Dagur


Dagur - 24.01.1990, Qupperneq 5

Dagur - 24.01.1990, Qupperneq 5
Miðvikudagur 24. janúar 1990 - DAGUR - 5 lesendahornið Afleiðingar hringtorgsins: Vítaverður stirðbusa- akstur á vinstri akrein Ökumaður skrifar: „Það er gjörsamlega óþolandi að sjá þær afleiðingar sem fyrsta hringtorgið á Akureyri liefur haft á umferðina í bænum, sem var nú ekki beysin fyrir. Enn verra er auðvitað að verða sjáifur fyrir barðinu á þessari fiónsku öku- manna. Þegar torgið var tekið í notkun var það rækilega brýnt fyrir mönnum að þeir ættu að nota innri hringinn, sem þýðir að Lesendasíðunni hcfur borist eftirfarandi bréf. „Ágæti Dagur, mig langar í fyrsta lagi að þakka þér fyrir að vera til yfirleitt. í öðru lagi að koma á framfæri innilegu þakk- læti fyrir þáttinn hans Ártúrs Björgvins Bollasonar, sem var á þeir verði að koma sér fyrir á vinstri akrein áður en þeir koma að hringtorginu. Afleiðingarnar eru skelfilegar. Mestu gungurnar í untferðinni raða sér á vinstri akrein löngu áður en kontið er að torginu og silast áfram á 30 knt hraða. Þetta á við þegar ekið er norður eftir Glerárgötu og Hörg- árbraut. Við gatnamót Glcrár- götu og Tryggvabrautar er ávallt komin löng halarófa lélegra dagskrá sjónvarpsins 16. janúar kl. 23.00. Þar voru saman komnir ýmsir snillingar, hver í sinni grein. Bestu þakkir og áfram í þessum dúr Artúr Björgvin Bollason.“ Virðingarfyllst: Hafbjörg EA ökumanna á vinstri akrein sem líður hægt áfram norður eftir og tefur umferð auk þess að valda slysahættu. Ekki þykir sniðugt að nota hægri akrein til framúr- aksturs en þeir sem aka á skikkanlegum hraða, 50 km á klukkustund, neyðast þó til þess. Þetta hefur í för með sér háska- legan akstur, svig og læti. Það er því full ástæða til að skora á þá ökumenn sem stunda vítaverðan stirðbusaakstur að drolla á hægri akrein til að við hinir getum not- að þá vinstri til framúraksturs. Þannig má greiða úr þessari umferðarflækju og draga úr slysahættu." Sundlaug Akureyrar: Virðið bflastæði fatlaðra Hneykslaður Sundlaugargest- ur skrifar: „Ég vil gjarnan vekja athygli á því hvernig bílastæði fatlaðra við Sundlaug Akureyrar er misnotað af fólki sem ekki er sjáanlegt að þurfi að nota stæðið. Mun fleiri „fatlaðir“ stunda sund í Sundlaug Akureyrar heldur en sjáanlegir fatlaðir sundlaugargestir eru. Til samanburðar má geta þess að bílastæði fatlaðra annars staðar eru oftast látin í friði af þeint sem eiga ekki rétt til þeirra, t.d. við verslun Hagkaups. Undarlegt er að fólk skuli ekki víla fyrir sér að misnota merkt bílastæði sem ein- göngu eru ætluð fötluðu fólki til afnota.“ Þakkir fyrir þátt Artúrs Björgvins Þorvaldur Örlygsson í sviðsljósinu - athugasemd frá íþróttadeild Ríkisútvarpsins „Undanfarið hafa þau sjónarmið verið viðruð í þessu ágæta blaði, að of lítið hafi sést í Sjónvarpinu til Þorvaldar Örlygssonar, knatt- spyrnumanns hjá Nottingham Forest. Þá hefur jafnframt verið ýjað að því að ástæða þess sé sú að Þorvaldur sé Norðlendingur og KA-maður og slíkir eigi ekki upp á pallborðið hjá Iþróttadeild RUV. Hið rétta í þessu máli er að Þorvaldur fór að leika með For- est liðinu nokkru fyrir lok síðasta árs og hefur báðum gengið sér- lega vel síðan. Hann hefur verið nokkuð í sviðsljósinu og má segja að allir íþróttaáhugamenn fylgist grannt með því þegar svo vel gengur hjá einum fremsta knatt- spyrnumanni okkar. Þetta á að sjálfsögðu einnig við um