Dagur - 24.04.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 24. apríl 1990
íþróttir
Iiverpool nálgast enn markið
Þegar leikjum laugardagsins
lauk eru aðeins eftir tvær
umferðir í 1. deild og enn er
því ósvarað hvaða lið verður
Englandsmeistari. Liverpool
hefur þó öll tromp á hendi, lið-
ið hefur tveggja stiga forskot á
Aston Villa og á inni leik á
heimavelli gegn Derby. Þá er
einnig eftir að útkljá hvaða lið
fylgir Millwall og Charlton nið-
ur í 2. deild, baráttan stendur
milli Luton og ShelTield Wed.
En lítum á leiki laugardagsins.
Liverpool steig skrefið nær
meistaratitli með öruggum 4:1
sigri: Liverpool hafði ávallt
undirtökin og haföi 2:0 yfir í hálf-
leik. Ronnie Rosenthal skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Liver-
pool á 24. rnín. er hann fékk bolt-
an inn í teig eftir innkast Gary
Gillespie og skoraði með góðu
skoti. Hann var síðan nærri því
að bæta við öðru marki skömmu
síðar, en skaut rétt framhjá.
Steve Nicol bætti við öðru marki
Liverpool með skalla eftir að
John Barnes hafði leikiö upp
vinstri kant og sent fyrir markið.
Liverpool hafði ávallt undirtökin
og þegar 11 mín. voru til lciks-
loka bætti Nicol þriðja marki
Liverpool við eftir góða sendingu
frá Ian Rush, en Dave Beasant í
marki Chelsea var þó nærri að
verja. Ian Rush bætti síðan
fjórða markinu við fyrir Livcr-
pool 4 mín. síðar með skalla eftir
undirbúning Barnes og Rosenthal.
Kerry Dixon besti maður Chelsea
lagaði síðan stöðuna fyrir lið sitt
á síðustu mín. nreð glæsilegu
marki eftir að hafa leikið Alan
Hansen miðvörð Liverpool grátt,
en öruggur sigur Liverpool í
höfn.
Aston Villa á enn nröguleika
eftir aö hafa sigrað fallið Millwall
á heimavelli I:(). Það var erfitt að
sjá hvort liðið væri fallið og hvort
- Aston Villa þó enn með - Luton heldur í vonina
Urslit
1. deild
Aston Villa-Millwall 1:0
Crystal Palace-Charlton 2:0
Derby-Norwich 0:2
Liverpool-Chelsea 4:1
Luton-Arsenal 2:0
Manchestcr City-Everton 1:0
Q.P.R.-ShelTieíd Wed. 1:0
Southampton-Nott. For. 2:0
Tottenham-Manchester Utd. 2:1
Wimbledon-Coventry 0:0
2. dcild
Barnsley-Bournemouth 0:1
Bradford-Watford 2:1
Brighton-Leeds Utd. 2:2
Ipswich-Hull City 0:1
Leicester-Middlesbrough 2:1
Oldham-West Ham 3:0
Plymouth-Newcastle 1:1
Sheffield Utd.-Port Vale 2:1
Stoke City-Blackliurn 0:1
Sunderland-Portsinouth 2:2
Swindon-W.B.A. 2:1
W'olves-Oxford 2:0
Úrslit í vikunni
1. deild
Charlton-Wimblcdon 1:2
Manchester LJtd.-Aston Villa 2:0
Arsenal-Liverpool 1:1
2. deild
Boumemouth-Leicester 2:3
Watford-Bamsley 2:2
West Ham-Ipswich 2:0
Plymouth-Oldham 2:0
Er John Burnes á förum frá Liver-
pool til Real Madrid fyrir 5 milliónir
punda?
væri í baráttu urn titilinn. Leik-
menn Millwall böröust af krafti
fyrir Bruce Rioch hinn nýja fram-
kvæmdastjóra sinn og áttu í fullu
tré viö leikmenn Viila. Eina
mark leiksins ksoraði David Platt
með skalla fyrir Villa í síðari
hálfleik eftir að Kent Niclscn
hafði skallaö til hans knöttinn.
Platt og Tony Daley höfðu áður
fengið færi fyrir Villa, en Keith
Branagan í marki Millwall var vel
á verði. Eftir þessa frammistöðu
Villa er erfitt að sjá hvernig lið-
inu á að takast að bera sigurorð
af Liverpool í baráttunni um titil-
inn.
