Dagur - 10.02.1990, Qupperneq 16
Akureyri, laugardagur 10. febrúar 1990
Mikið úrval af kjötvörum frá:
Kjötiðnaðarstöð KEA, Goða, Bautabúrinu,
S.S., Búrfelli og fleirum.
TilboÖ:
Fantaappelsín 2 I 99 kr. Bjúgu kg... 468 kr.
Egg 1 kg ...... 275 kr. Tryppabjúgu kg . 327 kr.
Kartöflur 2 kg í poka . 199 kr.
Verslunin
ÞORPID
Móasíðu 1 • Sími 27755.
Opið alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendingar-
þjónusta.
E
Síðastliðna viku hefur staðið yfir barnavika hjá Hjálpræðishernum. Á fimmtudagskvöldið klæddust börnin ýmsum
höttum og hlýddu á sögur og sungu. Mymi: kl
Kaupfélag Eyfirðinga:
Atimgað með sameiningu
Véladeildar og Þórshamars
Meöal þess sem nú er í athug-
un til aukinnar hagkvæmni í
rekstri Kaupfélags Eyfirðinga
er að sameina rekstur Véla-
deildar og bifreiðaverkstæðis-
ins Þórshamars hf. á Akureyri.
Véladeild KEA er sem kunn-
ugt er til húsa að Óseyri 2 en
Þórshamar hf. er við Tryggva-
braut. Kaupfélagið á unt tvo
þriðju hluta í Þórshamri.
Að sögn Magnúsar Gauta
Gautasonar, kaupfélagsstjóra,
hefur að undanförnu verið þreif-
að á þeim möguleika að sameina
rekstur þessara tveggja fyrirtækja
og segir hann að vonir séu til að
línur skýrist síðar í þessum mán-
uði.
Magnús Gauti segir að menn
telji að með sameiningu fyrir-
Tvö félög á Húsavík samþykkja kjarasamninginn:
Víða dræm mæting til afgreiðslu samninganna
- Sveinafélag járniðnaðarmanna frestaði afgreiðslu þeirra
Verslunarmannafélag Húsa-
víkur og Byggingamannafélag-
ið Árvakur samþykktu kjara-
samningana samhjóða í báðum
félögunum, en Sveinafélag
járniðnaðarmanna frestaði
afgreiðslu þeirra í fyrrakvöld,
eftir að Snær Karlsson, fram-
Akureyri:
Betra að gera upp
bifreiðagjöldin
Lögreglan á Akureyri liefur
enn ekki fengið tilmæli um
aðgerðir vegna þeirra bifreiða-
eigenda sem skulda gjöld
vegna bifreiða sinna. í nokkr-
um lögregluumdæmum lands-
ins hafa staðið yfir aðgerðir
vegna slíkra skulda og hafa
margir bifreiðaeigendurnir
þurft að sjá á eftir númerum
sínum.
Varðstjóri hjá lögreglunni á
Akureyri sagði í samtali við blað-
ið að búast mætti við aðgerðum
vegna þessara skulda á næstunni.
Bifreiðaeigendur mættu því ekki
reikna nteð því að koniast upp
Helgarveðrið:
Stíf norðanátt og
snjókomaámorgun
„Ég er ansi hrædd um að hann
sé að snúast í norðanátt hjá
ykkur núna,“ sagði Unnur
Ólafsdóttir, veðurfræðingur,
þegar spurt var um veðurútlit-
ið um helgina á Norðurlandi.
Unnur segir þó að í dag geti
orðið norðaustlæg vindátt, nokk-
uð hæglátt veður án mikillar
úrkomu. „Aftur á móti er ég
hræddari um að á morgun og
næstu daga geti hert á norðanátt-
inni með snjókomu og þannig
staðið næstu þrjá dagana. Það er
því greinilega snjókoma á leið-
inni til ykkar,“ sagði Unnur.
JÓH
með skuldir sínar þrátt fyrir að
aðgerðir séu ekki hafnar. Betra
væri því fyrir skuldara að greiða
fljótt eftir helgina til að komast
hjá óþægindum. JÓH
kvæmdastjóri verkalýðsfélag-
anna hafði kynnt efni þeirra á
sameiginlegum fundi félag-
anna þriggja.
Santningarnir verða teknir til
afgreiðslu hjá járniðnaðarmönn-
um fyrir 16. feb. en fáir þeirra
mættu á fundinn í fyrrakvöld og
því var ákveðið að freista þess að
fá stærri hóp til að afgreiða samn-
ingana, en enginn ágreiningur
var unt afgreiðsluna hjá þeim fáu
sem komu á fundinn. Að sögn
Snæs var mætingin á fundinn mis-
jöfn frá félögunum, best var mæt-
ing hjá byggingamönnum, um
20% félagsmanna. „Það verður
að segjast eins og er að þessi
inæting er í lægra lagi, en þetta er
dæmigert um allt land, að það
eru kannski 10% félagsmanna
sem mæta til afgreiðslu samning-
anna,“ sagði Snær. Aðspurður
sagði Snær að hann túlkaði þessa
dræniu mætingu á fundina þannig
að fólk áliti að ekki yrði betur
gert en þarna væri lagt til og mæti
það svo að samningurinn væri
ekki í neinni hættu, hann yrði
samþykktur og því óhætt að hafa
ekki mikil afskipti af málinu.
