Dagur - 10.02.1990, Side 1
73. árgangur
Akureyri, laugardagur 10. febrúar 1990
29. tölublað
Filman þm
a skiliö þaö
besta'
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 - Sími 27422 - Pósthólf 196
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Guðmundur G. Pórarinsson:
Er nýtt álver að falla á tíma?
Eitt hundraö og sextíu manns
sóttu fund sem Framsóknar-
félag Akureyrar boðaði til í
Alþýðuhúsinu á fimmtudags-
kvöld um atvinnumál og stór-
iðju. Miklar umræður urðu á
fundinum í kjölfar framsögu-
erinda og ávarpa, og lauk
fundinum ekki fyrr en kl. eitt
um nóttina.
Framsöguerindi Steingríms
Hermannssonar, forsætisráð-
herra, Úlfhildar Rögnvaidsdótt-
ur, bæjarfulltrúa, og Guðmundar
G. Þórarinssönar, alþingismanns,
vöktu mikla athygli, einnig ávörp
Guðmundar Bjarnasonar, heil-
brigðisráðherra og Jóhannesar
Geirs Sigurgeirssonar, alþingis-
manns.
í sambandi við hugsanlegt
álver við Eyjafjörð og hvaða
möguleikar væru á að það liti
dagsins ljós sagði Guðmundur G.
Þórarinsson að 60% vinnuafls við
byggingu þess þyrfti að fá frá öðr-
um landshlutum. Þetta væri
ókostur frá sjónarhóli hinna
erlendu aðila, og hefðu þeir kom-
ist að raun um mörg atriði sem
gerðu það að verkum að dýrara
yrði að reisa álver við fjörðinn en
á suðvesturhorninu. Álverið væri
þó nánast að falia á tíma, Alþingi
yrði slitið snemma vegna bæjar-
stjórnarkosninganna í vor en
þingið þyrfti að fjalla um samn-
inginn áður en hægt yrði að
ganga endanlega frá málinu.
Verið væri að gera nýja dreif-
ingarspá fyrir Eyjafjörð með til-
litil til loftmengunar frá álveri,
búið fullkomnum hreinsibúnaði.
Einnig væri verið að reikna stofn-
kostnaðartölur upp á nýtt, miðað
við álver við Eyjafjörð, og
myndu niðurstöður liggja fyrir
um mánaðamótin.
Samningar um stóriðju yrðu að
takast vegna þess að annars sæti
Landsvirkjun uppi með Blöndu-
virkjun án þess að hafa kaupanda
að allri orku hennar. Stórvirkjan-
ir á næstu árum ættu ekki að auka
þenslu að marki í Iandinu, en
stóra spurningin væri sú hvort
tækist að semja við erlend stór-
fyrirtæki um að reisa nýtt álver á
íslandi, því ísland ætti í mikilli
samkeppni við önnur ríki í þessu
efni.
Steingrímur Hermannsson sagði
að ríkisstjórnin gæti haft áhrif á
staðsetningu álvers utan suðvest-
urhornsins, t.d. með því að bjóða
lægra raforkuverð í því tilviki á
ákveðnu árabili.
Guðmundur Bjarnason kvaðst
styðja byggingu álvers í Eyjafirði
frekar en á suðvesturhorni
landsins, og það sama sagði
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Eftir fundinn var það þó álit
flestra að líkurnar á álveri í Eyja-
firði væru ekki miklar, a.m.k.
ekki eins og staða mála væri í
dag. EHB
Sjá nánar tim fundinn á bls. 5
Upptökur að heijast á 10 skíðakennsluþáttum í HlíðarQalli:
Hemini, Ómar, Rósa Ingólfs
og Linda sýna listir sínar
Einhvern næstu daga hefjast
tökur í Hlíöarfjalli á 10 skíða-
kennsluþáttum fyrir byrjendur
og er ætlunin að sýna þá á Stöð
2 í mars eða apríl nk. Þau
Maríanna Friðjónsdóttir og
Þorgeir T. Hjaltason stjórna
upptökum og framleiða þætt-
ina. Nokkrum landsþekktum
andlitum bregður fyrir í þátt-
unum, s.s. Lindu Pétursdótt-
ur, fegurðardrottningu, Her-
manni Gunnarssyni, dagskrár-
gerðarmanni, Rósu Ingólfs-
dóttur, skemmtikrafti og þulu
og Omari Ragnarssyni, frétta-
Ólafsijörður:
Víðtæk leit að
stúlku í íyrrinótt
- fékk gistingu á Dalvík þar sem
Ólafs^arðarmúli var lokaður
Mikil leit var gerð að stúlku úr
Olafsfirði í fyrrinótt en hún
hafði farið til Akueyrar á bíl og
var ekki komin lieim kl. 01 um
nóttina. Lögreglan hafði þá
fyrr um kvöldið lokað Ólafs-
fjarðarmúla vegna veðurs og
hættu á snjóflóöum. Bíll stúlk-
unnar fannst síðan við hús á
Dalvík um kl. 04 og kom þá í
Ijós að hún hafði fengiö þar
gistingu en þar sem hún náði
ekki sambandi við móður sína í
Ólafsfirði komust þær upplýs-
ingar ekki til lögreglunnar.
