Dagur - 18.04.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 18. aþríl 1990
íþróttir
Boltinn hélt áfram að rúlla í
Englandi á annan í páskum,
sex leikir fóru fram í 1. deild
en toppliðin léku ekki og því
höfðu þessir leikir ekki afger-
andi áhrif. En nú í vikunni
verða efstu liðin í eldlínunni,
Aston Villa leikur á Old Traf-
ford gegn Man. Utd. og
Liverpool mætir Arsenal í
London. Það var því 2. deildin
sem stal senunni að þessu
sinni. En lítum þá á leikina.
Toppliðin í 2. deild. Leeds
Utd. og Sheffield Utd. mættust á
Elland Road og var fyrir löngu
uppselt á leikinn.
Eítir að hafa leikið fjóra leiki í
röð án sigurs tókst Leedsurum að
bjarga páskahelginni hjá sér og
fjölmörgum stuðningsmönnum
með stórum sigri gegn Sheffield
Utd.
Taugaspenna hrjáði bæði lið,
sem léku stífa rangstöðutaktík í
fyrri hálfleik. Knattspyrnan í
fyrri hálfleik var ekki fögur. en
Gordon Strachan tókst þó að
skora fyrir Leeds Utd. í síðari
hált'leiknum náði heimaliðið góð-
um tökunt á leiknuin og þeir
Strachan og hinn ungi Gary
Speed áttu mjög góðan leik á
miðjunni.
Gordon Cowans skoraði sigurniark
Aston Villa gegn Chelsea á laugar-
daginn.
Man. Utd. mætir C. Palace
- á Wembley í F.A.-bikarnum
I páskavikunni bar hæst bikar-
leik Man. Utd. gegn Oldliam,
en þau léku þá öðru sinni. I
l.deild fóru fram þrír leikir
sem hafði verið frestað áður og
licil umferð var leikinn í 2.
deild.
Manchester Utd. tókst loks að
bera sigurorð af Oldham eftir
framlerigdan leik og leikur því til
úrslita á Wembley í 11. sinn þar
sem liðið mætir Crystal Palace.
Leikurinn var mjög spennandi,
en eftir markalausan fyrri hálf-
leik náði Brian McClair forystu
fyrir Utd. á ó. mín. þess síðari
eftir sendingu frá Danny Wall-
ace. Þegar 10 mín. voru til leiks-
loka jafnaði Andy Ritehie fyrir
Oldham og því þurfti að fram-
lengja leikinn. Utd. reyndist
sterkara í framlengingunni og
hinn tvítugi varamaður liðsins
Mark Robins skoraði sigurmark-
ið sem kom liðinu á Wembley.
Minnstu munaði þó að Roger
Palrner tækist að jafna fyrir Old-
ham undir lokin, en af því varð
ekki og Oldham verður því að
láta úrslitaleikinn gegn Notthing-
ham For. í Deildabikarnum
nægja að þessu sinni.
Liverpool vann góðan sigur.
4:0 á útivelli gegn Charlton og
virðist staðráðið í að sigra í I.
deildinni. Hetja liðsins var
Ronnie Rosenthal sem er í láni
frá Standard Liege er vill fá
£500.000 fyrir kappann. Hann
skoraði þrjú af mörkum Liver-
pool í leiknunt og John Barnes
það fjórða.
Aston Villa heldur enn í við
Liverpool eftir sigur á útivelli
gegn Arsenal. Eina mark leiksins
skoraði bakvörðurinn Chris Price
er aðeins 4 mín. voru til leiks-
loka, hans fyrsta mark fyrir Villa.
Heiðurinn af markinu átti þó
Tony Cascarino sem hélt boltan-
unt eftir baráttu við þrjá varnar-
menn Arsenal og renndi síðan á
Price sem kom aðvífandi og skor-
aði nreð góðu skoti. Nigel Spink
lék mjög vel í marki Villa og
varði tvívegis vel frá Kevin
Campbell og einnig frá Alan
Smith.
Þá nældi Manchester City sér í
þrjú mikilvæg stig í fallbaráttunni
velli.
í 2. deild skoraði Lee Chap-
man fyrir Leeds Utd. í 1:1 jafn-
tefli gegn Plymouth, en baráttan
á toppnum er orðin hörð því
bæði Sheffield Utd. og Newcastle
sigruðu. Þ.L.A.
með 3:1 sigri gegn Q.P.R. á úti-
Brian McClair og félagar hjá Man. Utd. leika til úrslita í bikarnum á Wem-
bley. McClair skoraði fyrra inark liðsins gegn Oldham.
sem framkvæmdastjóra um pásk-
ana og fær hann það verkefni að
koma liðinu aftur upp í 1. deild.
Bob Pearson sem hefur stjórnað
Millwall síðustu vikurnar tekur
að nýju við sínu fyrra starfi sem
„spæjari" hjá félaginu.
• Nottingham For. án Þorvaldar
Örlygssonar jók enn á vandræði
Luton með 3-0 sigri heima,
mörkin skoruðu þeir Franz Carr,
Gary Parker og Nigel Clough.
• Everton sigraði Derby á
heimavclli 2-1 meö mörkum Kay-
mond Atteveld og Kevin Sheedy
en eina mark Derby skoraði
Mark Wright.
