Dagur - 16.03.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 16. mars 1990
myndosögur dags
r-
ÁRLANP
Pabbi... Ef þú lítur raun-
sæisaugum á máliö, átt þú
bara um tvennt að velja.. y
Annað hvort að sætta þig vic
kunningjann í speglinum ...
eða... taka þig verulega á
í strangri líkamsrækt og
megrun og þá kannski nærði
fyrra vaxtarlagi...
&
4
- • ■ ulí L..MmnimTiiTiTTiíitf11 r, • .1 1 ‘ ‘
ANDRES ÖND
c; /i i a rr-‘ ,,
4JV'V
.krónuna sína.
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
Skyndilega rifur nýi rakkinn hennar
Arabellu sig lausan og hleypur af stað,
en í kjölfar hans fylqir kúlnahríð .
L 'X..J
# Fer á hana
ef ég get
Eins og allir vita er þaö nú
tíska að fá Jónu Ingibjörgu
kynfræöing til aö halda fyr-
irlestra um kynlíf. Það bar til
í eínum framhaldsskóla úti
á landi aö Jóna Ingibjörg
átti aö halda fyrirlestur í
tilefni opinnar viku í skólan-
um.
Kennari einn einhleypur var
viðmælandi í skólablaöi í
skóla þessum og var spurö-
ur hvort hann ætlaði að
sækja fyrirlestur hjá Jónu
Ingibjörgu.
Eitthvað var karl seinn til
svars en sagöi loks: „Já,
ætli ég fari ekki bara á hana
ef ég get.“
# Þetta er lygi
með hann
Sigurjón
Einhver umræöa hefur verið
um að sumir bændur viö
fjörð einn norðanlands
væru heldur tæpir með hey
handa skepnum sínum.
Orðrómur komst á kreik um
að bóndi einn væri öðrum
bændum verr staddur í mál-
um þessum. Það varð til
þess að hreppstjóri sá sig
tilneyddan að hafa tal af
forðagæslumanni og sagði
honum að kanna hvort eitt-
hvað væri hæft í orðrómi
þessum. Forðagæslumaður
hafði ekki trú á að bóndi
þessi væri heylausari en
aðrir bændur og sagði það
hreppstjóra. Hreppstjóri sat
við sinn keip og sagði að
almannarómur lygi sjaldan
og talið væri að bóndi ætti
of lítil hey. Forðagæslumað-
ur lét til leiðast og heimsótti
umræddan bónda og kom á
fund hreppstjóra að því
loknu. Hreppstjóri spurði
forðagæslum mann frétta.
Forðagæslumaður sagöi þá
við hreppstjóra: „Auðvitað
var þetta lygi með hann Sig-
urjón, hann á ekki litil hey
eins og ég vissi, hann á
bara allt of margar skepn-
ur“.
# lllar tungur
lllar tungur hafa gefið í skyn
að Davið Oddsson borgar-
stjóri væri óþarflega bruðl-
samur í bílaútgerð sinni.
Davíð hélt fund í kaupstað
einum á Norðurlandi fyrir
skömmu. Kom hann norður
með flugvél og flaug aftur
suður daginn eftir. Senni-
lega hafa það verið sömu
illu tungurnar er gerðu það
opinbert að Davíð lét senda
sér bíl borgarstjóraemb-
ættisins noröur í land til að
rúnta á þá kvöldstund sem
hann dvaldi þar.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 16. mars
17.50 Tumi (11).
(Dommel)
18.20 Hvutti.
Fjórði þáttur.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Blúskóngurinn BB-King.
Á tónleikum með þessum kunna tónlist-
armanni.
19.50 Bleiki pardusinn.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Spumingakeppni framhaldsskól-
anna.
Fimmti þáttur af sjö.
21.15 Austur-Þýskaland: Sameining í
vændum?
Nú standa fyrir dyrum fyrstu frjálsu og
lýðræðislegu kosningamar í Austur-
Þýskalandi frá lokum síðari heimsstyrj-
aldar. Þessar kosningar verða að öllum
líkindum jafnframt þær síðustu áður en til
sameiningar þýsku ríkjanna kemur, en
flestir búast við að af því verði fyrir lok
þessa árs og jafnvel fyrr.
í þættinum er fjallað um sameininguna og
þau vandamál sem henni fylgja og rætt
við forystumenn helstu stjórnmálaflokk-
anna.
21.45 Handbók golfleikara.
(Dorf’s Golf Bible.)
Glettur á golfvelli.
22.20 Úlfurinn.
(Wolf.)
23.10 Ævintýri.
00.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 16. mars
15.30 Frumskógardrengurinn.
(Where the River Runs Black.)