Luton ætlar ekki að falla
baráttulaust í 2. deild. liðið sigr-
aði Arsenal á heimavelli sínum
2:0 og á enn möguleika á að
halda sæti sínu í I. deild. í fyrti
hálfleik lék Luton fallega en ekki
árangursríka knattspyrnu og svo
virðist sem Arsenal væri að taka
leikinn í sínar hendur. En rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks mistókst
Nigel Winterburn að hreinsa frá
marki Arsenal og Ian Dowie
nýtti sér það og skoraði fyrir
Luton. Luton hafði undirtökin í
síðari hálfleik og bætti st'ðara
marki sínu við eftir 11 mín., Tim
Breacker lék þá á Tony Adams
miðvörö Arsenal og Kinsley
Black sendi fyrirgjöf hans í mark
Arsenal. Alec Chamberlain í
marki Luton varði tvívegis glæsi-
lega frá Alan Smith undir lokin
og bjargaði stigunum fyrir lið sitt.
Sheffield Wed. er nú komið í
fallhættu, liðið tapaði úti gegn
Q.P.R. þrátt fyrir að hafa mikla
yfirburði í leiknum. Sigurmark
Q.P.R. kom strax á 15. mín. er
varnarmenn Sheffield sváfu á
verðinum og Colin Clarke hefði
haft nægan tíma til að árita bolt-
ann áður en hann sendi hann í
netið. Eftir það sótti Sheffield-
liðið án afláts, Trevor Francis átti
mjög góðan leik gegn liðinu sem
rak hann sem framkvæmdastjóra
fyrr í vetur og John Sheridan
stjórnaði leiknum af miðjunni.
Ekki tókst liðinu þó að nýta yfir-
burði sína til að skora, vörn
Q.P.R. barðist vel, en David
Hirst hefði getað skorað þrennu
fyrir Sheffield og Peter Shirtliff
átti skot í slá fyrir Sheffield á síð-
ustu mín. leiksins.
Tottenham og Man. Utd. hafa
leikið vel að undanförnu og
gerðu það einnig á laugardag.
Tottenham hafði undirtökin í
fyrri hálfleik, mest fyrir stórleik
Paul Gascoigne, en Utd. hafði
betur í síðari hálfleiknum.
Gascóigne skoraði fyrir Totten-
ham á 20. mín. af stuttu færi eftir
að Gary Lineker hafði skallað til
hans sendingu Paul Stewart.
Lineker bætti öðru við fyrir hlé
eftir undirbúning Stewart og Paul
Allen, renndi boltanum innanfót-
ar af stuttu færi framhjá Jim
Leighton í marki Utd. Gestirnir
Steve Nicol skoraöi 2 af mörkuin
Liverpool gegn Chelsea og liðið
nálgast nú meistaratitilinn óðfluga.
sóttu mjög í síðari hálfleik og
náðu að minnka muninn með
marki Steve Bruce úr vítaspyrnu
sem dæmd var á Guðna Bergsson
fyrir að handleika sendingu Mark
Hughes. Leighton varði síðan í
lokin mjög vel aukaspyrnu frá
Gascoigne.
Charlton féll í 2. deild fyrr í
vikunni og tapaði nú gegn Crystal
Palace á Selhurst Park, en það er
heimavöilur beggja liða. Palace
hafði yfirburði í leiknum og lið
Charlton alveg áhugalaust. Eftir
markalausan fyrri hálfleik náði
Gary Thompson forystu fyrir
Palace, en hann getur ekki leikiö
með liðinu í úrslitum bikarsins
þar sem hann hafði leikið í sömu
keppni með Watford fyrr í vetur.
15 mín. fyrir leikslok bætti Palace
síðara marki sínu við, Andy
Gray sendi vel fyrir á Mark
Bright og skalli hans lenti í John
Humphries varnarmanni Charlton
og framhjá Bob Bolder í marki
Charlton. Palace getur því ein-
beitt sér að úrslitaleiknum gegn
Man. Utd. óhrætt við fallbaráttu.
