Dagur - 26.01.1990, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - Föstudagur 26. janúar 1990
Föstudagur 26. janúar 1990 - DAGUR - 7
spurning vikunnar
Hefur veðrið áhrif á
skapferli þitt?
(Spurt á Sauðárkróki í leiðindaveðri)
Albert Þórðarson:
„Nei. Það er eitthvað annað
sem fer í skapið á mér þessa
dagana."
Óttar Bjarnason:
„Nei. Ég er alltaf í sama góða
skapinu."
Úlfar Ragnarsson:
„Ég hef ekki hugmynd um það.
Hvers vegna er
nágranni þinn áskrifandi að
„Heima er bezf'?
- Vegna þess að það er staðreynd að ,,Heima er bezt"
er eitt af útbreiddustu og vinsælustu tímaritum hérlendis.
„Heima er bezt" hefur nú verið gefið út í 38 ár og á því láni
að fagna að hafa að bakhjarli margar þúsundir ánægðra áskrif-
enda, og fjöldi þeirra fer stöðugt vaxandi. Þú ættir að hugleiða
hvort ekki væri skynsamlegt að slást í þennan stóra áskrif-
endahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt íslenskt tímarit
við vægu gjaldi, sem þú fengir sent heim til þín í hverjum
mánuði. Útfyllið þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér
fyrir neðan og sendið hann til „Heima er bezt", og þá mun
nafn þitt umsvifalaust verða fært inn á áskrifendaspjaldskrána
og þér mun verða sent blaðið mánaðarlega, en þá munt þú
um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru því
samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt".
- Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
-----------------------------------------------^
TIL „HEIMA ER BEZT"
Pósthólf 558, 602 Akureyri
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
,,Heima er bezt"
□ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990. □ Verð kr. 1.690,00
Nafn_______________________________________________
Heimili____________________________________________
Vinna við aðalskipulag fyrir Akureyri 1987-2007 í fullum gangi:
Miklar vangaveltur um væntan-
leg byggingasvæði á Akureyri
- gluggað í skýrslu Finns Birgissonar Drög að aðalskipulagi 1987-2007
Að því er stefnt að tillaga að
aðalskipulagi 1987-2007 fyrir
Akureyri verði kynnt bæjar-
búum í mars nk. Vinna við
gerð aðalskipulagstillögu er
gríðarlega umfangsmikið verk-
efni og þarf að taka tillit til ótal
þátta við gerð hennar. Leita
þarf umsagnar fjölmargra aðila
og nefndir í bæjarkerfinu þurfa
ítrekað að fara í saumana á
einstaka þáttum.
Skipulagsyfirvöld á Akureyri
hafa lengi unnið að þessu verk-
efni. Nokkrar áfangaskýrslur
hafa litið dagsins ljós til kynning-
ar á viðfangsefninu. Meðal ann-
ars tók Finnur Birgisson, arki-
tekt, saman skýrslu fyrir skipu-
lagsdeild Akureyrarbæjar í
nóvember sl. sem nefnist „Drög
að aðalskipulagi 1987-2007.“
Skýrsla Finns, sem ber fyrst og
fremst að líta á sem umræðutil-
lögu, er í fjórum hiutum. Sá
fyrsti er iýsing á drögum að aðal-
skipulagi. í öðrum kafla er greint
frá helstu forsendum, sem tillag-
an byggir á. í þriðja kaflanum er
lýsing á þeim byggingasvæðum
sem helst þykja koma til greina
sem framtíðarbyggingasvæði í
bænum og í fjórða kafla eru kort
sem gera grein fyrir núverandi
veitukerfum og öðrum þáttum
sem hafa mótandi áhrif á gerð
aðalskipulagsins.
Skipulagsdrög til kynningar
í nefndum, deildum
og stofnunum
I formála að skýrslunni segir
Finnur m.a.: „Samkvæmt skipu-
lagslögum er skylt að kynna til-
lögu að aðalskipulagi opinber-
lega með tilteknum hætti, þegar
umfjöllun bæjaryfirvalda um
hana er lokið og þau hafa sam-
þykkt hana fyrir sitt leyti. Fyrir-
liggjandi drög að aðalskipulagi
eru ekki ætluð til slíkrar sam-
þykktar, enda er framsetning
þeirra ekki við það miðuð. Ætl-
unin er hinsvegar að þau verði
kynnt fyrir þeim nefndum, deild-
um og stofnunum, sem eiga opin-
berra hagsmuna að gæta gagnvart
aðalskipulaginu, og að gefa slík-
um aðilum tækifæri til að koma á
framfæri athugasemdum og
ábendingum."
