sam-
an við mjólkina en minntist
aldrei á það við gömlu konuna.
Hún minntist heldur aldrei á það
að sér þætti mjólkin undarleg á
bragðið. Einn daginn sagði hún
við hann:
- Alfreð minn, ég ætla nú að
biðja þig að gera dálítið fyrir
mig.
- Sjálfsagt, mamma mín,
sagði hann. Hvað er það?
- Seldu ekki þessa kú sem
mjólkin er úr.
Smyglvarningur
Bandaríkjakona nokkur var að
koma frá Evrópu. Hún kom með
nokkrar flöskur af ilmvatni, sem
hún faldi vandlega í einni tösk-
unni svo að tollverðirnir kæmu
ekki auga á þær.
Tollverðirnir límdu miða á far-
angurinn án þess að nokkuð væri
við að athuga, en er þeir komu
lokum að töskunni sem ilmvatnið
var í sagði átta ára dóttir konunn-
ar hátt og snjallt:
- Mamma, nú fara þeir að
verða dálítið heitir, er það ekki?
Kóngur skrifar kóngi
Þeir sem hafa gluggað í tilkynn-
ingar sem farið hafa á milli ríkja
á þessari öld, t.d. mótmælaorð-
sendingar íslendinga til Breta,
hafa kannski gaman af að heyra
pistla sem orðaðir eru hressilega.