Dagur - 24.01.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 24. janúar 1990
fréttir
ÓlafsQörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
tillögu bæjarstjóra um aö fella
niöur skuld bæjarsjóös viö
hitaveitu og framvegis veröi
rekstrarhagnaöur hítaveitu
færður á bæjarsjóð.
■ Bæjarráöi barst nýlega bréf
frá Rögnvaldi Möller, þar sem
hann biður bæjarstjóra að
veita móttöku f.h. Ólafsfjarð-
arkaupstaðar, handriti sem
inniheldur samantekt hans um
náttúruhamfarirnar í Ólafsfirði
árið 1988. Bæjarráð færði
Rögnvaldi þakkir fyrir fram-
takið og fyrir góða gjöf.
■ Bæjarráði barst fyrir
skömmu bréf frá íjármálaráö-
herra um greiðslu á virðis-
aukaskatti. I framhaldi af því
samþykkti bæjarráö tillögu
borstcins Ásgeirssonar, um að
senda fjármálaráöherra til-
kynningu um að bæjarstjórn
mótmæli harðlega að virðis-
aukaskattur verði lagður á
hitaveitu.
■ Bæjarstjóri óskaði eftir því
á fundi bæjarráðs fyrir
skömmu, að fá að taka
skuldabréf atvinnutrygginga-
sjóðs útflutningsgreina upp í
skuldir H.Ó. vegna ársins
1989 og var það samþykkt.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Félaginu hjálpum börnum,
þar sem þess er farið á lcit við
bæjaryfirvöld, þar scm fjár-
hagsáætlun er í undirbúningi,
aö fjárveitingum vegna mál-
efna sem varöa börn. verði
sérstaklega gauntur gefinn.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
tillögu bæjarstjóra, um að
fasteignaskattur á íbúðahús-
næöi verði 0,44% en á at-
vinnuhúsnæöi 1,15%. Álagn-
ingarprósenta lóðarleigu.
vatnsskatts og holræsagjalda
verði óbrcytt og sorpgjald
verði kr. 2000.-. Annað taki
mið af vísitölu.
■ Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar, kom fram að engin
umsókn barst um auglýsta
stöðu slökkviliðsstjóra.
Þórshöfn:
Línubilim í rúman sólarhring - en dísilvélar dugðu vel
Rafmagnstruflanir urðu á
Þórshöfn og nágrenni vegna
ísingar sem hlóðst á línuna
milli Þórshafnar og Kópaskers
í óveðrinu fyrir helgina.
Straumur fór af Þórshafnarlínu
um kl. 20 á föstudagskvöld. Um
nóttina var farið upp á heiðina
til að skoða línuna, en þá hafði
veður aðeins skánað. í Ijós
kom að sex slár höfðu brotnað,
línan var slitin og mikil ísing
var á henni. Á laugardags-
morgun héldu fimm menn á
heiðina til viðgerða á línunui
og til að reyna að ná ísingu af
henni, sem ekki var létt verk.
Viðgerð lauk um kl. 23 á laug-
ardagskvöld.
Á þessum rúma sólarhring sem
línan var biluð voru dísilvélar
keyrðar á Pórshöfn og Bakka-
firði. Á Bakkafirði annaði vélin
framleiðslu á rafmagni fyrir
byggðina en á Þórshöfn þurfti
aðeins að grípa til skömmtunar.
Loðnuverksmiðjunni var séð fyr-
ir rafmagni en á Pórshöfn og nær-
sveitum voru heimili rafmagns-
laus frá 2-4 tímum, sem telst víst
Fyrsta skiptafundi í þrotabúi Híbýlis lokið:
Kröfumar á annað hundrað
Kröfulýsingaskrá í eignir
þrotabús Híbýlis er löng enda
kröfuhafar margir. Akureyrar-
bær er stærsti kröfuhafinn í
búið og gerir heildarkröfur
upp á tæpar 37 milljónir
króna.
Aðrir stórir kröfuhafar eru Líf-
eyrissjóður trésmiða á Akureyri
með kr. 9.852.442, Landsbanki
íslands kr. 9.755.830, VÍS kr.
5.155.861, bæjarfógetaembættið
á Akureyri, þinggjöld og skattar
kr. 12.096.650, BYKO hf. kr.