Margir lausir endar
Eins og áður segir eru margir
lausir endar með endanlega til-
lögu að aðalskipulaginu. „Bæjar-
apparatið“ hefur að sögn Árna
Olasonar, skipulagsstjóra Akur-
eyrarbæjar, málið til meðferðar
og skipulagsnefnd stefnir að því
að afgreiða málið f byrjun mars.
I skýrslu Finns Birgissonar er
getið væntanlegra byggingasvæða
f bænum. Um þau hefur verið
fjallað í skipulagsnefnd en ekki
hafa verið teknar um þau endan-
legar ákvarðanir. Rétt þykir þó
að gera grein fyrir þeim hér.
Suðursvæði
Svo er kallað svæði frá suður-
mörkum núverandi byggðar á
Brekkunni og suður af raf-
magnslínu sem liggur í austur-
vestur stefnu meðfram norður-
mörkum Kjarnaskógar. Að vest-
an markast svæðið norðantil af
golfvellinum og síðan af girðingu
útivistarsvæðis og hæðardrögum
austan Hamrabæja. Að austan
markast svæðið af Þórunnarstræti
þar til kemur suður fyrir kirkju-
garð, en úr því ræður brekku-
brúnin í 50-60 m hæð yfir sjávar-
máli. Lengd svæðisins er því um.
2,7 km og breidd þess víðst hvar
700-900 metrar.
Norðurhluti svæðisins er að
mestu erfðafestulönd en Akur-
eyrarbær hefur nánast full umráð
yfir suðurhlutanum nema ein-
staka skikum sem eru leigðir á
erfðafestu.
Rætt hefur verið um að þetta
svæði verði blandað stofnana- og
iðnaðarsvæði og síðan íbúðar-
byggð suður að Kjarna.
Krossaneshagi
Svo heitir svæði ofan við Krossa-
nes sem afmarkast af þjóðvegin-
um og Hlíðabraut í suðri og
vestri en fyrirhuguðum tengi-
brautum, Krossanesbraut og
Síðubraut, í norðri og austri.
Þetta land er allt í eigu Akur-
eyrarbæjar nema dálítið horn
nyrst sem er í eigu Ytra-Krossa-
ness. í vestasta horni þess eru
erfðafestulönd, sem eru að litlum
hluta notuð til garðræktar.
Gert er ráð fyrir að þetta svæði
verði nýtt sem iðnaðar- og
athafnasvæði.
Krossanes
Finnur Birgisson segir í skýrslu
sinni að unnt ætti að vera að ná
um 5 ha byggingarsvæði vestan
núverandi athafnasvæðis í Krossa-
LAND VESTAN
SÍÐUHVERFIS
LANDi^
UMHVERFIS
. GRÆNHÓL
J LAND OFAN|
RÉTTARHVAMMSi
GILJAHVERFI
KROSSANESHAGI
KROSSANES
SUÐURSVÆÐI
Uppdráttur er sýnir þau væntanlegu byggingarsvæði sem tilgreind eru í skýrslu Finns Birgissonar, arkitekts.
Kortagrunnur: Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.
nesi með því að jafna land á milli
núverandi og fyrirhugaðrar
Krossanesbrautar.
Land umhverfís Grænhól
Um er að ræða land sem markast
af Síðubraut, Hörgárbraut, fram-
haldi Hlíðarbrautar og bæjar-
mörkum (Lóninu). Finnur áætlar
að hér sé um að ræða 28 ha.
landssvæði. Að sögn skipulags-
stjóra bendir allt til þess að aust-
asti hluti þessa landssvæðis verði
iðnaðar- og athafnasvæði.
Giljahverfí
Næsta byggingarsvæði á Akur-
eyri er Giljahverfi, sem allser um
50 hektarar að stærð. Þetta svæði
afmarkast í norðri og austri af
Borgarbraut og Hlíðarbraut, í
vestri af Langamel og 100 m hæð-
arlínu og í suðri af hjalla norðan
Rangárvalla og Rangárgili.