Snær sagði það umhugsunar-
efni hvort breyta ætti afgreiðslu
samninga, frá þessari gömlu hefð
að afgreiða þá á félagsfundi,
hvort nota ætti félagsfundina til
kynningar en láta síðan fara fram
allsherjaratkvæðagreiðslu. IM
tækjanna náist frant hagræðing
og sparnaður. „Sparnaður myndi
væntanlega nást fram í ntanna-
haldi, húsnæði og ýmsum föstum
kostnaði.“ óþh
Sleipnismenn í
verkfall á ný
- heimilt að ljúka
ferðum sem hafnar eru
Fimm daga verkfall félaga í
Bifreiöastjórafélaginu Slcipnir
skall á á miðnætti í nótt. Éftir
árangurslausan sáttafund með
viðsemjcndum hjá Sáttasemj-
ara ríksins fyrir helgi var
ákveðið á félagsfundi að halda
til streitu að stöðva vinnu nú.
Þrátt fyrir þetta mun rúta
Norðurleiðar til Reykjavíkur
fara á réttum tíma í dag þar sem
svo er litið á að ferðum, sem
hafnar eru fyrir verkfall, megi
ljúka, en heimastöð Norðurleið-
ar er í Reykjavík. Eftir þessa
ferð leggjast ferðir Norðurleiðar
hins vegar niður meðan á verk-
falli stendur.
Þá héldu tveir langferðabílar
frá Sérleyfisbílum Akureyrar til
Reykjavíkur í gær f leiguakstri.
Þeirra er von til baka á sunnudag
og mun sú áætlun standast af
ofangreindum ástæðum, þ.e.
heimilt er að Ijúka ferð sem hafin
er fyrir verkfall. Að sögn Gunn-
ars Guðntundssonar hjá Sérleyf-
isbílum Akureyrar sjá þeir fram á
að geta sinnt bæði áætlunarferð-
um til Mývatns og með skíðafólk,
sem og þeim leiguferðum sem
lofað hefur verið í næstu viku
þrátt fyrir verkfall. VG
Tuttugu og átta ára gamall
námsmaðiir frá Kristnesi í
Eyjafirði, Jens Kristjánsson,
hefur haslað sér völl sem kvik-
myndatökumaður í Banda-
ríkjunum. Hann hefur nú
unnið til Student Emmy verð-
Iauna ásamt öðrum nemanda
og einum kcnnara í University
of Mississippi fyrir stutta
heimildarmynd um fisk-
vinnslu í Bandaríkjunum, eða
tiltekið fyrirtæki sem er með
höfuðstöðvar í Flórída en
vinnslu í Mississippi. Verð-
launin, sem eru veitt af sama
aðila og veitir Emmy verð-
laun fyrir sjónvarpsþætti,
verða afhent í hófi í Los
Angeies 11. apríl.
Jens sagðist í samtali við Dag
ekki vera viss urn að hann fengi
Emmy styttu í hendur því verð-
launin miðast við höfund eða
Stúdent úr MA gerir það gott í Bandaríkjunum:
Fær Student Emmy styttu fyrir
heimildarmynd um fiskvmnslu
hliðstæð viðurkenning og Emmy verðlaun fyrir sjónvarpsþætti
framleiðanda myndarinnar.
Þáttur hans í heimildarmynd-
inni var kvikmyndun og klipp-
ing, en hann cr þó einn af þrem-
ur aðstandendum myndarinnar.
Aðspurður sagði Jens að
þessi Student Emrny verðlaun
fyrir myndina ættu sér nokkuð
langan aðdraganda, Fyrst var
hún send af skölanunt í sam-
keppni innansveitar, ef svo má
segja, og síðan í fleiri keppnir
uns hún bar sigur úr býtum í
aðalkeppninni, eða „National
Competition". Þar með var
ljóst að myndin fengi verðlaun
hjá Academy of Television Arts
and Seiences, sem er santa
stofnun og veitir hin eftirsóttu
Emmy verðlaun fyrir sjónvarps-
þætti.
Hér er um að ræða Emmy
verðlaun meðal skóla og ftillu
nafni heita þau: The llth.
Annual Frank O’Connor Mem-
orial Collage Television
Awards, en til hægðarauka eru
þau kölluö Student Emmy.
Jens vann hjá einkasjón-
varpsstöð í Memphis með nám-
inu en hann útskrifaðist úr
skólanum sl. vor. Þá fékk hann
Jens Kristjánsson.
vinnu hjá sjónvarpsstöð í Reno
Ncvada sem myndatökumaður.
í Bandaríkjunum eru óhemju
margar sjónvarpsstöðvar á mis-
stórum markaðssvæðum. Svæð-
in eru 250 og cr þeim skipt cftir
fjölda heimila sem ná útsend-
ingu viðkomandi stöðvar. Reno
er að markaösstærð 119 en það
er draumur llestra að vera frá 1-
40, en þar eru miklir peningar í
spilinu. Stærsta svæðið er í New
York.
„Nei, ég er ckki á leiðinni til
Akureyrar og sé lítinn tilgang í
þvi að koma til íslands í bráð.
Ef ég fæ áframhaldandi atvinnu-
leyfi býst ég við aö vera hér í
Reno í tvö ár og reyna síðan að
komast á stærri sjónvarpsstöð.
Fái ég ekki leyfið get ég haldið
áfram í skóla og tekið
„masters“ gráðu í fjölmiðlun og
unnið með skólanum," sagði
Jens í samtaji við Dag. SS