Dagur - 18.04.1990, Side 16
fi
Kodak
Express
Gæóaframkollun
Akureyri, miðvikudagur 18. apríl 1990
Krossanesverksmiðjan:
Ingi Bjömsson ráðinn
framkvæmdastjóri
★ Tryggðu f ilmunni þinni
JSesta ^PeóíSmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Ingi Björnsson, tjármálastjóri
Álafoss hf., hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Krossanes-
verksmiðjunnar á Akureyri í
stað Geirs Zoéga, sem látið
hefur af störfum. Páll Sigurðs-
son vélaverkfræðingur hefur
Lögreglan:
Páskahelgin
meðbetramóti
Páskahelgin var með
rólegra móti hjá lögreglunni
á Akureyri að þessu sinni.
Þrátt fyrir mikinn fjölda
aðkomumanna, var ölvun í
bænum ekki meiri en búast
mátti við, en samtals níu
manns fengu þó að gista
fangageymslur lögreglunnar.
Að sögn Ingimars Skjóldals
varðstjóra á Akureyri var
helgin í heild betri en verið
hefur um páska. Minna var
um ölvun og lítið um illindi í
hcimahúsum. Mikil umferð
var í Hlíðarfiall og má segja
að þar hafi snjórinn bjargað
málum, því hægt var að leggja
bifreiðum í snjóskafla með-
fram vegum en bílastæðin við
Skíðastaði hefðu undir venju-
legum kringumstæðum ekki
nægt fyrir þann fjölda sem
Fjallið sótti.
Sömu sögu er að segja frá
nágrannabyggðalögunum. Á
Dalvík voru engin óhöpp til-
kynnt til lögreglu og sömu
sögu er að segja frá Ólafsfirði.
Á Siglufirði var páskahelgin
sömuleiðis friðsæl þó þar séu
menn heldur orðnir langeygir
eftir sumrinu, en þar snjóaði
hvern dag um páskana. VG
Skagaíjörður:
Hrútamálinu
lokið
- hrútarnir aílífaðir
af dýralækni
Strandahrútarnir í Birgis-
skarði í Lýtingsstaðahreppi
voru allífaðir síðastliðinn
miðvikudag. Héraðsdýra-
læknirinn í Skagafirði Einar
Otti Guðmundsson sá um
aflífunina. Lögreglan á
Sauðárkróki fylgdi dýra-
lækni fram í Birgisskarð.
Dýralæknir mun væntanlega
rannsaka sýni úr hrútunum og
kanna hvort þeir hafi verið
haldnir einhverjum sjúkdóm-
um. Sem kunnugt er flutti
Leifur Hreggviðsson bóndi í
Birgisskarði hrútana yfir varn-
arlínur sauðfjárveikivarna án
þess að hafa til þess tilskilin
leyfi.
Mögum þykir aflífun hrút-
anna gagnslítil nú þegar þeir
eru búnir að ganga með öðru
fé í Birgisskarði í vetur. Ekki
náðist í héraðsdýralækni
vegna málsins. kg
verið ráðinn til þess að stjórna
uppbyggingu verksmiðjunnar.
Hann hefur þegar hafíð störf
og mun starfa hjá fyrirtækinu
fram á haust.
„Pað má segja að uppbygging-
in sé byrjuð að því leyti að undir-
búningsvinna er hafin. Það verö-
ur gengið frá því í lok þessarar
viku hvaða vélar og tæki verða
keypt í verksmiðjuna. Þá fara
fulltrúar fyrirtækisins til Dan-
merkur og Noregs til að ganga frá
þeim málum," sagði Sigfús Jóns-
son bæjarstjóri á Akureyri í sam-
tali við Dag.
Ekki er Ijóst í dag hvenær
starfsemi getur hafist í verk-
smiðjunni á ný en að sögn Sigfús-
ar er það m.a. háð því hvenær
erlendu vélaframleiðendurnir
geta afhent sínar vélar.