okkur á íþróttadeildinni. Til þess að fá sem gleggstar upplýsingar fylgist einn okkar einatt með útvarpslýs- ingum BBC á laugardögum og eins reynum við að glugga í ensku dagblöðin. Slík vinna gerir það að verkum að við getum full- yrt að Þorvaldur hafi staðið sig vel í leikjunt og fengið hrós í breskum fjölmiðlum. Hvað Sjón- varpið varðar höfðum við sam- band um áramótin við sjónvarps- stöð í Nottingham og fengum hjá þeint stutt viðtal við Þorvald, sent þegar hefur verið sýnt. Nú liggur fyrir beiðni hjá þeim og um- boðsskrifstofu í Lundúnum um það hvort að við getum fengið myndir frá heimaleikjum Forest. Síðast en ekki síst höfum við lagt áherslu á það við félaga okkar hjá Norðurlandastöðvunum, að Nottingham Forest verði inni í myndinni þegar ákveðið er hvaða leiki á að sýna í beinni útsend- ingu. Þetta höfum við staðfest skriflega, en leikjaniðurröðun er ákveðin býsna langt fram í tímann. Af framansögðu ætti að vera Ijóst, að viö reynum í þessu máli sem öðrum, að gera okkar besta, reynum að veita eins góða þjónustu og hægt er hverju sinni. Allar samsæriskenningar eru hér út í bláinn og hitta þá fyrir sem slíku halda fram. , Svona í lokin vil ég geta þess, að Þorvaldur Örlygsson er ekki eini knattspyrnumaðurinn sem við erum að reyna að ná á skjáinn hjá okkur þessa dagana. Sigurður Jónsson og Guðni Bergsson kom- ust ekki í lið sín þegar röðin var komin að þeint og nú liggja fyrir óskir okkar í Skotlandi um myndir af Guðmundi Torfasyni hjá St. Mirren. Svona á þetta að vera, íslendingar sýna vaska framgöngu í íþrótt sinni og við og aðrir fjölmiðlamenn reynurn að fylgjast með þeim í keppni hverju sinni. Framganga okkar er síðan metin eins og íþróttamann- anna, en sá dóntur má ekki byggjast á einhverjum upplogn- um fordómum, sem enginn fótur er fyrir.“ Ingólfur Hannesson, deildarstjóri Iþróttadeildar Ríkisútvarpsins. Vestfirðlngar! Sólarkaffi Yestfirðingafélagsins verður í Lóni, laugardaginn 27. janúar nk. og hefst kl. 20.30. Nefndin. Breyttur opnunartimi Frá 1. febrúar verður opið sem hér segir: Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 9.15-16. Föstudaga frá kl. 9.15-17. Sparisjóður Glæsibæjarhrepps Brekkugötu 9 • Sími 21590. Skákþing Aknreyrar 1990 Skákþing Akureyrar hefst á sunnudaginn 28. janúar kl. 14.00. Tcflt verður í flokkum (10). Raðað cftir Elostigum, umhugsunartími á keppanda er 40 lcikir á 2 klst. Tcfldar vcrða 3 umfcrðir fyrstu tvær vikurn- ar, á sunnudögum, þriðjudögum og föstudögum, en síðan verða tcfldar 2 umferðir á viku (þriðjudagur dcttur út). Þátttökutilkynningar þurfa að berast í síðasta lagi föstud. 26. jan. kl. 21.00 til stjórnarinnar. Einnig er hægt að skrá sig í Skákheintilinu Þingvallastræti 18 í síma 27655 á milli kl. 19.30 og 21.00. Keppnin í unglinga- og drengjaflokki hefst laugardaginn 3. febrúar. ATH. 15 mínútna mót nk. föstudag kl. 20.00. Stjórn Skákfélags Akureyrar. BETRI KjÓR FYRIR SELjENDUR SKULDABRÉFA Vegna vaxtalækkunar á verðbréfamarkaði undan farna mánuði seljast góð veðskuldabréf nú á 12-13% ávöxtunarkröfu. Þetta þýðir hærra verð fyrir seljendur skuldabréfa. Ný tekur aðeins 1-2 daga að selja góð veðskuldabréf. FROÐLEIKSMOLAR Sölugengi verðbréfa þann 24. jan. Einingabréf 1 4.607,- Einingabréf 2 2.533,- Einingabréf 3 3.030,- Lífeyrisbréf ............... 2.316,- Skammtímabréf ............ 1,572 éál KAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.