4.438.479, KEA kr. 16.310.566,
Blikkrás hf. kr. 5.092.971, Fram-
kvæmdadeild Innkaupastofnunar
ríkisins kr. 5.996.663 vegna FSA,
Möl og Sandur hf. gerir kröfu
urn 8 milljónir króna, Teikni-
stofa Hauks Haraldssonar kr.
5.412.515 og Útvegsbanki fslands
vegna skuldabréfs að upphæð kr.
3.662.749 og tryggingabréfs kr.
6.994.027.
Af eigendum Híbýlis hf. gerir
Páll Alfreðsson hæstar kröfur;
vegna víxils að upphæð 25 millj-
ónir króna og vegna annarra
ábyrgða um 11 milljónir króna.
Mývatn rannsakað fyrir 20 milljónir:
Kísiliðjan með heimild
til íjölþættari starfsemi
Unnið er að skipulagningu
rannsókna á Mývatni í sumar,
vegna endurnýjunar námaleyfis
til Kísiliðjunnar. Jón Pétur
Líndal, sveitarsjóri í Skútu-
staðahreppi, telur að um 20
milljónum verði varið til þessa
verkefnis á árinu. Sérfræðinga-
nefnd Mývatnsrannsókna skipu-
leggur verkefnið, en það er að
hluta kostað af Kísiliðjunni.
Samþykkt hefur verið á
Alþingi lagabreyting sem heimil-
ar Kísiliðjunni að taka þátt í fjöl-
þættari atvinnustarfsemi en
vinnslu kísilgúrs. Sagðist Jón Pét-
ur vona að þetta yrði til að
styrkja eitthvað atvinnulífið í
sveitinni. Einhver verkefni munu
vera í athugun. Jón Pétur sagði
að hugsanlega væru til gjall- eða
gosefni á þessum slóðum sem
vinna mætti með jarðgufu. Vegna
eignaraðildar John Manville að
Kísiliöjunni ætti að vera auðveld-
ara að koma ýmsum afurðum á
framfæri á mörkuðum erlendis og
sagðist Jón Pétur vona að heimild
til fjölbreyttari framleiðslu yrði
nýtt, þar sem þörf er á nýjum
atvinnutækifærum í sýslunni. IM
óskar eftir að ráða fólk til starfa til að skrifa
fasta þætti í blaðið. Tilskilin er góð íslensku- og
vélritunarkunnátta og góð almenn menntun.
Um eftirtalda efnisþætti er að ræða, auk þess
sem ábendingar um fleiri eru vel þegnar:
★ Unglingar
★ Tónlist
★ Tómstundir
★ Neytendamál
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki til að skrifa
fasta þætti um sjálfvalið efni.
Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1.
febrúar nk.
Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.
Bústjórinn, Brynjólfur Kjart-
ansson hrl., tekur afstöðu til ein-
stakra krafna í kröfulýsinga-
skránni. Kröfum Lífeyrissjóðs
trésmiða er t.d. hafnað að svo
stöddu og einnig kröfum Páls
Alfreðssonar, Malar og sands hf.
og Teiknistofu Hauks Haralds-
sonar. Kröfur KEA eru sam-
þykktar breyttar og krafa bæjar-
fógeta vegna skatta og þinggjalda
er samþykkt óbreytt.
„Mesta vafaatriðið í þessu öllu
er krafa Bæjarsjóðs Ákureyrar
um að fá afhentan þann hlut sent
bærinn gerir kröfu til í Helga-
magrastræti 53. Um það stendur
deilan og ég sé ekki annað en að
sú deila komi til kasta dómstóla.
Ég tel ekki vera unt aðrar deilur
að ræða sem ekki er hægt að
finna einhvern flöt á að leysa
með öðrum hætti,“ segir Brynj-
ólfur Kjartansson.
Brynjólfur segir það hafa lítinn
tilgang að leggja saman tölur um
kröfuupphæðir á þessu stigi
inálsins. Kröfur utan skuldaraðar
eru 8, lýstar forgangskröfur 69 en
almennar lýstar kröfur 86 talsins.
