Dagur - 18.04.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 18. apríl 1990
i
íþróttir
r-
Knattspyrna:
Esso-mót
KA1990
Dagana 5.-7. júlí nk. verður haldið 4.
Esso-mót KA í knattspyrnu fyrir 5.
flokk með þátttöku a, b og hugsanlega
c-liða. Um leið verður haldið innan-
hússinót í „handí“ með útsláttarfyrir-
komulagi. Esso-mótið verður að þessu
sinni liður í Íþróttahátíð ISÍ sem haldin
verður í sumar.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir 1.,
2. og 3. sæti í hverjum/hvorum flokki í
knattspyrnunni, en það ræðst af fjölda liða
í c-flokki hvort veitt verða verðlaun fyrir
þann flokk. Einnig verða veitt verðlaun
fyrir sigur í bandímótinu
Eins og sjá má veröur mótið haldið frá
fimmtudegi til laugardags að þessu sinni og
er það vegna úrslitaleiks í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu á Italíu, en hann
verður sýndur beint í Sjónvarpinu sunnu-
daginn 8. júlí. Pátttakendur þyrftu því að
koma á miðvikudagskvöld því keppni mun
hefjast á fimmtudagsmorgni.
Pátttöku skal tilkynna fyrir 15. maí til
Sveins Brynjólfssonar í hs. 96-25885, vs.
96-25606, Magnúsar Magnússonar í vs. 96-
22543, hs. 96-26260 eða Gunnars Kárason-
ar í vs. 96-21866, hs. 96-22052.
Undirbúnmgur
20. Lands-
móts UMFÍ
í Mum gangi
20. landsmót UMFÍ verður haldið í
Mosfellsbæ dagana 12.-15. júlí í sumar.
Þetta verður tvímælalaust langstærsti
íþróttaviðburður á íslandi í ár. Vernd-
ari Landsmótsins að þessu sinni er frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands.
Það er UMSK sem heldur Landsmótið í
samvinnu við Mosfellsbæ og verður ekkert
til sparað til að gera mótið sem glæsilegast.
Öll aðstaða til keppni í Mosfellsbæ er
mjög góð og má þar m.a. nefna nýjan og
glæsilegan íþróttavöll.
Gert er ráð fyrir allt að 3000 keppendum
á Landsmótinu sem er mikil aukning frá
síðasta móti. Keppt verður í 73 greinum
sent eru jafn margar greinar og keppendur
voru á 4. Landsmótinu sem haldið var í
Haukadal fyrir fimmtíu árum. Keppt verð-
ur í nokkrunt nýjum greinum á mótinu,
t.d. fimleikum kvenna, golfi og hesta-
íþróttum. í apríl ntun fara fram forkeppni
að skólahlaupi en þar geta um 800
nemendur í aldurshópunum 11-14 ára unn-
ið sér rétt til að taka þátt í úrslitum þessa
hlaups á Landsmótinu.
Merki 20. Landsmótsins teiknaði Ragn-
ar Lár og er það samansett úr Kistufelli
sem gnæfir yfir Mosfellsbæ og að hluta til
úr merki UMSK. Tákn mótsins er fugl sem
Halldór Baldursson teiknaði.
Dreift hefur verið 15000 endurskins-
merkjum með boðskap um hvað heilbrigð-
ur lífsstíll er í alla grunnskóla landsins.
Límmiðum með tákni mótsins hefur verið
dreift unt allt land. Hugmyndasamkeppni
um nafn á táknið fór fram í öllum skólum
landsins og verður niðurstaðan birt fljót-
lega.
Dansleikir verða haldnir í tengslum við
Landsmótið og jafnvel rokkhátíð. Sýndur
verður leikur í ruðningsfótbolta (amerísk-
um fótbolta) en hann er stundaður af mikl-
um krafti innan UMSK.
Setningarhátíð mótsins verður föstudag-
inn 13. júlí og verður þar mikið um dýrðir.
Verið er að athuga með að hafa sérstaka
spjótkastkeppni sent stæði á milli þriggja
þekktra erlendra spjótkastara og þriggja
íslenskra. _____
Skíðaganga:
Akureyrarmót í
sól og blíðu
Akureyrarmótíð í skíðagöngu
fór fram í Hlíðarfjalli á
skírdag. 36 þátttakendur
mættu til leiks og kepptu þeir í
10 flokkum. Gengið var með
hefðbundinni aðferð í miklu
blíðskaparveðri og tókst gang-
an í alla staði vel. Helstu úrslit
urðu þessi:
Piltar 8 ára og yngri, 1,0 km:
1. Björn Harðarson, KA 6.35
2. Hannes Ardal, Þór 6.41
3. Geir Egilsson. KA 6.54
4. Finnbogi Jónasson, KA 8.11
5. Páll Ingvarsson, KA 8.25
Stúlkur 9-10 ára, 1,0 km:
1. Arna Pálsdóttir, KA 5.58
2. Kristín Haraldsdóttir, KA 6.10
Piltar 9-10 ára, 2,0 knt:
1. Helgi Jóhannesson, Þór 10.39
2. Baldur Ingvarsson, KA 11.16
3. Grétar Kristinsson, KA 11.22
4. Anton Þórarinsson, KA 12.13
5. Arnar Sigurðsson, KA 14.19
Stúlkur 11-12 ára, 2,0 km:
I. Harpa Pálsdóttir. KA 12.35
2. Erna Jónasdóttir, KA 13.01
Piltar 11-12 ára, 2,5 km:
1. Stefán Kristinsson, KA 8.53
2. Gísli Harðarson, KA 9.19
3. Þóroddur Ingvarsson, KA 9.22
4. Sigurbjörn Gunnarss., KA 11.20
Konur, 5,0 km:
1. Sólveig H. Valgeirsd., KA 24.37
2. Stefanía Arnórsdóttir 31.00
Karlar 15-16 ára, 7,5 km:
1. Kristján Ólafsson, KA 24.32
2. Kári Jóhannesson, KA 25.27
3. Stcingrímur Þorgeirss., KA 26.49
Karlar 20-34 áraj 10,0 km:
1. Haukur Eiríksson, Þór 29.57
2. Rögnvaldur Ingþórsson, Þór 30.06
3. Ingþór Eiríksson. Þór 36.01
4. Jóhannes Kárason, KA 38.20
Karlar 35-45 ára, 10,0 km:
1. Ingþór Bjarnason, Þór 34.44
2. Sigurður Bjarklind. KA 36.07
3. Teitur Jónsson, TBA 39.23
4. Kristinn Eyjólfsson. KA 43.00
5. Jón Björnsson 46.17
Karlar 50 ára og eldri, 10,0 km:
1. Þorlákur Sigurðsson 40.13
2. Rúnar Sigmundsson, KA 41.55
Knattspyrna:
•64
Gassi“ hættur
sem aðstoðarmaður Kostics hjá Þór
55
Gunnar Gunnarsson er hættur
sem aöstoðarmaður Luca
Kostics, þjálfara 1. deildarliðs
Þórs í knattspyrnu. Astæðan
er persónulegur ágreiningur
milli þeirra tveggja. Gunnar
hafði einnig verið ráðinn þjálf-
ari 2. Ilokks Þórs og eru ein-
hverjar líkur á að hann haldi
því áfram.