Nú þegar liggur fyrir deili-
skipulag af fyrsta áfanga hverfis-
ins, austast á svæðinu og nýverið
voru auglýstar til umsóknar lóðir
við Tröllagil og Drekagil. Um er
að ræða fjórar fjölbýlishúsalóðir
lyrir átta hæða hús, með 20 íbúð-
um hvcrt og 9 raðhús á einni hæð
og 2 parhús á einni hæö.
Land vestan Síðuhverfis
Finnur segir í skýrslu sinni að
vestan væntanlegrar Borgar-
brautar, frá Giijahverfi noröur
að Lóni og upp að 100 m hæðar-
línu sé um það bil 40 hektara
svæði sem virðist hcnta vel sem
byggingarland. Þetta land er í
eigu Akureyrarbæjar og er að
mestu nytjað nú sem bcitiland.
Óljóst er mcð nýtingu á þcssu
landi en Finnur segir aö vegna
legu sinnar og norðurhalla virðist
þaö henta best fyrir atvinnustarf-
semi.
Land ofan Réttarhvamms
Síðasta væntanlega byggingar-
svæðið á Akureyri sem Finnur
Birgisson getur um í skýrslu sinni
er ofan Réttarhvamms. Þarna er
landskiki um 10 hektarar á stærð,
sunnan Hlíðarfjallsvegar og neð-
an raflína, í eigu Akureyrarbæj-
ar. óþh
Dorgveiðin ódýrt og skemmtilegt sport:
Horfst í augu við silimgirai
Björn beitir rækjunni á öngulinn. Ef kalt er í veðri geta rækjurnar frosið en
ekki er þá um annað að ræða en þýða þær undir tungunni.
Dorgveiði er holl og góð íþrótt
sem ótrúlega fáir stunda.
Athyglin hefur á síðustu árum
beinst æ meira að stangveiði í
ám, ekki síst laxveiðinni. Svo
virðist á stundum sem áhugi
almennings á þessum veiðiskap
ráðist fyrst og fremst af því
hversu dýrt þetta sport er. Fyr-
ir þá sem vilja hins vegar
stunda mjög ódýran og jafn-
framt skemmtilegan veiðiskap
er dorgveiðin tilvalin. Dagur
slóst í för með dorgveiði-
manninum Birni Sigurðssyni á
dögunum og fyrir valinu varð
vatn skammt austan Akureyr-
ar. Ætlunin var að kynnast
lítillega þessum veiðiskap og
óhætt er að segja að þessi
stuttu kynni af veiðiskapnum
hafi kveikt hressilega áhug-
ann.
„Við getum sagt að aðal veiði-
tíminn í dorgveiðinni byrji eftir
um það bil einn mánuð. Þá er
komin meiri hreyfing á fiskinn og
þá tekur hann betur. Síðan er
þetta stundað fram eftir vori og
ég veit þess dæmi að menn hafi
farið á skíðum út á ísinn þegar
hann er orðinn svo þunnur að
ekki er hægt að ganga á honum,“
segir Björn.
Þetta er alltaf gaman
Ekki var veður sem ákjósanleg-
ast í veiðiferðinni en þrátt fyrir
það voru 5 silungar afraksturinn
eftir um klukkutíma veiði. Þegar
gat hafði verið borað á ísinn var
rækju beitt á öngulinn og færinu
rennt niður um vökina. Gott er
að liggja við holuna og horfa til
botns og sjá þannig þegar fiskur-
inn bítur á. Það má því segja að í
þessum veiðiskap horfist maður-
inn nánast í augu við fiskinn. Og
þegar spennan verður hvað mest
yfir því hvort fiskurinn ætli að
bíta á eða ekki gleymast allar
aðrar hugsanir. „Þetta er alltaf
gaman. Það er alveg sama hvern-
ig veðrið er,“ segir Björn hlæj-
andi.
Björn segir að mörg vötn komi
til greina fyrir fólk sem áhuga
hafi á að prufa dorgveiðina. Þar
megi nefna Mývatn, Ljósavatn,
Svartárvatn, Þverbrekkuvatn í
Öxnadal og ef menn vilji slá sam-
an veiðiferð og góðri göngu megi
leggja leiðina upp að Hrauns-
vatni. „Það má líka nefna Ólafs-
fjarðarvatn, Másvatns, Kringlu-
vatn upp af Kelduhverfi og ísólfs-
vatn í Bárðardal. ^Það er því
fjöldi tækifæra fyrir fólk en það
sem fyrst og fremst þarf að
athuga er að koma sér í samband
við einhvern sem þekkir til á við-
komandi vatni og getur leiðbeint.
