Dagur


Dagur - 10.02.1990, Qupperneq 14

Dagur - 10.02.1990, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Laugardagur 10. febrúar 1990 bílor Citroen BX19 4x4 Citroen BX 4x4 - athyglisverður bíll. Citroen hefur löngum farið ótroðnar slóðir í bílaframleiðslu og var fyrirtækið eitt hið fyrsta til að taka upp framhjóladrif. Vökva- fjöðrun fylgdi svo í kjölfarið á 6. áratugnum með DS bílnum, sem þótti nokkuð nýstárlegur á þeim tíma, að ekki sé nú meira sagt. Það er því vonum seinna að Citroen slengir fjórhjóladrifi undir einhvern bíla sinna, eink- um þegar horft er til þess að PSA-samsteypan sem á bæði Citroen og Peugeot hefur tals- verða reynslu í smíði fjórhjóla- drifsbúnaðar sem notaður hefur verið í ýmsar gerðir Peugeot. (Reyndar fengust hér á árum áður sérsmíðuð eintök af Citroen Méhari með drifi á öllum, en sá bíll var eiginlega plastbaðkar á hjólum, meira að segja var svelg- ur í honum miðjum svo hægt væri að skola hann að innan með garðslöngunni.) Citroen valdi að útbúa BX bíl- inn með fjórhjóladrifi enda e.t.v. líklegasta söluvaran, með þannig búnaði. BX-inn kom fyrst á markað 1982 og er því orðinn gjafvaxta um þessar mundir. Hann var upprunalega 5 dyra fólksbíll, þ.e. með afturhlera, en skutbíll, sem heitir Evasion kom á markað 1985. Hann var fyrst kynntur með fjórhjóladrifi haust- ið 1988 og báðar gerðirnar, fólksbíll og skutbíll fást nú með þeim búnaði hér á landi. Citroen BX er auðþekktur á útlitinu og þó hann sé kominn nokkuð til jára sinna ber hann aldurinn allvel í samfélagi vind- strokinna bíla síðustu ára og seg- ir það sitt um hönnun hjá Citro- en. BX Evasion er rúmgóður bíll, einkum er farangursrýmið ríflegt og létt í umgengni. Rúmt er um farþega í fram- og aftur- sætum og framsætin eru sérlega góð. Frágangur í frönskum bílum hefur stundum verið óþarflega hroðvirknislegur, en Frökkum hefur farið talsvert fram að þessu leyti síðustu árin og frágangur í BX-inum virtist góður. Plastið sem notað er í innréttinguna hef- Umsjón: Úlfar Hauksson ur þó á sér óþarflega „ódýrt“ yfir- bragð, en það er sammerkt bílum frá PSA-fyrirtækinu. Innréttingin er annars notadrjúg og áklæði og bólstrun ágæt. Stjórntækin eru vel staðsett og vinna flest ágæt- lega. Aksturseiginleikar Citroen BX 19 4x4 eru svo alveg sérstakur kapítuli. Það er nú rétt að játa strax að ég hef aldrei fallið alveg fyrir eiginleikum fjöðrunarkerfis- ins í Citroen. Vökva- og loft- fjöðrunarkerfið er þó að mörgu leyti afar fullkomið en jafnframt einfalt, gagnstætt rafeindastýrð- um fjöðrunar- og demparabún- aði, sem nú er að finna í ýmsum bílum undir samheitinu gáfuð fjöðrun (Intelligent Suspension). Fjöðrunin í BX bílnum sem ég ók átti auövelt með ótrúlegustu holur og mishæðir, en smáir steinar og skarpar ójöfnur slá aft- ur á móti í gegn og hrista yfir- bygginguna að minnsta kosti til jafns við það sem gerist í bílum með hefðbundna fjöðrun. Yfir- burðirnir í þægindum koma aðal- lega í Ijós á afspyrnu vondum eða góðum vegum, íslenskur með- almalarvegur með grófri möl og skörpum holum er e.t.v. ekki kjörlendi fyrir fjöðrunina í Citro- en. Hins vegar eru aðrir kostir sem e.t.v. vega upp þennan veik- leika ef veikleika skal kalla og það er hæðarstillingin, sem gerir ökumanni kleift að bæta 8 cm við venjulega fríhæð bílsins og það er ekki gagnslaust í bíl með fjór- hjóladrifi. Reyndar verður bíll- inn skrambi hastur í efstu still- ingu enda ekki reiknað með því að langt eða hratt sé ekið með þeim hætti. Handfangið fyrir hæðarstillinguna sem er