Dagur - 03.04.1990, Side 16
Da&blaíðið á landLsbycfCfðixini
Áskriftarsíminn er 96-24222
Sauðárkrókur Húsavík
95-35960 96-41585
Rækjuvinnslan Dögun:
Mokveiði á
innfjarðarrækju
- veður hamlar
úthafsveiði
Mikil rækjuveiði hefur verid á
Skagafirði undanfarið. Bátarn-
ir hafa komið með þrjú til fjög-
ur tonn hver seinustu daga.
Unnið hefur verið langt frani á
kvöld og um helgar í Rækju-
vinnslunni Dögun á Sauðár-
króki. Rækjan sem veiðst hef-
ur er mjög stór og góð til
vinnslu.
Dögun hefur fengið alls 400
tonna aukakvóta af innfjarðar-
rækju. Að sögn Sigríðar Aradótt-
ur, verkstjóra hjá Dögun, verður
ekki sótt um meiri kvóta. Því má
búast við að veiðum á innfjarðar-
rækju ljúki fyrir páska.
Úthafsrækjuveiðin hófst fyrir
skömmu. Hilmir, úthafsrækju-
bátur Dögunar, hefur farið tvo
túra. Leiðinda veður hefur haml-
að veiðum og hefur því lítið af
úthafsrækju borist til vinnslu.
„Þessi stanslausa bræla hefur
haldið Hilmi frá veiðurn undan-
farið. í seinasta túr fengu þeir
ekki nema einn sæmilegan veiði-
dag. Við vonum að þetta fari að
skána,“ sagði Sigríöur Aradóttir
að lokum. kg
Hraðfrystihús
ÓlafsQarðar:
Hagnaður fyrir
utan fjármagns-
gjöld og afskriftir
Tap varð á rekstri Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar hf. á síðasta
ári þegar tekið er tillit til allra
þátta, afskrifta og fjármagns-
gjalda. Fyrir utan þessa tvo
þætti varð hins vegar 26,6
milljóna króna hagnaður af
rekstri fyrirtækisins. Þetta kom
fram á aðalfundi frystihússins,
sem haldinn var sl. föstudag.
Gunnar Þór Magnússon,
stjórnarformaður HÓ hf., segir
að reksturinn hafi gengið allvel
hjá fyrirtækinu frá því að það var
opnað að nýju um mánaðamótin
mars-apríl á síðasta ári. Hins
vegar séu menn kvíðafullir vegna
mikiis fjármagnskostnaðar. Gunn-
ar Þór segir að menn verði að
gera sér grein fyrir því að þrátt
fyrir skuldbreytingu fyrir tilstilli
Atvinnutryggingasjóðs sé skulda-
byrði fyrirtækisins mikil og rekst-
urinn því þungur í skauti.
Þá segir Gunnar Þór að lítið
hráefni geri erfitt fyrir með rekst-
ur frystihússins. Ölafur Bekkur
landar mestu af sínum afla til
frystihússins og síðan verða
stjórnendur fyrirtækisins að
nokkru leyti að brúa bilið með
miðlun afla við nágrannabyggðar-
lögin.
Þrátt fyrir fyrirsjáanlega erfið-
leika segir Gunnar Þór menn
horfa bjartsýna fram á veginn og
reynt verði eftir mætti að hag-
ræða í rekstrinum. Hann segir
ekki ætlunina að breyta vinnsl-
unni yfir í flæðilínu, en í stað
þess verði reynt að breyta skipu-
lagi vinnslunnar. óþh
Sturturnar í sundlauginni stóðust ekki álagið og galsann í krökkunum,
rörin eru laus og beygluð. Á innfelldu myndinni sést að hurðin er
þrútin, hún er nær karniinum að neðan. Búið er að hcnda þéttikanti
sem var á hcnni, en þá fyrst var hægt að loka.
Sundlaug Glerárskóla
lokað vegna viðgerða
Hinni nýju sundlaug við Gler-
árskóla verður lokað á föstu-
dag í sex daga vegna við-
gerða. Sundlaugin verður
opnuð aftur á skírdag, að við-
gerðum loknum.
Að sögn Markúsar Hávarðs-
sonar, sundlaugarvaröar, er
ýmisiegt sem þarf að lagfæra.
Skemmdir hafa verið unnar á
sturtum við laugina, en vatns-
pípur að þeim hafa verið færðar
úr lagi. Nauðsynlegt er að
skipta um hluta sturtubúnaðar-
ins, en starfsmönnum virtist
hann vera frekar ótraustur.
Menn frá málningarverksmiðj-
unni Sjöfn munu leggja gólfefni
og gera við skemmdir á gólflagi
sem lagt var áður en laugin var
tekin í notkun. Þá verður að
gera við eða skipta um hurðir
að sturkuklefum, en þær eru, að
sögn Markúsar, orðnar mjög
þrútnar og engan veginn gerðar
til að standast stöðugan vatn-
saustur og bleytu. EHB
Verða Barðinn
GK og Víðir II
seldir til
Norðurlands?
í Sandgerði heyrast raddir um
að útgerðaraðilar við Eyjafjörð
hafi hug á að festa kaup á ein-
um eða tveimur bátum á staðn-
um, Barða GK og Víði II.
Bátarnir eru í eigu Rafns hf.,
en það hlutafélag hefur verið lýst
gjaldþrota. Barðinn GK 375 er
243 tonna stálskip, smíðaður
1964 í Noregi og hét áður Skírnir,
og var þá gerður út af Haraldi
Böðvarssyni & Co. á Akranesi.
Víðir II GK 275 er mun minna
stálskip, 129 tonn brúttó, 30 ára
gamall, einnig ættaður frá Noregi.