Southampton lék sér að Nott-
ingham For. og leikmenn For.
virtust hafa allan hugann við úr-
slitaleik Deildabikarsins um
Óbærlleg spenna í 2. deild
Leeds Utd., Sheffield Utd. og Newcastle
Spennan á toppi 2. deildar er
að verða óbærileg, þrjár um-
ferðir enn eftir og þrjú lið eiga
góða möguleika á sætunum
tveimur sem gefa rétt til þátt-
töku í 1. deild. Þá er einnig
hart barist um sætin fjögur sem
gefa rétt til aukakeppni, en sig-
urvegarinn úr þeirri keppni
kemst einnig í 1. deild að ári.
• Leeds Utd. helur nú eins stigs
forskot í efsta sæti eftir jafntefli
2:2 á útivelli gcgn Brighton.
Leikurinn var ekki vel leikinn þó
Gordon Strachan hjá Leeds Utd.
og Rússinn Zerge Godsmanof
hjá Brighton sýndu góða spretti.
Gary Specd náði snemrna forystu
fyrir Leeds Utd. er hann skallaði
inn sendingu frá Vinnie Jones, en
Godsmanof jafnaði fyrir hlé. Ian
Chapman varð síðan fyrir því að
skora sjállsmark hjá Brighton og
það var ekki fyrr en 3 mín. fyrir
leikslok að John Crumplin jafn-
aði fyrir Brighton, cn þaö mark
gæti reynst liði Leeds Utd. dýr-
keypt á lokasprettinum.
• Shefficld Utd. komst í annað
sætið með 2:1 sigri heima gegn
Port Vale. Liðið varð þó að hafa
fyrir sigrinum þrátt fyrir að leik-
menn Port Vale kæmust varla út
úr eigin vítateig í leiknum. Brian
Deane skoraði sigurmark Shef-
field eftir að venjulegum leiktíma
var lokið. Darren Beckford náði
forystu fyrir Port Vale á 10. rnín.
síðari hálfleiks úr skyndisókn, en
Ian Bryson jafnaði fyrir Sheffield
er 20 mín. voru til leiksloka.
• Eftir að hafa sigrað sex leiki í
röð tapaði Newcastle loks stigum
er liðið gerði 1:1 jafntefli úti gegn
Plymouth. Tommy Tynan náði
forystu fyrir Plynrouth með
marki úr aukaspyrnu á II. ntín.,
en Mark McGhee jafnaði fyrir
Newcastle 15 mín. síðar. Mark-
verðir liðanna kontu í veg fyrir
fleiri mörk í leiknum.
• Oldham sigraði West Ham
3:0. en bæði þessi lið berjast um
sæti í aukakeppninni. Andy
Ritchie úr vítaspyrnu og tvö
mörk Frankie Bunn færðu Old-
ham sigurinn.
• Trevor Aylott skoraði sigur-
mark Bournemouth gegn Barns-
ley, en bæði þessi lið eru í fall-
hættu.
• Bradford hefur nú annan fót-
inn í 3. deild þrátt fyrir 2:1 sigur
gegn Watford.
• Brian Gayle skoraði mark
HuII City gegn Ipswich.
• David Kely skoraði bæði mörk
Leicester gegn Middlesbrough,
en Bernie Slaven gerði mark
berjast um tvö sæti
Middlesbrough sem er i mikilli
fallhættu. en liðið lék í 1. deild í
fyrra.
• David Mail skoraði sigurmark
Blackburn úr vítaspyrnu gegn
Stokc City og Blackburn stendur
vel í baráttunni um úrslitasæti.
• Sunderland komst í 2:0 með
mörkum Gordon Armstrong
gegn Portsmouth, en varð síðan
að sætta sig við 2:2 jafntefli.
• Steve Foley og Steve White
skoruðu mörk Swindon gegn
W.B.A. sem hafði komist yfir í
leiknum.
• Wolves á enn möguleika eftir
2:0 sígur gegn Oxford þar sem
þeir Keith Downing og Steve
Bull skoruðu mörk Wolves.
• í 3. deild hefur Bristol City
forystu með 87 stig, Bristol
Rovers 81, Tranmere 78 og Notts
County 76 stig.
• Á botninum eru Cardiff City
með 43 stig, Nothampton með 40
og Walsall með 37 stig.
• í 4. deilcl er Exeter efst með 77
stig, Grimsby með 75 Og South-
end með 69 stig.