milli sæt- anna, er svolítið stirt í notkun en venst nokkuð vel. Vélin er gamla góða 1,9 lítra vélin, sem skilar 107 hö. við 600Ö sn/mín. Drifhlutfallið er lágt og með hjálp þess er BX-inn nökk- uð snaggaralegur í innanbæj- arakstri. Vélin hefur allgott snún- ingsvægi á litlum snúningshraða, sem hæfir fjórhjóladrifsbíl ágæt- lega. Hið lága drifhlutfall hefur hins vegar í för með sér aukinn snúningshraða vélarinnar á venjulegum ferðahraða, sem þýðir meiri hávaða. Reyndar þótti mér BX-inn nokkuð hávaðasamur á vegi og óþarflega mikið tíst og marr í innréttingunni. Þess ber þó að geta að bíllinn var á grófum hjól- börðum á auðum vegunum, og að auki var utn að ræða bíl sem fengið hafði til tevatnsins í ótölu- legum fjölda reynsluferða um land allt. Drifbúnaðurinn er hins vegar sérlega skemmtilegur og vinnur mjög vel. Urn er að ræða sídrif þar sem átakinu er í venjulegum akstri dreift 53:47% milli fram- og afturhjóla, í samræmi við þyngdardreifingu bílsins. Hægt er að læsa drifinu milli fram- og afturhjóla og dreifist þá átakið 50:50. Ennfremur er afturdrifið með læsingu. Þegar búið er að læsa öllu og setja bílinn í hæstu stöðu með vökvakerfinu er hægt að komast ýmislegt á Citroen BX 4x4 sem tæpast er bjóðandi öðr- um fólksbílum. Aksturseiginleikar bílsins eru annars góðir, enda fjöðrunin og fjórhjóladrifið til þess fallið að gera hann stöðugan á vegi. BX- inn er nær hlutlaus í beygjum, (þ.e. skríður jafnt út að framan og aftan) ef ekið er á fullri inngjöf, eða ef slegið er af í beygju. Annarseru eiginleikarnir öruggir og nákvæmt vökvastýrið eykur enn frekar á öryggistilfinn- inguna. Bremsurnar eru nokkuð óvenju- legar í Citroen BX. Þær eru knúnar þrýstilofti og vökva og fetillinn í gólfinu svarar ástigi með óvenjulegum hætti, því að- eins þarf lauflétt ástig til að bremsurnar taki á. í fyrstu virðist erfitt að stjórna bremsuvirkninni en þetta venst bara fljótt og vel og bremsurnar eru mjög góðar. Citroen BX 4x4 er álitlegur kostur fyrir þá sem vilja fjór- hjóladrif. Drifbúnaðurinn er mjög góður, vélin seig og fjöðrunin gefur verulega mögu- leika í ófærð umfram marga aðra fjórhjóladrifna fólksbíla. Þetta er rúmgóður bíll og þægilegur eink- um fyrir þá sem kunna vel að mcta óvenjulega eiginleika vökva- og loftfjöðrunarinnar. Gerð: Citroen BX 4x4, 5 dyra fólksbíll, vél að framan, drif á öllum hjólum. Vél og undirvagn: 4ra strokka, fjórgengis bensínvél, vatnskæld, slagrými 1905 cm, borvídd 83,0 mm, slaglengd 88,0 mm, þjöppun 9,3:1, 107 hö. við 6000 sn/mín., 156 Nm við 3000 sn/mín., einn tvöfaldur blöndungur, yfirliggjandi knastás. Drif á öllum hjólum, sídrif með læsanlegu mismunadrifi milli fram- og afturáss, læsanlegt drif í afturás, 5 gíra gírkassi. Sjálf- stæð fjöðrun að framan með þríhyrndum örmum að neðan, Mc- Pherson leggur að ofan, vökva- og loftfjöðrun, jafnvægisstöng. Að aftan sjálfstæð vökva- og loftfjöðrun, langsarmar og jafn- vægisstöng. Vökvastýri, aflhemlar, diskar að framan og aftan, handbremsa á framhjólum. Hjólbarðar 165/70 R 14 T, eldsneytisgeymir 66 lítra. Mál og þyngd: Lengd 439,9 cm; breidd 168,2 cm; hæð 143,1 cm; hjólahaf 265,5 cm; sporvídd 142,0/136,4 cm; eigin þyngd 1208 kg; há- marksþyngd 1.700 kg. Framleiðandi: Automobiles Citroen, Frakklandi. Innflytjandi: Glóbus hf., Reykjavík. Umboð: Bílaverkstæði Gunnars Jóhannssonar, Akureyri. Verð: Ca. kr. 1.550.000,- Þu þekkir ekki Braga fyrr en þú hefur prófað Santos-blönduna! Kafnbrennsla Akureyrar nf. .

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.