Dagur - 16.03.1990, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 16. mars 1990
flLiiMa
Möldursf.
BÍIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
MMC Calant 1600 GL, 5 gíra,
árg. '86. Ekinn 60 þús., blár.
★
Greiðslukjör
við allra hæfi
SALINN
Möldursf.
BIIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
MMC Tredia GLS 5 gíra 4x4,
árg. '87. Ekinn 55 þús., hvítur,
verð 750 þús.
M
MMC Lancer 1500 GLX, 5 gíra,
árg. '86. Ekinn 30 þús., hvítur,
verð 570 þús.
MMC Colt 1500 GL, árg. '87.
Ekinn 29 þús., hvítur,
verð 550 þús.
MMC Pajero langur, bensín,
háþekja, árg. '84. Ekinn 73 þús.,
s.grár, verð 950 þús.
Suzuki Fox háþekja 413, árg. '85.
Ekinn 44 þús., hvítur,
verð 600 þús.
Sveitasinfonían í Reykjadal:
Frumsýning hjá UMF Eflingu á sunnudag
sýningin kl. 20:30. Það er Ieik-
deild UMF Eflingar sem að
uppsetningu verksins stendur
en María Sigurðardóttir leik-
stýrir. Leikendur eru 15.
Leikdeildin hóf starfsemi í
janúar, eftir nokkurra ára hlé, og
var byrjað á leiklistarnámskeiði
þar sem María leiðbeindi. Tókst
það vel í alla staði og flestir
leikendanna í Sveitasinfoníunni
voru þátttakendur í námskeið-
inu. Æfingar hafa staðið í rúmar
sex vikur. „Það er ótrúlegt hvað
okkur gengur vel, en þetta er
góður hópur og skemmtileg sam-
vinna,“ sagði María, er Dagur
spurði hvernig uppsetning verks-
ins gengi og hvernig verk þetta
sé: „Sveitasinfonían gerist í sveit,
í Fossárdal. Verkið er dálítið
margslungið því fjallað er um
talsvert mörg mál. Tekin eru fyrir
stóriðju- og virkjunarmál, sem
sumir eru á móti en aðrir fylgj-
'Man'a Sigurðardóttir, leikstjóri.
Úr Gallerí allra handa nytjalist á Akureyri.
Myndir: EHB
Fiat Uno 55s, 5 dyra, 5 gíra,
árg. '84. Ekinn 70 þús., blár,
verð 250.000.
Sveitasinfonían eftir Ragnar Breiðumýri í Reykjadal sunnu-
Arnalds verður frumsýnd að dagskvöldið 18. mars og hefst
Hörður Benonýsson, Þorsteinn Glúmsson og Einir Viðar Björnsson í hlut-
verkum sínum.
Sérstæð listmimasýnmg í Gamla Lundi
Þórey lagt áherslu á að kynna
leirlist, silfursmíði, myndvefnað
og grafík í gallerínu. Þar er í
raun listmunasýning allan ársins
hring. Ýmsir vel þekktir lista-
ntenn eru meðal þeirra sem eiga
verk á sýningunni í Gamla
Lundi, og er hún því forvitnileg
öllum sem unna handmenntum
og fögrum gripum.
Sýningin í Gamla Lundi hefst
kl. 17.00 á föstudag, og verður
hún opin um helgar frá kl. 14.00
til 20.00 en virka daga milli kl.
16.00 og 20.00. Henni lýkur 26.
mars.
Á sýningunni verða leirlista-
verk eftir Koggu, eða Kolbrúnu
Björgólfdóttur, silfurmunir eftir
Önnu Maríu Sveinbjörnsdóttur,
listaverk eftir norska konu,
Katrínu Didriksen, en hún
vinnur afar sérstæð verk, m.a. úr
fjöðrum og hrosshári, emaléruð
myndverk og grafíklistaverk eftir
Einar Hákonarson, grafík og fl.
verk eftir Þórð Hall, Jón Reyk-
dal, Ingunni Eydal, Hörpu
Björnsdóttur og Björgu Þor-
Steinsdóttur. Myndvefnaður er
eftir Ásu Ólafsdóttur - en hún
var kjörin listamaður ársins ’89,
og Guðrúnu Gunnarsdóttur, en
hún hefur m.a. starfað sem
hönnuður hjá verksmiðjum SIS/
Álafoss, og glerlist eftir Höllu
Haraldsdóttur. Halla mun halda
sýningu á verkum sínum á Akur-
eyri í aprílmánuði.
Þórey segir að nokkuð verði
sýnt af nytjalistmunum að þessu
sinni, en þó ekki eins mikið og
hún hefði viljað, því þátttaka í
þessari listgrein væri ekki
almenn. Aðstöðuleysi háir nytja-
listafólki á Akureyri og við
Eyjafjörð mikið, en félagið
Nytjalist starfar ennþá og Þórey
kemur munum þeirra sem þar
starfa á framfæri, sé leitað eftir
því.
Leirlistaverk af ýmsu tagi
verða sýnd eftir Kolbrúnu Kjar-
valsdóttur, Jónínu Guðnadóttur
o.fl. Þá gefst fólki tækifæri til að
kynna sér verk eftir Rut
Rebekku og „Sossu" frá Sauðár-
króki, grafíkverk eftir Guð-
björgu Ringsted á Dalvík, og
margt fleira verður að sjá í
Gamla Lundi.
Þórey hefur ákveðnar skoðanir
á því hvernig beri að stuðla að
framgangi listastarfsemi, ekki síst
nytjalistar, á Akureyri, og hefur
hún bent á hentugt húsnæði fyrir
slíka starfsemi. „I Gamla Barna-
skólanum væri hægt að koma á
fót gestavinnustofum, og bærinn
gæti reynt að laða listafólk til sín
með því að bjóða því dvöl í hús-
inu í lengri eða skemmri tíma.
Þetta yrði ekki aðeins aðstaða
fyrir íslenskl listafólk heldur væri
hægt að hugsa sér að bjóða
erlendum listamönnum að koma
til dvalar hér í bænum. Fólk er
alltaf að ræða um Akureyri sem
skólabæ, en hann á að mínu viti
ekki síður að vera lista- og menn-
ingarbær," segir Þórey Eyþórs-
dóttir. EHB
Þórey Eyþórsdóftir stendur
fyrir kynningar- og sölusýn-
ingu á listmunum og nytjalist í
Gamla Lundi á Akureyri. Sýn-
ingin verður opnuð föstudag-
inn 16. mars.
Þórey er brautryðjandi á sviði
nytjalistar, því þegar hún opnaði
Gallerí allra handa nytjalist fyrir
fimm árum hafði slík starfsemi
ekki þekkst áður við Eyjafjörð.
Nytjalist er að vísu ævaforn list-
grein, en Þórey hefur m.a. kynnt
sér nytjalist á Norðurlöndunum,
einkum í Noregi, og sá að grund-
völlur var fyrir gallerý á Akureyri
þar sem nytjalistafólki gefst kost-
ur á að setja vörur sínar á
markað.
Auk nytjalistarinnar hefur
Leirmunir eftir Koggu.
Emalérað myndverk eftir Einar
Hákonarson.
Silfurdjásn, Anna María Svein-
björnsdóttir.
Myndverk, Kolbrún Kjarvalsdóttir.