Verksmiðjustjóri verksmiðj-
unnar hefur ekki enn verið ráð-
inn en Freysteinn Bjarnason
verksmiðjustjóri Síldarvinnslun-
ar á Neskaupstað hefur verið
orðaður við starfið. -KK
*' ' ^ -J-** f. 5
' - ■ ■■
■" ; ; —— .■>.■■■
:• V ,-i*.'** 7 ''• ; > ,. ,v S" ;
Hríseyingar og Grímseyingar, ásamt gestum, fögnuðu síðastliðinn laugardag komu nýrrar ferju sem verður í sigling-
um milli lands og eyja. Laust fyrir hádegi var móttökuathöfn í Hrísey þar sem sóknarprcsturinn, sr. Hulda Hrönn
Helgadóttir, gaf fcrjunni nafnið Sæfari. Síðdegis á laugardag fór Sæfari til Grímseyjar þar sem Grímseyingum gafst
kostur á að skoða skipið. Aðfaranótt sunnudags sigldi Sæfari til Akureyrar og liggur mi við Torfunefsbryggju. Á
morgun fer skipið aftur til Hríseyjar og fer í sína fyrstu áætlunarferð tií Grímseyjar á föstudag. Mynd: kk
Riðuveiki á Austurlandi:
Fjárskipti ifkleg meö niðurskurði á 55 búum
Fjárskipti á svæðinu milli
Jölulsár á Dal og Lagarfljóts
eru mjög til umræðu á Austur-
landi og eru líkur á að af þeim
verði, að sögn Þorsteins Krist-
jánssonar, ráðunauts hjá
Búnðarsambandi Austurlands.
Vilyrði fyrir fjármagni vegna
niðurskurðar hefur fengist frá
því opinbera, ef samstaða
næst. Síðastliöinn laugardag
voru haldnir tveir fundir með
bændum, og inun mikill meiri-
hluti þeirra samþykkur fjár-
skiptunum.
Á fundi með bændum á Jökul-
dal, austan ár. i Tunguhreppi og
Fellahreppi var samþykkt sam-
hljóða að stefnt skyldi að fjár-
skiptum, en á fundi með bændum
á Fljótsdal var meirihluti sani-
þykkur að stefnt skyldi að fjár-
skiptunum.
Ljóst er að skera þarf niður
nærri fjórtán hundruö fjár, frá
fjórum búum, vegna nýlegra
riðuveikitilfella. Undanfarin
fjögur ár hefur 8.800 fjár verið
fargað á svæðinu vegna riðuveiki
á 32 búum, og að loknum nauð-
synlegum niðurskurði nú yrðu
eftir um 12 þúsund fjár á svæð-
Dalvík:
Undirmenn á Baidri sögðu upp
- ástæðan er óvissa um áframhaldandi útgerð skipsins
Togarinn Baldur kom til Dal-
víkur í gærmorgun úr veiöi-
ferð, sem að líkindum verður
sú síðasta, að minnsta kosti í
bili. Undirmenn á skipinu sam-
þykktu í fyrrinótt að hætta
störfum vegna þeirrar óvissu
sem verið hefur uin frekari
útgerð skipsins. Samkvæmt
samningum geta þeir sagt upp
nánast fyrirvaralaust en yfír-
menn hafa hins vegar þriggja
mánaða uppsagnarfrest.
Baldur hefur aðcins haffærnis-
skírteini fram í júnímánuð en þá
þarf að ráðast í uppgerð á vél eða
vélarskipti. Sem kunnugt er fær-
ist kvóti Baldurs yfir á togara
Útgerðarfélags Dalvíkinga í
tengslum við kaup KEA á hlut
Dalvíkurbæjar í ÚD. Þormóður
rammi hf. á Siglufirði hafði gert
tilboð um að leigja skipið og láta
það hafa kvóta en Ijóst var þó að
þessar veiðar gætu ekki orðið
lengur en fram í júnímánuð af
fyrrgreindum orsökum. Fleiri
aðilar hafæsýnt áhuga á leigu eða
kaupum á skipinu.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins verður ekki breyting á
Útgerðarfélagi Dalvíkinga sem
slíku við kaup KEA á hlut bæjar-
ins. Togararnir Björgvin og
Björgúlfur verða áfram gerðir út
undir fána félagsins.