Slíkt ætti að vera lítið vanda-
mál,“ segir Björn.
Kviðroðinn kominn frá
skrattanum
Björn segir það þjóðsögu að fisk-
urinn úr íslenskum vötnum sé
leginn og óætur að vetrinum.
„Silungurinn verður að vísu örlít-
ið gulur ef hann hefur legið eða í
vatninu er leirbotn og mikill
gróður. Eg hef hins vegar aldrei
fundið það að vatnasilungurinn
sé neitt verri að borða hann. Það
eru líka til ýmis afbrigði af sil-
ungnum þannig að þótt fólk fái
silung sem er rauður á kvið þá er
hann alveg fullt eins góður.“
- Er þá kannski þessi orðróm-
ur, um að kviðrauður silungur sé
ekki ætur, kominn frá fólki sem
ekki hefur borðað þennan
silung?
„Jú, það má vera en mér dettur
stundum í hug sú saga sem ég
heyrði einu sinni að þessi kvið-
rauði silungur sé kominn frá
skrattanum. Þessi litur hafi kom-
ið á hann við að fara of nálægt
honum. Þjóðsögurnar geta því
lifað lengi í fólkinu."
Nítján silungar á
hálfum öðrum tíma
- Hve stór er silungurinn sem
veiðist á dorg?
„Eiginlega má segja að hægt sé
að ráða því á dorginni. Spurning-
in er bara sú hve stórir önglar eru
notaðir. Ef menn vilja frekar ná
þeim stærri þá geta þeir notað
Björn borar gat á ísinn. „Maöur get-
ur alltaf gripiö til þess ráös að bora
ef manni veröur kalt við veiöina,“
segir hann.
stærri önglana og þá reynir minni
fiskurinn ekki að bíta á en ef
veiða á minni fisk má nota smærri
öngla. Við getum sagt að hægt sé
að fá allt frá puttastærð upp í 6-8
pund á dorgina,“ svarar Björn.
Björn fær ekki að sleppa við að
gefa upp hver mesta veiði hans er
í einni dorgveiðiferð. „Ætli það
sé ekki þegar ég fékk 19 silunga á
hálfum öðrum klukkutíma. Ég
hef hins vegar líka farið í veiði og
setið nærri heilan dag án þess að
fá meira en tvo eða þrjá fiska.
Hins vegar eru núlltúrarnir ekki
margir þó vissulega geti það
komið fyrir. Þetta fer bara eftir
því hvernig maður hittir á’ann."
Útigrill á ísnum
væri toppurinn
„Því miður hefur dorgveiðin
skolast framhjá umfjöllun t.d. í
veiðiblöðum en það þarf ekki
annað en opna blöð til að sjá
umfjallanir um stangveiði í hinni
eða þessari ánni. Gallinn er bara
sá að fyrir hinn almenna mann er
alveg útilokað að komast í marg-
ar þessar ár, bæði vegna þess
hversu ásetnar þær og hins að
almennur verkamaður getur ekki
staðið undir veiðiskap í þessum
dýru ám. Kosturinn hins vegar
við dorgveiðina er að búnaðurinn
er ódýr, kostar um 7000 kr. og ef
tekið er gjald fyrir veiðleyfið er
það alla jafna mjög vægt. Síðan
hefur maður skemmtilega mögu-
leika á ísnum að finna veiðistað-
ina í vötnunum því hægt er að
fara um allt til að finna fiskinn.
Ég held að það sé ekkert eins
skemmtilegt eins og að bregða
sér í dorgveiði í góðu veðri og þá
má ekki að vera of bjart því þá
verður fiskurinn var við hverja
hreyfingu uppi á ísnum. Menn
geta jafnvel tekið méð sér stól út
á ísinn og haft kaffibrúsa eða
jafnvel koníaksfleyg með í för.
Ég hugsa að hámarkið væri að
hafa útigrillið með og steikja fisk-
inn strax, þá væri túrinn fullkom-
inn.“ JÓH
Björn Sigurðsson með útbúnaðinn sem þarf til dorgveiðinna. ísbor, dorg og
áhald til að veiða íshröngl upp úr vökinni. Til viðbótar þarf síðan öngla og rækj-
ur og þá er allt klárt í veiðina. Myndir: jóh
Afraksturinn eftir stutta stund við dorgveiði. Fimm silungar heilluðust af rækj-
unni og bitu á.