Dagur - 24.01.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 24.01.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 24. janúar 1990 myndasögur dags ÁRLAND Ekki niðurlútur, við verðum enga stund að þessu! Auðvitað er þetta mikil vinna, en við gerum þetta saman ... hóþ- « vinna!... það sem gildir! I ANDRÉS ÖND HERSIR Vandamálið þitt er að þú kannt ekki að meta hamingjuna! BJARGVÆTTIRNIR i rr: wn—T r-. . • ■ Ti 5—7~-—m i—; : TT77T Regnbogaverksmiðjunni, á Arabella i erfióleikum með bílstjórann ..---- vertu dálítið félags-lnúna!... Þú verður KFS Ðisir. BULLS G&4SS/- R=P=TTO A-TL # Snjómokstur Snjó hefur kyngt niður undanfarið og skapar sú staðreynd ýmis óþægindi, ekki síst fyrir þá sem þurfa að fara ferða sinna fótgang- andi. Reyndar er slæm færð ekki síður erfið bílstjórum, en um þá hlið málsins er ekki ætlunin að fjalla hér. Sem betur fer hugsa flestir íbúar þéttbýlisstaða vel um snjómokstur og sumir leggja metnað í að moka og sópa sem best frá húsum sínum. Aðrir vinna að snjómokstrinum með hang- andi hendi og gera ekki meira en brýnasta nauðsyn krefur. Snjómokstur er reyndar svo til eina hreyf- ingin sem ýmsir „kyrrsetu- menn“ fá, fyrir utan hina daglegu göngu til og frá fólksbifreiðinni! Þeim síð- astnefndu veitti ekki af sem mestri og tíðastri snjó- komu. # Gleymum við ekki einhverju? Þegar „kyrrsetumaðurinn“ hefur mokað snjólagið af gönguleiðinni að útidyrum um og kannski - ef hann er duglegur, af bílaplaninu, lít- ur hann stoltur yfir vel unn- ið verk og hallar sér fram á skófluna. En því miður er verkið oft ekki nema hálfnað, þótt hann leiði ekki hugann að þvi. Til er nefni- lega ein stétt manna sem líð- ur fyrir alltof algengan trassaskap eða hugsunar- leysi húseigenda, en það eru sorphirðingarmennirnir. Þeir verða að brjótast yfir skafla og stundum mittis- djúpan snó til að gegna starfi sínu, en næsta auð- velt væri að létta þeim verk- ið og moka betur frá rusla- tunnum. Það er líka svo miklu þægílegra að fara með ruslið út i tunnu þegar leiðin er greið! En því miður sinna alltof fáir þessari skyldu, sem er ekki nema sjálfsögð kurteisi við bæjar- starfsmennina. Rétt er það að vísu, að bæjarbúar greiða fyrir sorphirðingu, en tæp- lega er hægt að ætiast til þess að starfsmennirnir séu dauðþreyttir dag eftir dag vegna vanrækslu á jafn ein- földu atriði og að moka frá sorptunnum. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Miövikudagur 24. janúar 17.50 Töfraglugginn. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Poppkorn. 19.20 Hver á að ráða? (Who’s the Boss?) 19.50 Bleiki pardusinn. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Á tali hjá Hemma Gunn. Meðal fjölmargra gesta Hemma Gunn í þrítugasta þættinum hans verða Davíð Oddsson, Diddú og Friðrik Guðni Þorleifs- son, sem spilar á langspil. Flutt verður efni frá áhorfendum. 21.40 Forboðin ást. (Never to Love.) Sígild bandarísk bíómynd frá árinu 1940. Aðalhlutverk: Maureen O’Hara, Adolphe Menjou, Herbert Marshall og Fay Bainter. Ung stúlka uppgötvar að geðveiki föður hennar geti reynst arfgeng. 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. Stöð 2 Miðvikudagur 24. janúar 15.35 Leynilögreglumæðginin. (Detective Sadie and Son.) Sadie er ekkja á fimmtugsaldri og hefur gegnt starfi á lögreglustöð í hartnær tutt- ugu ár. Hana hefur lengi dreymt um að gerast leynilögreglukona, en yfirmenn hennar telja hana ekki valda slíku starfi. Þess í stað bjóða þeir henni að vakta kirkju- garð þar sem fjöldamorðingi hefur verið á ferð. Sadie þiggur starfið og hyggst hand- sama morðingjann með hjálp sonar síns. Aðalhlutverk: Debbie Reynolds, Brian McNamara og Sam Wanamaker. 17.05 Santa Barbara. 17.50 Fimm félagar. (Famous Five) 18.15 Klementína. 18.40 í sviðsljósinu. 19.19 19:19. 20.30 Af bæ í borg. 21.00 Á besta aldri. Þáttur fyrir eldri kynslóð áhorfenda Stöðvar 2 sem auðvitað er allt fólk á besta aldri. 21.40 Fátæku börnin í Kenya. (Bernard’s Gang.). Rúmlega 250.000 manns, þar af fjöldi barna, býr í skuggahverfum í Nairobi í Kenya. Einn þeirra er hinn sautján ára gamli Bernard en í þættinum verður fylgst með þeim vandamálum sem hann mætir á degi hverjum. Þá verður fylgst með stuðningshópi sem reynir að leysa vanda barna og unglinga sem eru í sömu aðstöðu og Bernard. 22.10 Snuddarar. (Snoops.) 