Baldur hefur aðeins farið í
fjórar veiðiferðir á þessu ári og á
því mikið eftir af kvóta. Sá kvóti
sem færist af skipinu yfir á
Björgvin og Björgúlf er um 1000
tonn í þorskígildum.
Breyting hefur ekki verið gerð
á stjórn Utgerðarfélags Dalvík-
inga og verður væntanlega ekki
gerð fyrr en að afloknnm aðal-
fundi félagsins. JÓH
Söltunarfélag Dalvíkur hf.:
Tveir aðilar hafa for-
kaupsrétt á hlut KEA
Samningur um kaup Samherja
hf. á Akureyri á hlut KEA í
Söltunarfélagi Dalvíkur hf.
hefur ekki verið tekinn fyrir á
fundi í stjórn fyrirtækisins en
Dalvíkurbær hefur fyrir sitt
leyti afsalað sér forkaupsrétti
að sölu KEA til Samherja. Að
líkindum mun stjórnin boða til
hluthafafundar í félaginu en
hluthafar eru fjórir.
Tveir aðrir aðilar eiga hlut í
Söltunarfélaginu og hafa, sam-
kvæmt samþykktum félagsins,
forkaupsrétt á bréfunum en hafa
ekki tilkynnt hvort þeir hafna
forkaupsrétti. Hlutur þessara
aðila í félaginu nemur samtals
innan við 0,5%.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er ekki ákveðið hvenær boðað
verður til stjórnarfundar í Sölt-
unarfélagi Dalvíkur þar sem fjall-
að verður um kaupsamning KEA
og Samherja á 64% í félaginu.
JÓH
inu. Munu menn mjög hræddir
um að í þeim hjörðum cigi eftir
að koma upp ný tilfelli og að fjár-
skipti nú þegar séu eina leiðin til
að binda endi á veikina.
Alls er um að ræða niðurskurð
á 55 búum og mun heildarkostn-
aður hins opinbera vegna hans
nema 206 milljónum króna, auk
kostnaðar bændanna sjálfra með-
an á uppeldi nýs fjárstofns
stendur. Þessar 206 milljónir etu
þó ekki hreinn aukakostnaður
fyrir ríkið, því útfluningsbætur
sparast meðan kjöt er ekki fram-
leitt á svæðinu.
Austfirðingar hafa fordaémi
fyrir slíkum fjárskiptum því
haustið ’88 var ákveðið að allt fé
austan Lagarfljóts yrði skorið
niður, og að sögn Þorsteins eru
bændur þar sáttir við fjárskiptin
nú orðið.
Ýmsar ástæður munu vera fyrir
tregðu sumra Fljótsdælinga til
fjárskiptanna. Yngri bændur eru
fremur fylgjandi fjárskiptunum,
enda eiga þeir meira í húfi í fram-
tíðinni að sögn Þorsteins.
Hræðsla mun vera um að ein-
hverjar jarðir fari í eyði í fram-
haldi af niðurskurði fjárins, en
fjallskil eru erfið á Fljótsdal
vegna víðáttumikilla afrétta.
Margir bændur munu að sjálf-
sögðu sjá eftir sínum fjárstofni.
Á Fljótsdal eru einnig talsvert
mörg gömul fjárhús, sum að
hluta til úr torfi, og eru bændur
hræddir við að erfitt reynist að
hreinsa þau.
Mjög brýnt er að niðurstaða
fáist hið fyrsta varðandi fjárskipt-
in, að sögn Þorsteins. Ef af þeim
verður má bíða með niðurskurð
til haustins, en ef ekki, þarf að
skera niður hjarðirnar sem sýk-
ing hefur fundist í fyrir sauðburð-
inn, en slíkt er alltaf mjög hastar-
leg aðgerð. IM