Dagur - 26.01.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 26.01.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 26. janúar 1990 - DAGUR - 9 Ferðamálaráð: Forseta íslands þakkað fyrir ómetanlegan stuðning Á fyrsta fundi Ferðamálaráðs á þessu ári var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma: „Fundur Ferðamálaráðs íslands 12. janúar 1990 vill láta í ljós þakklæti til forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, fyr- ir ómetanlegan stuðning hennar við íslenska ferðaþjónustu með því að koma fram opinberlega við ýmis tækifæri erlendis þar sem ferðamál hafa verið á dagskrá og beint og óbeint vakið með því athygli á Islandi. f tilefni af Ferðamálaári Evrópu 1990 mun European Travel Commission gangast fyrir ráðstefnu um ferðamál í Monaco, dagana 8. og 9. apríl. Samtökin hafa lýst miklum áhuga á að fá forseta íslands, frú Vig- dísi Finnbogadóttur, til að flytja opnunarræðuna við þetta tæki- færi. Ferðamálaráð íslands fer þess vinsamlega á leit við forseta Islands að þekkjast þetta boð og vekja þar með ennþá einu sinni verðskuldaða athygli á íslandi." Á þessum samam fundi var einkum tvennt til umfjöllunar, þ.e. fjárhagsstaða ráðsins og undirbúningur ráðstefnu um ferðamál, sem haldin verður á Egilsstöðum dagana 16. og 17. febrúar n.k. Dagskrá og fyrir- komulag ráðstefnunnar verður auglýst síðar, en þar verður fjall- að um flesta þætti ferðamála og m.a. kynnt starf opinberrar stéfnu í ferðamálum. Ferða- málaráð væntir mikils af þeirri umfjöllUn, enda fáar atvinnu- greinar jafn vænlegar og ferða- þjónustan um þessar mundir. Þrátt fyrir þrönga fjárhagsstöðu Ferðamálaráðs er mikill hugur í mönnum að stuðla að jákvæðri þróun þessarar mikilvægu og vænlegu atvinnugreinar, scm með hverju ári eykur hlut sinn í öflun þjóðartekna. Framhaldsnám fyrir skólastjórnendur: Fyrsti hópurinn brautskráður frá Kennaraháskóla íslands Haustið 1988 hófst í fyrsta skipti hér á landi skipulcgt framhaldsnám fyrir stjórnend- ur í grunn- og framhaldsskól- um við Kennaraháskóla íslands. Útskrift fór fram föstndaginn 19. janúar sl. Nám þetta er skipulagt samhliða starfi. Nýr tuttugu manna hóp- ur skólastjórnenda hefur nám í byrjun febrúar. Markmið náms þessa er að stuðla að bættum stjórnunarhátt- um í skólum og árangursríkara skólastarfi. Það er gert með því að veita skólastjórnendum fræði- lega innsýn í eðli og uppbyggingu skóla sem stofnana, innsýn í þætti er varða hegðun og sam- skipti í skólum, ásamt færni í að greina og leggja mat á aðstæður. Nám þetta er skipulagt sem hlutanám. Skiptist námið í þrjú fimm eininga námskeið og dreif- ist á eitt og hálft ár. Það er skipulagt sem sambland af hefðbundinni kennslu og fjar- kennslu. Hvert námskeið hefst með tveggja vikna vinnu í Kenn- araháskólanum. Byggist skipulag þessara tveggja vikna á fyrirlestr- um, umræðum og verkefnavinnu. Framhaldið felst síðan í fjar- kennsluverkefnum og ritgerð. Á föstudaginn voru eftirtaldir einstaklingar brautskráðir: Baldvin Kristján Kristjánsson, aðstoðarskólameistari; Einar Magnússon, yfirkennari; Eiríkur Hermannsson, skólastjóri; Garð- ar Karlsson, skólastjóri; Guð- mundur Þór Ásmundsson, skrifst.stjóri fræðsluskrifst.; Hall- dóra Magnúsdóttir, skólastjóri; Ingi Steinar Gunnlaugsson, skólastjóri; Kristjana Margrét Akureyrarmótið í tvímenningi stendur nú yfir. Nú er lokið 17 umferðum en alls verða spilað- ar 27 umferðir. Staða efstu para er þessi: stig 1. Páll Pálsson/ Þórarinn B. Jónsson 179 2. Stefán Ragnarsson/ Hilmar Jakobsson 175 3. Grettir Frímannsson/ Frímann Frímannsson 165 4. Pétur Guðjónsson/ Anton Haraldsson 152 5. Hörður Blöndal/ Ólafur Ágústsson 117 Kristjánsdóttir, skólastjóri; María Ester Kjeld, skólastjóri; Marteinn M. Jóhannsson, yfir- kennari; Páll Dagbjartsson, skólameistari; Sigurður Hólm Þorsteinsson, skólastjóri; Trausti Þorsteinsson, fræðslustjóri og Þrúður Kristjánsdóttir, skóla- stjóri. 