Allgóður' kvóti fylgir þessum
bátum, sérstaklega Barðanum. I
Sandgerði óttast margir að bát-
arnir verðir seldir sérstaklega úr
þrotabúinu, en vilji er fyrir því í
bænum að frystihúsið og bátarnir
verðir seldir í einu lagi, til að
halda atvinnutækifærunum.
Eftir því sem Dagur kemst
næst hafa forsvarsmenn stórra
útgerðarfyfirtækja á Norðurlandi
haft uppi fyrirspurnir um þessa
báta, sérstaklega Barðann, með
kaup fyrir augum, og hafa margir
fyrir satt að Eyfirðingar sýni
skipunum áhuga.
Víðir II hefur verið í slipp í
Njarðvík frá því í fyrra, uppruna-
lega vegna vélarbilunar, en síðan
fóru fleiri viðgerðir fram. Eig-
endum tókst ekki að greiða við-
gerðina fyrir gjaldþrotið, og er
báturinn ennþá í slipp. EHB
Ríkisábyrgðasjóður:
100 milljóna króna lán til Siglufjarðar
- féð verður notað til skuldbreytinga á skammtímalánum
Siglufjarðarbær hefur fengið
100 milljónir króna að láni hjá
Ríkisábyrgðasjóði frá því í des-
ember. Fjármálaráðuneytið
ábyrgðist nýlcga fimmtíu millj-
óna króna lán fyrir sveitarfé-
Fyrsta laxinum í matfiskeldis-
stöð Miklalax hf. í Fljótum
verður slátrað í næsta mánuði
og síðan vikulega eftir það.
Reynir Pálsson, framkvæmda-
stjóri, segir eldið hafa gengið
Ijómandi vel og fiskurinn líti
vel út. Fulltrúar fyrirtækisins
voru í Frakklandi nýverið og
könnuðu markað fyrir laxinn.
Að sögn Reynis er þar mikil
eftirspurn eftir fersklaxi, en
spurningin sé hvernig fiskurinn
verði fluttur út.
Ýmsir möguleikar eru í
skoðun. Rætt er um beint fragt-
lagið með því skilyrði að ef til
vanskila komi sé ríkissjóði
heimilt að draga af skilum til
bæjarsjóðs af staðgreiðslufé
skatta, til að standa skil á
greiðslum.
flug frá Sauðárkróksflugvelli eða
Akureyrarflugvelli, en ekkert er
ákveðið í þeim efnum. Reynir
segir ljóst að flutningur með
flugi, hvort heldur sem er frá
Akureyri eða Sauðárkróki, sé
dýr en hins vegar væri unnt að
lækka kostnaðinn verulega ef
eitthvað fengist í vélarnar til
baka. „Ég tel það vera stórt
byggðamál ef yrði beint flug í
viku hverri beint að utan. Þegar
menn hafa áttað sig á því tel ég
að yrði mun meiri flutningur
heim en nrenn sjá fyrir í dag.“
„Við erum að undirbúa okkar
mál, ekki bara í Frakklandi. í
Samkvæmt upplýsingum frá
Merði Árnasyni, upplýsingafull-
trúa fjármálaráðuneytisins, er
þetta í annað skipti á fáum mán-
uðum sem ráðuneytið ábyrgist
lántöku Siglufjarðarbæjar með
gegnurn Útflutningsráð erum við
að afla upplýsinga um markaðinn
í Bandaríkjunum. Það er ljóst að
ef menn hafa góða viðskiptavini
sem hægt er að selja beint til og
allt stenst með gæði og framboð á
fiskinum, þá er hægt að fá góð
verð,“ segir Reynir.
Slátrun hefst hjá Miklalaxi í
næsta mánuði. Reynir segir að
fiskinum verði að sjálfsögðu
slátrað í stöðinni en líkur séu á
að gert verði að fiskinum og
honum pakkað í frystihúsinu á
Hofsósi. „Þar er aðstaðan og það
er sjálfsagt að nýta hana,“ segir
Reynir. óþh
þessurn skilyrðum. í fyrra skiptið
var um jafnháa upphæð að ræða,
50 milljónir króna. Lánveitingar
þessar fara þannig fram að ríkis-
sjóður tekur erlend lán, og
endurlánar Siglufirði féð í gegn-
urn Ríkisábyrgðasjóð.
Fjármálaráðuneytið hefur gcrt
bæjaryfirvöldum að undirrita
yfirlýsingu um að draga megi af
staðgreiðslufé skatta, samhliða
lánssamningi þessum. Björn Jón-
asson, oddviti Sjálfstæðismanna í
Bæjarstjórn Siglufjarðar, segir að
ekkert óeðlilegt sé við þessi skil-
yrði fyrir lánveitingu, en Siglfirð-
ingar hafi verið beðnir um trygg-
ingar og boðið þessa leið.
Undanfarin ár hafi ntikið verið
framkvæmt á Siglufirði og mikið
átak gert á ýmsum sviðum, t.d. í
umhverfismálum. Til fram-
kvæmdanna hafi þurft mikið
fjármagn, en vanskil verið all-
ntikil af hendi bæjarfélagsins,
bæði við banka og verktaka.
Unnið hafi verið að því að snúa
dæminu við, og ofangreind lán
verði m.a. notuð til skuldbreyt-
inga og að gera upp við lánar-
drottna.
„Grundvöllurinn undir fjár-
hagsafkomu bæjarins er allur á
réttri leið. Það er verið að stokka
skammtímalánin upp og borga
þau með lánum til lengri tíma,“
| segir Björn. EHB
Miklilax hf. í Fljótum:
Aðgerð og pökkun á fiskinum
í frystihúsinu á Hofsósi?
- athugað með markað í Frakklandi og Bandaríkjunum