Dagur - 26.01.1990, Síða 12
Akureyri, föstudagur 26. janúar 1990
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Akureyri:
Annríki við snjómokstur
Starfsmenn Akureyrarbæjar
hafa átt annríkt undanfarna
daga við snjómokstur. Véla-
sjóður bæjarins á þrjá veghefla
og tvær hjólaskólfur sem hafa
verið notaðar, en auk þess er
gripið til þess ráðs að nota
jarðýtur þegar fannfergið er
sem mest.
Kostnaður Akureyrarbæjar
vegna snjómoksturs í fyrra var
18,4 milljónir króna. Hluti sölu-
skatts var endurgreiddur, 1.200
þús. kr., og varð endanlegur
kostnaður því 17,2 milljónir kr.
Tæpar 12 milljónir kr. eru ætlað-
ar til þessa útgjaldaliðar í ár.
Guðmundur Guðlaugsson,
yfirverkfræðingur hjá Akureyrar-
bæ, segir að ákveðnar starfsregl-
ur gildi um snjómoksturinn.
Fyrst eru strætisvagnaleiðir
hreinsaðar, því næst tengibrautir
og síðast íbúðagötur. Reynt er að
draga úr yfirvinnu og kostnaði
við gatnahreinsunina og t.d. ekki
mokað um helgar nema ófært sé
að verða í bænum.
Reynsla starfsmanna bæjarins
er sú að erfitt sé að hreinsa íbúða-
götur, einkum um helgar, því
fjöldi kyrrstæðra bifreiða setur
strik í reikninginn. Stundum hef-
ur verið gripið til þess ráðs að
senda mann á undan tækjunum
til að gera viðvart.
Fyrir utan tæki Vélasjóðs er
hægt að grípa til þungavinnuvéla
vatnsveitu og rafveitu, ef mikið
liggur við.
Gagnrýnisraddir heyrast á
hverjum vetri um snjómokstur
bæjarins. „Það er alltaf hægt að
gagnrýna, stundum með sann-
girni en annað er miður
sanngjarnt. Þetta er spurning um
kostnað og hvernig menn vilja
eyða fé skattborgaranna," segir
Guðmundur.
„Gamli rauður,“ veghefill
bæjarins af árgerð 1946, hefur
fengið að spreyta sig undanfarið,
en hann þykir hinn mesti kosta-
gripur. Um daginn bilaði reim
við vélina en „Rauður“ mun mæta
frískur til leiks eftir helgina, að
því er bæjarstarfsmaður tjáði
blaðinu í gær. EHB
Dalvík:
Búíð að opna í
Það þarf víðar að inoka en á götum bæjarins þessa dagana. Mynd: kl
Nær öruggt að Vínardrengir syngja á Akureyri 2. júní nk.:
Ólíklegt að Krístján geti
sungið á Akureyri í júní
Skíðamönnunt á Dalvík og í
nærsveitum ætti að vera óhætt
að dusta rykið af skíðaútbún-
aði sínum því neðri lyfta í
Böggvisstaðafjalli hefur verið
gangsett.
Þó svo að búið sé að opna í
Böggvisstaðafjalli er snjór þar
ennþá af skornum skammti.
Sveinbjörn Steingrímsson gerir
Hjörtu skíðaáhugamanna taka
væntanlega kipp núna, því
ákveðið hefur verið að opna
skíðasvæðið í Hlíðarfjalli um
helgina. Snjórinn langþráði lét
loksins sjá sig af viti í vikunni
og varð það til þess að mögu-
legt var fyrir hæstráðendur
Skíðastaða að taka þessa eftir-
sóknarverðu ákvörðun.
Klukkan 10.00 í fyrramálið
verða lyfturnar ræstar í Fjallinu.
Að sögn ívars Sigmundssonar
þó ráð fyrir að ef svo fer fram
sem horfir að duglega snjói í
þessari viku verði nægur snjór í
fjallinu og hægur vandi að taka
nokkrar léttar skíðasveiflur.
Ekki hefur verið endanlega
ákveðið með opnunartíma í
Böggvisstaðafjalli í vetur. Þó er
líklegt að opið verði frá kl. 14
eða 15 síðdegis til 20 og eitthvað
lengur um helgar. óþh
forstöðumanns Skíðastaða er
skíðafæri nú viðunandi, en ætlun-
in er að opna þrjár lyftur af
fimm. Það eru stólalyftan,
Stromplyftan og nýja Hólabraut-
arlyftan sem settar verða í gang.
ívar biður skíðamenn sem
leggja leið sína til þeirra um lielg-
ina að fara þó varlega því sum-
staðar í brautunum er snjólag
þunnt. Það er ekki gaman að fara
að brjóta sig á fyrsta skíðadegi
eftir svona langa bið. VG
Nú mun nær öruggt aö Vínar-
drengjakórinn syngur á tón-
leikum í Akureyrarkirkju þann
2. júní nk. Von er á kórnum
hingað til lands í tengslum viö
Listahátíð í Reykjavík dagana
2.-16. júní og segir Inga
Sólnes, framkvæmdastjóri há-
í fyrrinótt var framið innbrot í
versluninni Esju við Norður-
götu á Akureyri. Stolið var 30-
40.000 kr. í peningum og er
þjófurinn ófundinn enn.
Samkvæmt upplýsingum Daní-
els Snorrasonar hjá rannsóknar-
lögreglunni barst tilkynning um
innbrotið í gærmorgun strax og
verslunareigendurnir ætluðu að
tíðarinnar, að kórinn hafi
gengist inn á að fara norður og
syngja í kirkjunni.