6. Hermann Tómasson/ Ásgeir Stefánsson 108 7. Soffía Guðmundsdóttir/ Vilhjálmur Pálsson 105 8. Jón Sverrisson/ Máni Laxdal 76 9. Zarioh Hamadi/ Guðjón Pálsson 67 10. Jónas Róbertsson/ Bjarni Sveinbjörnsson 65 Fimm næstu umferðir verða spilaðar n.k. þriðjudag í Félags- borg og hefst spilamennskan kl. 19.30. Akureyrarmótið í tvímenningi: Páll og Þórariim komnir í efsta sæti Auðveldara verður að fá norrænt úrvalsefhi til sýningar í Sjónvarpinu Norrænu sjónvarpsstöðvarnar sem starfa saman innan Nordvisi- onar hafa nýlega komið sér sam- an um að finna nýjar leiðir til að skiptast á leiknu norrænu sjón- varpsefni, kvikmyndum og leikritum, skemmtiefni og barna- og unglingaefni. Áður var reglan sú að stöðin sem framleiddi efnið, greiddi þann aukakostnað sem af miðlun til hinna stöðv- anna hlaust. Sá kostnaður er einkum höfundarlaun og kaup leikara. En frá 1. janúar 1991 mun stöðin sem fær efnið til útsendingar greiða þennan við- bótarkostnað og verður þá auð- veldara að fá til flutnings besta efnið, sem oft er dýrast. Aður var því oft haldið utan þessara skipta. Fyrirkomulagið sem við hefur verið búið til þessa var orðið hindrun fyrir því að norrænt efni af besta gæðaflokki væri sýnt annars staðar á Norðurlöndum, í stað þess að örva slík samskipti. Þess eru dæmi að úrvalsefni hafi beðið í allt að tíu ár eftir því að sjónvarpsstöðvarnar treysti sér sér til að ráðast í að sýna það, og er þar nærtækast að minna á hina vinsælu dönsku myndaröð Matador. Af þessari reynslu fenginni vilja norrænu sjónvarps- stöðvarnar breyta því greiðslu- fyrirkomulagi, sem nú tíðkast, að því er varðar leikara og aðra rétt- indahafa. í þessu sambandi má benda á að gæðaefni frá löndum utan Norðurlanda er að jafnaði mun ódýrara í innkaupi en norrænt efni. Norrænum leikara- og leik- skáldafélögum hefur verið gerð grein fyrir þessum breyttu við- horfum og hefur verið boðið að takast á við að leita nýrra lausna í samvinnu við sjónvarpsstöðv- arnar, lausna sent séu í samræmi við breytta tíma og fengna reynslu. Ríkisútvarpið mun fyrir sitt leyti vinna að því að gera endursýningar á íslensku efni auðveldari, en vegna óhagstæðra samninga hefur verið miklu minna um þær en vert væri. Stefnt er að því að formlegar við- ræður um þessi mál hefjist á næstunni. Samvinna Norðurlandastöðv- anna innan Nordvisionar hefur vaxið upp af þörf. Sú samvinna byggist á þeirri grundvallarhugs- un að norræn menning eigi sér sameiginleg verðmæti í þjóðahaf- inu og að saman geti Norður- landaþjóðirnar komið ýmsu í verk, sem yrði hverri þeirra urn megn einni sér. Hið nýja fyrir- komulag ætti að auðvelda Norðurlandaþjóðunum að ná þessu markmiði, og mæta á þann hátt þeim nýju aðstæðum sem gervihnattafjölmiðlun nútímans hefur fætt af sér. ht Laugardagur kl.14:55 4» LEIKVIKA* 27« jan* 1989 1 X 2 Leikur 1 Arsenal - Q.P.R. ni Leikur 2 AstonVilla - PortVale Leikur 3 Barnsley - Ipswich Leikur 4 Blackpooi - Torquay Leikur 5 BristolCity - Chelsea Leikur 6 C. Palace - Huddersfield Leikur 7 Oldham - Brighton Leikur 8 Reading - Newcastle Leikur 9 Rochdale - Northampton Leikur 10 Southampton - Oxford Leikur11 W.B.A. - Charlton Leikur 12 Birmingham - Shrewsbuiy ■' I Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Leikur 1-11 úr 4. umf. FA-bikarkeppninnar, en leikur 12 * er úr 3. deildinni. Saumastörf Óskum eftir að ráða vant fólk til saumastarfa allan daginn (jakkasaumur). Hlutastörf koma til greina. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími 21900 (220). / * Alafoss hf., Akureyri DAGUR óskar eftir að ráða íþróttafréttamann í fullt starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 20. febrúar nk. Góð íslensku- og vélritunarkunnátta og góð almenn menntun áskilin. Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1. febrúar nk. Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.