Dagur - 26.01.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 26. janúar 1990 - DAGUR - 5
Á að leggja
veg yfír Reykjaheiði?
Þessari spurningu svara ég ját-
andi, hér er átt við veg milli
Skóga í Reykjahverfi og Garðs í
Kelduhverfi.
Helstu rök eru þessi: Auð-
bjargarstaðabrekka er stórhættu-
leg og alltof mikill farartálmi
milli Suður- og Norður-Þing. Svo
er það háhitasvæðið á Þeista-
reykjum, það eru mjög miklar lík-
ur á að það verði nýtt í framtíð-
inni, og þá þarf að leggja veg
þangað sem er hálf þessi leið.
Reykjaheiðarvegurinn styttir
leiðina allt upp í 32 km, eftir
hvað farið er, til dæmis Skúla-
garður-Hveravellir, leiðin Kópa-
sker-Akureyri styttist um 20 km.
Það er alls ekki hægt að bera
saman þessa leið og gömlu leið-
ina Húsavík-Fjöll, þessi leið er
alveg laus við brattar brekkur og
Tryggvi Óskarsson.
er mikið lægri, lítið yfir 300 m.
Vegurinn yrði um 32-33 km og
mjög þægilegt að leggja hann,
bara tvö smá ræsi, engar stórar
uppfyllingar, en vegurinn verður
að vera nokkuð hár.
Eg er viss um að góður vegur
þessa leið myndi styrkja byggð
mikið í N-Þing, sérstaklega
fiskiræktina, þegar farið verður
að flytja afurðirnar beint á Aðal-
dalsflugvöll, sem verður áreiðan-
lega orðinn varanlegur millilanda-
flugvöllur innan skamms.
Eg held að ráðamenn um vega-
gerð ættu að fara að athuga þetta
í alvöru, áður en farið verður í
hæpnar framkvæmdir í Auð-
bjargarstaðabrekku.
Tryggvi Oskarsson,
Þverá, Reykjahverfi.
Athugasemd
Vegna fréttar í Degi þriðju-
daginn 23. janúar sl. undir
fyrirsögninni „Ráðist á lög-
regluþjón aðfaranótt sunnu-
dags“ óskum við undirritaðir
eftir að Dagur birti cftirfar-
andi.
„Af ummælum Sævars Freys
Ingasonar, lögregluþjóns á
Dalvík, í frétt á forsíðu Dags sl.
þriðjudag má ráða að hann eigi
það eiginkonu sinni og móður að
þakka að vera ofar moldu. Með
þessum ummælum er gefið til
kynna að tilgangur með heim-
sókn okkar að heimili þeirrá
hjóna hafi verið sá að láta illt af
okkur leiða. Því er hér með harð-
vegna fréttar
lega mótmælt.
Það er rétt sem fram kemur í
fréttinni að Sævar Freyr kom ein-
um okkar í járn. Hins vegar getur
hann þess ekki að eiginkona
Sævars jós snjó yfir andlit hans á
meðan hann var færður í járn. Þá
getur Sævars þess heldur ekki að
eftir að hafa komið honum í járn
hóf Sævar kylfu á loft og lét tvö
bylmingshögg dynja á höfði þess
handtekna og rotaði hann sam-
stundis. Þessu gátum við hinir
ekki unað og réðst einn okkar að
Sævari til að hindra frekari bar-
smíðar. Engum togum skipti að
eiginkona Sævars barði þá þann
okkar er vildi hindra frekari bar-
smíðar í höfuðið með álskóflu.
Alvarlegur atburður á Dalví
lláðist á lögreglu)
Iðfaranótt sunnud
■ eiginkona og móðir komu til h
röfuranólt sunnudags var raö-
r t á lögrcgluþjun a Daltik ug
art koma i veg fvrir aö
ta-ki mann fastan.
[ Athurður þessi er litinn mjog
L ulvarlcgum augum og er máliö
i rannsokii hjá rannsóknarliig-
• regluiini á Akureyri. I.ögreglu-
jonninn. Sævar Freyr Inga-
»n. slapp betur en á horfðist
!• sagöist hann getu þakkað
óður siuni og eiginkonu fvrir
V ð að vera enn ofar moldu.
i þv'ltar
:i bakvakt hcin
i hjá
Sævar I revr.