Alls eru kröfurnar því hátt á ann-
að hundrað, en sumum er lýst
tvisvar. EHB
ekki mikið þar um slóðir. Nær
eingöngu er hitað upp með raf-
magni og aðeins örfá hús eru með
olíukyndingu. Skömmtunin olli
þó engum teljandi óþægindum
eða erfiðleikum.
Á Pórshöfn er ný dísilvél sem
kom þangað fyrir ári síðan og að
sögn Henrýs Ásgrímssonar,
gæslumanns hjá Rafveitunni,
munaði gífurlega um að fá þessa
vél, sem að öðru jöfnu getur séð
byggðinni fyrir nægu rafmagni.
Á laugardag og einnig á sunnu-
dagsmorgun slitnaði lína upp á
Viðarfjall svo útsendingar
útvarps og sjónvarps rofnuðu.
Gert var við þessar bilanir eins
fljótt og unnt var og komst línan
í lag eftir fáa klukkutíma í bæði
skiptin. IM
Vinnudeila
Sleipnismanna:
Verkfall á ný
í næstu viku
Árangurslaus sáttafundur var
haldinn í vinnudeilu Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis og við-
semjenda þeirra hjá Sátta-
semjara ríkisins á mánudag-
inn.
Sama dag var haldinn félags-
fundur í Sleipni þar sem fram-
haldið var rætt og ákvað stjórn og
trúnaðarráð eftir fundinn að
boða á ný til 4 daga vinnustöðv-
unar frá og með 31. janúar nk.
Beri þær aðgerðir engan árang-
ur og hafi ekkert miðað í sam-
komulagsátt í vinnudeilunni er
sömuleiðis boðað til 5 daga
vinnustöðvunar þann 10. febrúar
nk. VG
Alþýðuflokksfólk á Akureyri:
Ffriir til skooanakönnunar
vegna kosningaima í vor
Alþýðuflokksmenn á Akureyri
hafa ákveðið að efna til skoð-
anakönnunar meðal flokks-
bundinna og stuðningsmanna
flokksins vegna bæjarstjórnar-
kosninganna í vor. Þetta er
niðurstaða fundar Alþýðu-
flokksmanna sl. mánudags-
kvölds.
Að sögn Hreins Pálssonar, for-
ntanns undirbúningsnefndar, hef-
ur ekki verið ákveðið hvenær
könnunin fer fram en að líkind-
um verður hún aðra eða þriðju
helgina í febrúar.
Hreinn segir að niðurstöður
könnunarinnar verði ekki bind-
andi en að sjálfsögðu verði fullt
tiilit tekið til hennar við endan-
lega uppstillingu frambjóðenda á
lista flokksins, sem kemur í hlut
fundar flokksbundinna Alþýðu-
flokksmanna.
Alþýðuflokkurinn hefur þrjá
fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar,
Frey Ófeigsson, Áslaugu Einars-
dóttur og Gísla Braga Hjartar-
son. Þeir tveir fyrrnefndu hafa
þegar gefið yfirlýsingu um að þeir
verði ekki í kjöri en að sögn
Hreins er ekki annað vitað en að
Gísli Bragi muni taka þátt í skoð-
anakönnuninni. óþh
Norðurland:
Loðnan í felum á síðasta ári
AIIs veiddu landsmenn 657.937
tonn af loðnu á árinu 1989 á
móti 916.283 tonnum árið
1988. Hlutur Norðlendinga í
þessum afla var 111.254 tonn á
síðasta ári en árið áður komu
222.873 tonn af loðnu til
vinnslu á Norðurlandi. Sam-
drátturinn á Norðurlandi er
því um 100%.
Ef við skoðum einstakar lönd-
unarstöðvar á Norðurlandi þá lít-
ur dæmið þannig út, svigatölur
tákna aflann 1988: Siglufjörður
40.128 (83.883), Ólafsfjörður
1.680 (5.292), Akureyri (þ.e.
Krossanes) 27.951 (43.841),
Húsavík 0 (90), Raufarhöfn
19.953 (56.227) og Þórshöfn
21.542 (33.540).
Eins og sjá má er munurinn
sérstaklega sláandi á Raufarhöfn
svo og á Siglufirði, eða yfir 100%
samdráttur. SS