Dagur - 24.01.1990, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 24. janúar 1990
Miðvikudagur 24. janúar 1990 - DAGUR - 7
Enginn veit hvernig á að skemmta sér - fyrr en hann
hefur verið á þorrablóti í Bárðardal. Fullyrðingar þessa
efnis hafa heyrst á undanförnum árum frá þeim sem
reynt hafa, og svo er bara brosað í barminn og sagt að
þetta séu ólýsanlega góðar skemmtanir. Til að verða
einhvers vísari um þessa sérstöku skemmtanagáfu
Bárðdælinga tókst Degi að lauma blaðamanni með
myndavél á þorrablót í Bárðardal sl. laugardagskvöld.
'Myndirnar tala sínu máli og sýna að fólk var yfirleitt
ekki með neinn fýlusvip undir borðum, þar sem snædd-
ur var íslenskur þorramatur af bestu gerð, að miklu
leyti heimalagaður og hið rómaða Bárðdælska öl
drukkið með. Aldeilis ekki var ástæða til að setja upp
fýlusvip yfir skemmtiatriðum þorrablótsnefndar eða
kórstjórn Áskels Jónssonar frá Akureyri, sem er Bárð-
dælingur að uppruna. Eftir mikla þjóðflutninga að
loknu borðhaldi var síðan stiginn dans við undirleik
Fimm félaga frá Akureyri. Mikið var dansað og af
miklu fjöri því þarna var fólk komið til að skemmta sér
en ekki til að vera með neitt vesen eða vitleysu.
Oansinn dunaði dátt á þorrablótinu í Bárðardal
Á þorrablóti í Bárðardal:
Að gleyma ekki
markmiði skemmtimarinnar
„Ég fæ svo mikið af svona -
Blessuð sértu sveitin mín - til-
finningu þegar við erum að und-
irbúa þorrablótin," sagði ein
bárðdælsk húsmóðir við blaða-
manninn, er hún var að reyna að
lýsa þeirri stemmningu sem
þorrablótinu fylgir. Eins og stað-
ið er að máluni í þessari sveit
verja heimamenn ekki aðeins
einu kvöldi í eitt þorrablót heldur
tekur undirbúningurinn marga
daga og kvöld hjá mörgum.
Skemmtinefndin er nokkrar vik-
ur að semja efni og æfa flutning
þess, auk ómældrar vinnu við
annan undirbúning.
Porrablótið er eins og jólin -
ljós í skammdeginu, gleðigjafi og
bjartur flötur á tilverunni. Þannig
eiga skemmtanir að vera og sá er
tilgangur þeirra. Álit blaða-
mannsins seni rannsakaði þorra-
blótið í' Bárðardal er, að þó svo
margir hafi gleymt upphaflegum
tilgangi þess að fara út að
skemmta sér, hafi Bárðdælingar
aldrei glatað eða gleymt mark-
miðinu með sínum þorrablótum.
Pað voru rúmlega 240 manns
samankomnir í Barnaskólanum í
Bárðardal á laugardagskvöldið
og voru samkomugestir á bilinu
frá 14-90 ára. Þröngt var á þingi í
salnum, en þröngt sátu sáttir án
þess að kvarta. Eins og þorrablóts-
lög gera ráð fyrir hófst blótið
með matarveislu mikilli, er
dregnar voru upp úr trogunum
bestu blótskrásir hvers heimilis í
mat og drykk. Áskell Jónsson
stjórnaði og lék undir fjöldasöng,
af mikilli kúnst og skemmtileg-
heitum sem sköpuðu sérlega
glaðlegt og gott andrúmsloft.
Þorrablótsnefndin samdi og
flutti öll skemmtiatriði. Nefndina
skipuðu: Kristbjörg Marinósdótt-
ir, Sandhaugum, Skarphéðinn
Sigurðsson, Úlfsbæ, Ingvar
Vagnsson, Hlíðarenda, Bergljót
Þorsteinsdóttir, Halldórsstöðum,
Ásrún Aðalsteinsdóttir, Hlíð-
skógum og Tryggvi Valdimars-
son, Engi. Nefndarmenn og
sveitungar þeirra fengu sendar
ýmsar glósur, bæði í tali og
tónum. Fluttir voru þrír frum-
samdir leikþættir. í hlutverkum
voru; nágrannakonur sem spjöll-
F.v. Friðrikka Sigurgeirsdóttir næsti formaður þorrablótsnefndar, Kristjana Guðbjartsdóttir, Benedikt Jónasson,
Egill Gústafsson oddviti og bóndi á Rauðafelli.
uðu um sveitungana, fréttamað-
urinn sem heimsótti bónda og
Ingvar og Skarphéðinn gerðu
heilmikla úttekt á atburðum síð-
asta árs. Lásu þeir efnið upp af
blöðum þar til að Skarphéðni
fipaðist og þagnaði augnablik.