Auk Vínardrengjanna verða
mörg stórstirni á Listahátíð.
Nefna má að hluti af San Franc-
isko-ballettinum með Helga
Tómasson í broddi fylkingar sýn-
opna. Þjófurinn lét sér nægja að
hafa peninga á brott með sér og
vann engar skemmdir í verslun-
inni.
Rannsóknarlögreglan hefur
upplýst innbrot í Iðjuþjálfun að
Skólastíg 7 á Akureyri. Að sögn
Daníels var brotist þar inn
aðfaranótt 15. janúar og stolið
talsverðu af peningum. JÓH
ir listir sínar. Þá má nefna að
rússneski píanóleikarann Andrei
Rejgavrilov spilar á tónleikum
með Sinfóníuhljómsveit íslands.
Ekki má gleyma stórsöngvaran-
um Kristjáni Jóhannssyni, sem
mun syngja á tónleikum með Sin-
fóníunni þann 16. júní.
Samkvæmt upplýsingum Dags
hefur verið skoðað að Kristján
syngi á tónleikum á Akureyri í
júní, en flest bendir til að af því
geti ekki orðið. Hins vegar
herma heimildir Dags að sá
möguleiki hafi verið ræddur að
Kristján haldi tónleika á Akur-
eyri 1991 við undirleik Karhmer-
sveitar Akureyrar.
Að sögn Ingu Sólnes er þessa
dagana verið að ganga frá
dagskrá Listahátíðar og segir hún
að enn séu margir lausir endar
með hana. Til dæmis er ekki ljóst
hvaða poppstirni troða upp á
hátíðinni. óþh
Lyftur ræstar í Hlíðar-
fjalli á morgun
Akureyri:
Brotist inn í Esju
Útgerðarfyrirtæki á Húsavík á vonarvöl
- bæjarstjórn beðin að beita sér
Ályktun frá útgerðarmönn-
um allra báta yfir tuttugu
tonn, níu talsins, sem gerðir
eru út frá Húsavík var lögð
fyrir fund Bæjarstjórnar sl.
þriðjudag. Miklar umræður
urðu um vanda útgerðarinn-
ar, sem er mjög alvarlegur.
Síðdegis í gær var boðað til
fundar með útgerðarmönnum
og bæjarráði, og öðrum
bæjarstjórnarmönnum gefinn
kostur á að mæta. Milli 70 og
80 manns hafa atvinnu sína
beint af útgerð þessara báta,
auk fjölmargra sem starfa við
fiskvinnslu og þjónustu sem
útgerð þcirra tengist. I fyrra
nam aflaverðmæti bátanna
níu um 350 milljónum króna,
og laun og launatengd gjöld
vegna útgerðar þeirra námu
150 milljónum.
„Fundur bátaútgerðarmanna
á Húsavfk, haldinn 22. jan.
1990, vill vekja athygli bæjaryf-
irvalda á Húsavík á þeirri þróun
og þeim geigvænlega rekstrar-
vanda scm bátaútgerð á Húsa-
vík, eins og víða annars staðar á
landinu, á nú við að etja. Flest
útgerðarfyrirtæki á staðnum eru
nú þegar komin á vonarvöl og
ekkert blasir við annað en
rekstrarstöðvun og sala á
bátum, ef ekkert verður að gert
þegar í stað. Ef slíkt gerist er
Ijóst að mikill hluti af þeim afla-
kvóta sem hér er til staðar flyst
úr bænum, og grundvöllur bú-
setu ntargra fjölskyldna hér í bæ
er stefnt í voða.
Síðustu ár hefur afkoma
bátaflotans farið mjög versn-
andi og benda nýjustu tölur nú
til þess að afkoma síðasta árs sé
neikvæð um 20-30%. Mestu
munar hér um hinn mjög svo
háa fjármagnskostnaö og slór-
hækkað verð olíu, auk annarra
rekstrarliða sem hafa hækkað
margfalt á móti tckjuliðum,1
sem hafa raunar dregist saman
vegna síminnkandi aflaheim-
ilda.
Fundurinn skorar á bæjaryfir-
völd að taka þessi mál þegar í
stað til alvarlegrar skoðunar og
beita öllum st'num áhrifum til að
aðstoða bátaútgerð á staðnum
við aö komast út úr þessum
vanda, jafnframt því sem fund-
urinn varar við öllum hugmynd-
um í þá átt að auka álögur sveit-
arfélagsins á útgerðinni við
þessar aðstæður." Svo hljóðaði
ályktunin sem útgerðarmenn-
irnir sendu bæjarstjórn.
„Við vildum gera bæjaryfir-
völdum grein fyrir því að vand-
inn er orðinn mjög mikill og
það cr þegar farið að leita hóf-
anna um sölu á bát, eða bátum. •
Með þessu viljum við koma því
formlega á framfæri við bæjar-
yfirvöld, vegna þeirra aflaheim-
ilda og atvinnu sem útgerð bát-
anna skapar hér. í öðru lagi ætl-
umst viö til að bæjaryfirvöid
beiti sínum áhrifum eins og
hægt er við stjórnvöld, til að
einhver rekstrargrundvöllur
fáist fyrir þessi tæki,“ sagði
Bjarni Aðalgeirsson, forsvars-
maður útgerðarmannanna, er
Dagur spurði hann hvaða við-
bragða þeir væntu frá bæjaryfir-
völdum. IM