„Það var ákveðinn ágreiningur
á milli þeirra tveggja sem ekki
var hægt að leysa á annan hátt.
Þetta er leiðindamál sem aldrei
hefði þurft að koma upp. Ágrein-
ingurinn snérist ekki um hvernig
ætti að gera hlutina heldur kom í
ljós að þeir áttu ekki nægilega vel
saman," sagði Benedikt Guð-
mundsson, varaformaður knatt-
spyrnudeildar Þórs.
Andrésar Andar
leikamir settir í dag
Andrésar Andar lcikarnir
verða settir á Akureyri í dag.
Hér er um að ræða lang
stærsta skíöamót sem fram fer
á Islandi en þátttakendur nú
verða um 742 talsins og koma
þeir frá 14 stöðum á landinu.
Dagskráin í dag hefst með far-
arstjórafundi t' Lundarskóla kl.
18. Kl. 20.30 leggur skrúðganga
af stað frá Lundarskóla og verður
gengið niður í íþróttahöll. Er
áætlað að hún komi þangað kl.
20.55. Kl. 21.00 verður andakt í
umsjá séra Péturs Þórarinssonar
og Jón Arnjsórsson, fulltrúi
Skipadeildar SIS flytur ávarp. Þá
mun Jensína Magnúsdóttir setja
mótið. Kl. 21.30 verður kveiktur
mótseldur og setningarathöfninni
lýkur svo með flugeldasýningu
kl. 21.45.
Þetta cr í 15. sinn sem Andrés-
ar Andar leikarnir fara fram á
Akureyri en þeir urðu fyrst að
veruleika árið 1976 eftir að Leif-
ur Tómasson hafði hreyft þessari
hugntynd árið 1973. Þetta varð
strax árviss viðburður og hafa
leikarnir notið sívaxandi hylli alla
tíð síðan.
Að sögn Gísla Lórenzsonar,
sem átt hefur sæti í framkvæmda-
nefnd leikanna frá upphafi, er til-
gangurinn með þeim tvíþættur.
„I fyrsta lagi er þetta leikur fyrir
börnin eins og nafnið bendir til.
En við erum líka að búa til skíða-
fólk framtíðarinnar. Það hefur
líka sýnt sig í gegnum árin að þeir
sem hafa staðið á verðlaunapalli
á leikunum eru okkar besta
skíðafólk í dag," sagði Gísli Lór-
enzson.
Dagskrá leikanna verður birt í
blaðinu á ntorgun.
Mvnd: Kl.
Sólveig H. Valgeirsdóttir sigraði í 5 km göngu kvenna.
Skíði:
Kristinn og Guðrún
best í tveggja brauta keppni
kristinn Björnsson frá Ólafs-
firði og Guðrún H. Kristjáns-
dóttir frá Akureyri sigruðu í
tveggjabrautakeppni Flugleiða
sem fram fór í Hlíöarfjalli um
helgina. Um helgina fór einnig
fram Flugleiðatrimm á göngu-
skíöuin, með og án tímatöku.
Gengnar voru tvær vegalengd-
ir og varð Haukur Eiríksson
frá Akureyri sigurvegari í 10
km göngunni og Þóroddur Ingv-
arsson, einnig frá Akureyri,
sigraði í 5 km göngu.
Tveggjabrautakeppni
Konur:
1. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A
2. María Magnúsdóttir, A
3. Hjördís Þórhallsdóttir A
Karlar:
1. Kristinn Björnsson, Ó
2. Vilhclm Þorsteinsson, A
3. Jóhannes Baldursson, A
Flugleiðatrimm
10 kin:
1. Haukur Eiríksson, A
2. Sigurður Aðalsteinsson, A
3. Árni Antonsson, A
5 kni:
1. Þóroddur Ingvarsson, A
2. Helgi Jóhannesson, A
3. Baldur Ingvarsson, A
Á SKÍÐI MEÐ
Kristinn Björnsson og Vilhelm Þorsteinsson kepptu til úrslita í tveggja brauta keppninni. Hér sést hvar Vilhelm,
t.h., fer meö andlitið í stöngina og tapar á því tíma. Mynd: kl