Saga Lazaro, sem er sögð af séra O’ReiUy,
er líkust ævintýralegri þjóðsögu. Trúboði
nokkur, að nafni Mahoney, er ekki sam-
mála O’ReiUy um útbreiðslu guðsorðsins.
Mahoney leitar sér hughreystingar með
siglingu niður ána.
Aðalhlutverk: Charles Duming, Aless-
andro Rabelo, Ajay Naiu, Peter Horton og
Conchata Ferrell.
17.05 Santa Barbara.
17.50 Dvergurinn Davíð.
18.15 Eðaltónar.
18.40 Vaxtarverkir.
(Growing Pains.)
19.19 19.19.
20.30 Landslagið.
Draumadansinn.
Flytjandi: Sigurður Dagbjartsson.
Lag og texti: Birgir J. Birgisson og Sigurð-
ur Dagbjartsson.
Texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
20.35 Líf í tuskunum.
(Rags to Riches.)
21.25 Popp og kók.
22.00 Sporlaust.#
(Without A Trace.)
Það er morgunn og hinn sex ára gamli
drengur, Alex, kveður móður sína og
heldur áleiðis í skólann. Þegar móðir
hans, sem er háskólaprófessor í ensku,
kemur heim að loknum vinnudegi bíður
hún þess að Alex komi heim. Biðin snýst
upp í örvæntingu þegar fjarvera barnsins
er orðin óeðlilega löng. Hún leitar á náðir
rannsóknarlögreglunnar og fær til liðs við
sig einn starfsmanna þeirra sem reynist
henni einstaklega hjálpsamur.
Myndin styðst við raunverulega atburði
er áttu sér stað í New York fyrir nokkmm
árum.
Aðalhlutverk: Kate Nelligan, Judd
Hirsch, David Dukes og Stockard
Channing.
00.00 Nánar auglýst síðar.
00.25 Furðusögur 6.#
(Amazing Stories 6.)
Þrjár æsispennandi sögur úr smiðju Ste-
vens Spielberg.
Sú fyrsta nefnist Mirror, Mirror. Önnur
nefnist Blue Man Down. Sú þriðja nefnist
Mr. Magic.
Aðalhlutverk: Sam Waterstone, Helen
Shaver, Max Gail, Kate McNeil, Chris
Nash, Sid Caesar og Lea Rossi.
Stranglega bönnuð börnum.
01.45 í ljósaskiptunum.
(Twilight Zone.)
02.15 Dagskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 16. mars
6.45 Veðurfregnir - Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
- Sólveig Thorarensen.
^Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
Mörður Árnason talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Eyjan hans
Múmínpabba" eftir Tove Jansson.
Lára Magnúsardóttir les (10).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Að hafa áhrif.
Umsjón: Ema Indriðadóttir. (Frá Akur-
eyri.)
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Kíkt út um kýraugað.
- „... þvígullroðnalíkkistu lítils ég met."
Umsjón: Viðar Eggertsson.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - í heimsókn á vinnu-
staði.
Umsjón: Valgerður Benediktsdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Fátækt fólk“ eftir
Tryggva Emilsson.
Þórarinn Friðjónsson les (18).
14.00 Fréttir.
14.03 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 íslensk þjóðmenning - Uppruni
íslendinga.
15.45 Neytendapunktar.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Þingfréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Villa-Lobos,
Chapí og Rodrigo.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatiminn.
20.15 Gamlar glæður.
21.00 Kvöldvaka.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Dagskrá morgun-
dagsins.
22.20 Lestur Passíusálma.
Ingólfur Möller les 28. sálm.
22.30 Danslög.
23.00 Kvöldskuggar.
24.00 Fréttir.
00.10 Ómur að utan.
Umsjón: Signý Pálsdóttir.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 16. mars
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn
í ljósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
11.03 Gagn og gaman
með Jóhönnu Harðardóttur.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
Gagn og gaman heldur áfram.
14.03 Brot úr degi.
Eva Ásrún Albertsdóttir.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Sigurður G. Tómasson, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Katrín Baldursdóttir.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Sveitasæla.
20.30 Gullskífan.
Að þessu sinni: „Brothers in arms" með
Dire Straits.
21.00 Á djasstónleikum.
22.07 Kaldur og klár.
Óskar Páll Sveinsson með allt það nýjasta
og besta.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
2.00 Fréttir.
2.05 Rokk og nýbylgja.
3.00 ístoppurinn.
4.00 Fréttir.
4.05 Undir værðarvoð.
4.30 Veðurfregnir.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Blágresið blíða.
6.00 Fróttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Afram ísland.
7.00 Úr smiðjunni.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 16. mars
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 16. mars
17.00-19.00 Fjailað um það sem er að ger-
ast um helgina á Akureyri.
Stjómandi er Axel Axelsson.
Fréttir kl. 18.00.
I