• Á botninum eru Halifax,
Doncaster, Wrexham og Hartle-
pool með 48 stig og Colchester
rekur iéstina nreð 40 stig og virð-
ist á leið úr deildakeppninni.
Þ.L.A.
næstu helgi gegn Oldham. Hin
slaka frammistaða gæti þó haft
slæmar afleiðingar fyrir ein-
hverja, því Brian Clough hefur
aldrei verið hræddur viö að gera
breytingar á liði sínu og kannske
opnar þetta leið fyrir Þorvald
Örlygsson til Wembley. Rod
Wallace skoraði á 5. mín. er
Jimmy Case sendi gegnum vörn
For., Barry Horne lék á Des
Walker og lagði upp auðvelt færi
fyrir Wallace. Mark Crossley í
marki Forest varði síðan þrívegis
mjög vel, frá Paul Rideout og
tvívegis frá Matthew Le Tissier
og Rideout skaut í stöng áður en
Southampton skoraði síðara
mark sitt. Wallace minnsti mað-
urinn á vellinum skallaði þá inn
hornspyrnu er 15 mín. voru liðn-
ar af síðari hálfleik, en Crossley
hefði átt að handsama boltann.
Norwich sigraði Derby á úti-
velli 2:0, Robert Rosario í fyrri
hálfleik og Ruel Fox í þeim síðari
tryggðu Norwich sigurinn.
Mark Niall Quinn í síðari hálf-
leik nægði Man. City til sigurs
gegn Everton sem hefur verið
ósigrandi að undanförnu.
Wimbledon og Coventry gerðu
markalaust jafntefli á heimavelli
Wimbledon.
• Þær fréttir bárust frá Spáni á
sunnudag að Real Madrid og
Liverpool hefðu komið sér sam-
an um kaupverð á John Barnes.
Samkvæmt því mun hann ganga
til liðs við Real Madrid í júní.
Þar er John Toshack þjálfari, en
hann var citt sinn leikmaður með
Liverpool. Kaupverð mun vera
um 5 milljónir punda. Þ.L.A.
Staðan
1 . deild
Livcrpool 35 20-10- 5 69:35 70
Aston Villa 36 21- 5-10 51:32 68
Tottenham 36 18- 6-12 57:45 60
Everton 36 17- 7-12 53:41 58
Arsenal 35 16- 7-12 48:35 55
Chelsea 36 14-12-10 53:48 54
Southampton 35 14-10-11 66:59 52
Norwich 36 13-12-11 39:37 51
Q.P.R. 36 13-11-12 42:39 50
Coventry 36 14- 7-15 38:49 49
Wimbledon 34 11-15- 8 43:37 48
Nott. Forest 36 13- 9-14 48:47 48
Man. City 36 12-11-13 41:49 47
Man. Utd. 35 12- 8-15 45:43 44
Crystal Palace 35 12- 8-15 39:63 44
Derby 35 12- 7-17 40:36 43
Slieff. Wed. 36 10-10-16 33:47 40
Luton 36 8-13-15 39:55 37
Charlton 36 7- 9-20 30:54 30
Millwall 36 5-11-20 38:60 26
2 . deild
Leeds Utd. 43 22-13- 8 75:49 79
ShefT. Utd. 43 22-12- 9 69:54 78
Newcastie 43 21-13- 9 77:50 76
Blackburn 43 19-15- 9 72:55 72
Swindon 43 20-11-12 77:57 71
Sunderland 43 18-14-11 59:68 68
West Ham 43 18-12-13 72:54 66
Wolves 43 18-12-13 66-54 66
Oldliam 41 17-12-12 60:50 63
Ipswich 42 16-12-14 56:59 60
Porl Vale 43 15-14-14 60:54 59
Leicesler 43 15-14-14 63:69 59
Portsmouth 43 13-15-15 57:62 54
Oxford 43 15- 8-20 56:61 53
Watford 43 13-13-17 54:58 52
Hull 42 12-15-15 48:55 51
W.B.A. 44 12-14-18 64:66 50
Plymouth 43 13-11-19 54:60 50
Brighton 43 14- 8-21 53:67 50
Middlesbr. 42 12-11-19 46:58 46
Bournemoutb 44 12-12-20 55:71 48
Barnslev 42 11-14-17 43:66 47
Bradlórd 43 9-13-21 42:64 40
Stokc 43 5-17-21 29:60 32