Maðurinn er húmoristi af Guðs
náð og kippti sér ekki upp við
þessi smámistök, heldur sagði í
sama tón og áður: „Þú þarft nú
ekki að síðubrjóta mig Ingvar, þó
ég fari aðeins línuvillt." Vakti
þetta óvænta innskot ómældan
fögnuð. Fluttar voru nokkrar
auglýsingar en aðrar gleymdust,
enda dagskráin viðamikil. Og
það svo að allt í einu ruddist naut
inn í salinn með viðeigandi hljóð-
um og gerðist full aðgangshart
við sunta nefndarmennina.
Ýmis skot skemmtinefndarinn-
ar vöktu mikla kátínu og fróðleik
góðan mátti hafa af efnismeðferð
þeirra. Virðist Bárðardalur vera
orðinn mikill sælustaður eftir til-
komu rúllubindivélanna, sem
Þorrablótsnefndin f.v. Tryggvi Valdimarsson, Engi, Kristbjörg Marinósdóttir, Sandhaugum,
Ingvar Vagnsson, Hlíöarenda, Bergljót Þorsteinsdóttir, Halldórsstööum, Skarphéðinn Sig-
urðsson, Ulfsbæ, Ásrún Aðalsteinsdóttir, Hlíðskóguni, með gítarinn.
uumamcim naiti læil au Iiagnyia
sér á fieiri máta en flestir aðrir,
og gæti ferðamannastraumur til
að njóta ýmsrar rúllubindivéla-
þjónustu í sveitinni farið vaxandi
ef rétt verður haldið á málum.
Fullyrt var að hluti búaliðs feng-
ist varla úr hlöðunum eftir að far-
ið var að verka og binda heyið á
þennan hátt, því hin yndislegasta
viskílykt angaði úr rúllunum. Ef
konur þykkna undir belti, af
tómu tilgangsleysi, munu bændur
þeirra vera farnir að skella þeim í
rúllubindivélarnar og vefja það
fast að eitthvert lag komist á
kvenfólkið á ný. Ættu Bárðdæl-
ingar að tryggja sér einkaleyfi á
þessarri hugmynd hið fyrsta, og
gætu eflaust haft góða búbót af
að veita kaupstaðabúum slíka
þjónustu.
Að loknu borðhaldi og skemmti-
dagskrá upphófust miklir þjóð-
flutningar. Kraftaverk var fram-
kvæmt í yfirfullum salnum þegar
og sumir urðu ástfángnir.
Hrilluhjónin Ásdís Jónsdóttir og Sigtryggur Vagnsson og Ingileif Ólafsdóttir
og Héðinn Höskuldsson, Bólstað, í mjúkri sveiflu.
dansgólf var útbúið og ein sena
rifin og önnur byggð. Nýliðar
horfðu í forundran á aðfarirnar
og flókið skipulag sem að lokum
gekk upp, en heimamenn og van-
ari gestir gengu með uppbrettar
ermar að framkvæmdunum,
vaskir menn sem þekktu greini-
lega markmiðið með því að snúa
öllu á annan endann.
Upphófst nú dans mikill og
fjölsóttur og urðu menn glaðir,
sumir glaðari en aðrir, og sumir
urðu fljótlega áberandi ástfangn-
ir en síðar urðu aðrir talsvert
veikir, ekki varð þó vitað til að
neinn yrði vitlaus. Þorrablótinu í
Bárðardal lauk svo að lokum eins
og öðrum góðum stundum, og
gestir héldu heim, sumir strax en
aðrir gistu og nutu gestrisni í
dalnum frarn á næsta dag. Heirna-
menn í næstu þorrablótsnefnd
höfðu verið valdir og voru þeir
orðnir hugsi á svip og með
glampa í augum, því að ári verð-
ur annað blót. IM
Hjónin Gunnar Þóróll'sson og Þorgerður Kjartansdóttir fá sér snúning á
dansgólfinu.
Sagan af nautinu og bóndanum vakti verðskuldaða athygli og mikla kátinu
Ásrún Aöalstcinsdóttir og Bergljót Þorsteinsdóttir flytja „fréttir“ úr sveit-
inni.
Þorrablótsgestir tóku þátt í fjöldasöng af mikluin krafti. Þarna standa konur
og syngja minni karla.
Askcll Jónsson frá Mýri stjórnaði
söng af miklum skörungsskap og
skemmtilegheitum.
Það var þröngt setinn bekkurinn á þorrablótinu í Barnaskóla Bárðdæla.
Myndir: 1M