Lögreglan á Akureyri og Dal-
vík svipaðist um eftir stúlkunni á
leiöinni Akureyri-Dalvík en
björgunarsveitir frá Ólafsfirði og
Dalvík Ieituðu ásamt lögreglunni
í Ólafsfirði í Ólafsfjarðarmúla.
Stúlkan hafði hins vegar hætt við
að leggja í Ólafsfjarðarmúla á
heimlciðinni og fengið gistingu á
Dalvík. Þar sem hún náði ekki
sambandi við móður sína þá lét
hún vita á vinnustað sinn í Ólafs-
firði að hún næði ekki til vinnu í
gærmorgun. Þctta vitnaðist ekki
fyrr en bfll stúlkunnar fannst á
Dalvík. Að sögn lögreglunnar í
Ólafsfirði hafði móðir stúlkunnar
þó athugað hvort hún hefði gist í
viðkomandi húsi á Dalvík en cin-
hverra hluta vegna fengið þau
svör að svo væri ekki. JÓH
manm.
Að sögn Maríönnu Friðjóns-
dóttur, sem hefur veg og vanda
af þáttunum, hefur þessi hug-
mynd lengi verið að gerjast og
niðurstaðan var sú að taka upp 10
7 mínútna kennsluþætti fyrir
byrjendur á svigskíðum. Áður-
nefndir fjórir einstaklingar, sem
munu lítið þekkja til leyndar-
dóms skíðaíþróttarinnar, verða
nemendur í þáttunum og kemur í
hlut Þorgeirs T. Hjaltasonar að
kenna þeini fyrstu „plógskrefin".
Maríanna stýrir hins vegar upp-
töku þáttanna. Þá má geta þess
að tveir gamlir skíðajaxlar frá
Akureyri, Haukur Jóhannsson
og Tómas Leifsson, sýna alþjóð
hvernig meistararnir renna sér
niður brekkurnar.
Að sögn Maríönnu varð Hlíð-
arfjall fyrir valinu með upptökur
vegna mjög góðrar aðstöðu þar.
Þá segist hún hafa góða reynslu
af Samversmönnum og vilji
gjarnan nýta þeirra starfskrafta.
Þættirnir eru dýrir og áætlar
Maríanna að þeir kosti vel á aðra
milljón króna. Nokkur fyrirtæki
styðja gerð þáttanna. Úrval-
Útsýn er þar efst á blaði en auk
þess má nefna Sportvöruverslun-
ina Bikarinn og Skátabúðina.
Þá segir Maríanna ákveðið að
fjölfalda þættina á myndbönd og
verði hluta af ágóða varið til
byggingarsjóðs fatlaðra íþrótta-
manna. óþh
„Má ekki bjóða þér kaffitár?“
Mynd: KL
Salan á raðsmíðaskipi Slippstöðvarinnar:
Málið á ný á borð
stjómar Fiskveiðasjóðs
Steingrímur Hcrmannsson, for-
sætisráðherra, sagði á opnum
fundi á Akureyri í fyrrakvöld
að Fiskveiðasjóður íslands ætti
að hans mati að fjármagna á
móti Byggðastofnun kaup
Meleyrar á Hvammstanga á
raðsmíðaskipi Slippstöðvar-
innar á Akureyri.
Fram kom í máli Steingríms að
Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, leggi á það
áherslu að rnálið verði aftur tekið
upp í stjórn Fiskveiðasjóðs en
ekki fékkst staðfest í gær hvort
þetta mál vcrður á borði stjórnar
sjóðsins næsta þriðjudag.
Fram kom að við afgreiðslu
málsins í stjórn Fiskveiðasjóðs
fyrr í vetur hafi atkvæði fallið
þannig að 6 voru mótfallnir lán-
veitingu til Meleyrar vegna
kaupa á skipinu en einn stjórn-
armanna var fylgjandi. Steingrím-
ur vék sérstaklega í máli sínu að
Kristjáni Ragnarssyni, formanni
LÍÚ og stjórnarmanni í Fisk-
veiðasjóði, og sagði að hann
mætti ekki ráða því hvort Fisk-
veiðasjóður fjármagni þessi kaup
eða ekki. JÓH