• Chelsea vann öruggan sigur
gegn bikarúrslitaliði Crystal Pal-
ace 3-0 með mörkum Kerry
Dixon, Kevin Wilson og Graham
Stuart.
• Manchester City er nú úr allri
hættu eftir góðan sigur á útivelli
gegn Norwich. eina mark leiksins
fyrir City skoraði Adrian Heath.
• Þá gerðu Coventry og Q.P.R.
1-1 jafntefli þar sem David Smith
kom Coventry yfir á 9. mín., en
Danny Maddix jafnaði fyrir
Q.P.R. á síðustu ntín. fyrri hálf-
leiks.
Þ.L.A.
Þegar 20 mín. voru til leiksloka
munaði minnstu að John Gannon
sem kontið hafði inná sem vara-
maður tækist að jafna úr dauða-
færi fyrir Sheffield Utd. En 3
mín. síðar lagði Speed upp mark
fyrir Lee Chapman, hans 11.
mark í 16 leikjum fyrir Leeds
Utd. Fyrirliðinn Gordon Strach-
an skoraði síðan sitt annað mark.
nú úr vítaspyrnu og á síðustu
mín. leiksins skoraði Speed
fjórða og, síðasta mark Leeds
Utd. eftir að hafa einleikið frá
eigin vallarhelmingi gegnum vörn
Sheffield Utd.
Leeds Utd. hefur því þriggja
stiga forskot í efsta sæti, en enn
eru fjórar urriferðir eftir í deild-
inni þar sem hverju liði standa 12
stig til boða og allt getur því
gerst. Sheffield Utd. féll niður í
þriðja sæti, með söntu stigatöílu
og Newcastle, en óhagstæðara
markahlutfall. Newcastle heldur
sínu striki, er komið í annað sæt-
ið eftir 3-0 sigur heima gegn
Stoke City sem þeir sendu niöur í
3. deild í leiðinni. Það kæmi víst
engunt á óvart þó Newcastlc
stæöi uppi sem sigurvegari í
2. deild í vor. Þar sem Swindon
og Oldham sem á leiki til góða
töpuðu lcikjum sínum virðist sent
baráttan um tvö efstu sætin sem
gcfa sjálfkrafa rétt til að leika í
1. deild að ári standi nú aðeins
milli Leeds Utd., Newcastle og
Sheffield Utd.
1. deild
• Tottenham vann sinn fimmta
sigur í röð, nú á útivelli gegn
Millwall og hefði sennilega betur
sett Guðna Bergsson fyrr í liðið.
Gary Lineker skoraði eina rnark
leiksins fyrir Tpttenham og er nú
markhæstur í 1. deild með 25
mörk. Millwall réð Bruce Rioch
Newcastle er nú líklegt til að sigra í 2. deild og á markavélinni Mick Quinn
mikið að þakka.
Staðan
1. deild
Liverpool 33 19- 9- 5 64:33 66
Aston Villa 34 20- 5- 9 50:30 65
Everton 35 17- 7-11 53:40 58
Tottenham 35 17- 6-12 55:44 57
Arsenal 33 16- 6-11 47:32 54
Chelsea 35 14-12- 9 52:44 54
Soulhampton 34 13-10-11 64:59 49
Nott. Forest. 35 13- 9-13 48:45 48
Norwich 35 12-12-11 37:37 48
Coventrv 35 14- 6-15 38:49 48
QPR 35 12-11-12 41:39 47
Wimbledon 32 10-14- 8 41:36 44
Man. City 35 11-11-13 40:49 44
Derby 34 12- 7-16 40:34 43
Man. Utd. 33 11- 8-14 42:41 41
Crvstal Palact 3411- 8-1537:6341
Sheff. Wed. 35 10-10-15 33:46 40
Luton 35 7-13-15 37:55 34
Charlton 34 7- 9-18 29:50 30
Millwall 35 5-11-19 38:59 26
2 deild
Leeds Utd. 42 22-12- 8 73:47 78
Ncwcastle 42 21-12- 9 76:49 75
ShelT. Utd. 42 21-12- 9 67:53 75
Biackburn 42 18-15- 9 71:55 69
Swindon 42 19-11-12 75:56 68
Sunderland 42 18-13-11 57:66 67
West Ham 41 17-12-12 70:51 63
Wolves 42 17-12-13 64-54 63
Oldhain 39 16-12-11 57:48 60
Ipswich 40 16-12-12 56:56 60
I’ort Vale 42 15-14-13 59:52 59
Oxford 42 15- 8-19 56:59 53
Portsmouth 42 13-14-15 55:60 53
Leicester 41 13-14-14 58:66 53
Watford 41 13-12-16 51:54 51
VV.B.A. 43 12-14-17 63:64 50
Brighton 42 14- 7-21 51:65 49
Hull 41 11-15-15 47:55 48
Middlesbr. 41 12-11-18 45:56 46
Plymouth 41 12-10-19 51:59 46
Barnsley 40 11-13-16 41:63 46
Bournemouth 42 11-12-19 52:68 45
Bradford 42 8-13-21 40:63 37
Stoke 42 5-17-20 29:59 32
Leeds-sigur
í toppslagnum
- Newcastle komið í 2. sætið í 2. deild