Nlcnnirnii voru
Iramkoma þeirra og
helgi heimilisius og a
ið virðingarlevsi g;
reglunm. að ínati S;r
injog abarlégl að t;i
i Iriði ;i sinu heimili i
legrn þegar r.iðist ei
skyklustiirl." sagði
var eijin ;i vakt þett;
Al oðrum tiðiiului
niá netiia að rútn ir
iim ;i leið i skiila á A
Umrædd frétt Dags sl. þriðjudag.
Þessa getur Sævar heldur ekki í
frásögn sinn í umræddri t'rétt.
Mcð þökk fyrir birtinguna.
Þórir Guðntundsson
Stefán Agnarsson
Sævar Hreiðarsson
Sigurður Sverrisson
Bridgefélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga:
Kristján Bjömsson aðalein-
menningsmeistari félagsins
Þeir félagar Eggert Karlsson
og Flemming Jessen sigruðu á
fyrsta spilakvöldi Bridgefélags
Vestur-Húnvetninga á nýja
árinu. Spilaður var eins kvölds
tvímenningur og hlutu þeir
Eggert og Flemming 63 stig.
í öðru sæti urðu Bjarni R.
Brynjólfsson og Bjarney Valdi-
marsdóttir með 52 stig, í þriðja
sæti Erlingur Sverrisson og
Eggert Ó. Levy með sama stiga-
fjölda.
Firmakeppni BVH var spiluð
9. og 16. janúar s.l. og var keppn-
in jafnframt aðaleinmenningur
félagsins. Aðaleinmennings-
meistari varð Kristján Björnsson
en hann sigraði með risaskori
fyrra kvöldið og var svo gott sem
búinn að tryggja sér 1. sætið eftir
það kvöld. Kristján hlaut 160 stig
fyrra spilakvöldið, Eggert Ó.
Levy varð annar með 137 stig og
Bjarki Tryggvason þriðji með
134 stig. Seinna spilakvöldið varð
Unnar A. Guðmundsson efstur
með 139 stig, Einar Jónsson ann-
ar með 139 stig og Bjarni R.
Brynjólfsson með 137 stig. Loka-
staðan að loknum báðum spila-
kvöldunum varð því þessi: stig
1. Kristján Björnsson 283
2. Einar Jónsson 264
3. Eggert Karlsson 253
4. Unnar A. Guðmundsson 251
5. Bjarki Tryggvason 250
6. Marteinn Reimarsson 247
7. Flemming Jessen 244
8. Erlingur Sverrisson 243
9. Egill Egilsson 241
10. Sigurður Þorvaldsson 239
Kristján Björnsson varð einnig
efstur í firmakeppninni en hann
keppti fyrir hönd Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga. Alls tóku
um 40 firmu þátt í keppninni en
10 efstu firmun urðu þessi:
Firma/spilari stig
1. Kaupfélag V.-Húnvetninga/
Kristján Björnsson 160
2. Gifs-mynd/
Unnar A. Guðmundsson 139
3. Meleyri/
Einar Jónsson 139
4.-5. Happdrætti DAS,
Hvammstangaumboð/
Eggert Levy 137
4.-5. Vélaverkstæði Hjartar
Eiríkssonar/
Bjarni Brynjólfsson 137
6. Vöruflutningar
Braga Arasonar/
Bjarki Tryggvason 134
7. Hvammstangahreppur/
Konráð Einarsson 131
8. Bjarmi HU/
Eggert Karlsson 129
9. Tannlæknastofa Auðar
Eyjólfsdóttur/
Flemming Jessen 128
10. Vátryggingafélag íslands hf./
Erlingur Sverrisson 127
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar’SS? 96-24222
Bújörð til leigu
Góður kvóti.
Upplýsingar í síma 96-26707.
Rýmingar
sala
til 15. febrúar
15% afsláttur
af öllum veggdúk
A.
Byggingavörur
Lónsbakka
Sími 96-21400
MYNDLl STASKOLIN N
Á AKUREYRl
Kaupvangsstræti 16
Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri
5. febrúar til 16. maí
Barna- og unglinganámskeið
Teiknun og málun.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku.
5 fl. 12-14 ára. Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeið. Einu sinni í viku.
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna
Teiknun.
Bryjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Byggingaiist.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Grafík.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Skrift og leturgerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958.
Skrifstofa skólans er opin kl. 13.00-18.00 virka daga.
Skólastjóri.