Dagur - 03.04.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 03.04.1990, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 3. apríl 1990 - DAGUR - 9 „Sá strax eftir fyrstu ferðina að ég gæti unnið“ iar að drepast" r Valdimarsson Haukur Eiríksson frá Akureyri var í íslensku sveitinni sem varð í 2. sæti í boðgöngunni. Mynd: KL 34,04 34,10 34,43 35,02 35,05 Rögnvaldur Ingþórsson stóð í sænsku gönguköppunum. Mynd: KL Landskeppni í boðgöngu: Öruggt hjá Svíum Sænska sveitin sigraði örugg- lega í boðgöngukeppninni sem fram fór í Hlíðarfjalli um helg- ina. AIIs mættu 7 sveitir til leiks. Um var að ræða lands- keppni íslands og Englands en Svíar kepptu sem sveit frá sínu félagi. Islenska sveitin náði öðru sætinu en í keppni hérað- anna sigraði a-sveit Akureyr- ar. 1. Svíþjóð 1:34.02 2. ísland (Haukur Eiríksson, Rögnvaldur Ingórsson Sigurgeir Svavarsson) 1:36.11 3. England 1:41.33 4. Akureyri A (Árni Antonsson, Sigurður Aðalsteinsson, Kristián Ólafssonl 1:46.19 5. 6. 7. Ólafsfjörður A (Guðmundur Óskarsson, Tryggvi Sigurðsson, Kristján Hauksson) 1:47.57 Ólafsfjörður B (Bjartmar Guðmundsson, Bergur Björnsson, Ásgrímur Porsteinsson) 1:51.35 Akureyri B (Siguröur Bjarklind, Kári Jóhannesson, Steingrímur Þorsteinss.) 1:56.32 Alls keppti 21 göngumaður í þessari keppni og 5 bestu ein- staklingarnir urðu þessir: 1. Roger Claeson Svþj. 2. Sigurgeir Svavarsson í 3. Per Svardfeld Svíþj. 4. Rögnvaldur Ingþórsson í 5. Evan McKenzie Engl. 29,41 30,36 31,32 32,02 32,26 Alþjóðlegt mót í skíðagöngu: Rögnvaldur í 3. sæti segir Guðrún H. Kristjánsdóttir „Ég er mjög ánægð með mjtt gengi á þessum mótum. Ég hafði ekki gert mér miklar vonir fyrirfram, vissi að þessar sænsku og norsku stelpur yrðu með og ætlaði mér að reyna að hanga í þeim enda eru þær með mun betri stigatölu en ég. Ég sá hins vegar strax eftir fyrstu ferðina að ég gæti vel unnið þær og fór þá að gera mér vonir,“ sagði Guðrún H. Kristjánsdóttir frá Akureyri en hún vann það glæsilega afrek að sigra á þremur af fjórum alþjóðlegum mótum sem liald- in voru á hátíðinni. Það var aðeins fyrsta mótið sem Guðrún náði ekki að vinna en þá hafnaði hún í 3. sæti eftir að hafa átt besta tímann í fyrri ferðinni. „í seinni ferðinni fór ég að faðma port. Mér hlekktist á í þriðja neðsta portinu, fékk það undir hendina og snérist og tap- aði þannig tíma. Það voru nokk- ur vonbrigði þar sem ég var með besta tímann eftir fyrri ferðina en ég bætti það upp daginn eftir." Guðrún sagðist ekki hafa æft sérstaklega vel í vetur þar sem vertíðin hefði verið leiðinleg. „En ég æfði mjög mikið sl. tvo vetur og það er kannski að skila sér núna. Ég hef líka keppt 1ítið í vetur, á þessu tíma hef ég yfirleitt verið búin að keppa í 10 alþjóó- legum rnótum en þessi eru þau fyrstu sem ég tek þátt í núna.“ - Það hefur komið fram að þú sért jafnvel að hugsa um að hætta. Er eitthvað hæft í því? „Ég er að byrja í skóla og það er erfitt að vera í þessu á fullu með náminu. En ef þetta heldur áfram að ganga vel þá held ég áfram - þá er varla hægt að slíta sig frá þessu," sagði Guðrún H. Kristjánsdóttir. Ég æfði mjög vel síðasta sumar og í haust en meiddist þá á ökkla og var úr leik um tíma. Ég hvíldi í mánuð og fór síðan erlendis og æfði um jólin og það gekk mjög vel. Ég hef hins vegar lítið rennt mér frá miðjum janúar, aðallega vegna veðurs. Framundan hjá mér núna er fyrst og fremst íslandsmótið en síðan verð ég að sjá til hvernig mér gengur að samræma námið og skíðin. Ég er í læknisfræði og það er dálítið strembið „hobbý“ með skíðunum,“ sagði Örnólfur Valdimarsson. Guðrún H. Kristjánsdóttir. 1. Kristján Ólafsson A 2. Guðmundur Óskarsson Ó 3. Gísli Valsson S 4. Tryggvi Sigurðsson Ó 5. Kristján Hauksson Ó Mynd: KL 1. Roger Claesen Svíþj. 45,46 2. Lars Person Svíþj. 46,03 3. Rögnvaldur Ingþórsson í 46,32 4. Per Svardfeld Svíþj. 48,21 5. Haukur Eiríksson í 48,51 Einnig var keppt í 10 km göngu 17-19 ára og mættu þar 14 keppendur til leiks. Þar var geysi- leg keppni um 1. sætið milli Rögnvaldur Ingþórsson frá Akureyri blandaði sér í barátt- una á alþjóðlegu göngumóti sem fram fór í Hlíðarfjalli á föstudaginn. Keppt var í 15 km göngu og náði Rögnvaldur 3. sætinu. Um hörkukeppni var að ræða og munaði ekki nema 10 sek. á fyrsta og þriðja manni eftir 5 km. Eftir 10 km voru Rögnvaldur og Claesen frá Svíþjóð jafnir en Svíinn seig fram úr í lokin og sigraði. Kristjáns Ólafssonar frá Akur- eyri og Guðmundur Óskarssonar frá Ólafsfirði og þegar upp var staðið hafði Kristján sigrað með litlum mun. Mynd: KL Þróttarar hóta að mæta ekki Þróttarar hafa ákveðið að mæta ekki í úrslitaleikinn Bikarkeppninni í blaki ef staðið verður við þá ákvörö- un að láta hann fara fram á Akureyri. Fyrirhugað er að leikurinn fari fram á laugar- daginn. Þróttarar segja í DV í gær að vinnubrögð stjórnar BLÍ í þessu máli séu forkastanlcg og ekki samboðin íþróttinni. Arngrímur Þorgrímsson vísar á sama stað fullyrðingum Þróttara til föðurhúsanna og segir BLÍ hafa fullan rétt til að gera þessa breytingu en stjórn- in ákvað fyrir nokkru að l'æra leikinn til Akureyrar. KA- menn inunu greiða samband- inu 130 þúsund krónur fyrir aö fá leikinn norður enda telja þeir sig örugga með nokkúrn fjölda áhorfenda. Arngrímur segir að blakáhugi á Akureyri sé mikill og uppbyggingarstarf fyrir norðan hafi verið gott og því telji sambandið sig vera að gera íþróttinni gott með því aö færa leikinn norður. Úrslita- leik eigi að leika fyrir fullu húsi áhorfenda og það geti einmitt gerst fyrir norðan. Vcrður fróðlegt að fylgjast með íramvindu þessara mála en ákvörðunin liggur fyrir og spurningin er hvort henni verði breytt héðan af.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.