22.45 Þetta er þitt líf. (This Is Your Life.) 23.25 Joe Kidd. Meiriháttar vestri. Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Robert Duvall og John Saxon. Stranglega bönnuð börnum. 00.50 Dagskrárlok. Rás 1 Miðvikudagur 24. janúar 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Randver Þorláksson. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. Steinunn Sigurðardóttir talar um daglegt mál laust fyrir kl. 8.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn: „Áfram Fjöru- lalli" eftir Jón Viðar Guðlaugsson. Dómhildur Sigurðardóttir les (5). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. Umsjón: Áskell Þórisson. 10.00 Fréttir. 10.03 Neytendapunktar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Úr menningarsögunni - Hugmyndir aldamótamanna um 19. og 20. öldina. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.15 Daglegt mál. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug- lýsingar. 13.00 í dagsins önn - Slysavarnafélag íslands. Fjórði þáttur. Umsjón: Bergljót Baldursdóttir. 13.30 Miðdegissagan: „Fjárhaldsmaður- inn“ eftir Nevii Shute. Pétur Bjarnason les þýðingu sína(6). 14.00 Fréttir. 14.03 Harmonikuþáttur. 15.00 Fróttir. 15.03 Samantekt um dulræn efni. 15.45 Neytendapunktar. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. 16.08 Þingfréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fróttir. 17.03 Tónlist á síðdegi. 18.00 Fréttir. 18.03 Að utan. 18.10 Á vettvangi. 18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Frá tónskáidaþinginu i París 1989. Flutt verða þau verk sem flest stig hlutu í lok tónskálaþingsins. Hljómsveitaverkið „Parados" eftir Svíann Daniel Börtz, sem flest stig hlaut. Og tvö verk sem urðu meðal þeirra stigahæstu „Offenes Lied” eftir Kanadamanninn John Rea og „Cat's Eye‘‘ eftir Bretann David Sawer. 21.00 Sorg. Umsjón: Guðrún Frímannsdóttir. 21.30 íslenskir einsöngvarar. 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins • Dagskrá morgundagsins. 22.30 Ef skip Ingólfs hefðf sokkið. Þáttur um íslendinga og skip. 23.10 Nátthrafnaþing. Málin rædd og reifuð. Umsjón: Ævar Kjartansson. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Miðvikudagur 24. janúar 7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn í ljósið. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Albertsdóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Neytendahorn kl. 10.03 og afmæliskveðj- ur kl. 10.30. .11.03 Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur og gluggað í heimsblöðin kl. 11.55. - Morgunsyrpa heldur áfram: 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akur- eyri.) 14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem er að gerast í menningu, félagslífi og fjöl- miðlum. 14.06 Milli mála. Árni Magnússon leikur nýju lögin. Stóra spurningin. Spurningakeppni vinnustaða kl. 15.03, stjórnandi og dóm- ari Dagur Gunnarsson. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaút varp. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars- dóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson. - Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tímanum. - Gæludýrainnskot Jóhönnu Harðardótt- ur. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsendingu, sími 91-38500. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 íþróttarásin. Fylgst með og sagðar fréttir af íþróttavið- burðum hér á landi og erlendis. 22.07 Lísa var það, heillin. Lísa Pálsdóttir fjallar um konur í tónlist. 00.10 í háttinn. 01.00 Næturvakt á báðum rásum til morguns. Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 1.00 Áfram ísland. 2.00 Fréttir. 2.05 Konungurinn. Magnús Þór Jónsson segir frá Elvis Presley og rekur sögu hans. 3.00 Á frívaktinni. 4.00 Fréttir. 4.05 Glefsur. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Á vettvangi. 5.00 Fróttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Ljúflingslög. 6.00 Fróttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 Á þjóðlegum nótum. Ríkisútvarpið á Akureyri Miðvikudagur 24. janúar 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Hljóðbylgjan Miðvikudagur 24. janúar 17.00-19.00 Tími tækifæranna á sínum stað kl. 17.30. Þáttur fyrir þá sem þurfa að selja eða kaupa. Beinn simi er 27711. Fréttir kl. 18.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.