Dagur - 24.04.1990, Side 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 24. apríl 1990
Stórkostlegar endurbætur á Vöruhúsi KEA
- verslunin er bjartari og rúmbetri en áður og vöruúrval mun aukast
- meira höfðað til yngra fólks en áður
Vöruhús Kaupfélags Eyfirð-
inga í Hafnarstræti á Akureyri
hefur tekiö miklum stakka-
skiptum undanfarna tvo mán-
uði. Páll Þór Armann, nýr
vöruhússtjóri, tók til starfa í
lok janúarmánaðar, og tók
hann þegar að endurskipu-
leggja deildir verslunarinnar.
Vöruhúsið hefur smám saman
Herradeild. Herradcildin er á sama stað og áður, en hún var sameinuð sport-
og leikfangadeild. Hér verður áherslubreyting í vöruvali, því meira verður
lagt upp úr vöru fyriryngra fólk. Þetla gildir cinnig uin kvenfatnaðinn. Mörg
góð vörumerki eru og verða áfram í boði, t.d. hinar þekktu Mclka vörur,
auk þess verða ný vörumerki fyrir yngra fólk kynnt nú og fyrir haustið.
Búsáhaldadeild, járn og glervörur. Mikil endurskipulagning og uppstokkun
hefur átt sér stað í þessum vöruflokkum. Húsnæðið er lijartara og skcmmti-
legra, heimilistækin verða mcira út al' fyrir sig en áður og blandast ekki eins
mikið við aðra þætti þessara dcildar. Innréttingar eru allar nýjar og vöruin
koinið miklu betur á framfæri en áður var. VörulTokkar breytast, meiri
áhersla verður lögð á nytsamlegar vörur til hcimilisnota og búsáhöld.
Einingarfélagar
athugið
Utleiga orlofshúsa félagsins sumariö 1990
Sækja þarf skriflega um á þar til gerðum .eyðublöð-
um, sem eru fáanleg hjá trúnaðarmönnum félagsins
og einnig á skrifstofum þess:
Á Akureyri, Skipagötu 14, sími 23503.
Á Dalvík, Ráðhúsinu, sími 61340.
Á Ólafsfirði, Ránargötu 1, sími 62318.
í Hrísey, hjá Matthildi Sigurjónsdóttur Hólabraut 21,
sími 61757.
Á Grenivík, hjá Ólöfu Guðmundsdóttur Hvammi,
sími 33204.
Umsóknarfrestur er til kl. 17.00 4. maí 1990 og
ber að skila umsókn til skrifstofa félagsins.
Þau orlofshús sem í boði eru, eru á eftirtöldum
stöðum:
lllugastöðum, Fnjóskadal, Ölfusborgum við Hvera-
gerði, Vatnsfirði, Barðaströnd, íbúð í Reykjavík,
íbúð að Síoru-Laugum, Reykjadal, S-Þing.
Eitt orlofshúsið á lllugastöðum er ætlað fyrir fatlaða.
Áætluð vikuleiga í orlofshúsi er kr. 7.000.- en kr.
8.000,- í íbúðinni í Reykjavík.
Gleðilegt sumar.
Orlofsnefnd Einingar.
Slys gera ekki =£#>
boð á undan sér! gsás8
yUMFERÐAR
RÁÐ
fengiö nýtt og fersklegra yfir-
bragö, en breytingar á vörvali í
svo stórri verslun taka sinn
tíma og er enn meiri breytinga
að vænta á því sviði seinna á
árinu.
Páll segir að rekstrarhagræðing
á Vöruhúsinu hafi gert að verk-
um að deildum þar hafi verið
fækkað úr sex í þrjár. Steingrím-
ur Björnsson veitir forstöðu
heimils-, búsáhalda- og hljóm-
deild, Páll Siguróarson stjórnar
herradeild, sportvörudeild og
leikfangadeild, en Halla Einars-
dóttir sér um vefnaðarvörudcild-
ina og skódeild.
Breytingar á húsnæöi og inn-
réttingum Vöruhússins hófust um
miðjan febrúar, og er stærstum
hluta þeirra lokið, þ.e. þeirra
breytinga sem viðskiptavinir sjá.
Mikil vinna hefur einnig vcrið
unnin „á bakvið," á lager og ööru
rými verslunarinnar. Nokkrum
minniháttar verkefnum er ennþá
ólokið, og er búist við að þeim
Ijúki á næstunni.
Markmiðið með breytingunum
er að gera verslunina léttari,
bjartari og aðgengilegri fyrir við-
skiptavini. Andlitslyftingin gefur
tækifæri til að brcyta áherslum í
vöruvali og rekstri. Þær breyting-
ar sem ráðist hefur verið í eru
áfangi á þeirri leiö sem mörkuð
hefur veriö í rekstri Vöruhúss
KEA.
Markmið Vöruhússins er að ná
í auknum mæli til yngra fólks, og
vöruvaliö hefur verið endurskoö-
að með það fyrir augum. Breyt-
ingunum hefur verið afar vel
tekið, bæði af starfsfólki og ekki
síst viðskiptavinum, og hefur
þegar borið á meira gegnum-
streymi og söluaukningu í Vöru-
húsinu.
Blaðamaður gekk meö Páli
Þór Ármann unt Vöruhúsið, og
spurði um markmið, áherslur og
rekstrarþætti. Á gönguferðinni
um húsið kom í l jós að fljótlega
geta viðskiptavinir farið innan-
húss alla leið frá hljómdeildinni
norður í „garnla" Vöruhúsið, því
innangengt verður milli þriggja
bygginga sem áður voru aðskild-
ar. Þetta stórbætir alla aðstöðu
og breytir versluninni miklu
meira en maður gæti að óreyndu
trúað.
Leikfangadeild. Þessi deild hefur verið flutt á 2. hæð, og gefur það betra
pláss og móguleika. Úrval lcikfanga verður aukið og meiri áhersla lögð á þau
í framtíðinni. Auk þcss verður sportvörudcildin efld, cn hún hefur einnig
verið flutt á 2. hæð. Mymtir: EHB
Vefnaðarvörudeild. Deildin hefur verið ITutt uin set og er á neðri hæð Vöru-
hússins. Hér er seldur döinufatnaöur, nærfatnaður kvenna, álnavara, vörur
til sauma og snyrtivörur. Hér heftir orðið mikil breyting, og lögð verður
meiri áhersla á föt fyrir yngra fólk. Auk þess er stefnt að auknu úrvali af ung-
harna- og harnafatnaði.
Snyrtivörur. Sala snyrtivara fer fram rétt við inngöngudyr Vöruhússins frá
Göngugötunni. Víðast hvar erlendis eru snyrtivörudeildir nálægt inngöngu-
dyrum stórmarkaða, og þessi erlcnda fyrirmynd hcfur verið tekin upp í
Vöruhúsi KEA og gefið góða rauii.
Hljomdeild. Þetta er fyrsta deild Vöruhússins sem gerhreytt var og flutt á nýjan stað. Sala í hljómplötuni, tækjum
og öðrum vörum þeim tengdum hefur tekið mikinn kipp eftir breytingarnar,’og virðist þetta lofa góðu. Markmiðið
er að vera með góð vörumerki í hljómtækjum og sjónvörpum og bjóða upp á mtin fieiri geröir innan hvers vöru-
mcrkis en áður tíðkaöist. Þannig verður úrvalið í raun stóraukið. Síðast en ekki síst er kappkostaö að bjóða upp á
nýjustu plöturnar og vinsælasta efnið á hverjum tíma.